Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Ég verð að fá DNA-test á strákinn, Pétur fer ekki ofan af því að ég hafi ekki valið þann hæf- asta, hann virðist bara ekki trúa því að Steini litli sé sonur Dabba. VEÐUR Morgunblaðið var helzti þátttak-andinn í Silfri Egils í fyrra- dag, jafnt hjá viðmælendum sem stjórnandanum, Agli Helgasyni. Fulltrúar allra stjórnmálaflokka nema Frjálslynda flokksins sátu í Silfri Egils á sunnudag og ræddu mál líðandi stundar og vitnuðu í bak og fyrir í skrif Morgunblaðsins.     Margt varskrafað og skeggrætt, fátt nýtt kom fram, og þó.     Þau Árni PállÁrnason, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Björn Ingi Hrafnsson og Álfheiður Ingadóttir, sem tilheyra fjórum ólíkum stjórnmálaflokkum, Sam- fylkingu, Sjálfstæðisflokki, Fram- sóknarflokki og Vinstri grænum, voru þverpólitískt sammála um að Morgunblaðið héldi uppi öflugri stjórnarandstöðu.     Eitt skondnasta atriði þessa sjón-varpsleikrits voru orðaskipti Egils og Álfheiðar, þar sem Egill spurði Álfheiði hvers vegna „Mogg- inn væri svona hallur undir vinstri græn“.     Álfheiður svaraði eitthvað á þessaleið: „Mogginn telur sig geta hampað einhverjum til þess að slá hann niður. Við vinstri græn látum það ekki trufla okkur. Við sofum al- veg óháð því hver er uppi í náðinni hjá Mogganum og hver er það ekki vegna þess að það er bara til skiptis eftir því hvernig vindurinn blæs. Hugsunin þarna er völd. Samstarf í ríkisstjórn er um verkefni, ekki völd.“     Þá vitum við það! Skyldi Álfheiður hafa borið þessa stjórnmálaskýringu undir Svandísi Svavarsdóttur, flokks- systur sína? Voru berin nokkuð súr, Álfheiður? STAKSTEINAR Álfheiður Ingadóttir Helzti þátttakandinn fjarverandi SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                        *(!  + ,- .  & / 0    + -                  !"  12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (            #"     ##  :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? $     $ $   $  $ $       $   $  $  $                                *$BC %%                ! " "     #   $  *! $$ B *! & '  ( %  %' %    " )" <2 <! <2 <! <2 & ( # %* +,%-#".  D2 E                  /    %&    '    ! "  <7  #              ! "(      ) *     8   $&  (           +"  *   "( )  /0## %%"11 #"%%2 " "%* + Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Kristín M. Jóhannsdóttir | 14. janúar Dómarafífl Einhvern tímann í vor eða sumar skrifaði ég langa færslu um dóm- arafífl sem dæmdi leik- inn okkar í Presto og gjöreyðilagði gamanið því hann dæmdi ein- göngu á okkar lið. Dómarinn í leiknum okkar í dag er í harðri samkeppni um titilinn ’Versti dómari allra tíma’. Þessi var reyndar skárri en hinn að því leyti að hann dæmdi jafnmikið á bæði lið en það var yfirleitt ekki heil brú í því sem hann gerði. ... Meira: stinajohanns.blog.is Björgvin Guðmundsson | 14. janúar Á hverju stendur, Jóhanna? Allra augu mæna nú til Jóhönnu Sigurð- ardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra. Menn bíða þess að sjá hvað hún ætlar að gera í lífeyrismálum aldr- aðra. Hún hefur ekkert gert enn. Hún tók við lífeyristryggingum almanna- trygginga og yfirstjórn Tryggingastofn- unar um síðustu áramót. En hún var byrjuð að undirbúa þá yfirtöku fyrir áramót og búin að skipa nefndir Meira: gudmundsson.blog.is Egill Bjarnason | 14. janúar Gleðilegan flugdrekadag Hundruð flugdreka svifu yfir smábænum Pus- hkar í dag, á degi flug- drekans. Eftir því sem ég best veit fór ekki fram nein formleg keppni í að fljúga drek- unum en það var augljós metingur milli nágranna, bæði barna og fullorð- inna. Enginn sem ég spjallaði við virt- ist vita hvers vegna þessi hefð væri tilkomin en hún er víst nokkuð út- breidd á Indlandi. … Meira: austurlandaegill.blog.is Andrea Ólafsdóttir | 14. janúar Drepa skólar sköp- unarhæfileika? Mannrækt í skólum? Menntun fyrir betri heim? Sittu kyrr og gerðu verkefnin þín, barn! Ef þú getur ekki setið kyrr og einbeitt þér tímunum saman þá ertu sennilega bara veikur og þarft að fara á lyf. Eða hvað? … Skrifaðu svona og reiknaðu svona. Þú mátt helst ekki teikna, syngja eða dansa alltof mikið í skólanum, því þar áttu að læra „mikilvægari“ námsgreinar. Er það börnum virkilega eðlilegt að sitja kyrr klukkutímum saman með ör- stuttum frímínútum þar sem þau fara aðeins út að viðra sig? Er kerfið kannski gallað, en ekki börnin? Sir Ken Robinson segir að svo sé og að það besta fyrir börnin okkar sé að leyfa þeim að finna hæfileika sína og rækta þá, en ekki vera algerlega föst í kerfinu eins og það er í dag með alla áherslu á akademíu í hausnum. Árið 1930 var ung stúlka í skóla og foreldrar hennar fengu sífellt kvartanir um að hún bara gæti ekki setið kyrr og einbeitt sér og væri kannski veik, svo móðirin fór með hana til læknis. Læknirinn var greinilega ekki þröng- sýnn og einblíndi ekki á sjúkdóma- væðinguna eins og hún hefur tekið yf- ir núna. Hann horfði á barnið og svo fór hann fram með móðurina og kveikti á tónlist og skildi barnið eftir. Stelpan byrjaði strax að hreyfa sig í takt við tónlistina og læknirinn sagði; líttu á dóttur þína, hún er ekki veik, hún er dansari! Litla stúlkan fór í dansskóla og samdi stóra söngleiki sem urðu fræg- ir og varð milljónamæringur fyrir vikið. Í dag myndi hann mjög líklega einfald- lega setja hana á rítalín og segja for- eldrunum að hún væri bara ofvirk. Endilega hlustið á þennan mann sem hefur hlotið mikla virðingu á heimsvísu fyrir hugmyndafræði sína um menntun framtíðarinnar. Ég veit að ég er sammála þessum manni og hef stórkostlegar efasemdir um að hið hefðbundna skólakerfi sé gott fyr- ir börn og þroska þeirra. Spurningar sem ég tel að við þurf- um í það minnsta að spyrja okkur að er hvort börnum sé virkilega eðlilegt og náttúrlegt að sitja kyrr mestallan daginn yfir bókum? Þarf meiri leik og meiri listir í skólana sem hluta af venjulegu námi til að ... Meira: andreaolafs.blog.is BLOG.IS NEFND félagsmálaráðherra um úr- bætur í húsnæðismálum hefur skilað skýrslu sinni og tillögum til félags- málaráðherra. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hag- fræðingur í félagsmálaráðuneytinu og formaður nefndarinnar, kvaðst ekki geta greint frá niðurstöðum nefndarinnar á þessu stigi. Þær séu nú á borði félagsmálaráðherra sem muni kynna þær í ríkisstjórn. Síðan verði tekin ákvörðun um áframhaldið. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra sagði í utandagskrár- umræðu í nóvember sl. að hún vonaði að tillögurnar gætu bætt hag fyrstu- íbúðarkaupenda, byggt upp almenni- legan leigumarkað og fjölgað búsetu- formum, m.a. með húsnæðissam- vinnufélögum. Í nefndinni sátu fulltrúar félags- málaráðuneytis og fjármálaráðuneyt- is, Reykjavíkurborgar, Sambands sveitarfélaga, Alþýðusambands Ís- lands, Samtaka atvinnulífsins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Nefnd um húsnæðismál hefur lokið störfum BÚÐDÆL- INGAR! Er ég kem heim í Búðardal bíður mín brúðarval, en 44 annarra íbúa Búðardals beið líka vinningur í Happdrætti Háskólans á síðasta ári. – Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni. TIL HAMINGJU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.