Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 5*6 5*6  !! $% $%! 7 7 5*6 &86   $% $!% 7 7 9&:;& <  =   $% $% 7 7 9 6   $!% $!% 7 7 5*6' 5*6(  !  &% $% 7 7          !  " #$% &''( )* + ,+  (& @&A3# 8 .2@&A3# ?B ( 3# +@&A3# @ ( C 3# D#? A #4 !   EF   @&A3# " A0 !8 3# +  C    3# *  3# GH5< (  -8 /  /#C3# > I 3# J 3# . * / 01  3# # F 3# ( ( F : I ( ( FG (&  G  ? 8  ! @&A3# K&I 8 EF   F@&A3# <L3  3# >I!! !  (2 3# M  (2 3# ) ( / 2  N (I   N& D8@  3# D A  3# 314 5 1  %  !%  %  %!! % !%!! %! % % %!! %!! !%!!  !%!! !%!! !% !%!!   %!! % ! !!%!! !%!! %!!                                                         M  A(  ! > C&,&  ! O " A                        - - -  -                         - -  - -                       - - -  -   2 .  A(                       - - -  -  9 ! ( .  .                              EFTIR talsverða hækkun fyrir helgi hefur skuldatryggingarálag bankanna lækkað. Kaupþing er enn langhæst og lækkaði minnst, um 23 punkta niður í 457. Glitnir lækkaði um 40 punkta og er nú í 380, en álag Landsbankans lækkaði um 57 punkta og er það nú 298 punktar. Talan hærri í ljósi aðstæðna Í þessu samhengi ber að nefna að í skýrslu þeirra Frederic Mishkin og Tryggva Þórs Herbertssonar um ástand íslenska fjármálamark- aðarins sem út kom árið 2006 segir að við 500 punkta álag séu nær 100% líkur á fjármálakreppu. Fjár- málakreppa hefur m.a. verið skil- greind sem „meiriháttar truflun á fjármálamarkaði, sem einkennist af skarpri lækkun eignaverðs og gjaldþroti margra fyrirtækja, innan sem utan fjármálageirans.“ Spurður um þetta segir Tryggvi Þór Herbertsson að það hafi átt við á þeim tíma sem skýrslan var gefin út. Nú væru aðstæður hins vegar allt aðrar. „Allur fjármögnunarkostnaður hefur hækkað og áhættufælni auk- ist þannig að þessi tala er orðin mun hærri,“ segir Tryggvi. Hann vill ekki reyna að giska á hver sam- bærileg tala er í dag en segir fjár- málakreppuna þó ekki langt undan fari aðstæður á markaði ekki að batna. Fjármagns leitað víða Nú í byrjun árs hefur Glitnir haf- ið viðræður við fjárfesta víðs vegar að til að kanna jarðveginn fyrir al- þjóðlegt skuldabréfaútboð. Fjögur teymi hafa verið gerð út af örkinni, tvö til Bandaríkjanna, eitt til Asíu og annað til Evrópu. Að sögn Ingvars Ragnarssonar, framkvæmdastjóra fjárstýringar Glitnis, er ferlið þó aðeins á byrj- unarstigi. Viðtökur hafi verið með ágætum en of snemmt sé að segja til um niðurstöður. „Yfirleitt höfum við byrjað árið með því að hitta fjárfesta víðs veg- ar að og síðustu ár hafa hafist með útgáfu,“ segir Ingvar. Fundir með fjárfestum eigi sér þó stað allt árið um kring, til að kynna stöðu bank- ans og fá tilfinningu fyrir mark- aðnum. Álagið hefði áður þýtt fjármálakreppu Í HNOTSKURN »Óvíst er hve mikil áhrifmarkaðssveiflur og hið him- inháa skuldatryggingarálag mun hafa á kjörin til fjármagnana skuldabréfaútboða. »Skuldatryggingarálag NIBC,í eigu Kaupþings, var 590 punktar í gær. Við kaupin í ágúst nam það 1.000 punktum. ● EINKAVÆÐINGARNEFND slóv- ensku ríkisstjórnarinnar hyggst ganga til viðræðna við Skipti um kaup félagsins á meirihluta í Tele- kom Slovenije. Brynjólfur Bjarna- son, forstjóri Skipta, segist hóflega bjartsýnn og væntir þess að niðurstaða liggi fyrir fljótlega. „Frekari dráttur málsins er hins vegar óheppilegur vegna fyrirhug- aðar skráningar Skipta í OMX Kaup- höllina,“ er haft eftir Brynjólfi í til- kynningu frá Skiptum. Til stendur að selja 49,13% hlut í Telekom Slovenije til kjölfestufjár- festis, sem mun þurfa að gera öðr- um hluthöfum yfirtökutilboð, en slóv- enska ríkið mun halda eftir 25% hlut. Slóvenska nefndin hyggst einnig ræða við fjárfestingarsjóðina Bain og Axos Capital sem gerðu sameig- inlegt tilboð. Viðræður um kaup Skipta í Slóveníu Brynjólfur Bjarnason ● BANDARÍSKA fjármálaeftirlitið rannskar nú hvort nokkrir núverandi og fyrrverandi starfsmenn bankans Merrill Lynch hafi brotið reglur um innherjaviðskipti. Wall Street Journal hefur eftir heimildarmönnum sínum að sérstaklega sé leitað eftir tengslum milli fjárfestinga stórra að- ila og miðlara Merrill Lynch, á tíma- bilininu 2002 til 2005. Talið er að starfsmennirnir hafi sjálfir, eða fyrir hönd bankans, fjárfest í félögum sem sjóðurinn Fidelity Investments, hafði lagt fram beiðnir um, áður en óskir viðskiptavinarins hafi verið framkvæmdar. Talsmaður Merrill Lynch svaraði því til að bankinn starfaði alltaf í samræmi við óskir yfirvalda og vildi ekki tjá sig frekar. WSJ segir rannsóknina langt á veg komna, en óvíst sé hvort kæra verði lögð fram. Þá er einnig unnið að rannsókn á mati Merrill Lynch á hús- næðisbréfavafningum. Búist er við tilkynningu frá bankanum í vikunni. Rannsaka innherja- viðskipti Merrill Lynch ● BANDARÍSKA tölvufyrirtækið IBM birti í gær bráðabirgðatölur um af- komu fjórða ársfjórðungs 2007 og reyndust þær mun betri en greiningarað- ilar höfðu reiknað með, og höfðu tíð- indin jákvæð áhrif á fjárfesta á Wall Street þegar viðskipti hófust í gær. Tekjur ársfjórðungsins jukust um 10% og námu 28,9 milljörðum dollara. Hagnaður á hlut nam 2,80 dollurum, borið saman við 2,26 dollara fyrr á árinu. Hagnaður allt árið 2007 jókst um 18% og veltan fór í 98,8 milljarða dollara, jafnvirði um 6.200 milljarða króna. Er það aukning um 8%. Afkoma IBM vel umfram væntingar VÍSITALA neysluverðs hækkaði um 0,28% frá því í desember, sam- kvæmt mælingu Hagstofunnar, og verðbólga á ársgrundvelli er áfram 5,9%. Þetta er mjög nærri spá greiningardeildar Glitnis en heldur meiri hækkun en Landsbankinn og Kaupþing reiknuðu með. Vísitalan er nú 282,6 stig en án húsnæðis er hún 251,1 stig, lækkaði um 0,12% frá desember. Hefði skattalækkun ekki komið til 1. mars í fyrra væri ársverðbólga nú 7,8%. Séu ein- stakir liðir skoðaðir þá lækkaði verð á fatnaði og skóm um 10% milli mánaða, mat- og drykkjarvara hækkaði sem og húsnæðis- og elds- neytiskostnaður. Greiningardeildir spá lækkandi verðbólgu eftir því sem líður á árið, hún verði áfram há á fyrsta ársfjórðungi. Verðbólg- an áfram 5,9% D  O D ! ( &#    % )*      +,   &''' &''(      P '( M C)!     C 7 ,    - $&      .  !!!! !! !! !! !! !! !! !!! '( ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar OMX á Íslandi lækkaði um 1,2% og var lokastaða hennar tæp 5.502 stig. Heildavelta nam 32,8 milljörðum króna, þar af 26,8 með skuldabréf og 5,9 með hlutabréf. Mest viðskipti dagsins voru með bréf Kaupþings, fyrir andvirði 2,9 milljarða króna. Gengi Flögu hrundi um tæp 20%, en Icelandic Group lækkaði um 5,6%. Atlantic Airways var hins vegar eitt afar fárra félaga sem hækkaði í verði, um 0,75%. Þá veiktist krónan um 1,8% í gær og lauk gengisvísitölunni í 124,7 stigum. Velta á gjaldeyrismarkaði nam 33 milljörðum króna. Flaga lækkar um 20% SAMKVÆMT tölum Rannsóknaset- urs verslunarinnar jókst velta í dagvöruverslun um 8,6% í desem- ber sl. miðað við sama mánuð árið 2006. Þetta er ekki langt frá spá rannsóknasetursins um jólaversl- unina, sem hafði reiknað með 7,8% vexti í dagvöruverslun um jólin og 11,9% vexti í sérvöru, eða alls um 9,4% í smásöluverslun. Ekki liggja fyrir tölur úr sérvöruverslun um jólin. Á milli mánaðanna nóvember og desember jókst veltan í dagvörunni um 33,5%. Sé miðað við allt árið 2007 þá jókst dagvöruveltan um 10,4% en rannsóknasetrið bendir á að töluverð verðlækkun hafi orðið á þessum vörum 1. mars vegna lækk- unar á virðisaukaskatti og afnámi vörugjalda. Velta í fataverslun jókst um 92,8% í desember miðað við mánuðinn á undan og velta í skóverslun um 65%. Ekki liggur fyrir samanburður í þessum hluta verslunar þar sem mælingar hófust ekki fyrr en í janúar árið 2007. Á sama tíma varð talsverður sam- dráttur í jólaverslun á Norðurlönd- unum og í Bretlandi. Lífleg verslun um jólin Morgunblaðið/Golli VIÐRÆÐUR eru hafnar milli Landsbankans og Cenkos Securities annars vegar og stjórnenda Close Brothers Group hins vegar um hugsanlegt yfir- tökutilboð að því er segir í tilkynningu frá Lands- bankanum. Gangi viðskiptin eftir hyggst Landsbankinn festa kaup á bankastarfsemi félagsins. Upphaflegt tilboð hljóðaði upp á 950 pens á hvern hlut eða sem svarar til 173 milljarða íslenskra króna en því var hafnað. Í síðustu viku var mögulegt tilboð hækkað í 1.025 pens á hlut. Segir í tilkynningunni að eitt af höfuðmarkmiðum Landsbankans sé að renna fleiri stoðum undir al- þjóðlega starfsemi bankans með því að auka landfræðilega dreifingu lánasafns, fjármögnunar og tekju- myndunar hans. Fjallað var um þetta mál í gær af dálkahöfundi Dow Jones-fréttaveit- unnar þar sem segir m.a. að bankar eins og Northern Rock geti ýmislegt lært af Landsbankanum, honum hafi við mjög erfiðar aðstæður tekist að styrkja stöðu sína verulega. Viðræður um Close ALLT er vænt sem vel er grænt, líkt og vísitölubreytingar gærdags- ins, utan þá íslensku. Góð afkoma IBM hafði jákvæð áhrif á Wall Street, og hífði gengi Intel upp um 5,1% og Hewlett Packard um 2,7% með sér. Í heild kom því tækni- vísitalan Nasdaq vel út. Á hinn bóginn vekur metverð á gulli spurningar en verð á gullúnsu fór yfir 900 dali í gær. Aukin ásókn í hrávörur bendir til hræðslu við hlutabréf en ekki síður við sögu- lega veikan Bandaríkjadal. Tæknin upp og gullið með FASTEIGNAFÉLAGIÐ Landic Property fær ekki heimild fjármála- ráðuneytisins til að gera upp starf- semi sína í evrum. Skarphéðinn Berg Steinarsson, forstjóri félags- ins, sagðist í samtali við RÚV furða sig á niðurstöðunni sem kemur í kjöl- far áfrýjunar til ársreikningaskrár. Þá útilokaði hann ekki flutning fyr- irtækisins úr landi. Skarphéðinn segir túlkun fram- kvæmdavaldsins þrönga og að synj- unin hindri frekari vöxt félagsins, enda fari mest starfsemi þess fram erlendis. Viðkvæmni krónunnar fyr- ir sveiflum geri hana óheppilega fyr- ir reksturinn. Um 80% tekna félags- ins er í öðrum myntum, mest í sænskum og dönskum krónum, en einnig í evrum. Landic Property er eitt þriggja stærstu fasteignafélaga á Norður- löndum og meðal eigna þess eru hús- næði Illum og Magasín í Danmörku. Hafnað í annað sinn ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.