Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 2

Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Allir velkomnir! Tölum saman Laugardagsfundur í Valhöll MENNTA- OG MENNINGARMÁL Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varafor- maður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um mennta- og menningarmál og horfur í stjórnmálum á laugardags- fundi í Valhöll 2. febrúar. Málfundafélagið Óðinn stendur fyrir fundinum sem hefst kl. 10.30. Fundarstjóri: Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Heimdallar. Kaffi og veitingar á boðstólum. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is AÐEINS munaði um tveimur pró- sentustigum á fylgi Sjálfstæðis- flokksins og Samfylkingarinnar í skoðanakönnun Fréttablaðsins sem birt var í gær. Þá sögðust tæplega 70% styðja núverandi ríkisstjórn, þar af sögðust 94,1% kjósenda Sjálf- stæðisflokksins styðja stjórnina og 82% samfylkingarmanna. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mæld- ist 36,7% sem er nánast jafnmikið fylgi og flokkurinn fékk í alþing- iskosningunum 2007. Fylgi Sam- fylkingarinnar mældist 34,8 sem er mun meira en í alþingiskosningun- um en þá hlaut flokkurinn 26,8% at- kvæða. Samkvæmt könnuninni fengi Sjálfstæðisflokkurinn 25 þingmenn, einum fleiri en hann er með nú, en Samfylkingin myndi bæta við sig fimm þingmönnum en þar með myndi þingflokkurinn stækka úr 19 í 24, að sögn Fréttablaðsins. Fylgi Vinstri grænna eykst frá kosningum en minnkar frá síðustu könnun en nú sögðust 15,4% kjósa flokkinn sem myndi samkvæmt því bæta við sig einum þingmanni. Fylgi Framsóknarflokksins er svipað og í síðustu könnun eða 8,9% en það er þremur prósentustigum minna en í kosningunum 2007. Þing- mönnum Framsóknarflokksins myndi því fækka um einn. Fylgi Frjálslynda flokksins mældist að- eins 3,6% en flokkurinn fékk 7,3% í kosningunum. Fylgið nú myndi ekki duga til að flokkurinn fengi mann kjörinn, bendir Fréttablaðið á. Fylgið nánast jafnt Sjálfstæðisflokkur með 36,7% og Samfylk- ingin með 34,8% í nýrri skoðanakönnun Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is VIÐSKIPTI með um 2% hlut í Kaupþingi voru gerð í Kauphöllinni í Stokkhólmi í fyrradag, kl. 9.11 að staðartíma, á genginu 72,9 (sænsk- ar krónur á hlut), fyrir samtals tæplega 11 milljarða íslenskra króna. Viðskiptin jafngilda því að veitt- ur hafi verið um 14% afsláttur frá því verði sem bréf í Kaupþingi fóru á fyrir og eftir viðskiptin, en þau viðskipti voru á genginu 84,5 og 84,75. Kaupþing annaðist bæði sölu og kaup en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var Kaupþing hér að kaupa fyrir arabíska fjárfesta, sem sagðir eru vera frá Katar. Aftur veittur afsláttur Athygli vekur að Kaupþing fer aftur þá leið að selja erlendum fjárfestum hlut í bankanum á und- irverði því í hlutafjárútboði bank- ans í nóvember 2006 þar sem gefn- ar voru út 66 milljónir nýrra hluta á genginu 750 kr. fyrir hlutinn sem jafngilti þá um 7% afslætti frá markaðsgengi. Í kjölfar þess að afsláttarkjörin voru gerð opinber miðvikudaginn 22. nóvember 2006 féll gengi bréfa í Kaupþingi um 3,13%. Afsláttarkjör Kaupþings til er- lendra fjárfesta í útboðinu fyrir 14 mánuðum sættu mikilli gagnrýni meðal innlendra fjárfesta, einkum smærri hluthafa í Kaupþingi, sem héldu því fram að með þessum af- slætti væru forsvarsmenn bankans þar með að rýra þeirra eign. Samkvæmt þeim upplýsingum sem aflað hefur verið er ekki búist við samskonar gagnrýni í kjölfar ofangreindrar sölu. Benda heimildamenn Morgun- blaðsins á að markaðsaðstæður nú séu gjörólíkar þeim sem voru á seinnihluta árs 2006 þegar framboð fjármagns var mikið og fjármagnið var á viðráðanlegum kjörum. Hvorki náðist í Hreiðar Má Sig- urðsson, forstjóra Kaupþings, né Sigurð Einarsson, stjórnarformann Kaupþings, í gærkvöld. Kaupþing seldi aröbum 2% hlut Veittur var um 14% afsláttur í Svíþjóð NÚ hafa stóru viðskiptabankarnir þrír skilað uppgjörum sínum fyrir fjórða ársfjórðung 2007 og þar með allt það ár. Órói á fjármálamörkuð- um hefur greinilega haft sitt að segja því afkoman á fjórða ársfjórðungi er mun lakari en árið 2006. Munar þar 24,5 milljörðum króna. Kaupþing, Landsbankinn og Glitnir högnuðust samanlagt um 17 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi samanborið við 41,5 milljarða í sama fjórðungi árið 2006. Sé afkoma einstakra banka skoð- uð dregst hagnaðurinn hlutfallslega mest saman á fjórða ársfjórðungi hjá Glitni, eða um 73%, úr 9,3 milljörðum árið 2006 í 2,5 milljarða á fjórða fjórðungi árið 2007. Hjá Landsbank- anum var hagnaður fjórðungsins 4,9 milljarðar borið saman við 14,1 millj- arð árið 2006, sem er 65% lakari hagnaður. Fjórði ársfjórðungur skil- aði Kaupþingi 9,6 milljörðum í gróða, samanborið við rúma 18 milljarða á sama tímabili árið áður. Á öllu síðasta ári högnuðust bank- arnir um 137,6 milljarða króna, sem er meira en 26 milljörðum króna lak- ari afkoma en árið 2006 þegar sam- anlagður hagnaður nam 163,7 millj- örðum króna. Hagnaður Kaupþings í fyrra nam 70 milljörðum, 39,9 milljarðar hjá Landsbankanum og 27,7 hjá Glitni. Árið 2006 nam hagnaður Kaupþings 85,3 milljörðum, rúmum 40 milljörð- um hjá Landsbankanum og 38,2 milljörðum hjá Glitni. Sé litið til heildareigna bankanna þriggja jukust þær um þriðjung milli ára, námu samanlagt 11.352 millj- örðum króna í árslok 2007, borið saman við 8.474 milljarða á árinu áð- ur. Á sama tíma hefur eiginfjárhlut- fall bankanna (CAD) farið minnk- andi, var kringum 15% í loks árs 2006 en var um áramótin á bilinu 11,2 til 11,8%, hæst hjá Kaupþingi. Hagnaður dróst sam- an um 26 milljarða Afkoman á fjórða ársfjórðungi 24 milljörðum króna lakari "  ) "  ) *('() *('()  + )  + ) , + '   -."&/) , + '   -."&/) 0 '1 + 2 +2            3 4 + 5    6     !  " # #"   !! # #! # " "  #    ! "!# "#         HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest fimm ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni á sex- tugsaldri, Jóni Péturssyni, fyrir frelsissviptingu, nauðgun og líkams- árás á fyrrverandi sambýliskonu sína. Henni hélt Jón nauðugri í íbúð sinni í hálfan sólarhring, nauðgaði og misþyrmdi. Fyrir Hæstarétti krafðist lögmað- ur Jóns sýknu og því til stuðnings bar hann við að skjólstæðingur sinn hefði orðið fyrir framheilaskaða á ferðalagi um Egyptaland árið 1999. Af þeim sökum hefði andlegt ástand Jóns verið svo slæmt að hann hefði verið ófær um að stjórna gjörðum sínum. Tveir dómkvaddir matsmenn voru fengnir til að meta réttmæti þess að Jón hefði orðið fyrir framheilaskaða og hvort sá áverki hefði haft áhrif á sakhæfi hans. „Í niðurstöðum mats- manna kemur fram að engin merki séu um framheilaskaða eða að hátt- semi ákærða verði rakin til áverka af þeim toga. Mun líklegri skýring á hegðun hans og sjúklegri afbrýði- semi séu uppsöfnuð áhrif af langvar- andi og mikilli áfengisneyslu,“ segir í dómi Hæstaréttar um geðheil- brigðisrannsókn matsmannanna. Líkaminn allur marinn Hvað varðar aðra þætti málsins var litið til niðurstöðu fjölskipaðs héraðsdóms. Þar kemur m.a. fram að brot Jóns hafi verið sérlega hrottafengin og líkami konunnar hafi borið þess merki. Á ljósmynd- um mátti sjá að allur líkami hennar var marinn og áberandi línur var að finna í áverkum. Þótti það renna stoðum undir framburð konunnar um að Jón hefði lamið hana ítrekað með flötu blaði kjötaxar og búrhnífs. Sjálfur hélt Jón því fram fyrir héraðsdómi að ekki hefði verið um einhliða ofbeldi að ræða. Hann neit- aði því auk þess að hafa beitt vopn- um. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Markús Sigurbjörnsson og Páll Hreinsson. Sigríður Elsa Kjartansdóttir, sak- sóknari hjá ríkissaksóknara, sótti málið og Sveinn Andri Sveinsson hrl. varði Jón. Fimm ára fangelsi staðfest í Hæstarétti INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu í dag samkomulag um samstarf á sviði fræðslu og rann- sókna. Efla á umræðu og þekkingu og auka rannsókn- arvinnu á sviði alþjóðamála á Íslandi. Alþjóðamálastofn- un fær m.a. 3 milljóna króna styrk frá ráðuneytinu. Utanríkisráðuneyti og Alþjóðamálastofnun í samstarf Árvakur/Kristinn Ráðherra og rektor gera samkomulag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.