Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 29

Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 29 Í DAG tekur gildi sáttmáli Evr- ópuráðsins um aðgerðir gegn man- sali (Council of Europe Convention on Action against Trafficking in Human Beings). Sáttmálinn nær til mansals í öllum sínum myndum og allra fórnarlamba mansals jafnt kvenna, karla og barna. Hlutverk Evrópuráðsins og Evr- ópuráðsþingsins er að standa vörð um mannréttindi, lýðræði og rétt- arríkið og hafa þessar stofnanir um árabil beitt sér gegn því stórfellda mannréttindabroti sem mansal er. Mansal – alþjóðlegt og ábatasamt Mansal endurspeglar eina verstu skuggahlið hnattvæðingar og opinna landamæra. Mansal stendur oftar en ekki í beinu sambandi við bága fé- lagslega stöðu fólks, einkum kvenna frá löndum Mið- og Austur-Evrópu. Það á ekki síst við um fyrrum stríðs- átakasvæði. Þar eiga margar konur um sárt að binda og standa höllum fæti vegna atvinnuleysis og fátækt- ar. Á sama tíma eiga þær í erf- iðleikum með að komast til landa þar sem atvinnu er að fá. Þar koma þeir sem stunda mansal inn í myndina. Þeir misnota sér viðkvæma stöðu þeirra og bjóða þeim aðstoð sína við að koma þeim á atvinnusvæði í Vest- ur-Evrópu en selja þær síðan í hend- ur aðila sem neyðar þær oft á tíðum til kynlífsþjónustu. Mansal er skipulögð glæpa- og gróðastarfsemi. Mansal hefur verið mun áhættuminna í samanburði við aðra skipulagða glæpastarfsemi eins og fíkniefnasmygl og vopnasölu eins og fáar ákærur og sakfellingar hafa hingað til borið vitni um. Það má rekja til réttindaleysis fórnarlamb- anna. Fórnarlömb mansals dvelja vanalega ólöglega í landinu sem þau eru seld til. Þau geta því átt von á að lenda í fangelsi eða vera vísað úr landi í þeim tilvikum sem þau leita til yfirvalda eftir aðstoð. Markmið sáttmálans Markmið sáttmálans er að koma í veg fyrir mansal í öllum sínum myndum, bæta réttarstöðu og vitna- vernd fórnarlambanna og þar með auðvelda saksókn gegn þeim sem stunda mansal. Meginforsenda þess að mögulegt sé að uppræta mansal sem glæpa- og gróðastarfsemi er samstillt átak stjórnvalda um að samræma löggjöf sína og eiga sam- vinnu um aðgerðir þar sem mansal felur vanalega í sér sölu á men- neskju frá einu landi til annars, frá upprunalandi til viðtökulands. Það er markmið sáttmálans en fullgild- ing hans kallar á lagabreytingar eða setningu nýrra laga í samræmi við ákvæði sáttmálans. Sum ákvæði sáttmálans sem við- koma mansali er þegar að finna í al- mennum hegningarlögum hérlendis og lögum nr. 5 frá árinu 1985 sem innleiddu samning Sameinuðu þjóð- anna um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Það sem einkennir hins vegar sáttmála Evrópuráðsins í samanburði við fyrri lög er að hann gengur skrefi lengra í ákvæðum um verndun fórnarlamba. Sem dæmi má nefna að sáttmálinn verndar fórn- arlömb gegn því að samþykki þeirra í orði um eigin misnotkun eða ánauð verði til þess að ekki sé litið á stöðu þeirra sem mannréttindabrot, man- sal eða glæp. Samkvæmt sáttmál- anum er mansal óháð „samþykki“ fórnarlambsins. Annað sem einkennir sáttmálann eru þær jákvæðu skyldur sem hann leggur á herðar stjórnvöldum. Sem dæmi er gerð sú krafa til stjórnvalda að draga úr eftirspurn eftir fórn- arlömbum mansals en meirihluti fórnarlambanna eru stúlkur og kon- ur sem seldar eru í kynlífsiðnað. Í þessu samhengi eru ríki hvött til að íhuga þann möguleika að gera nýt- ingu á þjónustu fórnarlamba, eins og t.d. vændiskaup, saknæma. Sáttmálinn kallar einnig eftir því að ríki íhugi leiðir til að auka mögu- leika fólks til að komast löglega inn á vinnumarkað Evrópu. Er það í sam- ræmi við tilmæli Efnahags- og fram- farastofnunar Evrópu sem hefur hvatt aðildarríki Evrópuráðsins til að draga úr hömlum á löglegum fólksflutningum milli landa. Sam- kvæmt spám Evrópusambandsins er talið að eftirspurn á vinnumarkaði verði um 20 milljónir manns næsta áratuginn. Í Evrópu er talið að fjöldi ólöglegra innflytjenda sé um 13,5 milljónir manns. Sá mikli fjöldi rétt- indalauss fólks á vinnumarkaði er af mörgum talið vera öfugmæli í ljósi hinnar miklu eftirspurnar innan Evrópu og því hvatt til að ríki kanni með hvaða hætti sé hægt að auka möguleika fólks á að fá vinnu með löglegum leiðum. Með þeim hætti er dregið úr möguleikum þeirra sem stunda mansal til að misnota sér veika stöðu og örvæntingu fólks. Allt er þetta liður í að leiðrétta það réttindaleysi sem hefðbundið hefur einkennt hlutskipti fórn- arlamba mansals. Staða sáttmálans Eins og fyrr segir er samstillt átak forsenda þess að hægt sé að uppræta mansal. Alls hafa 13 aðild- arríki Evrópuráðsins af 47 fullgilt sáttmálann síðan hann var lagður fram hinn 16. maí 2005. Ríkin sem fullgilt hafa sáttmálann eru Albanía, Austurríki, Bosnía og Hersegóvína, Búlgaría, Frakkland, Króatía, Kýp- ur, Danmörk, Georgía, Moldóva, Noregur, Rúmenía og Slóvakía. Ein 24 aðildarríki Evrópuráðsins til við- bótar eru í hópi þeirra sem hafa á stefnuskrá sinni að fullgilda sáttmál- ann. Ísland er þeirra hópi en jafn- framt hefur Ísland á dagskrá að full- gilda Palermó-bókunina við samning Sameinuðu þjóðanna gegn al- þjóðlegri og skipulagðri glæpastarf- semi. Til að vekja máls á alvöru mansals hefur Evrópuráðið staðið fyrir bar- áttuherferð gegn mansali síðan árið 2006. Upplýsingar um herferðina og sáttmálann er að finna á vefsvæði Evrópuráðsins og Evrópuráðsþings- ins. Guðfinna S. Bjarnadóttir, Ell- ert B. Schram og Steingrímur J. Sigfússon skrifa um Evr- ópusáttmálann um aðgerðir gegn mansali. »Hlutverk Evr- ópuráðsins og Evr- ópuráðsþingsins er að standa vörð um mann- réttindi, lýðræði og réttarríkið … Höfundar skipa Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins. Gildistaka Evrópusáttmála um aðgerðir gegn mansali Ellert B. Schram Guðfinna S. Bjarnadóttir Steingrímur J. Sigfússon SÓKNARPRESTARNIR Gunn- ar Jóhannesson og Sighvatur Karls- son rita hvor sína greinina í Morg- unblaðið nýlega og undirstrika báðir, hvor á sinn hátt, þann mikla siðferðisvanda sem kristnin á við að glíma. Hluti þessa vanda er nýr af nálinni en að stærstum hluta er um alvarlega vankanta á grundvallarforsendum kristilegs siðferðis að ræða. Hinn gleymdi Guð Forsenda kristilegs siðferðis hlýtur að vera Kristur – trúin á mannssoninn, á Guð föðurinn, á upprisuna og eilíft líf. Án trúar er enginn grundvöllur fyrir siðgæði trúar. Án guðdómsins er „kristið siðgæði“ bara 2000 ára gamlar hugvekjur, endurtekning á hugs- unum fyrri heimspek- inga og trúarleiðtoga. Sá sem ekki trúir á Krist sem frelsara hef- ur enga ástæðu til að fylgja siðaboð- skap Jesú. Enginn afsökunarmaður kirkju og kristni sem skrifað hefur í blöð undanfarin misseri hefur mér vit- anlega bent á trúarlegar forsendur kristilegs siðaboðskapar, ekki held- ur sérarnir tveir. Séra Gunnar skrifar þann 22. jan- úar síðastliðinn um fyrirhugaðar breytingar á grunnskólalögum. Hann vill halda „kristilegu siðgæði“ í lögunum og notar hefðarrökin máli sínu til stuðnings, án þessarar klausu verði höggvið á viðjar kirkju og þjóðar. Þjóð, menning, hefðir eru hugtök sem Gunnari eru töm – en enginn Guð, enginn Jesú, engar trúarlegar forsendur. Séra Sighvatur skrifar þann 15. janúar um nauðsyn þess fyrir sið- ferði mannsins að lúta vilja hand- boltaþjálfarans sem einkum birtist á jólum (!) og má leiða líkur að því að hér eigi hann við drottin Guð sinn. En ekki stígur hann skrefið til fulls, enginn er Jesú á vellinum og krossfesting og upp- risa langt undan. Afsakendur kirkju og kristni vita auðvitað sem er að þeir tala til þjóðar sem er ekki nema í besta falli að hálfu kristin. Gunnar veit þetta þótt hann slysist til að telja 90% þjóðarinnar kristin. Aðeins annar hver maður telur sig krist- inn, mun færri taka kristnar kennisetn- ingar trúanlegar sam- kvæmt skoðanakönnun sem Þjóðkirkjan hefur sjálf staðið að og Gunnari er vel kunn- ugt um. Þegar stór (og vax- andi) hluti þjóðarinnar telur sig ekkert hafa með kristni að gera er „kristið siðgæði“ orðið marklaust í samfélags- legu samhengi. Án trúarinnar hefur siðgæði trúar ekkert gildi nema þar sem það fellur saman við algilt sið- ferði eins og það birtist í mannrétt- indasáttmálum, ritum heimspek- inga, lögum og siðareglum hvers konar. Maðurinn í öðru sæti Siðferðisboðskapur kristninnar er ekki aðalboðskapur hennar. Guð er aðalboðskapurinn, allt annað lýtur í lægra haldi. Fyrstu sex af boðorð- unum tíu snúast um Guð. Kærleiks- boðskapurinn er að elska Guð um- fram allt, af öllu hjarta, sálu og líkama. Síðan má elska náungann eins og sjálfan sig. Hvort sem okkur hugnast Guð kristninnar eða ekki (honum hefur vonandi farið fram í mann- úðarmálum á síðustu 3000 árum eða svo) þá er ljóst að siðaboðskapur kristninnar byggist á Guði – ekki manninum. Kennsluefni í kristni- fræðikennslu, sem séra Sigurður Pálsson hefur skrifað, gerir þetta ljóst og sama gera þeir Gunnar og Sighvatur í greinum sínum. Fylgifiskur kristilegs siðgæðis er að maðurinn sé á einhvern hátt lé- legur, maðurinn hefur „beðið skip- brot“ segir séra Sighvatur og telur að hann þurfi að leita sér hjálpar. Séra Gunnar tekur ekki eins djúpt í árinni en þó kemur skýrt fram hjá honum sama mannfyrirlitning. Kristið siðferði kennir að mað- urinn sé ómerkilegur og að Guð hafi forgang. Skammt undan er sú hugs- un að orð Guðs hafi forgang yfir manninn, að hagsmunir mannsins víki þegar Guð (eða embættismenn hans) eru annars vegar. Skýrt dæmi um þetta er ósiðleg innkoma kirkj- unnar í leik- og grunnskóla lands- ins. Eins og sagan sýnir Kristileg siðgæðiskenning er ekki góð. Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá sagði einhver og ef saga kristinna þjóða síðustu 2000 ára sýnir eitthvað þá er það vanmáttur kristilegs siðaboðskapar. Kristnar þjóðir hafa síst látið sitt eftir liggja í drápum og gripdeildum, grimmd og kúgun – gott ef þær hafa ekki slegið öllum öðrum þjóðum við í eyðilegg- ingu manna jafnt sem menningar- heima. Siðaboðskapur kristninnar hefur ekki staðið í stykkinu og nú er tíma- bært að setja hann til hliðar. Skiptir þá engu þótt afsakendur kristninnar komi og bendi á þann árangur í mannúðar- og mannréttindamálum sem orðið hefur á síðustu öld og áratugum og reyni að halda því fram að allt sé þetta kristninni að þakka. Hvar var þá kristnin hinar 19 aldirnar? Siðferðisvandi kristninnar Brynjólfur Þorvarðarson skrifar um trúmál »Kristið sið- gæði hefur enga merkingu í trúlitlu sam- félagi en er um leið meingallað eins og sagan sýnir. Brynjólfur Þorvarðarson Höfundur stundar nám við KHÍ. ÞAÐ er erfitt að komast í gegn- um lífið án þess að skapa sér þum- alputtareglur. Ein þeirra er að flokka fólk í hópa eft- ir einkennum t.a.m. fjölmiðlafólk, pólitík- usa, heilbrigðisstarfs- fólk, útlendinga, öfga- sinna o.s.frv. Þessi flokkun einfaldar okkur lífið en jafn- framt getur hún stuðlað að því að við- halda fáfræði. Þessu fylgir einn stór galli. Við höfum nefnilega tilhneigingu til að ótt- ast það sem við þekkjum ekki. Þar af leiðandi miklum við fyrir okkur galla þá er við teljum að ein- kenni það sem við þekkjum ekki. Ef við erum nógu dugleg við að mikla þessa galla fyrir okkur endum við uppi með for- dóma. Fordóma, sem oft eru byggðir á af- skaplega veikum grunni, en hafa hins vegar gríðarlega mik- il áhrif. Eitt af því sem við höfum til- hneigingu til að hafa fordóma gagnvart eru geðsjúkdómar. Það er svo sem skiljanlegt að þeir veki okkur ugg í brjósti. Það er óhugn- anleg tilhugsun að einhver heyri raddir, sjái það sem ekki er, ein- angri sig í vanlíðan eða brjóti af sér allar hömlur siðmenntaðs sam- félags. Það er enn óhugnanlegra að velta þeirri staðreynd upp að slíkt gæti komið fyrir mann sjálf- an. Staðreyndin er hins vegar sú að líkur eru á að flest okkar muni upplifa sveiflur í geðheilbrigði, al- veg eins og við upplifum sveiflur í líkamlegu heilbrigði. Við megum búast við því að upplifa geðlægð, depurð eða jafnvel þunglyndi. Slíkt getur gerst við fráfall náins ætt- ingja, atvinnumissi, fjárhagslegt áfall eða af óskilgreindum or- sökum. Það skiptir ekki máli hver for- sendan er, niðurstaðan er sú sama: breyting á geðheilbrigði. Þegar við upplifum sveiflur á líkamlegu heilbrigði þykir okkur sjálfsagt að leita lækn- is. Annað mál er oft upp á teningnum þeg- ar geðheilbrigði okkar bíður hnekki. For- sendur þess geta verið margar en ekki er laust við, í ljósi um- ræðu sl. viku, að það hvarfli að mér að for- dómar sem þrífast meðal okkar hafi þar áhrif. Þessi stimplun að vera „gúgú“ „gal- inn“ „klikk-haus“ eða eitthvað þaðan af verra er hamlandi þegar kemur að því að leita sér aðstoðar. Ágæta fjölmiðlafólk. Gangið nú í lið með okkur hinum og styðjið okkur í því að draga úr fordómum með því að halda á lofti mál- efnalegri umfjöllun um geðheil- brigði. Drögum úr fordómum og léttum þeim skrefin sem þurfa að leita sér aðstoðar vegna bresta í geðheilbrigði. Munum: Aðgát skal höfð í nær- veru sálar. Geðheilbrigði hið óþekkta Hannes Jónas Eðvarðsson skrifar um heilbrigðismál og fordóma Hannes Jónas Eðvarðsson » Léttum þeim skrefin sem búa við bresti í geðheilbrigði, höldum um- ræðunni mál- efnalegri og fræðandi. Höfundur er sálfræðingur og félagsráðgjafi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.