Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Girnileg nýjung með 2 í pakka. Fæst í næstu verslun. Meistara-flokkssúpur Masterklass        Nýjung MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Fjár- málaeftirlitinu: „Vegna fréttar Morgunblaðsins á forsíðu um þá ákvörðun samningsað- ila að fallið yrði frá kaupum Kaup- þings hf. á NIBC vill Fjármálaeft- irlitið koma eftirfarandi á framfæri: Stærð umræddra kaupa var um 3.000 milljarðar króna, ef litið er til efnahags NIBC, og starfsemi fyrir- tækjanna tveggja nær yfir a.m.k. 15 lönd. Skoðun á kaupunum og áhrif- um þeirra var eðli máls samkvæmt umsvifamikil og flókin og kallaði á samstarf við eftirlitsaðila í sjö lönd- um. Í þessu ferli var kallað eftir upp- lýsingum og sjónarmiðum frá Kaup- þingi. Málið var enn í skoðun og engin ákvörðun hafði verið tekin þegar samningsaðilar féllu frá kaup- unum. Það er rangt sem kemur fram í fréttinni að sendar hafi verið skrif- legar fyrirspurnir til Kaupþings eftir reglulegan stjórnarfund Fjármála- eftirlitsins þann 25. janúar sl.“ Aths. ritstj. Vegna athugasemdar Fjármála- eftirlitsins vill ritstjórn Morgun- blaðsins taka fram að það stendur við frétt sína. Athugasemd frá Fjármála- eftirlitinu Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is Á YFIRSTANDANDI skólaári er þegar orðin 9% fjölgun umsókna um störf leiðbeinenda við íslenska framhaldsskóla frá síðasta ári. Þetta kemur fram í vefriti mennta- málaráðuneytisins. Undanþágunefnd framhaldsskóla tekur til afgreiðslu umsóknir for- stöðumanna framhaldsskóla um heimild til að lausráða starfsmenn sem ekki hafa leyfi menntamálaráð- herra til að nota starfsheitið fram- haldsskólakennari. Umsóknir sem borist hafa nefnd- inni eru nú orðnar 72 miðað við 66 á síðasta skólaári. Þar af hefur nefnd- in samþykkt 68 umsóknir. Frá skólaárinu 2003-2004 hefur sam- þykktum umsóknum jafnt og þétt fækkað úr 157 niður í 63, eða í kringum 20% á ári að jafnaði. Í þessum efnum eru því að verða um- skipti. 3,8% aukning í grunnskólum Hliðstæð nefnd afgreiðir umsókn- ir forstöðumanna grunnskóla um slíkar heimildir. Tölur benda til þess að 3,8% fjölgun verði í um- sóknum um störf leiðbeinenda við grunnskólana. Þær eru nú orðnar 571 miðað við 550 á síðasta skólaári, en þar af hefur nefndin samþykkt 420 umsóknir og synjað 151. Einnig kemur fram í vefritinu að leyfisveitingum ráðherra til grunn- skóla- og framhaldsskólakennara til að nota þau starfsheiti fjölgaði mik- ið frá aldamótum til ársins 2006. Leyfisveitingum til grunnskóla- kennara hefur fjölgað um 173% en leyfisveitingum til framhaldsskóla- kennara um 93,3%. 9% fleiri umsóknir í framhaldsskólum Ásókn í störf leiðbeinenda eykst á ný NÝTT húsnæði Ljóssins, endurhæf- ingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir þá sem hafa greinst með krabba- mein og aðstandendur þeirra, var opnað við hátíðlega athöfn í gær. Það var Hanna Katrín Friðriksson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, sem opnaði húsið formlega, en það er við Langholtsveg 43 í Reykjavík. Lengst til hægri standa Erna Magn- úsdóttir forstöðumaður og Guðrún Högnadóttir, formaður stjórnar Ljóssins. Hlýlegt og heimilislegt Markmið Ljóssins er að efla lífs- gæði á erfiðum tímum með því að styrkja andlegan, félagslegan og lík- amlegan þrótt, og draga þannig úr hliðarverkunum sjúkdómsins. Þeir sem hafa krabbamein og aðstand- endur þeirra hafa aðgang að end- urhæfingar- og stuðningsmiðstöð- inni. Að sögn er áherslan á að skapa hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft, þar sem fólki finnst það velkomið. Hlýlegt og heimilislegt umhverfi Árvakur/Ómar Ný endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð Ljóssins opnuð ♦♦♦ BÆJARRÁÐ Akraness samþykkti á fundi sínum í gær að ítreka óskir um svör við spurningum sem sendar voru stjórnarformanni og forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur 19. desem- ber síðastliðinn. Á fundinum var bæjarstjóra falið að leita eftir svörum við áður send- um spurningum um til dæmis stjórn- sýsluúttektina á OR, gildi hennar og greiðslu kostnaðar. Í fyrradag samþykkti byggðarráð Borgarbyggðar að hvetja borgar- stjórn Reykjavíkur til að sýna ábyrgð og stefnufestu við stjórn fyr- irtækja í sameiginlegri eigu Borgar- byggðar, Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga. Ólíðandi væri að fimm sinnum hefði verið skipt um formann stjórnar OR og þrisvar um stjórn- arformann Faxaflóahafna á innan við tveimur árum í krafti meirihluta- eignar Reykjavíkur í fyrirtækjun- um. Ítreka óskir um svör OR Í HNOTSKURN »64 starfsmenn HB Granda áAkranesi fengu uppsagn- arbréf sent á miðvikudags- kvöldið. »Tuttugu þeirra verða ráðniraftur. Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „UPPSAGNARBRÉFIN bárust starfsmönnum, því miður, milli níu og ellefu í gærkvöldi [fyrrakvöld],“ segir Vilhjálmur Birgisson, formað- ur Verkalýðsfélags Akraness, um uppsagnir 64 starfsmanna HB Granda á Akranesi. HB Grandi hef- ur sagt að tuttugu starfsmenn verði ráðnir aftur. Á miðvikudag fjallaði miðstjórn ASÍ um málið og skoraði á stjórn HB Granda að fresta uppsögnunum. Vil- hjálmur segir málsókn næsta skref- ið. Væntanlega mun Alþýðusam- bandið sjá um að reka málið fyrir dómstólum fyrir hönd verkalýðs- félagsins. Halldór Gröndvold, að- stoðarframkvæmdastjóri ASÍ, segir klárt að fyrirtækið hafi brotið lög, og sé „alveg klárlega ekki að haga sér í neinu samræmi við evrópskar reglur um hópuppsagnir.“ Hann segir inntak reglnanna vera að það geti ekki verið einhliða ákvörðun fyrirtækis að segja upp hópi fólks, það þurfi að gerast í sam- vinnu við fulltrúa starfsmanna. Eðli- legt sé að fyrirtæki hafi samráð við t.d. stéttarfélög eða Vinnumálastofn- un um hvernig sé best að haga nauð- synlegum uppsögnum og aðstoða fólk sem sagt er upp. „Grundvallaratriðið í okkar huga er einfaldlega að farið sé eftir lögum um hópuppsagnir, og upplýsinga- og samráðsferli klárað, sem hefði gefið okkur kost á því að koma fram með okkar athugasemdir og tillögur til að milda þessar uppsagnir,“ segir Vil- hjálmur. „Það var því miður ekki vel að þessu staðið.“ Spurður um framhaldið segir Vil- hjálmur: „Lög um hópuppsagnir eru gríðarlega mikilvæg íslensku launa- fólki. Alþýðusambandið telur að slíkt verði að verja með öllum tiltækum ráðum.“ Afgreitt á fjórum dögum Málsókn er því næsta skref að sögn Vilhjálms. Tapist málið sé ljóst að lög um hópuppsagnir séu gölluð. „Ef hægt er að afgreiða þetta með þessum hætti, á fjórum dögum, þá þarf að endurskoða lögin, það liggur alveg fyrir. En ég tel að lögin séu hvellskýr hvað þetta varðar.“ Vilhjálmur bendir á að samráðs- ferlið hefði átt að fara fram, jafnvel þótt það hefði engu skilað. „Þá gæt- um við sagt að við hefðum reynt allt sem í okkar valdi stóð. Það er algjört virðingarleysi við fólk sem hefur unnið hjá fyrirtækinu í 40-50 ár að slíkt skuli ekki vera reynt.“ Halldór segir það ekki tilgang verkalýðshreyfingarinnar að stöðva hjól tímans. „Við erum ekki að gera þá kröfu að fyrirtæki séu með rekst- ur sem ekki stendur undir sér. En það verður að gefa fólki tækifæri til að koma fram með hugmyndir og til- lögur.“ Vilhjálmur segir mikla óvissu ríkja meðal starfsfólksins. Tuttugu starfsmenn verði ráðnir aftur á næstu 14 dögum, en enginn viti hverjir og sé andrúmsloftið hjá starfsfólkinu nú rafmagnað. Vilhjálmur minnir á að HB Grandi eigi gríðarlega sterka sögu í bæjar- félaginu. „Það er klárlega mikil dep- urð yfir fólki. Margir hverjir hafa eytt sinni starfsævi algjörlega hjá þessu fyrirtæki og því verða menn virkilega niðurdregnir.“ Hann segir það rétt sem fram hafi komið að atvinnuástand á svæðinu sé gott. „En þegar um er að ræða sér- hæft fiskvinnslufólk sem ekki hefur starfað við annað í tugi ára getur myndast tómarúm hjá þeim einstak- lingum. En að sjálfsögðu munu allir leggjast á eitt við að aðstoða alla eins og kostur er.“ | Miðopna Verkalýðsfélag Akraness höfðar mál gegn HB Granda Segja lög um hópuppsagnir hafa verið brotin þegar 64 var sagt upp ♦♦♦ BORGARRÁÐ staðfesti á fundi sín- um í gær viljayfirlýsingu Reykjavík- urborgar og fjármálaráðuneytisins frá 23. janúar sl. í sambandi við fyr- irhugaðar breytingar á Tollhúsinu og framtíðarstaðsetningu Kolaports- ins þar. Í bókun borgarráðs segir að starf- semi Kolaportsins sé mikilvæg fyrir miðborgina og ómissandi fyrir mannlíf Reykjavíkur. Því sé fagnað að staðsetning Kolaportsins sé tryggð næstu 10 árin og öllum þakk- að sem hlut eiga að máli. Kolaportið ómissandi HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness úr- skurðaði í gær karlmann í gæsluvarð- hald til 15 febrúar nk. Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli á miðvikudag en hann er grunaður um aðild að fíkniefnainnflutningi. Maður- inn kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. Alls eru þá fjórir menn í gæsluvarð- haldi vegna tilraunar til innflutnings á rúmlega 4,5 kg af amfetamíni og 600 g af kókaíni með hraðsendingu til landsins í nóvember. Fjórði í gæslu- varðhaldi ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.