Morgunblaðið - 18.01.2008, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 18.01.2008, Qupperneq 42
Björk er bara lítil, íslensk kona sem flakkar um heiminn …47 » reykjavíkreykjavík Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is HAMSKIPTI Franz Kafka í útfærslu Vesturports voru frumsýnd í Lyric Hammersmith leikhúsinu í London síðastliðið mánudagskvöld. Það er skemmst frá því að segja að sýning- unni var afar vel tekið af viðstöddum sem sýndu ánægju sína með dynjandi lófataki og fagnaðarlátum. Það er vill reyndar oft verða svo í lok leiksýn- inga en þá má geta þess að uppselt er á allar 20 sýningar á Hamskiptunum í London í leikhús- inu sem tekur um 700 manns í sæti. The Independ- ent lætur nægja að endurbirta dóm um sýninguna frá árinu 2006 þrátt fyrir að talsverðar mannabreytingar hafi orðið á leik- hópnum í millitíðinni. Svo virðist sem fæstir fjölmiðlar hér í London sjái ástæðu til að birta nýjan dóm um sýn- inguna, enda sýningin verið sett upp hér áður fyrir hálfu öðru ári. Fiona Mountford hjá Evening Standard var þó ein viðstaddra á sýn- ingunni og gagnrýni hennar birtist á vefmiðli blaðsins í fyrradag. Hún gef- ur sýningunni fjórar stjörnur af fimm mögulegum og segist hrífast sér- staklega að leikmynd Barkar Jóns- sonar. Einnig segir hún frammistöðu Björns Thors magnaða í hinu krefj- andi hlutverki Gregors Samsa, hann snerti vart jörðina þegar hann ferðast um híbýli Samsa fjölskyldunnar og herbergi sitt sem snúið hefur verið 90 gráður. Þá segir Fiona Mountford að Unnur Ösp sé sérstaklega sannfær- andi sem systirin Greta. Björn Thors fær einnig góða um- sögn í Guardian, og The Stage og ljóst að hann fyllir skarð Gísla Arnar með miklum myndarskap í London. Hamskipti í London Ljósmynd/Þjóðleikhúsið-Eddi Í háloftunum Gísli Örn Garðarsson sem Gregor Samsa í Þjóðleikhúsinu. Gagnrýnendur hríf- ast af Birni Thors Björn Thors  Þórhildur Þor- leifsdóttir mun leikstýra dóttur sinni Sólveigu, eiginmanni sínum Arnari Jónssyni og bróður sínum Eggerti Þorleifssyni í verkinu Engisprettum eftir skáldkonuna serbnesku og þjóðfélagsrýninn Bil- jönu Srbljanovic, sem frumsýnt verður í mars n.k. Fyrsti samlestur á verkinu fór fram í Leikhúskjall- aranum í vikunni og munu gestir á honum hafa skellt ítrekað uppúr yf- ir textanum. Í Engisprettum segir af átökum ólíkra kynslóða og við- leitni mannsins til að komast af. Auk fjölskyldu Þórhildar leika í verkinu Anna Kristín Arngríms- dóttir, Friðrik Friðriksson, Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Gunnar Eyj- ólfsson, Hjalti Rögnvaldsson, Pálmi Gestsson, Þóra Karítas Árnadóttir og Þórunn Lárusdóttir. Gunnar snýr aftur í Þjóðleikhúsið eftir fimm ára hlé, lék þar síðast í Græna landinu. Verk eftir Srbljanovic hef- ur ekki verið sýnt á Íslandi áður. Fjölskylda í fjölskyldu- verkinu Engisprettum  Sverrir Stormsker hitti leikstjór- ann Quentin Tarantino á veitinga- staðnum Caruso, þegar Tarantino var í Reykjavík um og í kringum ára- mótin, og sýndi honum mynd sem hann tók af 190 fm kastala sínum í Breiðagerði á Vatnsleysuströnd, sem nú er til sölu. Stormsker staðfesti þetta í samtali við blaðamann í gær en sagði Tarantino ekki líklegan kaupanda þrátt fyrir að honum hefði litist vel á kastalann, sem Sverrir teiknaði sjálfur en stendur nú auður. Sverrir segir Tarantino sjálfsagt hafa margt þarfara að hugsa um en kaup á húsi á Íslandi. Hann hafi ekki virkað mjög spenntur fyrir því, frek- ar viljað eyða peningunum sínum í konur og vín en íslenskan kastala. Hrifinn af kastalanum Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „VIÐ ákváðum að sýna tíu sýningar í von um að ná einhverjum áhorfendum í hús en síðan er búið að vera uppselt á hverja einustu sýningu svo við lengdum sýningartímann út febrúar,“ segir Þóra Karítas leikkona sem fer með hlutverk May í Fo- ol for Love sem Silfurtunglið sýnir um þessar mundir í Austurbæ. Ásamt Þóru leika í Fool for Love Sveinn Ólafur Gunnarsson, Magnús Guð- mundsson og KK. Jón Gunnar Þórðarson leik- stýrir verkinu sem er eftir Sam Shepard. Upp- setningin hefur fengið mjög góða dóma svo aðsóknin ætti kannski ekki að koma leikhópnum á óvart. „Ég held að þetta sé að mestu Sam Shep- ard að þakka og því hvað hann er góður sögu- maður. Það er spilað á marga strengi og erfiðar tilfinningar í verkinu, en það er líka kómískt og svolítið rokkað. Það er ekki endilega í tísku núna að vera einlægur en við ákváðum að leyfa okkur að vera svolítið tilfinningasöm og melódrama- tísk,“ segir Þóra sem hafði dreymt lengi um að fara með hlutverk May. „Ég sá þetta leikrit á West End í London með Juliette Lewis í aðal- hlutverki. Þá fékk ég á tilfinninguna að May ætti erindi við mig. Þegar ég kom heim athugaði ég hvort ég gæti sett það upp en ég var nýkomin úr námi og hafði ekki neina aðstöðu til þess. Um ári seinna er ég komin aftur til London þegar Jón Gunnar hringir í mig og býður mér hlutverkið. Það hafði þá líka verið draumur hjá honum lengi að setja verkið upp og þannig þefaði May mig aftur uppi.“ Leikur tíu ára stelpu Þóra segir stemninguna í kringum uppsetn- inguna hafa verið mjög skemmtilega og telur hún áhorfendur skynja það hvað þeim þykir öll- um vænt um hvert annað og þetta litla verkefni. Ekki er útlit fyrir að Fool for Love verði sýnt lengur en út febrúar því leikararnir fara í önnur verkefni í mars. Sveinn leikur í Dubbeldursh sem Vesturport setur upp í samstarfi við Leik- félag Akureyrar, Magnús leikur í Óráðna mann- inum hjá Stoppleikhúsinu og Jón Gunnar er að- stoðarleikstjóri Gísla Arnar Garðarssonar í Tillsammans sem verður frumsýnt í lok febrúar í Borgarleikhúsinu. Sjálf skokkar Þóra Karítas yfir í Þjóðleikhúsið þar sem hún fer með hlut- verk í verkinu Engisprettur eftir Biljana Serb- janovits sem verður frumsýnt á Stóra sviðinu í mars í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. „Í verkinu leik ég tíu ára stelpu sem er harð- stjóri á eigin heimili og finnst gaman að láta ljós sitt skína,“ segir Þóra sem finnst yndislegt að fá tækifæri til að leika í Þjóðleikhúsinu. „Að labba á þessum teppum sem ég er búin að þekkja síðan ég var lítil, það er eitthvað heimilislegt við það og líka ævintýralegt. Ég hugsa að draumurinn um að verða leikkona hafi kviknað í Þjóðleikhús- inu og það er ómetanlegt að komast í hóp svona reyndra leikara sem eru tilbúnir til að miðla af þekkingu sinni og leiða mann í sannleika um fag- ið og söguna.“ Með einleik á döfunni Rúmt ár er síðan Þóra lauk leiklistarnámi í London frá Webber Douglas leiklistaskólanum og hefur hún haft í nægu að snúast frá útskrift. Auk Engisprettunnar er hún komin með eitt að- alhlutverkið í íslenskri kvikmynd sem fer líklega í tökur á þessu ári. „Ég er sjálfstætt starfandi svo ég er með mörg járn í eldinum en margt af því er ekki tímabært að tala um í augnablikinu.“ En Þóra er nýráðin kynningarfulltrúi fyrir Lókal, alþjóðlega leik- listahátíð sem verður haldin hér í fyrsta skipti í mars og hefur að undanförnu starfað sem lausa- penni fyrir Fréttablaðið. „Penninn er aldrei langt undan og ég gríp í hann svona til að eiga fyrir leigunni enda fórum við í Fool for Love á okkar forsendum og án þess að sjá fram á að fá borgað fyrir það. Reyndar blundar blaðagrúsk- arinn alltaf í mér og markmiðið var að fara strax í að æfa einleik sem var saminn í kjölfar um- deildra atburða sem áttu sér stað árið 2003. Ein- leikurinn nefnist Ég heiti Rachel Corrie og fjallar um bandaríska stelpu sem var myrt fyrir fimm árum við friðarstörf í Palestínu. Verkið er byggt á dagbókarskrifum hennar og er há- pólitískt. Ég ætlaði að setja það upp í Silf- urtunglinu að loknu Fool for Love en það frest- ast líklega fram á haustið,“ segir Þóra og dregur loks andann djúpt eftir alla upptalninguna enda nóg að gerast hjá þessari atorkusömu leikkonu. Í draumahlutverkinu Leikkonan Þóra Karítas fer með hlutverk May í leikritinu Fool for Love Árvakur/Golli Nóg að gera „Ég er sjálfstætt starfandi svo ég er með mörg járn í eldinum en margt af því er ekki tímabært að tala um í augnablikinu, segir Þóra Karítas.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.