Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU ORKUVEITA Reykjarvíkur hóf síð- astliðið vor átaksverkefni til að sporna við slysum sem heitt vatn hefur valdið og í því skyni opnað vefinn www.stillumhitann.is. Á vefnum getur fagfólk og almenn- ingur nálgast upplýsingar og tæknilegar lausnir til að sporna við því að fólk brenni sig á heitu vatni. Börnum og eldra fólki er hættast við bruna að völdum heits vatns og þá sérstaklega sjúklingum. Forvarnahúsið hefur fengið vef- inn til eignar. Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnahússins, veitti honum viðtöku auk 300 þús- und króna til viðhalds hans og 300 þúsund króna styrks til almennra forvarna. Vefurinn er einungis hluti af stærra átaki. OR hefur veitt fé til rannsókna á fjölda og eðli slysa af völdum heits vatns og gengist fyrir námskeiði og ráðstefnu um leiðir til að draga úr slysum, m.a. með bætt- um frágangi neysluvatnskerfa. Í kjölfarið hafa söluaðilar lagnabún- aðar útbúið lausnir sem fáanlegar eru hvort heldur sem er fyrir nýtt húsnæði eða eldra. Það er mat starfsfólks Landspítalans að bruna- slysum hafi nú þegar fækkað. Heitavatnsslysum fækkar Stillum hitann Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnahússins, veitir vef og styrk viðtöku úr hendi Bryndísar Hlöðversdóttur, stjórn- arformanns Orkuveitunnar SÍMINN hefur fengið úthlutað til- raunaleyfi frá Póst og fjarskipta- stofnun fyrir langdrægt 3G-far- símakerfi. Verið er að setja upp búnað á Suðurlandi og er gert ráð fyrir að tilraunir hefjist í vikunni. Kerfið er samkvæmt UMTS- staðli og nýtir 900MHz-tíðni sem er sú sama og hefðbundin GSM-kerfi nota. „UMTS-staðall er við- urkenndur 3G-staðall fyrir farsíma- þjónustu og sá sem Síminn hefur notað við uppbyggingu á 3G- kerfinu á höfuðborgarsvæðinu, á Akureyri og í Leifsstöð, en þar er 2100 MHz-tíðni notuð,“ segir í til- kynningu Símans. Kostirnir um- fram hefðbundin langdræg GSM- kerfi eru m.a. þeir að drægni þess er allt að 50% meiri auk þess sem gagnahraði er allt að þúsundfaldur. Árvakur/Brynjar Gauti Suður Sunnlendingar geta brátt notið þriðju kynslóðarinnar. 3G tilraunir á Suðurlandi BROT 89 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum í síðustu viku frá þriðjudegi til föstudags eða á tæplega 88 klukkustundum. Vöktuð voru 5.700 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða u.þ.b. 1,6%, of hratt eða yfir af- skiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 85 km/klst. en þarna er 70 km hámarkshraði. Tíu óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 100 km hraða. Ökumennirnir munu fá sektar- boð í pósti á næstu dögum. Óku of hratt DOKTORSVÖRN í líf- og læknavís- indum fer fram hjá læknadeild Há- skóla Íslands föstudaginn 18. jan- úar. Þá ver Evald Sæmundsen doktorsritgerð sína Autism in Iceland, reva- lence, diagnostic instruments, development and association of autism with seiz- ures in infancy, um einhverfu ungbarna á Ís- landi. Andmælendur eru dr. Lennart von Wendt, prófessor í taugasjúk- dómum barna við Helsinki Univers- ity Central Hospital, og dr. Christ- opher Gillbert prófessor í geðlækn- isfræði barna við Göteborg University. Athöfnin fer fram í Öskju og hefst kl. 14. Doktorsvörn Evald Sæmundsen STUTT                                                                                  !                                                           !          !     " # $# %& '  () *   +,(   () *   +,(    () *   +,(         -  -     .& (& /#   0  /  !  1 % .&(&  #  /  !  ! .  0  !    !  .& (&  ## /# 2  0  /  !  1 *  . .    !/"   !/   !/   . .  34 !       !      "  "    "   # " FYRSTI fundur um nýgerðan kjara- samning LS og sjómannasamtak- anna var haldinn á Hellissandi á sunnudagskvöld. Það var Snæfell sem reið á vaðið, en félagið felldi samninginn. Frá þessu er greint á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda. Fundarsókn var ágæt og miklar um- ræður um samninginn að lokinni kynningu Arnar Pálssonar á honum. Í máli fundarmanna kom fram að þeir voru sammála því að gerður væri samningur, en sá sem fyrir þeim lægi, fæli í sér of dýrar kvaðir þannig að þeir treystu sér ekki til að uppfylla þær. Of lítill munur á háseta og skipstjóra Einkum var bent á að mismunur á launum háseta og skipstjóra væri of lítill, ábyrgð skipstjórans væri van- metin. Almennt töldu fundarmenn rétt að gefa hverri útgerð sjálfval um þessa skiptingu. Þannig væri hægt að viðhalda þeirri skiptingu milli áhafnarmeðlima sem hefð væri kom- in á. Við þennan lið bættist einnig at- hugasemd við að ekki lægi fyrir hvernig ætti að bregðast við þegar fleiri en 2 menn væru í áhöfn línu- báts þegar beitt væri í landi og sama gilti um vélabát. Einnig bentu fundarmenn á að samþykkt þeirra um tryggingu skip- verja, þar sem bætur tækju mið af skaðabótalögum, væri ávísun á 10- föld iðgjöld og mikla óvissu miðað við stöðuna í dag. Þar var m.a. bent á stöðu smærri útgerða sem engan veginn gætu staðið við ákvæðið. Þarf skýrari ákvæði Í umræðum kom einnig fram að skýrar þyrfti að kveða á um upp- boðskostnað og fæðispeninga. Hvaða kostnaðarliðir væru inni í „uppboðskostnaði“ og hvort það væri ekki á hreinu að fæðispeningar væru miðaðir við hvern úthaldsdag. Í lok fundar voru greidd atkvæði um samninginn. Úrslit urðu þau að hann var felldur með 14 atkvæðum gegn 3. Önnur aðildarfélög halda fundi um kjarasamninginn næstu daga. Snæfell felldi nýgerðan kjara- samning fyrir smábátana Töldu samninginn, sem fyrir þeim lá, fela í sér of dýrar kvaðir þannig að þeir treystu sér ekki til að uppfylla þær Í HNOTSKURN »Í máli fundarmanna komfram að þeir voru sam- mála því að gerður væri samningur, en sá sem fyrir þeim lægi, fæli í sér of dýrar kvaðir þannig að þeir treystu sér ekki til að uppfylla þær. »Einkum var bent á að mis-munur á launum háseta og skipstjóra væri of lítill, ábyrgð skipstjórans væri van- metin. Almennt töldu fundar- menn rétt að gefa hverri út- gerð sjálfval um þessa skipt- ingu. Ávarkur/Ásdís Samningar Smábátamenn á Snæfellsnesi vilja kjarasamning en eru ekki sáttir við þann, sem nú liggur fyrir. MIKIÐ verðfall varð á eldislaxi frá Noregi síðastliðinn föstudag. Verðið féll þá um 47 til 83 krónur íslenzkar á hvert kíló. Þetta er mesta lækkun á einni viku síðan árið 2006. Skýringin á verðfallinu nú er að hluta til sögð að verðið hafi verið orðið of hátt um jólin. Ekkert er tal- ið benda til þess að verðið hækki á ný svo nú er gert ráð fyrir að dregið verði úr slátrun, þar sem kaupendur haldi að sér höndum. Verð á algengustu stærðinni, þrjú til fimm kíló, er nú komið niður í tæpar 234 krónur kílóið og verð á öðrum stærðum er 207 til 226 krón- ur. Reyndar er talið að of miklu hafi verið slátrað frá áramótum, of mikið framboð hafi leitt til verðlækkunar. Verð á laxi lækkar EIGENDUR veiðiréttar við Þverá og Kjarrá í Borgarfirði hafa sam- þykkt tilboð núverandi leigutaka, Sporðs, um áframhaldandi leigu á ánum. Samkvæmt fréttavef SVFR gildir samningurinn til 2012. Leiguupphæðin er trún- aðarmál. Þverá og Kjarrá eru í raun ein á með tvö nöfn og ein allra besta veiðiá landsins. Í Þverá fellur Litla-Þverá sem lax gengur einnig í. Síðastliðið sumar veiddust 2.435 laxar á svæðinu en meðalveiði síðustu tíu ára er tæplega 2.000 laxar á sumri. Samið um Þverá/Kjarrá Árvakur/Einar Falur KÓPAVOGSBÚAR! Það er gott að búa í Kópavogi, sérstaklega fyrir þá sem eiga miða í Happdrætti Háskólans. Í fyrra fékk áttundi hver Kópavogsbúi vinning. – Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni. TIL HAMINGJU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.