Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SAMHLJÓMUR er með oddvitum
allra flokka í bæjarstjórn varðandi
hugmyndir um að nýr kirkjugarður
verði í Naustaborgum: Allir eru
hrifnir. Eins og fram kom í blaðinu í
gær hefur umhverfisnefnd bæjarins
skipað vinnuhóp til að kanna málið
en hugmyndir Smára Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Kirkjugarða Ak-
ureyrar, eru á þá lund að kirkjugarð-
urinn verði um leið útivistarsvæði,
með ákveðnum formerkjum, m.a.
með göngustígum og reiðleiðum.
„Á kynningu nýverið hjá Kirkju-
görðum Akureyrar hreifst ég af
þessari hugmynd og hvernig þeir
hugsa garðinn sem hluta af almennu
útivistarsvæði, þetta er ný hugsun
sem ég held að sé rétt að mörgu
leyti,“ sagði Sigrún Björk Jakobs-
dóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins
og bæjarstjóri, við Morgunblaðið.
Sigrún telur hugmyndina vel þess
virði að skoða nánar og hún gæti orð-
ið að veruleika á 15 til 20 árum.
„Engu að síður þarf að taka tillit til
hennar núna strax við deiliskipulags-
vinnu og heildarhugsun á svæðinu
sem um ræðir,“ sagði bæjarstjóri.
Hermann Jón Tómasson, oddviti
Samfylkingarinnar og formaður
bæjarráðs, tók í sama streng. „Þessi
hugmynd er athyglisverð og full
ástæða til þess að skoða hana betur.
Röksemdirnar fyrir þessari stað-
setningu eru góðar og þar vek ég
sérstaklega athygli á þeirri stað-
reynd að við þurfum nú að taka tillit
til fjölbreyttari þarfa á þessu sviði
vegna þess að við lifum í fjölmenn-
ingarsamfélagi. Í mínum huga mælir
ekkert á móti því að grafreitir og úti-
vistarsvæði geti farið saman en ég
veit að um það eru skiptar skoðanir,“
sagði Hermann Jón.
Baldvin H. Sigurðsson, VG, segist
ofboðslega ánægður með hugmynd-
ina. „Þetta er eins og talað úr mínum
munni og ég heyri á mörgum bæj-
arbúum að þeir vilja einmitt hafa
nýjan kirkjugarð í námunda við þann
gamla,“ sagði Baldvin og bætti við að
skynsamlegt væri að hafa sem styst
á milli garðanna vegna þeirra tækja
sem notuð væru til að hirða þá. Lítið
vit væri í að keyra nokkra kílómetra
„í gegnum umferðarbæinn Akur-
eyri“ á milli kirkjugarða.
Jóhannes Bjarnason, Framsókn-
arflokki, nefndi einnig praktísku
hliðina og þeir Baldvin lýstu báðir
yfir hrifningu á að kirkjugarðurinn
yrði hluti af útivistarsvæði bæjarbúa
og það gerði einnig Oddur Helgi
Halldórsson, oddviti L-lista fólksins.
Jóhannes vildi á sínum tíma að
kirkjugarðurinn yrði stækkaður þar
sem hann er í dag en varð undir með
hugmyndir sínar, en líst afskaplega
vel á hugmyndafræðina með Nausta-
borgir. „Ég held satt að segja að
hugmynd Smára um garðinn í
Naustaborgum sé frábær.“
Oddur Helgi sagðist ætla að eyða
eilífðinni norðan Glerár, þar sem
hann er fæddur og hefur alltaf verið
búsettur, en hugmynd Smára væri
frábær. „Mér líst mjög vel á þetta.
Svæðið gæti orðið fallegt og mjög
skemmtilegt útivistarsvæði.“
Taka mjög vel
í hugmyndina
Bæjarfulltrúum líst vel á Naustaborgir
AKUREYRI
DEILISKIPULAG er tilbúið fyrir
Héðinsreit svokallaðan. Reiturinn
afmarkast af Mýrargötu, Ánanaust-
um, Vesturgötu og Seljavegi. Gert
er ráð fyrir að þarna verði byggðar
íbúðir fyrir eldri borgara. Teikning-
ar liggja nú fyrir hjá byggingarfull-
trúa og bíða þess að verða sam-
þykktar, sem mun taka einhvern
tíma.
Á deiliskipulagsreitnum eru sjö
lóðir í eigu Reykjavíkurborgar og
einkaaðila, Héðinsreits ehf. Heimilt
er að fjarlægja allar núverandi
byggingar á lóðum við Vesturgötu
og Ánanaust. Þegar hefur verið haf-
ist handa við niðurrifið.
Landi hallar til vesturs og norð-
urs á svæðinu og hæðarmunur er
um sex metrar á Seljavegi og Ána-
naustum. Í greinargerð með deili-
skipulagi segir að þessar aðstæður
bjóði upp á lausnir sem gera ráð fyr-
ir bílageymslu og atvinnuhúsnæði á
neðri hæðum og íbúðum á efri hæð-
um.
Í nýbyggingum á reitnum er að-
allega gert ráð fyrir íbúðum en at-
vinnustarfsemi heimil með takmörk-
unum. Hægt er að koma fyrir
skrifstofum, verslun og þjónustu-
starfsemi.
Héðinshús stendur áfram
Gert er ráð fyrir aðkomu að ný-
byggingum á sameinuðum lóðum frá
öllum aðliggjandi götum; Seljavegi,
Vesturgötu, Ánanaustum og Mýrar-
götu. Nýbygging að Seljavegi getur
verið fimm hæða og miðað við land-
halla geta hús við Ánanaust verið sjö
hæða. Héðinshús mun standa áfram
og nýbyggingar munu ná að því.
Guðni Pálsson, arkitekt hjá GP
arkitektum, teiknaði húsið sem á að
rísa á Héðinsreitnum og að hans
sögn verða þar 176 íbúðir. „Þetta er
smáhús,“ segir hann, „svona 32.000
fermetrar. Þarna verða íbúðir fyrir
aldraða, með ákveðinni þjónustu.“
Stærðir íbúðanna verða á bilinu 70-
140 fermetrar. Guðni lýsir húsinu
svo að það nái að Héðinshúsinu,
Seljavegi, fari svo niður Vesturgöt-
una, eftir Ánanaustum og fyrir
hornið á Mýrargötu. „Þetta verður
svona heill hringur og svo verður
inngarður í miðju húsinu,“ segir
hann.
Bílageymsla á neðstu hæð
Að Ánanaustum verður húsið sjö
hæðir en fimm að Seljavegi, vegna
hæðarmunar. Keyrt verður í bíla-
geymslu frá Ánanaustum og hún
verður niðurgrafin við Seljaveg.
„Á annarri hæð verður þjónusta,
það er að segja matsalur, eldhús,
auk þess sem gert er ráð fyrir hár-
greiðslu, snyrtingu, möguleika á
nuddi og aðstöðu fyrir lækni,“ segir
Guðni og bætir við að um sé að ræða
almenna þjónustu eins og gengur og
gerist fyrir aldraða.
Að sögn Guðna er vonast til að
framkvæmdir geti hafist sem allra
fyrst. „Þetta er allt klöpp þannig að
það tekur nokkra mánuði að grafa
niður,“ segir hann.
32.000 fermetra bygging
mun senn rísa á Héðinsreit
Íbúðir fyrir aldraða verða í húsinu Möguleiki á að koma fyrir skrifstofum,
verslun og þjónustustarfsemi Teikningar eru í ferli hjá byggingarfulltrúa
Horft til norðausturs Vesturgata liggur hægra megin við bygginguna, Ánanaust upp til vinstri. Húsin, sem fyrir
eru, eru gul, nýbyggingin er brún. Vonast er til að framkvæmdir geti hafist sem fyrst.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
ÓTRÚLEGT en satt: Akureyringur
hreppti fyrsta vinning í fjórföldu
lottói síðasta laugardag og varð
tæpum 22 milljónum króna ríkari.
Og þó, kannski ekki svo ótrúlegt
því stórir vinningar fara að verða
vani hjá íbúum höfuðstaðar Norð-
urlands! Frá því í apríl í fyrra, á níu
mánuðum, hafa bæjarbúar alls unn-
ið 210 milljónir króna í lottói og
víkingalottói. Og eru þá bara taldir
„stórir“ vinningar en eflaust hafa
einhverjir „litlir“ fylgt með.
Fékk tvo „stóra vinninga“
Ævintýrið hófst í apríl þegar Ak-
ureyringur fékk 10 milljónir króna
í lottóinu, helming af fjórföldum
fyrsta vinningi.
Vinningshafi síðustu helgar hef-
ur þegar gefið sig fram og að sögn
talsmanns Íslenskrar getspár var
hann yfir sig ánægður en vildi alls
ekki ræða við fjölmiðla. Það vildi
heldur ekki sá sem vann stærsta
vinninginn, maður á sjötugsaldri
sem í haust vann hvorki meira né
minna en 105 milljónir króna í vík-
ingalottóinu; hann var einn með all-
ar tölurnar réttar þegar potturinn
var tvöfaldur.
Skömmu fyrir jól vann svo maður
á Akureyri 54 milljónir króna í vík-
ingalottóinu og hann var auðvitað í
sjöunda himni þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær. Sagðist
reyndar hafa unnið annan og enn
stærri vinning stuttu síðar, vegna
þess að þá fæddist þeim hjónum
heilbrigt stúlkubarn. Eiginkonan
var lögst á fæðingardeildina þegar
dregið var í víkingalottóinu, nokkr-
um dögum fyrir fæðingu barnsins,
og fékk fréttirnar á sængina.
„Það var auðvitað mjög ánægju-
legt að vinna og eitthvað sem ég
átti alls ekki von á enda hef ég nán-
ast aldrei tekið þátt í svona; ég hef
ekki einu sinni átt happdrættismiða
en einstaka sinnum keypt miða í
víkingalottóinu þegar maður heyr-
ir auglýstan risapott eða marg-
faldan íslenskan bónuspott. Þá hef
ég stundum keypt mér miða á net-
inu.“
Falin myndavél?
Vinningsmiðann keypti mað-
urinn einmitt í tölvunni sinni á net-
inu en fylgdist ekki með drættinum
og kom því af fjöllum þegar hringt
var í hann morguninn eftir og hon-
um tilkynnt um vinninginn.
„Þeir vissu hver ég var fyrst ég
keypti miðann á netinu.“ Fyrst hélt
hann að vinnufélagarnir væru að
stríða sér; að komið hefði verið fyr-
ir falinni myndavél og einhver væri
að taka upp myndband fyrir árshá-
tíðina. „Ég verð að viðurkenna að
það var það fyrsta sem kom upp í
huga mér. Svo fékk ég líka sendan
tölvupóst til að staðfesta þetta. En
það má segja að þetta hafi fyrst
orðið raunverulegt þegar vinning-
urinn var borgaður út, um miðjan
janúar,“ sagði maðurinn í gærdag.
Hann segist ekki farinn að nota
peningana enn þá og gantaðist með
að það væri aldeilis lán að hann
hefði fengið vinninginn núna en
ekki ári áður. „Þá hefði ég kannski
keypt mér einhver hlutabréf og
væri hugsanlega búinn að tapa öll-
um peningunum aftur!“ sagði við-
komandi við Morgunblaðið.
Vann 54 milljónir en
hélt símtalið vera gabb
Akureyri Bæjarbúar hafa verið ein-
staklega heppnir síðustu mánuði.
Akureyringar hafa unnið 210 milljónir á níu mánuðum
Í HNOTSKURN
»Engir tveir vinningsmiða Ak-ureyringa hafa verið keyptir
á sama stað. Maðurinn sem fékk
stærsta vinninginn, 105 milljónir,
keypti miðann í Hagkaupum, sá
sem fékk 54 milljónir keypti sinn
miða á netinu, einn var seldur í
verslun Úrvals í Hrísalundi og
annar í Ak-Inn. Lukkustaðirnir í
bænum eru því margir.
BORGARRÁÐ staðfesti á fundi sín-
um í gær kaupsamning um fasteign-
irnar við Laugaveg 4 og 6 og Skóla-
vörðustíg 1 A og er umsamið
kaupverð Reykjavíkurborgar 580
milljónir króna.
Tillaga borgarstjóra var sam-
þykkt með 4 atkvæðum gegn 2.
Fulltrúi Vinstri grænna sat hjá en í
bókun hans kom meðal annars fram
að vafi léki á um að fjárhagslegir
hagsmunir borgarbúa hefðu að fullu
verið tryggðir. Hins vegar fagnaði
hann því að húsin við Laugaveg 4 og
6 myndu standa.
Í bókun fulltrúa Samfylkingarinn-
ar kom fram að kaupin stefndu upp-
byggingaráformum í miðbænum í
óefni, því ofurverð skapaði nýtt
markaðsverð og ljóst væri að
Reykjavíkurborg ætlaði að reiða
fram allt að einum milljarði til upp-
kaupa og endurbyggingar á reitnum.
Fulltrúi Framsóknarflokks sagði
að kaupin hefðu sett allt deiliskipu-
lag Laugavegar í uppnám.
Í bókun meirihlutans kom fram að
peningunum væri vel varið og borg-
arbúar myndu njóta góðs af ákvörð-
uninni um langa framtíð.
Árvakur/Kristinn
Uppbygging Hús við Laugaveg 4
og 6 verða uppbyggð samkvæmt
sögulegum stíl Laugavegar.
Kaupverðið
580 millj-
ónir króna