Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÆJARRÁÐ Sveitarfélagsins Árborgar sam-
þykkti í gær að kaupa einbýlishús á Selfossi til
að nota fyrir dagdvöl heilabilaðra. Húsið verð-
ur tekið í notkun ef daggjöld fást til reksturs
slíkrar deildar, þar til flutt verður í varanlegt
húsnæði. Fulltrúi minnihlutans í bæjarráði
greiddi atkvæði gegn kaupunum vegna þess
að hann taldi ekki liggja fyrir nægar upplýs-
ingar. Hann telur þetta dýra bráðabirgða-
lausn. Fulltrúinn lagði fram skriflegar spurn-
ingar sem meðal annars snúast um tengsl við
seljanda eignarinnar.
Dýr bráðabirgðalausn
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri í
Árborg, segir að lengi hafi verið rætt um að
koma upp dagdvöl fyrir alzheimersjúklinga og
aðra heilabilaða í sveitarfélaginu enda sé þörf-
in brýn. Ákveðið hafi verið í bæjarráði í lok
mars á síðasta ári að leggja til húsnæði gegn
því að ríkið greiddi daggjöld vegna þjónust-
unnar og þáverandi heilbrigðisráðherra greint
frá því. Segist hún hafa sagt frá stöðu málsins
á fundi bæjarráðs í byrjun desember sl. Hún
bendir á að málið hafi einnig verið rætt þegar
ákveðið var að taka á leigu húsnæði í húsi sem
fyrirhugað er að byggja við Austurveg 51 til 59
en hluti þess pláss verður notaður fyrir þessa
þjónustu. Það húsnæði verði hins vegar ekki
tilbúið fyrr en í fyrsta lagi eftir tvö ár. Því hafi
verið ákveðið að kaupa hús til að nota þangað
til. Gert hafi verið tilboð í húsið að Vallholti 38
með fyrirvara um samþykki bæjarráðs. Tekur
Ragnheiður fram að fulltrúar Félags áhuga-
fólks og aðstandenda alzheimersjúkra og ann-
arra skyldra sjúkdóma hafi verið með í ráðum
við val á húsi. Húsið er keypt á 27,1 milljón kr.
og þar sem Eyþór Arnalds, fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins sem er í minnihluta, greiddi at-
kvæði gegn því verður endanleg ákvörðun tek-
in á næsta fundi bæjarstjórnar.
Eyþór Arnalds segir að fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins hafi allt frá árinu 2006 haft frum-
kvæði að því að leita leiða til að veita alzheim-
ersjúklingum þjónustu. „Við teljum hægt að
gera betur en þetta,“ segir Eyþór sem telur að
kaupin á húsinu við Vallholt séu dýr bráða-
birgðalausn. Þá sé ekki vitað hvort leyfi fáist
til að reka þar dagvistun. Byrjað hafi verið á
vitlausum enda með því að kaupa húsið án
nauðsynlegs undirbúnings. Ekki liggi fyrir
áætlun um kostnað eða samþykkt um að ráð-
ast í kaupin og ekki hafi verið gerður sam-
anburður á kostum.
Ljóst er að gera þarf verulegar breytingar á
húsinu fyrir væntanlega starfsemi. Ragnheið-
ur segir að unnið verði að undirbúningi breyt-
inga og sótt um leyfi til starfrækslu í húsinu.
Tekur hún fram að ekki verði ráðist í fram-
kvæmdir fyrr en leyfi fáist og tryggt verði
rekstrarframlag frá ríkinu. Telur hún að
áhætta sveitarfélagsins sé ekki mikil því unnt
verði að selja húsið aftur ef áformin nái ekki
fram að ganga.
Spurningar um tengsl
Eyþór Arnalds lagði fram nokkrar skrif-
legar spurningar varðandi húsakaupin og mun
bæjarstjóri svara þeim á næsta fundi bæj-
arráðs. Meðal annars er spurt um tengsl kaup-
anda og seljanda og hvaða fasteignasali hafi
séð um söluna. Eigandi hússins er Guðmundur
Kr. Jónsson sem eitt sinn var oddviti fram-
sóknarmanna í bæjarstjórn og var formaður
skipulagsnefndar á síðasta kjörtímabili. Eyþór
segist vilja fá upplýsingar um málið og ekki
fullyrða neitt um þá hlið málsins að svo
stöddu.
Ragnheiður hafnar því að einhverjir óeðli-
legir hagsmunir séu í spilinu. „Við hugsum
fyrst og fremst um það að gera það sem við
getum til þess að fá þessa þjónustu hingað.
Mikil þörf er á henni. Við viljum ekki eiga það
á hættu að verða af henni vegna þess að við
höfum ekki tilbúið húsnæði,“ segir Ragnheið-
ur.
Kaupa hús fyrir dagdvöl heilabilaðra
Í HNOTSKURN
»Meirihlutinn í bæjarráði Árborgarákvað kaup á einbýlishúsi sem nota á
fyrir dagdvöl alzheimersjúkra þar til var-
anlegt húsnæði verður tilbúið.
»Minnihlutinn gagnrýnir kaupin ogvinnubrögð við þau og spyr um hags-
munatengsl.
»Húsakaupin eru viðleitni sveitarfé-lagsins til að fá þessa þjónustu. Hún er
háð því að ríkið greiði reksturinn.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ráðhús Deilur eru í bæjarstjórn Árborgar.
BORGARRÁÐ samþykkti samhljóða
í gær að Sundabraut yrði lögð í göng-
um frá Gufunesi í Laugarnes. Borg-
arstjóri segir þá óvissu sem ríkt hafi
um lagningu Sundabrautar ekki góða.
Mikilvægt sé að á næstu vikum verði
tekið af skarið um hvaða leið verði
farin, fjármögnun hennar og tíma-
setningu framkvæmda með nákvæm-
ari hætti en gert hafi verið.
Í samþykkt borgarráðs er tekið
fram að afstaðan sem þar hafi verið
tekin sé í fullu samræmi við fyrri yf-
irlýsingar og niðurstöðu samráðshóps
um Sundabraut frá 8. desember 2006.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir að fulltrúar í borgarráði hafi um
nokkurt skeið verið sammála um
hvaða leið skyldi verða fyrir valinu.
„Nú liggja fyrir jarðfræðirann-
sóknir og ákveðnir áfangar í umhverf-
ismati sem benda til þess að jarð-
gangaleiðin sé fær. Þegar kallað
hefur verið eftir í umræðunni undan-
farna daga að Reykjavíkurborg segi
skýrt hvaða leið við teljum besta fyrir
íbúana, umhverfið, höfuðborgarsvæð-
ið og landið allt þá höfum við komist
að þeirri niðurstöðu að jarðganga-
kosturinn sé langbestur,“ segir Dag-
ur. Sér komi á óvart sú áhersla sem
Vegagerðin hafi lagt á svokallaða
eyjaleið upp á síðkastið. „Sú leið var
til skoðunar [í samráðshópi um lagn-
ingu Sundabrautar] og fékk satt skal
segja ekki mikinn hljómgrunn. Var
hún eiginlega höfð með í umhverfis-
matinu fyrir orð Vegagerðarinnar.
[…] Þetta er eitthvað sem þarf að
ræða á næstu dögum og vikum því að
mér sýnast öll rök hníga að því að ytri
leiðin í göngum sé betri fyrir dreif-
ingu umferðar, umhverfið, íbúana og
þar með í raun fyrir land og þjóð í
heild,“ segir Dagur.
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
borgarráðs, segir að með samþykkt
gærdagsins sé ráðið að hnykkja á því
að ekki standi á borgaryfirvöldum að
hefja framkvæmdir og þrýsta á rík-
isvaldið um að framkvæmdir hefjist
sem fyrst. Um mikilvægi þess séu
borgin, sveitarfélögin á Vesturlandi
og Norðurlandi auk eigenda Faxa-
flóahafna sammála.
Fleirum leiðist biðin
„Miðað við umræðurnar á þinginu í
[fyrradag] er þingmönnum greinilega
líka farið að leiðast biðin þannig að við
erum að reyna með öllum hætti að
knýja á um þessa framkvæmd sem er
löngu tímabær líkt og allir virðast
vera sammála um en gengur samt
erfiðlega að knýja í gegn,“ segir
Björn Ingi.
Hann segir vilja ríkisins vera að
bjóða verkið út en Faxaflóahafnir
voru búnar að bjóðast til að taka verk-
ið að sér. „Ef það er niðurstaðan þarf
að bjóða verkið út. Það eru ótal þættir
sem þarf að gera og við höfum ein-
faldlega bent á að því lengur sem beð-
ið er með að taka ákvörðun um alla
þessa grundvallarþætti, þeim mun
lengra verður í að þetta samgöngu-
mannvirki verði að veruleika,“ segir
Björn Ingi.
Borgarráð ítrekar stuðning
sinn við jarðgangaleið
Áhersla Vegagerð-
arinnar kemur borg-
arstjóra á óvart
SKÓLAHREYSTI 2008 hófst í Aust-
urbergi í Breiðholti í gær. Í keppn-
inni mynda grunnskólanemar hópa
sem svo keppa í ýmiskonar þol-
raunum. Í fyrra varð Lækjarskóli í
Hafnarfirði hlutskarpastur.
Eva Hlín Harðardóttir, 14 ára úr
Foldaskóla, sigraði í armbeygju-
keppni stúlkna og tók 60 armbeygj-
ur. Thelma Rut Hermannsdóttir, 14
ára úr Víkurskóla, kom næst með
56 armbeygjur og sýndu þær tvær
mikla yfirburði í armbeygjunum.
Þetta er í fjórða skiptið sem
Skólahreysti fer fram, en í ár taka
tæplega 500 keppendur þátt í henni
og eru þeir fulltrúar 120 grunn-
skóla víða að af landinu. Keppt
verður á sjö stöðum áður en kemur
að úrslitum.
Markmiðið með keppninni er að
efla hreyfingu barna á sem
skemmtilegastan hátt og hefur
keppnin notið mikillar athygli.
Fylgst verður með Skólahreysti í
vikulegum þáttum á Skjá einum og
sýnt beint frá úrslitakeppninni, sem
fer fram í Laugardalshöll 17. apríl.
Árvakur/Ómar
Sterk Eva Hlín Harðardóttir úr Foldaskóla sýndi frábær tilþrif og tók 60 armbeygjur með bros á vör.
Skólahreysti
ÓVENJULEG auglýsing birtist í
Morgunblaðinu í gær frá íbúa nokkr-
um í Reynihlíð, Birni að nafni, sem
nýlega varð fyrir þeirri óskemmti-
legu reynslu að brotist var inn hjá
honum og fjölskyldu hans. Atvikið
átti sér stað föstudaginn 11. janúar
og hafði innbrotsþjófurinn á brott
með sér myndavél og GPS tæki, en
verst þótti heimilisfólkinu að tapa
öðrum og mun persónulegri munum
á borð við hefðbundna skartgripi og
smávarning sem fylgt hefur fjöl-
skyldunni lengi. „Ég er tryggður fyr-
ir þessu og gæti fengið nokkur
hundruð þúsund krónur í trygginga-
bætur,“ segir Björn. „En það kemur
ekki til með að bæta hið raunveru-
lega tjón sem felst í að missa mik-
ilvæga fjölskyldumuni. Þess vegna
ákvað ég að birta auglýsingu þar sem
ég höfða til þjófsins um að selja mér
munina aftur.“
Komast að samkomulagi
Í auglýsingunni segir að fæst af því
sem tekið var hafi mikið verðgildi ut-
an fjölskyldu Björns „og því velti ég
mér fyrir mér hvort ekki sé hægt að
komast að samkomulagi sem allir
hafa hag af,“ segir í auglýsingunni.
Símanúmer Björns er síðan birt með
auglýsingunni. Hann segist raunar
ekki gera ráð fyrir því að þjófurinn
lesi Morgunblaðið reglulega og er
hóflega bjartsýnn á að þjófurinn
hringi strax í dag. „En ég vona samt
að einhver úr hans hópi frétti af
þessu og með því móti komist skila-
boð mín til skila. Ég hef í sjálfu sér
engan áhuga á honum eða hans
vandamálum og jafnframt hef ég
engan áhuga á að kynnast því ógæfu-
fólki sem stundar innbrot. En ég
vona samt að þjófurinn finni einhvern
sem hann treystir til að hafa sam-
band við mig og hafi einskonar milli-
göngu um að ég fái munina mína til
baka og hann fái sína greiðslu fyrir.“
Vill semja
við þjófinn
♦♦♦
ÞINGMENN allra flokka tóku undir
þingsályktunartillögu Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs um
fangabúðir Bandaríkjahers í Guant-
anmo á Kúbu á Alþingi í gær. Felur
tillagan í sér að íslensk stjórnvöld
fordæmi mannréttindabrot í fanga-
búðunum og hvetji bandarísk yfir-
völd til að loka þeim, en 11. janúar
voru fimm ár frá því þær voru opn-
aðar.
Einhuga um
fangabúðir