Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 37 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Barnavörur Nú er frost á Fróni Hlý, undurmjúk ullarnærföt fyrir kalda kroppa. Barna- og fullorðinsstærðir. Þumalína, efst á Skólavörðustígnum. Sími 551 2136. www.thumalina.is Ferðalög Vertu þín eigin ferðaskrifstofa Spennandi námskeið: Vertu þín eigin ferðaskrifstofa, 13. febrúar n.k. Lærðu að nota netið til að skipu- leggja ferðalagið og spara. Uppl. á www.ferdalangur.net. Gisting Þú gistir og færð allt sem þú þarfnast! Lítil íb. m/öllum húsgögnum og húsbúnaði. Uppbúið rúm, sjónvarp, útv., og internet, eldhús, baðh., hrein handkl. Kr. 6000 nóttin fyrir 1-2. Uppl.í síma 568 0021 og 869 3079. Þú gistir og færð allt sem þú þarfnast! 3ja herb. íbúð m/öllum húsg.og húsbúnaði. Uppbúin rúm, sjónvarp, útv., eldh., baðh., hrein handkl. 6500 kr. nóttin fyrir 2,1000 kr. auka- lega fyrir hvern umfram það. Sími 568 0021 og 869 3079. Húsnæði í boði Til leigu í Hveragerði Ný glæsileg 100 fermetra íbúð á ann- arri hæð til leigu.Tvö svefnherbergi, borðstofa, stofa, bað, þvottahús og geymsla. Sex fm geymsla ásamt hjólageymslu. Sérinngangur af ann- arri hæð. Langtímaleiga. Uppl. í síma 891 7565. Glæsileg 3ja herb íbúð í Hafnar- firði. Til leigu glæsileg 3ja herb. 98 fm íbúð á góðum stað í Hf. Nýlega standsett. Búnaður og húsgögn inni- falin ef vill. Langtímaleiga. Laus mjög fljótlega. Sjá nánar á Kassi.is Sumarhús Sumarhús - orlofshús . Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Vertu þín eigin ferðaskrifstofa Spennandi námskeið: Vertu þín eigin ferðaskrifstofa, 13. febrúar n.k. Lærðu að nota netið til að skipu- leggja ferðalagið og spara. Uppl. á www.ferdalangur.net. PMC Silfursmíði. Grunnnámskeið helgina 2 og 3 febrúar.Uppl. www.listnam.is skráning sími 6950495 Tómstundir Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is. Til sölu Stórir skór.is hætta 30% afsláttur af öllum dömuskóm í stærðum 42-44 og herraskóm í stærðum 47-50. Opið þriðjudaga til föstudaga kl.16- 18,30, laugardaga 11-14. Ásta skósali, Súðarvogi 7, sími 553 60 60. Þjónusta Raflagnir og dyrasímaþjónusta Setjum upp dyrasímakerfi og gerum við eldri kerfi Nýlagnir og endurnýjun raflagna. Gerum verðtilboð Rafneisti sími 896 6025 lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is SMIÐUR Vantar þig smið til ýmissa verka? úti sem inni, í parket, flísalagnir, eldhúsinnréttingar o.m.fl. Upplýsingar í síma 895 6007. Helgi pípari Viðgerðir - Nýlagnir - Breytingar - Lítil sem stór verk, hitamál o.fl. Hafið samband í síma 820 8604. Helgi pípari. Byggingavörur HALOGEN LJÓSKASTARAR, mikið úrval. KASTARAR Á GRIND MEÐ SNÚRU OG PERU, 150W: 1,095 kr., 500W: 1,370 kr., 1000W: 2,299 kr. VERKFÆRALAGERINN ehf., Skeifunni 8. Sími 588 6090. vl@simnet.is Ýmislegt Vandaðir kuldaskór úr mjúku leðri, flísfóðraðir. Margar gerðir. Stærðir: 36 - 41 Verð: 9.500.- Úrval af fóðruðum vetrar- stígvélum. Breið og góð. Stærðir frá 37 - 42. Verð frá: 6.850.- til 7.985.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán.-föst. 10-18, og laugardaga 10-14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Úrval af herrakuldaskóm úr leðri með gæruskinnsfóðri. Verð frá 6.885.- til 12.500.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán.-föst. 10-18, og laugardaga 10-14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Rafsuðutæki + hjálmur Frábærar pinnasuðuvélar á 45.000 kr. Rafsuðuhjálmur auto -dark (1/25.000 úr sek.) á 12.450 kr. Tilboð: Rafsuða og hjálmur kr. 50.000. S. 895 6662. www.holt1.net Nettur og flottur í CDE skálum á kr. 3.990,- Ungt og smart snið í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.990,- Mjúkur og styður samt vel í D,DD,E,F,FF,G,GG,H skálum á kr. 5.990, Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán-fös 10-18, lau 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is. Bílar Til sölu Opel vectra ‘98 mjög góður bíll, sjálfsk, station, 1600 vél, sparneytin, sumar og vetradekk, sk ‘09.Listaverð 350þ selst á 250 þús st. Uppl í síma 847-7088. Jeppar MMC Pajero, Dakar, árg 2005, ekinn 98.000. Verð 3.900.000 kr. Glæsilegur, vel búinn jeppi. Sími 861 7414 og 867 3563. Húsbílar Vantar þig nýjan húsbíl eða hjólhýsi? Innflutningur beint frá Þýskalandi. Allar tegundir og árgerðir. Góð þjónusta og áralöng reynsla. Uppl. í síma 517 9350 eða tom@husbilagalleri.is Fréttir á SMS Það er svo yndislegt að hafa átt móður eins og hana mömmu. Hún var alveg einstök. Hún var dugleg og kjarkmikil þegar hún stóð alein uppi með fimm börn á öllum aldri þegar pabbi dó. Þegar ég fór að heiman rétt 19 ára gömul var gífurlega erfitt fyrir mig að slíta mig frá fjölskyldu og vin- um. En eftir nokkurn tíma í Ameríku eignaðist ég vini og svo seinna eig- inmann. Mamma kom í brúðkaupið hlaðin gjöfum frá vinum og vanda- mönnum. Þegar ég sá hana koma út úr flugvélinni í New York fannst mér hún vera sú fallegasta kona sem ég hefði nokkru sinni séð. Hún hafði gaman af að ferðast og kynna sér land og þjóð. En auðvitað þurfti hún svo að fara aftur heim og ég saknaði hennar ofboðslega. Átjándi september er alltaf sér- stakur dagur í mínu lífi hvar sem ég er á hnettinum. Ég hugsa um mömmu þann dag og fer í huganum yfir stund- ir okkar saman. Sem betur fer var hún svo dugleg að ferðast, þessi elska, og ég fékk hana til mín eins oft og við gátum báðar komið því við. Ég man eftir því þegar hún var hjá mér í Kali- forníu, þegar Fred var sendur til Ví- etnams í fyrsta skipti. Þá bjuggum við saman í fallegu, litlu húsi beint á móti skólanum sem krakkarnir gengu í og ekki mjög langt frá Díu Daly frænku. Börnin nutu þess að hafa ömmu hjá sér og það var ómetanlegt fyrir okkur öll. Við fluttum oft frá einum stað til annars og alltaf gat ég treyst því að mamma kæmi til okkar í nokkrar vik- ur að minnsta kosti. Það sem var svo sérstakt við hana móður mína var hvernig hún gat samlagast fólki og kringumstæðum hvar sem hún kom. Hún hafði gaman af að kynnast vinum okkar, var frábær bridgespilari. Mér er sérstaklega minnisstætt það sem gerðist eitt sinn þegar hún var hjá mér í Kaliforníu. Ég var meðlimur í bridgehópi kvenna sem spilaði einu sinni í viku og þegar mamma kom til mín var hún tekin með í spilahópinn. Eitt spilakvöldið gat ég ekki fengið neinn til að hugsa um börnin og þá varð önnur hvor okkar að vera heima og gæta barnanna. Ég hringdi í kon- una sem við áttum að vera hjá og lét hana vita. Konan sagði: „Oh, if one of you can make it make sure it’s your Mom, we love to talk with your Mom.“ Og svona var það alltaf. Eins fór hún oft og tefldi við eiginmann frænku minnar og stóð sig eins og hetja í taflinu. Hún var dama fram í fingurgómana, hún laðaði fólk að sér og allir höfðu ánægju af því að vera í návist hennar. Mamma elskaði að fara á meðal fólks og kynnast því og læra um líf þess. Hún kvartaði aldrei og brosti alltaf sínu milda, yndislega brosi á hverju sem gekk. Mamma fór oft til Sigmars hjónanna í Kaliforníu, þau höfðu beðið eftir því að fá hana til sín þegar hún kæmi til Bandaríkj- anna til að endurgjalda á einhvern hátt alla góðsemina og gestrisnina sem hún hafði sýnt þeim hjónunum þegar þau bjuggu í Reykjavík. Svo skruppum við stundum til Kristínar frænku sem þá átti heima í Oakland rétt fyrir utan San Francisco. Einnig var yndislegt að fá hana í heimsókn til Þýskalands, þá kom hún venjulega á sumrin og var hjá okkur í nokkrar vikur í senn. Þá hafði fjöl- skyldan stækkað og börnin orðin þrjú. Já, það var svo gaman að ferðast með henni mömmu, hún naut þess að ferðast og var þar af leiðandi mjög góður ferðafélagi. Svo man ég líka eftir því þegar mamma var hjá okkur í Oklahoma. Og einnig í New York, bæði þegar ég gifti mig og svo nokkrum árum seinna, þegar við Fred bjuggum á Go- vernors Island í New York-höfn. Það er svo margt annað gott og yndislegt sem fer í gegnum huga minn frá bernskunni. Hún mamma gaf mér mjög sterka fyrirmynd til að fara eftir sem hefur fylgt mér alla ævi og alla tíð er ég henni mjög þakklát fyrir allt og allt. En því miður kemst ég ekki í afmælið hennar. Á afmæl- isdeginum hennar 18. september eins og alla aðra daga ársins þá hugsa ég til hennar og þakka henni fyrir nestið sem hún gaf mér fyrir lífið. Eitt veit ég og það er að hinn 18. september verð ég með mömmu, Gunnu móður- systur og Hrefnu föðursystur í huga og hjarta á einhverjum fallegum og notalegum stað að fá okkur kaffi og með því. Og ég bið svo sannarlega að heilsa ykkur systkinum mínum, frændfólki og vinum. Katrín Svala Benediktsson Daly. Innilegar þakkir, Hjörtur frændi, Þóra og Svala fyrir ykkar dásamlegu skrif um minningarnar þegar við vor- um með okkar ástkæru móður. Ragnheiður Kristín Benediktsson. Góð þátttaka í Gullsmáranum Úrslit mánudaginn 28. janúar. 14 borð. Meðalskor 268. N/S Elís Kristjánss. - Páll Ólason 346 Sigtryggur Ellertss. - Tómas Sigurðss. 345 A/V Haukur Guðbjartss. - Jón Jóhannss. 320 Einar Markúss. - Steindór Árnason 313 Spilað var á 9 borðum 24. janúar og urðu úrslitin þessi í N/S: Eysteinn Einarss. – Jón Stefánsson 204 Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 203 A/V: Heiður Gestsd. – Dóra Friðleifsd. 189 Oddur Jónsson – Jón Hannesson 188 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Bridsdeild Hreyfils Annað kvöldið af fjórum var spilað sl. mánudag í tvímenningnum. Ey- vindur Magnússon og Þorsteinn Kristinsson skoruðu 139 sem var langbesta skor kvöldsins. Næstu pör: Eiður Gunnlaugsson – Rúnar 119 Sigurrós Gissurard. – Helgi Geir 112 Björn Stefánsson – Rúnar Gunnarsson 112 3. umferð verður spiluð nk. mánud. kl. 19.30 í sal Sendibílastöðvarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.