Morgunblaðið - 01.02.2008, Page 26

Morgunblaðið - 01.02.2008, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ER ÚTRÁSIN AÐ STÖÐVAST? Ákvörðun Kaupþings um aðhverfa frá kaupum á hol-lenzka bankanum vekur óhjákvæmilega spurningar um það hvort hin svonefnda íslenzka útrás í viðskiptum til annarra landa sé að stöðvast. Hin fyrirhuguðu kaup á hollenzka bankanum voru stærsta verkefni, sem íslenzkt fyrirtæki hafði á þeim tíma sem samningar voru gerðir lagt út í. Útrás íslenzkra fyrirtækja til ann- arra landa hefur byggzt á auðveldu aðgengi að ódýru lánsfé á undan- förnum árum. Fyrir nokkrum árum spurðu bæði Íslendingar og útlend- ingar sömu spurningar um kaup Ís- lendinga á fyrirtækjum í útlöndum. Spurningin var: hvaðan koma pen- ingarnir? Svarið kom, þegar greiningadeild- ir erlendra fjármálafyrirtækja hófu að gera athugasemdir við stöðu ís- lenzku bankanna undir lok árs 2005 og fram eftir ári 2006 kom í ljós að íslenzku bankarnir höfðu um skeið fjármagnað útlánastarfsemi sína í töluverðum mæli með töku skamm- tímalána á erlendum lánsfjármörk- uðum. Fróðum mönnum kom að vísu á óvart hve langt þeir höfðu gengið í töku skammtímalána til þess að fjármagna lánveitingar til lengri tíma. Landsbankanum hefur hins vegar gengið afar vel í innlánum í Bretlandi og hinir bankarnir fylgja nú í kjölfarið. Í Morgunblaðinu í gær birtust svör nokkurra forystumanna í fjár- mála- og viðskiptalífi við þeirri spurningu hvort íslenzka útrásin væri að stöðvast. Halldór J. Krist- jánsson, bankastjóri Landsbankans, svaraði þeirri spurningu á þann veg að útrásin væri ekki að stöðvast en það mundi hægja mjög á henni. Lárus Welding, forstjóri Glitnis, leggur áherzlu á að menn fari sér hægt og einbeiti sér frekar að sínum grunnrekstri. Róbert Wessman telur ekki að um mikið bakslag sé að ræða í útrásinni og í sama streng tekur Ásgeir Mar- geirsson, forstjóri Geysir Green Energy. Þótt viðmælendur Morgunblaðs- ins vilji ekki fallast á að útrásin sé að stöðvast er þó ljóst að hún hefur byggzt á auðveldu aðgengi að ódýru fé. Það fé er horfið af hinum al- þjóðlegu fjármálamörkuðum, alla vega um skeið. Þess vegna verður að telja líklegt að lítið verði um yf- irtökur íslenzkra fyrirtækja á er- lendum fyrirtækjum á næstunni. Jafnvel er líklegra að íslenzk fyr- irtæki dragi frekar saman seglin í öðrum löndum eins og Baugur Group hefur gert í sambandi við út- gáfu Nyhedsavisen í Danmörku, svo að dæmi sé nefnt. Þess vegna má telja líklegt að ís- lenzku útrásarfyrirtækin einbeiti sér að því að treysta rekstur þeirra fyrirtækja sem þau hafa keypt á undanförnum árum eins og Lárus Welding segir og safni kröftum til nýrra átaka þegar betur árar. Það er áreiðanlega skynsamleg og árangursrík leið. EINRÆÐI DULBÚIÐ SEM LÝÐRÆÐI Samtökin Human Rights Watchgagnrýna Bandaríkin, ríki Evr- ópusambandsins og önnur lýðræðis- ríki harkalega í skýrslu sem kom út í gær fyrir að leyfa einræðisherrum að sveipa sig ljóma lýðræðis án þess að tryggja borgaraleg og pólitísk rétt- indi. Segja samtökin að með þessu sé verið að grafa undan mannréttindum um allan heim. Kenneth Roth, framkvæmdastjóri Human Rights Watch, segir í skýrsl- unni að sjaldan hafi lýðræði verið hampað jafn mikið og á okkar dögum og sjaldan hafi verið jafn mikið brotið gegn því. „Fáar ríkisstjórnir vilja að þær séu taldar ólýðræðislegar,“ skrifar Roth. „Afrekaskrá hinna yf- irlýsingaglöðu er ekki í samræmi við vaxandi vinsældir lýðræðis. Nú reyna jafnvel yfirlýstir einræðisherrar að komast á stallinn sem fylgir lýðræð- isstimplinum. Staðráðnir í að láta ekki lítilfjörlegar staðreyndir standa í veginum hafa þessir ráðamenn til- einkað sér list lýðræðislegs málflutn- ings sem er í litlum tengslum við stjórnarhætti þeirra.“ Samtökin saka síðan lýðræðisríkin um pólitíska hentisemi. Þau krefjist þess að fram fari kosningar en láti það nægja. „Svo virðist sem Wash- ington og ríkisstjórnir í Evrópu sætti sig við jafnvel vafasömustu kosning- ar svo fremi að „sigurvegarinn“ sé hernaðarlegur eða viðskiptalegur bandamaður,“ segir Roth. Lýðræði er annað og meira en kosningar. Í lýðræði felst að fólkið ráði. Það er því ekki nóg að ganga til kosninga reglulega ef aðrar grund- vallarstofnanir lýðræðisríkisins eru ekki til staðar til þess að veita vald- höfunum aðhald, hvort sem um er að ræða málfrelsi, frjálsa fjölmiðla, fundafrelsi eða virkt réttarríki. Lýðræði á víða undir högg að sækja í heiminum í dag, meira að segja í þeim ríkjum þar sem það er rótgrónast. Baráttan gegn hryðju- verkum hefur skapað andrúmsloft þar sem borgaralegum réttindum er stefnt í hættu. Ráðamenn í lýðræð- isríkjum eiga ekki að umgangast ein- ræðisherra með þeim hætti að það jafnist á við viðurkenningu stjórnar- hátta þeirra. Þegar Serbar hófu þjóðernis- hreinsanir í Kósóvó skarst Nató réttilega í leikinn. Þegar Rússar réð- ust inn í Tétsníu með miklu grimmi- legri hætti og jöfnuðu Grosní við jörðu fengu þeir skömm í hattinn og svo héldu viðskiptin áfram eins og ekkert hefði í skorist. Áratugum sam- an hafa staðið yfir árangurslausar viðskiptaþvinganir gegn Kúbu en Kínverjar fá að halda ólympíuleika og spígspora með leiðtogum lýðræðis- ríkja á rauðum dreglum eins og ekk- ert sé athugavert við stjórnarhætti þeirra. Lýðræðisstimpillinn er eftir- sóttur og auðfenginn ef afstaðan er rétt eða mátturinn nægur. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTASKÝRING Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Miðað við þær aðgerðir,sem HB Grandi er aðgrípa til, er fiskvinnslanánast aflögð á Akra- nesi,“ segir Gísli S. Einarsson, bæj- arstjóri á Akranesi. „Við munum nú tímana tvenna og þrenna þegar hér voru fjögur frystihús, sem unnu fisk, og mjög öflug vertíðarbátaút- gerð.“ Gísli S. Einarsson bendir á að á blómatímanum eftir 1950 hafi milli 30 og 40 vertíðarbátar stundað út- gerð á Akranesi, en eftir að kvóta- kerfinu hafi verið komið á hafi afla- heimildir verið fluttar á færri skip og síðan hafi allt gengið á afturfót- unum. Reynt hafi verið að hagræða og sameina og niðurstaðan væri nú öllum ljós. Nú væri búið að hagræða þeim aflaheimildum, sem Haraldur Böðvarsson hf. hafi haft yfirráð yfir, í HB Granda í Reykjavík. „Það sem eftir stendur er ekki neitt hér. Ekk- ert stendur eftir.“ Einn helsti útgerðarbærinn Akranes hefur verið fiskveiðibær frá landnámi og alltaf verið með mestu útgerðarbæjum landsins. Síð- an Brynjólfur Skálholtsbiskup Sveinsson hóf útgerð frá Steinsvör á Akranesi um miðja 17. öld til styrkt- ar Skálholtsskóla hefur útgerð verið ein helsta stoð atvinnulífsins á Skag- anum. Haraldur Böðvarsson, kaup- maður og útgerðarmaður, hóf eigin útgerð 17. nóvember 1906, þegar hann keypti sexæringinn Helgu Maríu. Hann gerði hana út frá vörum í Garði. Síðan gerði hann út frá Vogum frá 1909 eins og Loftur Loftsson og Þórður Ásmundsson, en 1914 færðu þeir sig til Sandgerðis. Haraldur stofnaði útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækið HB & Co með fimm Norðmönnum í Bergen 1915 og seldi allar eignirnar í Sandgerði inn í það félag. Um 1920 voru um 700 manns víðs vegar að af landinu á vegum HB & Co, Lofts og Þórðar í útgerð og fiskverkun í Sandgerði, þar á meðal karlmenn frá Akranesi, en í vertíðarlok á vorin breiddu Skagakonur fisk út til þurrkunar á Akranesi. Haraldur keypti öll hlutabréfin í HB & Co af norskum banka 1924. Um 1926 fundust svokölluð Ak- urnesingamið. Upp úr því hættu Skagamenn að gera út frá Suð- urnesjum og hófu mikla útgerð frá Akranesi. Haraldur Böðvarsson seldi Sandgerðingum 50% í félagi sínu í Sandgerði 1933 og afganginn 1941 og þá var Miðnes stofnað. Það sameinaðist HB síðan aftur 56 árum seinna eða 1997. Á markað 1991 HB & Co var gert að hlutafélagi 1969. 1991 var öll fiskvinnsla og út- gerð á Akranesi sameinuð undir hatti Haraldar Böðvarssonar. Það voru Síldar- og fiskimjölsverk- smiðja Akraness, eitt af fyrstu al- menningshlutafélögum landsins sem stofnað var 1937 að frumkvæði bæjarins, Heimaskagi hf. og Sig- urður hf. Þá fór félagið á almennan hlutabréfamarkað og hætti í raun og veru að vera fjölskyldufyr- irtæki. 1996 rann Krossvík hf., sem var í eigu Svans Guðmundssonar frá Grundarfirði, inn í HB og Mið- nes ári síðar. 2001 voru Burðarás og Eimskip langstærstu hluthaf- arnir með um 50% hlut í félaginu. 2002 áttu forráðamenn Eimskips og Granda viðræður um að sameina HB og Granda en ekki náðist sam- komulag um það og varð það til þess að HB fór inn í sjávarútvegs- stoð Eimskips, Brim, þar sem Skagstrendingur og ÚA voru fyrir. 2003 kom Landsbankinn inn í Eim- skip og 2004 keypti Grandi HB út úr Eimskip. Á Akranesi var ályktað að það væri besti kosturinn í stöð- unni, því þá héldust aflaheimild- irnar við Faxaflóann. Á þessum tíma var HB með tvo frystitogara, tvö loðnuskip og tvo ísfisktogara. Kvótahæsta félagið Miklar framfarir og tækni hafa átt sér stað í fiskvinns gerð og hafa Skagamenn æ fljótir að tileinka sér þær. HB & Co hóf frystingu á útflutnings 1950, fyrst ísle fyrirtækja, og í tvö ár sat f irtækið eitt að þessari vinn landi, en sagt var að karfin verið bjargvættur íslensku araútgerðarinnar. Í janúar 1953 byrjuðu 15 og 25 handlangarar að setj trönur við Jaðarsbakka, þa eru fótboltavellir. Mikið fis þennan vetur og stanslaus og var fiskurinn að mestu h á trönurnar, sem fylltust ja Alls voru sett upp um 4.500 blautfiski sem gerðu sig se tonn af þurri skreið fyrir Ít Nígeríumarkað. Þetta er s magn og þorskkvóti HB Gr nú. Upp úr 1970 leystu skutt vertíðarbátana af hólmi en skuttogarinn kom til Akra 1972. Segja má að vertíðar hafi að mestu verið lokið u Akranes var stærsta síld arverstöð landsins um 196 og fiskimjölsverksmiðjan á nesi var endurnýjuð og end Akranes var lengi vel einn helsti útgerðarbær landsins Skreiðarhjallar við Jaðarsbakka Mikið fiskirí var 1953 og fylltu óðum en alls voru sett upp 4.500 tonn af blautfiski. Handan hjalla Athafnasvæði Yfirlitsmynd yfir hafnarsvæðið á Akranesi. Bjargvættur HB & Co hóf frystingu á karfa til útflutnings 1950, fyrst íslenskra fyrirtækja, og í tvö ár sa „Ekkert stendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.