Morgunblaðið - 18.01.2008, Síða 43

Morgunblaðið - 18.01.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 43 Lýstu eigin útliti. Tveir fætur, tvær hendur, búkur og nauðasköllóttur haus. Hvaðan ertu? Skaftafellssýslu, Landeyjunum, Rangárvöllum, Ölfusi, Eyrarbakka og Njarðvíkunum í föðurlegginn. Húna- vatnssýslu, Þingeyjarsýslu og Danmörku í móðurlegg- inn. Hefur þú séð Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu (Spurt af síðasta aðalsmanni, Láru Sveinsdóttur). Ég hef verið að sýna Ívanov í Þjóðleikhúsinu og ekki komist enn, en ég hlakka til að sjá og heyra píslarsöguna vel rokkaða. Hvað finnst þér um húsin á Laugavegi 4 og 6? Mér finnst góð hugmynd að gera þau upp og flytja í Hljómskálagarðinn, Laugavegurinn má alveg byggjast upp og ég trúi því ekki að nýtt þurfi alltaf að vera verra en gamalt. Reykirðu? Já, því miður, en bara spari. Ertu í einhverjum samtökum? Ég er á póstlista Goethe- stofnunarinnar og í félagi leikara við Þjóðleikhúsið. Hvað ætlaðirðu að verða þeg- ar þú varst ungur? Hamingjusamur geimfari, stærðfræðingur, feldskeri, arkitekt eða leikari. Hvaða bók lastu síðast? Himnaríki og helvíti Kalmans. Á hvaða plötu hlustar þú mest þessa dagana? Melodiu Árna Heimis og Kammerkórsins Carminu og Royal Family Divorce með stórsveit Nix Noltes. Uppáhaldstónlistarmaður/ hljómsveit? Hamlet Gonashvili, Gentle Gi- ant, Þursaflokkurinn, Jonat- han Fire Eater, Spælimenn- irnir í Hoydolum og Kristján Blak, Sufjan Stevens, Manna- korn og Mileu og ég veit ekki hvað og hvað. Helstu áhugamál? Húmanísk fræði, umburðarlyndi og góðar sögur. Flatey á Breiðafirði eða Flatey á Skjálfandaflóa? Flatey á Breiðafirði, ef ég get pantað eins veður og við fengum þegar við vorum að taka upp Brúðgumann í sum- ar, samfelld bongóblíða í meira en mánuð … Ertu með ofnæmi fyrir sjálfum þér eins og presturinn í Brúðgumanum? Já, en mér líður samt ósköp vel í eigin skinni. Guðspjallið skrifaði…? Vinir og kunningjar Jesú bróður besta. Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfan þig? Hvað mér finnst gaman að vera pabbi. Er maðurinn það sem hann trúir að hann sé? Tja, ekki er hann það sem aðrir trúa að hann sé eða hvað? Tekurðu mark á gagnrýni? Ég vona það, uppbyggilegri að minnsta kosti. Uppáhaldsleikari? Klaus Kinsky. Uppáhaldsleikkona? Uppáhaldskonan mín og spúsa Esther Talía. Hvaða erlendu borg heldur þú mest upp á? Alltaf huggulegt að koma til Kaupmannahafnar. Hvert er erfiðasta hlutverk þitt til þessa? Lvov Læknir í Ívanov, það er svo erfitt að vera leiðinlegur og meina það. Draumahlutverkið? Næsta rulla. Hver er frægasti vinur þinn í dag? Ætli það sé ekki Kormákur sá er við Baltasar er kenndur. Hver er fyndnasti maður sem þú hefur hitt? Það eru allir jafn fyndnir þegar þeir eru fyndnir. Hvers viltu spyrja næsta við- mælanda? Ertu búinn að sjá Brúðgum- ann? ÓLAFUR EGILL EGILSSON AÐALSMANN VIKUNNAR MÁ NÚ SJÁ Á HVÍTA TJALDINU Í HLUT- VERKI PRESTS Í BRÚÐGUMANUM AUK ÞESS SEM HANN SKRIF- AÐI HANDRITIÐ AÐ MYNDINNI MEÐ BALTASAR KORMÁKI. Ólafur Egill Hefur meðal annars áhuga á húm- anískum fræðum og umburðarlyndi. Morgunblaðið/Valdís Thor Ívanoveftir Anton Tsjekhov Leikstjórn og aðlögun: Baltasar Kormákur Sjáðu og heyrðu meira á www.leikhusid.is Ath. takmarkaður sýningafjöldi Ægifögur og óhemjufyndin ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ „Sviðsetning Baltasars Kormáks á Ívanov er eitt besta verk hans frá upphafi. Hún er þaulhugsuð og samvinna þeirra Gretars Reynissonar hefur sjaldan borið glæstari ávöxt, og er þá ekki lítið sagt.“ Jón Viðar Jónsson, DV, 9. jan. Brúðguminn, mynd Baltasars Kormáks sem byggir á sama verki, er komin í bíó PAULA Abdul mun koma fram á úrslita- leiknum í ameríska fótboltanum, Super Bowl, sem fer fram í Arizona hinn 3. febr- úar næstkomandi. Þar mun Abdul syngja sitt nýjasta lag sem mun vera úr smiðju Randy Jackson, samdómara hennar úr American Idol-þáttunum. Ekki er vitað hvort Abdul muni syngja fyrir leik eða í leikhléi, en talið er að hún hafi mun meiri áhuga á síðarnefnda mögu- leikanum. Annars mun andi American Idol svífa yfir vötnum á leiknum því Jordin Sparks, sem bar sigur úr býtum í síðustu þáttaröð, mun syngja bandaríska þjóðsönginn fyrir leik, auk þess sem Ryan Seacrest, sem stjórnar American Idol, verður kynnir á leiknum. Abdul syngur á Super Bowl Reuters Dómarinn Paula Abdul.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.