Morgunblaðið - 18.01.2008, Page 12

Morgunblaðið - 18.01.2008, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is GÓÐAR gæftir hafa verið frá Snæ- fellsnesi á nýja árinu og mikil ýsu- veiði á línuna. „Það er búið að vera ágætis fiskirí það sem af er ári. Sér- staklega á línuna, en reyndar lakara í netin og dragnótina. Það skiptir líka máli að gæftir hafa verið mjög góðar, ólíkt því sem var í haust og fram að áramótum. Það spáir reynd- ar fyrstu brælu ársins núna,“ segir Gunnar Bergmann, sölustjóri hjá Ís- landsmarkaði í Ólafsvík. „Það er aðallega ýsa, sem veiðist á línuna. Línubátarnir hafa því róið nokkuð stíft og ef hann hefur verið að norðan sækja þeir bara í skjólið fyrir sunnan Nesið, að Arnarstapan- um til dæmis. Það sem af er ári erum við búnir að selja um 1.400 tonn, eða fyrir kvart milljarð, á þessum þrem- ur höfnum sem undir okkur heyra, það er Arnarstapa, Ólafsvík og Rifi. Meðalverð fyrir allan fisk er 186 krónur á kíló. Ýsan hefur verið smá lengst af, en í gær kom eitthvert skot af stærri ýsu. Kom alveg hellingur af henni á markaðina á miðvikudaginn. Við vit- um ekki hvað veldur, en kannski er einhver ganga að koma á slóðina. Það er líka að koma miklu stærri þorskur núna á línuna en að undan- förnu. Menn eru auðvitað að forðast þorskinn og þá bjargar þessi góða ýsugengd miklu.“ Mikið unnið í Grundarfirði Gunnar segir að verðið fyrir ýsuna hafi verið þokkalegt, en þegar mikið berist á land í einu, slakni á verðinu. Það skipti líka máli að ýsan hafi verið smá. „Meðalverð á óslægðri ýsu það sem af er þessu ári er 139 krónur. Það segir ekki alla söguna, því smáýsa er svo hátt hlutfall. Við erum búnir að selja 528 tonn af línuýsu í ár. 50% af því eru smáýsa, undir 1,2 kílóum. Meðalverðið á þeirri ýsu er 103 krónur. Milliýsa, 1,2 til 1,7 kíló er 30% heildarinnar og þar er meðal- verðið 153 krónur. Loks er stóra ýs- an 20% heildarinnar og þar er með- alverðið 206 krónur á kíló.“ Gunnar segir að nú hafi verið seld ríflega 250 tonn af smáýsu í janúar. Mjög mikið hafi farið til Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði eða 90 tonn, en þar er ýsan unnin til út- flutnings. Annars fari mikið af smærri ýsunni suður í fyrirtæki, sem séu að frysta hana. Milliýsan fari í vaxandi mæli til þeirra sem vinna í flug, svo og stóra ýsan nánast öll, en einnig hafi gámakarlarnir verið að kaupa ýsu til útflutnings. Mikil ýsuveiði á línu hjá Snæfellingum Morgunblaðið/Alfons Fiskveiðar Magnús Guðni Emanúelsson á Manga á Búðum SH landar góð- um afla í Ólafsvík. Uppistaða aflans hjá línubátum af Snæfellsnesi er ýsa. Í HNOTSKURN »Það er búið að vera ágætisfiskirí það sem af er ári. Sér- staklega á línuna, en reyndar lakara í netin og dragnótina »Það sem af er ári erum viðbúnir að selja um 1.400 tonn, eða fyrir kvart milljarð, á þess- um þremur höfnum sem undir okkur heyra »Við erum búnir að selja 528tonn af línuýsu í ár. 50% af því eru smáýsa, undir 1,2 kílóum. Meðalverðið á þeirri ýsu er 103 krónur 528 tonn seld á fiskmörkuðunum á Stapa, Ólafsvík og Rifi í janúar ÚR VERINU Vel treystandi Þingfundur hófst með óundirbúnum fyrirspurnum í gær en sá liður er nú á dagskrá tvisvar í viku. Kolbrún Halldórsdóttir spurði heilbrigð- isráðherra m.a. út í þá ákvörðun að hætta að hafa lækni á neyð- arbílum og sagði marga faglega að- ila hafa orðið til þess að gagnrýna það. Guðlaugur Þór Þórðarson sagði hins vegar að forsvarsmönnum í heilbrigðisþjón- ustunni væri vel treystandi til að stýra sínum stofnunum og ekki væri hægt að ætla þeim að tefla öryggi sjúklinga á tæpasta vað. Haldi ró sinni Efnahagsmál voru rædd utan- dagskrár í gær en málshefjandinn, Guðni Ágústs- son, kallaði eftir frumkvæði rík- isstjórnarinnar. Hún yrði að lækka vexti, skera niður rík- isútgjöld og fresta fram- kvæmdum um tíma. Geir H. Haarde forsætisráðherra hvatti hins vegar þingmenn, aðila vinnumarkaðarins og viðskiptalífsins til að halda ró sinni við núverandi aðstæður og um- rót á alþjóðlegum fjármálamörk- uðum. „Það er rétt að aðstæður hafa breyst nokkuð á undanförnum vik- um. Þá er mikilvægt að menn setjist niður og greini hver vandinn er,“ sagði Geir en áréttaði að staða rík- issjóðs væri sterk. 24ja ára reglu breytt Tvö frumvörp sem varða útlendinga voru lögð fram á Alþingi í gær. Gert er ráð fyrir að teknar verði upp nýjar tegundir tímabundinna atvinnuleyfa en m.a. verður hægt að veita slík leyfi til íþróttafólks sem íþróttafélög vilja ráða til sín. Þá verður hinni svonefndu 24ra ára reglu breytt en hingað til hafa makar sem eru undir þeim aldri ekki fengið sjálfkrafa dvalarleyfi eins og þeir sem eldri eru. Þess í stað mun alltaf fara fram skoðun á því hvort um málamyndahjónaband sé að ræða ef makinn er yngri en 24ja ára. Kolbrún Halldórsdóttir. Guðni Ágústsson. VARNARMÁLAFRUMVARPIÐ takmarkar ekki umboð dóms- málaráðuneytisins til að leiða borg- aralegar öryggisstofnanir, sagði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, á Al- þingi í gær. Björn lagði áherslu á að frumvarpið breytti ekki neinu er varð- ar störf lögreglu og Landhelgisgæslu eða bein samskipti þeirra við erlenda samstarfsaðila, s.s. NATO. Þá sagðist hann þeirrar skoðunar að varn- armálastofnun ætti að semja um gæslu öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli við lög- reglustjórann á Suðurnesjum. „Forðast ber flóknar boð- leiðir þegar öryggisgæsla er annars vegar,“ sagði Björn og lagði einnig áherslu á að þótt varnarmálastofnun sæi um ratsjár- og loftvarnarkerfið, þyrfti að kalla til erlenda hermenn ef kæmi til þess að virkja kerfið til átaka. Breytir ekki lögreglu og landhelgisgæslu Björn Bjarnason ÖGMUNDUR Jónasson, VG, sagði á Alþingi í gær að nýtt varnarmála- frumvarp utanríkisráðherra geir- negldi Ísland til frambúðar í NATO- hernaðarsamvinnu og að m.a. væri verið að lögbinda heimildir til her- æfinga á Íslandi. Ögmundur hafði áhyggjur af veru Íslands í NATO, ekki síst vegna áherslubreytinga innan bandalagsins sem gæti leitt af sér að Íslandi stæði meiri ógn af því að vera innan þess en utan. Ögmundur gagnrýndi jafnframt að ekki hefði verið efnt til þverpólitískrar umræðu um stefnumótun á sviði öryggismála eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefði boðað í aðdraganda síðustu kosninga. „Hvergi bólar á slíkri vinnu,“ sagði Ögmundur og furðaði sig á því að engu að síður væri þetta frumvarp komið fram. Geirneglir Ísland í hernaðarsamvinnu Ögmundur Jónasson Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is MEÐ NÝJU varnarmálafrumvarpi er reistur lagalegur eldveggur milli varnartengdra verkefna og verkefna á sviði löggæslu og al- mannavarna. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Sólarúnar Gísla- dóttur utanríkisráðherra þegar hún mælti fyrir frumvarpinu á Al- þingi í gær en hún áréttaði þó að ekki væri útilokað að til samstarfs gæti komið milli borgaralegra stofnana og fyrirhugaðrar varnar- málastofnunar. Ingibjörg blés á fullyrðingar um að með frumvarpinu væri verið að lögfesta Atlantshafssáttmálann eða heræfingar á Íslandi. Einungis væri verið að búa til rammalöggjöf sem segði fyrir um hvernig haldið skyldi utan um verkefnin sem leiddu af veru Íslands í Atlants- hafsbandalaginu (NATO). „Þessi verkefni eru unnin í dag en þau eru unnin án þess að um þau gildi nægilega skýrar lagaheimildir,“ sagði Ingibjörg. Fulltrúar allra flokka nema VG voru jákvæðir í garð frumvarpsins en þó heyrðust athugasemdir úr fleiri áttum líka. Þingmenn Sjálf- stæðisflokks voru t.a.m. ekki hrifn- ir af því að liðsafli á vegum NATO, Bandaríkjanna eða annarra ríkja nyti undanþágu frá greiðslu skatta, gjalda og tolla og Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjáls- lynda flokksins, hafði áhyggjur af því að allt vald væri í höndum eins ráðherra. „Ríkisstjórnin hefur ekkert hlutverk í utanríkismálum,“ sagði Kristinn og bætti við að Al- þingi hefði heldur ekkert hlutverk samkvæmt frumvarpinu. Lagalegur eldveggur Rammi utan um verkefnin vegna aðildar að NATO Árvakur/Golli Sammæli í varnarmálum „Á 21. öld er fráleitt að næra gamla og sársauka- fulla átakahefð um varnir landsins,“ sagði Ingibjörg Sólrún. ÞETTA HELST … BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð- herra telur að skoða eigi til hlítar hvort sameina eigi byggingu lög- reglustöðvar og fangelsis á höfuð- borgarsvæðinu. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur, þingmanns Fram- sóknarflokks, á Alþingi í gær. Í máli Björns kom fram að þegar könnun á mögulegum flugvelli á Hólmsheiði hófst hefðu lóðamál fangelsis sem fyrirhugað var að reisa þar komist í uppnám af hálfu skipulagsyfirvalda í Reykjavík. „Það er mál sem þarf að leysa og fara sérstaklega yfir og kom okkur í opna skjöldu í ráðuneytinu og öðrum sem unnið hafa að þessu máli, að það séu einhver vandamál varðandi þá lóð. En það þarf að klára það til að átta sig á hvort þar sé í raun og veru rými til að reisa fang- elsi miðað við önnur áform sem yf- irvöld í borginni hafa varðandi nýt- ingu á því svæði,“ sagði Björn. Samkeppni milli sveitarfélaga? Siv benti á að þrjú sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hefðu sýnt nýj- um höfuðstöðvum lögreglu mikinn áhuga. „Miðað við þær nýju fréttir sem hér koma fram þá stefnir í mikla samkeppni á milli sveitarfélaganna um það hvar þetta nýja, stóra verk- efni á að rísa, nýtt, stórt fangelsi og nýjar höfuðstöðvar lögreglunnar,“ sagði Siv og kom það henni á óvart að fyrirhugað væri að hafa báðar byggingar á sama stað. Árvakur/Brynjar Gauti 2 fyrir 1 Fangelsi og höfuðstöðvar lögreglu gætu orðið á sama stað. Fangelsi og lögregla á sama stað?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.