Morgunblaðið - 01.02.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.02.2008, Blaðsíða 23
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 23 Rúnar Kristjánsson hugleiðir„vanþróun heimsins“: Allt sem vera ætti brýnast öðlast varla nokkur svör. Vörður hrynja, vegir týnast, villast menn á lífsins för. Þó segir hann sumt gleðiefni: Ýmsir valdamenn sem mara mæða þjóðir veröld í. En Bush og Pútín bráðum fara, bíða margir eftir því! Og varðandi skuldir heimilanna: Lengt er þjóðar skuldaskeið, skaðað flest með ránum. Viðhaldið þar verstu neyð, verðtryggingu á lánum. Það eru ýmsir úlfar til, ekki er lífið sæla. Girnast þeir hin grimmu skil, glefsa víða í hæla! Í leiknum gegn Frökkum var oft minnst á það „að Ólafur væri ekki með“. Rúnar sá að það var ekki gæfulegt: Ólánið þar öllu réð, á það ber að minna. Ólafur var ekki með og ógerlegt að vinna! Loks las hann um áramótin „fróðlegan pistil“ eftir Halldór Blöndal, þar sem Einar Benediktsson bar á góma, og orti : Margur er í málum hýddur, misjöfn reynast samin verk. En Einar verður ekki þýddur, íslenskan er þar svo sterk! pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Heimurinn og Skaga- strönd Öskupokagerð Það hefur vissulega dregið úr vægi öskupokanna á öskudeginum hin síðari ár, en þetta er engu að síður skemmtilegur séríslenskur siður sem alls ekki ætti að leggja af. Hvernig væri því að taka krakkana með í Gerðuberg á laug- ardag og búa til nokkra öskupoka? Það er Heimilisiðnaðarfélagið í samstarfi við Gerðuberg sem býð- ur til öskupokagerðarinnar og því um að gera að sauma nokkra skrautlega poka til að hengja á þá sem á vegi manns verða. Leikhúsmaraþon í miðbænum Það finnst líklega flestum að þeir mættu gera meira af því að fara í leikhús. Á laugardaginn gefst tækifæri til að taka þátt í sannkölluðu leikhúsmaraþoni, en þá ætlar Þjóðleikhúsið að kynna verkin sem sýnd verða á Smíða- verkstæðinu í vetur. Hefst dag- skráin kl. 14 með sýningu á Víga- guðinum, um 19.30 verður síðan leikritið Sá ljóti kynnt í anddyri Smíðaverkstæðisins og kl. 20 verð- ur hrollvekjandi ástarsagan Kona áður sýnd. Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/Jón Svavarsson mælt með … Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is „ÞETTA er mikið lostæti,“ sögðu þeir Helgi Benediktsson og Maríus Helgason, vel gall- aðir að sjóarasið, er þeir buðu viðskiptavin- um Fjarðarkaupa í Hafnarfirði upp á ilmandi Húsavíkurhákarl á sjálfan bóndadaginn. Óhætt er að segja að Húsavíkurhákarlinn hafi fyrir margt löngu „slegið í gegn“ hjá fastagestum Helga nokkurs Héðinssonar í Helguskúr, sem er að finna fyrir neðan bakkann við hlið veitingahússins Gamla bauks á Húsavík. Kunnugir segja þó að hróður hákarlsins hafi borist um Þingeyj- arsýslur þverar og endilangar því margir hafi fengið beitu hjá Helga í gegnum tíðina. Hann hefur þó löngum verið talinn lítill sölu- maður og því mun viljugri til að gefa en selja. Helgi, sem verður áttræður á árinu, er enn að veiða og verka hákarl og fékk ásamt Óðni Sigurðssyni fimmtán hákarla á síðasta ári. Tengdasonurinn Helgi Benediktsson og sonurinn Maríus Helgason hafa nú unnið að því að koma þessari afurð Helga á höf- uðborgarsvæðið svo brottfluttir Þingeyingar sem og aðrir sunnanmenn fái líka notið þessa lostætis, sem selt verður sem Húsa- víkurhákarl í versluninni Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, enda er góður hákarl auðvitað bráðnauðsynlegur í öllum góðum þorra- veislum, að sögn Helga. Árvakur/Ómar Smakkið Helgi Benediktsson og Maríus Helgason kynntu í tilheyrandi klæðnaði ilmandi Húsavíkurhákarlinn fyrir sunnanmönnum í Fjarðarkaupum. Húsavíkurhákarl í útrás Ilmandi Hákarlinn tilheyrir þorranum. Hákarlaverkandinn Helgi Héðinsson verður áttræður á árinu og er enn að. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson Árvakur/Ómar Vísindamenn hafa komist að niðurstöðu: Það borgar sig nánast alltaf að bíða eftir strætó sem hefur seinkað frekar en að ganga sjálfur á áfangastað. Ef þú ert einn af þeim sem átt til að missa þolinmæðina þegar strætó seinkar og ganga í staðinn ættir þú að hugsa þig tvisvar um næst. Það er nefnilega nánast alltaf best að bíða eftir vagninum. Vefsíða Berlingske tidende greinir frá því að hópur stærðfræðinga við Harvard-háskóla hafi útbúið formúlu fyrir tímann sem borgar sig að bíða eftir seinum strætó. Formúlan sem stærðfræðingarnir settu fram reyndist býsna einföld og sýnir að það borgar sig nánast alltaf að bíða á fyrstu stoppustöðinni, óháð því hversu pirrandi bið- in er. Í örfáum tilfellum virðist jafnan þó ekki ganga upp, t.d. þegar vagninn gengur sjaldn- ar en á klukkutíma fresti, eða þegar styttra en einn kílómetri er á áfangastað. Ef maður nennir engan veginn að hanga eftir vagninum og ákveður að ganga er mik- ilvægt að halda þegar af stað í stað þess að bíða fyrst í svolitla stund, segja vísindamenn- irnir. Engu að síður er líklegt að maður komi seinna á áfangastað en ef maður hefði beðið eftir næsta vagni. Hins vegar gæti gangan verið þolanlegri en biðin. Bíddu eftir strætó! Bíddu! Í kulda getur verið freistandi að ganga. Árvakur/Ómar -hágæðaheimilistæki vi lb or ga @ ce nt ru m .is Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri Sími 588 0200 | www.eirvik.is Magimix - réttu tækin fyrir eldhúsið SAfApReSSuR fyRiR heilSunA MagiMix matvinnsluvél Magimix matvinnsluvélin er kraftmikil og endingargóð vél fyrir alla þá sem kunna að meta gæði og góðan mat. Vélin er auðveld í notkun og hárbeittir stálhnífar tryggja fullkominn skurð. Verð frá kr.: 42.200 stgr. MagiMix safapressa Með Magimix safapressunni má útbúa girnilega og heilsusamlega drykki með lágmarks fyrirhöfn. Verð frá kr.: 23.500 MAtVinnSluVélAR töfRAtæki í eldhúSið Aðrir söluaðilar: Kokka, laugavegi, Egg, Smáratorgi, Villeroy & Boch, kringlunni, Líf og list, Smáralind, Maður lifandi, Borgartúni og hæðarsmára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.