Morgunblaðið - 18.01.2008, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Lilja Halldórs-dóttir fæddist
að Ytri-Tungu í
Staðarsveit 14.
mars 1926. Hún lést
á Sjúkrahúsi Akra-
ness 13. janúar síð-
astliðinn. Hún var
dóttir hjónanna
Láru Jóhann-
esdóttur, f. 18.9.
1904, d. 13.3. 1969
og Halldórs Ólason-
ar, f. 27.5. 1900, d.
20.4. 1967. Lilja var
þriðja í röðinni af
níu börnum þeirra hjóna. Systkini
hennar eru Fjóla Unnur, f. 24.10.
1922, Reynir, f. 7.3 1924, d. 1.12.
1977, Sóley, f. 17.6. 1927, d. 17.6.
1987, Hanna Sigurrós, f. 1.9. 1928,
d. 2.7.2001, stúlka, f. 19.2. 1930,
dáin sama dag, Ragna, f. 8.1. 1931,
Ragnhildur Steinunn, f. 26.6. 1935
Ólafur, f. 22.7. 1950, maki Ingiríð-
ur B. Kristjánsdóttir, börn þeirra
Ólafur og Kristjana Helga. 4) Þrá-
inn, f. 31.5. 1952, maki Helga Jóna
Ársælsdóttir, dætur þeirra Að-
alheiður María, Berglind og
Harpa Sif. 5) Lárus Þór, f. 29.3.
1954, maki Valgerður Svein-
björnsdóttir, börn þeirra Gyða,
Ólöf Lilja, Sigurbjörn, Vilborg og
Heiðar Þór. 6) Steinunn Helga, f.
17.10. 1959, maki Halldór Hauks-
son, synir þeirra Atli Viðar, Krist-
inn Júlíus og Ólafur Helgi. Lang-
ömmubörnin eru 35.
Lilja og Ólafur bjuggu allan
sinn búskap á Akranesi ef frá eru
talin 10. ár sem þau bjuggu að
Innsta-Vogi. Síðustu árin bjuggu
þau á Höfðagrund 25 á Akranesi.
Árið 1978 hóf Lilja störf á prjóna-
stofunni Akraprjón og starfaði
þar til ársins 1989. Eftir það starf-
aði hún á Sjúkrahúsi Akraness og
vann þar til 68. ára aldurs.
Útför Lilju fer fram frá Akra-
neskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
og Guðbjörg, f. 30.8.
1945.
Þegar Lilja var á
15. ári fluttu for-
eldrar hennar til
Akraness og hefur
hún búið þar alla tíð
síðan. Lilja giftist 29.
desember 1947 Ólafi
Ólafssyni en for-
eldrar hans voru
Ólafína Ólafsdóttir
frá Deild og Ólafur
Helgi Sigurðsson frá
Fiskilæk. Þau eign-
uðust sex börn, sem
eru: 1) Halldór, f. 7.1. 1947, maki
Guðlaug S. Sigurjónsdóttir, börn
þeirra eru Rúnar, Lilja, Sigurður
Daníel, Halldór Fannar og Guðrún
Drífa. 2) Jóhannes Sigurður, f.
18.9. 1948, maki Herdís H. Þórð-
ardóttir, börn þeirra Þórður Már,
Lára, Ingunn Þóra og Guðjón. 3)
Elsku Lilja mín.
Það er skrýtin tilfinning að skrifa
kveðjuorð til þín. Í mínum huga varst
þú eilíf, alltaf jákvæð, falleg og æðru-
laus. Þegar ég hugsa til baka um allar
okkar skemmtilegu stundir, fyrst í
Innstavogi þar sem ég kom fyrst inn í
fjölskylduna, 18 ára stelpa með lítinn
strák, sem þú tókst eins og þinn eigin.
Hann á alltaf fastan stað í hjarta þínu,
sem og hin börnin okkar Halldórs.
Minningarnar hrannast upp, alltaf op-
ið hús með góðan mat, formkökurnar
þínar, heimabakaða brauðið með
heimagerðri rúllupylsu og kæfu, þú
vildir hafa nóg handa öllum. Ekki má
gleyma veiðitúrunum öllum, allir urðu
að fara með og helst nóg af börnum,
því þú vildir að þau kynntust veiði-
skapnum, enda hafa börnin okkar
Halldórs fengið veiðibakteríuna, og
alltaf að hafa hlutina eins og amma
Lilja gerði.
Ég gæti haldið endalaust áfram það
er svo margt sem mig langar að koma
frá mér. Elsku besta tengdamamma,
þakka þér það sem þú hefur gert fyrir
mig og mína, þakka þér huggunarorð-
in, hvatningu, elsku og hlýju. Minn-
inguna um þig ætla ég að halda í heiðri
um ókomna tíð. Einnig votta ég Óla
tengdapabba sem hefur staðið eins og
klettur í gegnum veikindi þín, börn-
unum þínum og okkur öllum mína
hjartans samúð. Sofðu rótt.
Þín tengdadóttir
Guðlaug.
Nú þegar leiðir okkar Lilju,
tengdamóður minnar, skilja og ég lít
yfir farinn veg kemur mynd hennar
skýrt í huga mér, hvað hún var ætíð
róleg og jafnaðargeð hennar engu líkt.
Lilja var kona sem hafði mikið að gefa
öðrum sem voru henni samferða í
gegnum lífið.
Um fimmtán ára aldur fluttist hún á
Akranes ásamt foreldrum og systk-
inum og komu þau frá Ytri Tungu í
Staðarsveit. Lilja var mikill Snæfell-
ingur í sér og þótti vænt um sveitina
sína og talaði oft um hvað það hefði
verið var gott að alast upp vestra og
hvað systkinahópurinn og fjölskyldan
hefði verið samheldin.
Ung að árum gekk hún að eiga Ólaf
Ólafsson frá Akranesi og áttu þau 60
ára brúðkaupsafmæli 29. desember sl.
Því er samleið þeirra orðin löng. Þau
byrjuðu búskap á loftinu hjá foreldr-
um Lilju í Grafarholti hér á Akranesi
og þar fæddust tveir elstu synir
þeirra. Á þessum árum þótti það ekk-
ert mál þó að stórfjölskyldan byggi
undir sama þaki, oft hefur því verið
þröngt um fólk en ánægjan þeim mun
meiri.
Árin sem Óli og Lilja bjuggu í
Innsta-Vogi voru skemmtileg og góð
ár, þar stunduðu þau búskap. Oft tal-
aði Lilja um hvað var gaman þegar
húsið var fullt af fólki og nóg að gera á
stóru heimili. Frá Innsta-Vogi sér
vestur á Snæfellsnes og hafði hún jök-
ulinn ávallt fyrir augum.
Sumarbústaðurinn í Ölveri var
hennar sælureitur og þangað var farið
eins oft og kostur var. Hún naut sín að
vera í sveitinni og taka á móti öllu sínu
fólki því ekki var í kot vísað þegar
komið var þangað eða á Höfðagrund-
ina, hlaðið borð af heimabökuðu og tel
ég að fáar konur sem eru komnar á
hennar aldur baki í hverri viku eins og
Lilja gerði.
Lilja var mjög barngóð og var alltaf
mikið fjör í kringum þau hjónin, sér-
staklega þegar börnin voru lítil. Amma
og afi áttu heima rétt fyrir innan Akra-
nes, í Görðum, og voru með búskap svo
börnunum þótti gott að koma til þeirra
og taka þátt í sveitastörfunum, hey-
skapnum og fara með kindur á fjall á
vorin eða í réttirnar á haustin.
Ég á margar góðar minningar um
Lilju, tengdamóður mína, hefur hún
reynst mér sem besta móðir í gegnum
árin og hafa samskipti okkar ávallt ver-
ið mjög náin og leituðum við mikið hvor
til annarrar.
Gaman var að fara með þeim hjón-
um í ferðalög, oft var farið vestur á
Arnarstapa í sumarbústað okkar Jóa.
Þá var hún á heimavelli komin undir
jökul á æskuslóðir sínar, ekki þurfti
annað en að lyfta símtólinu þá var hún
tilbúin og klár í ferðina. Veiðiferðirnar í
Dalina með fjölskyldunni voru fastur
punktur á sumrin. Í júlí í sumar fórum
við í skemmtilegt ferðalag með þeim
hjónum til Akureyrar og ókum um
Þingeyjarsýslu í mjög fallegu veðri.
Þetta síðasta ferðalag okkar saman var
yndislegt og verður lengi í minnum
haft.
Nú í haust, í lok nóvember, kom í
ljós hvað hún var mikið veik, hún stóð
sig eins og hetja og tókst á við sjúkdóm
sinn af æðruleysi.
Að leiðarlokum vil ég þakka Lilju
fyrir hvað hún hefur verið börnum
okkar góð amma og fjölskyldunni allri.
Minning þín mun lifa í hjarta okkar
allra.
Guð blessi minningu þína.
Herdís Þórðardóttir.
Orðin bjartsýni, gleði, hógværð og
góðmennska eru þau orð sem komu
upp í huga okkar þegar við hugsum um
ömmu Lilju. Allar þær góðu stundir
sem við áttum saman, svo ótal margar
minningar.
Allar hjólhýsaferðirnar upp á Sel-
eyri þar sem alltaf var gaman að koma
og renna fyrir fisk og borða góðan mat.
Allar veiðiferðirnar sem við fórum
saman fjölskyldan. Á haustin þegar við
vorum að fara í réttir, sváfum við hjá
ykkur og þegar við vöknuðum var allt-
af komin brúnkaka á borðið eða fjalla-
terta eins og þú kallaðir hana. Öll jólin
heima hjá mömmu og pabba. Svona
getum við endalaust talið upp.
Alltaf varstu bjartsýn og vildir allt
fyrir okkur gera. Á Höfðagrundinni
var oft mikið spjallað og rökrætt og
alltaf fannstu björtu hliðarnar á öllu.
Það er skrýtið að hugsa til þess að við
eigum ekki eftir að deila fleiri svona
stundum með þér. En við reynum að
vera sterk eins og þú varst alltaf.
Elsku amma, takk fyrir allt sem þú
hefur gefið okkur og Guð geymi þig.
Þín ömmubörn,
Lilja, Sigurður, Halldór
og Guðrún.
Með söknuð í hjarta kveðjum við
þig, elsku amma. Það er erfið tilhugsun
að þú sért ekki lengur hjá okkur og
skrítið að engin amma sé lengur á
Höfðagrundinni. Þú varst sannkallað-
ur hornsteinn fjölskyldunnar og vildir
allt fyrir okkur gera. Líf þitt helgað-
irðu fjölskyldu þinni og varst stolt af
börnum þínum og afkomendum.
Þú varst mikil og góð húsmóðir,
hvort sem það var í matargerð eða í
handavinnu og bar heimili ykkar afa
þess glöggt merki. Kærleikur þinn
var mikill og það fundu allir þeir sem
voru í návist þinni, sem verður okkur
gott veganesti í lífinu. Líf þitt var ein-
falt en samt svo stórbrotið. Þú varst
yfirveguð og æðruleysi einkenndi þig,
aldrei munum við eftir að hafa séð þig
skipta skapi. Það var ávallt mikil reisn
yfir þér, þú varst alltaf vel til höfð allt
fram til síðasta dags.
Þegar við hugsum til baka þá áttum
við margar góðar stundir saman sem
við munum geyma í hjarta okkar. All-
ar útilegurnar á Seleyrinni og í Ölver
voru skemmtilegar og það var ætíð
mikil tilhlökkun að komast þangað til
þín og afa. Þér leið alltaf vel í sveita-
kyrrðinni og vildir vera sem mest á
sælureit ykkar. Á haustin var alltaf
fastur punktur í tilverunni að fara í
réttirnar þar sem þú nestaðir alla
upp, fjallakakan og kleinurnar þínar
voru gómsætar enda varstu góð hús-
móðir.
Elsku afi, við vottum þér okkar
dýpstu samúð og megi Guð styrkja
þig á erfiðum tímum.
Að leiðarlokum, þegar þú leggur
upp í þína hinstu för, viljum við þakka
þér fyrir allar samverustundir okkar.
Vertu Guði falin um alla eilífð og
blessuð sé minning þín.
Þórður Már, Lára, Ingunn
Þóra og Guðjón.
Hún var yndisleg kona, hún amma
mín, Lilja Halldórsdóttir. Það er ekki
annað hægt að segja og ég vona að
henni líði vel á þeim stað sem hún er
komin á. Ég dáðist alveg að henni í
veikindum sínum fyrir það hvað hún
var sterk, ákveðin og jákvæð alveg
fram undir það síðasta.
Hún var mikil barnagæla og ljóm-
aði öll þegar hún sá yngstu kynslóðina
í fjölskyldunni. Síðasta sumar, stuttu
eftir að ég átti yngri son minn Ingþór
þá kom hún labbandi yfir til mín til að
fá að fylgjast aðeins með eins og hún
sagði sjálf. Hún sat hjá mér í dágóðan
tíma og við spjölluðum mikið. Hún
sagði mér ýmsar sögur frá því hvern-
ig hefði verið að ala upp börn í gamla
daga. Ég hafði reglulega gaman að
því að heyra hana segja frá og þótti
mér þetta yndisleg heimsókn. Þetta
er einungis ein minning af mörgum
góðum sem ég mun varðveita í hjarta
mér. Eldri sonur minn hann Eiríkur
sem er að verða fimm ára er mikið bú-
inn að spá í dauðanum eftir að honum
var sagt frá ömmu Lilju. Hann sagði
núna eitt kvöldið „Ég þekkti ömmu
Lilju og nú er hún dáin og þá ég sakna
hennar“. Ég tek undir það með hon-
um að ég mun sakna hennar og hún
mun ávallt eiga stað í hjarta mínu.
Elsku afi, guð styrki þig í sorginni.
Bless, amma mín,
þín sonardóttir
Kristjana Helga Ólafsdóttir.
Lilja Halldórsdóttir
Fleiri minningargreinar um Lilju
Halldórsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KRISTÍN JÓHANNSDÓTTIR
Árskógum 6,
Reykjavík
verður jarðsungin frá Seljakirkju 21. janúar
kl. 13.00.
Jóhann Sævar Erlendsson, Þuríður E. Baldursdóttir,
Anna Rósa Erlendsdóttir, Guðni Ágústsson,
Kristín Erla Guðnadóttir, Brynjar Víðisson,
Arnar Páll Jóhannsson,
Jóhann Baldur Jóhannsson,
Magnea Mjöll Ingimarsdóttir.
✝
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför
BJÖRNS ÞÓRHALLSSONAR,
viðskiptafræðings og
fyrrverandi varaforseta ASÍ,
Goðheimum 26,
Reykjavík.
Einnig þökkum við sérstaklega læknum,
hjúkrunarfræðingum og öðru starfsfólki á
Hjúkrunarheimlinu Eir og Landspítalanum fyrir
góða aðhlynningu og umönnun.
Guðný S. Sigurðardóttir,
Þórhallur Björnsson, Anna Janyalert,
Karl Björnsson, Katrín I. Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, systir okkar og mágkona,
GUÐRÍÐUR BJARNEY ÁGÚSTSDÓTTIR
frá Stíghúsi,
Stokkseyri,
verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugardag-
inn 19. janúar kl. 14.00
Valborg Sonya Guðríðard. Hassan,
Guðbrandur Stígur Ágústsson, Brynhildur Arthúrsdóttir,
Sigríður Inga Ágústsdóttir,
Dagrún Mjöll Ágústsdóttir, Aron Hauksson,
Hólmfríður Hlíf Steinþórsdóttir, Einar Páll Bjarnason,
Ragnheiður Drífa Steinþórsdóttir, Logi Hjartarson,
Kristín Steinþórsdóttir,
Jason Steinþórsson, Hrönn Sturlaugsdóttir.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
ástkærs föður, tengdaföður, afa og bróður,
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR
arkitekts.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Elín Guðmundsdóttir, Brynjar Þórsson,
Jónas Guðmundsson, Harpa Ásgeirsdóttir,
Sigríður Halla Guðmundsdóttir, Ketill Magnússon,
Sigríður Jónasdóttir, Guðmundur Loftsson,
Sólrún Jónasdóttir, Ólafur V. Sigurbergsson,
Kristján Jónasson
og barnabörn hins látna.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og dóttir,
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR,
Laufskógum 40,
Hveragerði,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 8. janúar verður jarðsungin frá
Hveragerðiskirkju laugardaginn 19. janúar
kl. 14.00.
Guðmundur F. Baldursson,
Rósant Guðmundsson, Edda Rúna Kristjánsdóttir,
Heiða Margrét Guðmundsdóttir,
Valdemar Árni Guðmundsson,
Enea og Mía Rósantsdætur,
Hallfríður Bjarnadóttir.