Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 4
vandræðagangur-
inn er orðinn
svona viðvarandi
finnst mér komið
að því að forystan
sýni hvers hún er
megnug.“
Óskar Bergs-
son, borgar-
fulltrúi Fram-
sóknaflokks, segir
ákvörðun Vil-
hjálms Þ. ekki koma sér á óvart.
Hann telur niðurstöðu Vilhjálms
byggjast á því að sjálfstæðismenn
geti ekki komið sér saman um eft-
irmann.
Spurður hvort minnihlutinn ætli
að beita sér í málinu segir Óskar að
sjálfstæðismenn verði krafðir svara.
„Óvissa er aldrei góð í stjórnmálum
og Vilhjálmur viðheldur henni með
þessari niðurstöðu. Ég er ekki viss
um að það gangi til lengdar. Al-
menningur, starfsmenn borgarinnar
og aðrir munu krefjast þess að vita
hvað taki við að ári, þegar Ólafur F.
[Magnússon] lætur af embætti borg-
arstjóra. Það er ekki hægt að búa við
þetta áfram og ég reikna með að við
[í minnihlutanum] tökum málið upp
á næsta fundi borgarráðs eða borg-
arstjórnar og krefjumst frekari
skýringa,“ segir Óskar.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
og Andra Karl
„MÉR finnst ekki traustvekjandi og
í raun óábyrgt að ýta augljósum inn-
anbúðarvanda á undan sér,“ segir
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar. Segir hann
blasa við að Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son njóti ekki trausts í sínum hópi til
að verða næsti borgarstjóri í
Reykjavík. Ljóst megi einnig vera
að enginn innan borgarstjórnar-
flokks sjálfstæðismanna njóti nægj-
anlegs trausts innan hópsins til að
leiða hópinn. „Þannig að þessi eyði-
merkurganga virðist bara ætla að
halda áfram,“ segir Dagur og óttast
um neikvæð áhrif þessarar forystu-
kreppu fyrir borgina.
„Frá því nýr meirihluti var mynd-
aður hefur verið viðvarandi stjórn-
arkreppa vegna innri átaka í Sjálf-
stæðisflokknum og það bitnar
auðvitað á öllum sem eiga eitthvað
undir borginni. Þess vegna hefði,
eftir að Sjálfstæðisflokkurinn hrundi
saman innan frá í haust, verið miklu
heilbrigðara fyrir þennan hóp að
vinna úr sínum innri ágreiningi og
ná einhvers konar jarðtengingu í
minnihluta frekar en að mynda
þennan fordæmalausa meirihluta á
mjög svo hæpinn hátt,“ segir Dagur.
„Mér finnst þessi framganga und-
anfarnar vikur vandræðalegur og
Sjálfstæðisflokknum til skammar,“
segir Svandís Svavarsdóttir, borgar-
fulltrúi Vinstri grænna. Aðspurð
segist hún óttast að innri átökin í
borgarstjórnarflokki sjálfstæðis-
manna muni hafa neikvæð áhrif á
borgina. „Þegar borgarfulltrúar
meirihlutans eru allir uppteknir við
annað en að stjórna borginni gefur
það auga leið að það er mjög alvar-
legt ástand. Flokkur sem svona er
ástatt um á ekki að bjóða fólki upp á
það að vera í meirihluta,“ segir
Svandís og tekur fram að ábyrgð
forystumanna flokksins við þessar
aðstæður sé afar mikil. Segir hún
sjónarspil undanfarnar vikur hafa
orðið til að afhjúpa hvað Sjálfstæð-
isflokkurinn sé í raun getulítill að
takast á við sín innri mál. „Þegar
Viðvarandi stjórnar-
kreppa vegna átaka
Dagur B.
Eggertsson
Svandís
Svavarsdóttir
Óskar
Bergsson
4 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábært verð á flugsætum til Alicante um
páskana. Flogið er í beinu morgunflugi. Njóttu vorsólarinnar við
Alicante um páskana. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti - tak-
markaður fjöldi sæta í boði á þessu verði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Alicante
um páskana
16.-29.mars
frá kr. 40.690
Frábært verð á flugsætum í páskaferð!
Verð kr. 40.690
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
GÍSLI Marteinn
Baldursson,
borgarfulltrúi
Sjálfstæð-
isflokksins, segir
umræðuna um
það hverjir sæk-
ist eftir að verða
borgarstjóri að
ári ekki tíma-
bæra. „Við höf-
um lýst því yfir
að við ætlum að leysa þetta innan
borgarstjórnarflokksins og mér
finnst ótímabært að ræða þetta í
fjölmiðlum núna,“ segir Gísli Mar-
teinn. „Hitt er annað mál að ég hef
sóst eftir þessu áður, eins og allir
vita, og áhugi minn á að leiða Sjálf-
stæðisflokkinn í borginni hefur
ekkert breyst. Þannig að þegar þar
að kemur mun ég leita eftir því að
taka við því hlutverki.“
Gísli Marteinn bendir á að hann
hafi í síðasta prófkjöri fengið yfir
5.000 atkvæði í embættið. Gísli
Marteinn segir ekkert hafa verið
rætt um tímasetningu á því hvenær
nýr maður verður valinn. „Það er
ekkert endilega strax.“
Júlíus Vífill Ingvarsson sagðist
velta því fyrir sér hvort umræðan
væri tímabær. Hann hafði þó þetta
um málið að segja: „Allir alþing-
ismenn hljóta að hafa metnað til að
vera ráðherrar og á sama hátt
hljóta allir borgarfulltrúar að hafa
áhuga á því að vera borgarstjóri.
Hafi menn ekki metnað til slíks er
betra að finna sér annan vettvang.
Eftir atburði dagsins hafa ýmsir
sett sig í samband við mig og hvatt
mig til dáða. Komi sú staða upp að
velja verði nýtt borgarstjóraefni úr
okkar röðum mun ég að sjálfsögðu
gefa kost á mér,“ sagði Júlíus Vífill.
Inntur eftir því hvort svarið væri
þannig já, svaraði hann: „Þetta er
svarið.“
Hanna Birna Kristjánsdóttir seg-
ist þegar hafa svarað þessu mjög
skýrt. „Ég var í öðru sæti listans og
fékk mjög góða kosningu í það sæti
á sínum tíma. Að sjálfsögðu sækist
ég eftir því að verða borgarstjóri,
já, verði niðurstaðan sú að Vil-
hjálmur taki ekki við því embætti,“
sagði Hanna Birna.
Sækjast eftir
starfi borgarstjóra
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Sýna öll borgarstjórastarfinu áhuga
Gísli Marteinn
Baldursson
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
KVEIKT var í bíl, sem farið hafði út-
af á Flugvallarvegi á Suðurnesjum
fyrir nokkrum dögum. Að sögn lög-
reglu komu slökkviliðsmenn frá
Brunavörnum Suðurnesja á staðinn
og slökktu eldinn í bílnum sem er
ónýtur eftir.
Vitni sá til tveggja bíla, sem voru
við bílinn skömmu fyrir brunann og
er þeirra nú leitað. Málið er í rann-
sókna.
Brunavarnakerfið bilaði
Fjölmargar kvartanir bárust til
lögreglu frá íbúum nærri Akurskóla
vegna brunaviðvörunarkerfis skól-
ans. Bilun varð í kerfinu og fór það í
gang í tíma og ótíma í fyrravöld og
fram á nótt með miklum hávaða. Íbú-
ar höfðu mikinn ama af þessum há-
vaða.
Kveikt í
yfirgefinni
bifreið
Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur
ALLT of mikið er um að tekin séu
stroksýni vegna gruns um streptó-
kokkasýkingu og segja má að hálf-
gerð móðursýki hafi gripið um sig
vegna þessa. Þetta segir Gunnar Ingi
Gunnarsson, yfirlæknir á heilsugæslu
Árbæjar. Hann segir starfsmenn
leikskóla og dagmæður hvetja for-
eldra til að láta taka stroksýni.
Ástæða sé til að landlæknir fræði
leikskóla og dagmæður um streptó-
kokka.
Tilmæli frá leikskólum
Gunnar Ingi segir að það viðhorf
hafi skapast að öll fjölskyldan þurfi að
láta taka strok úr sér ef einn fjöl-
skyldumeðlimurinn fái hálsbólgu.
Virðist þetta vera komið frá leikskól-
um og dagmæðrum sem mælast til
þess að strok sé tekið úr barninu,
jafnvel þótt það sé algerlega ein-
kennalaust. Hefur hann jafnvel feng-
ið beiðni um að útiloka að viðkomandi
sé smitberi. Ekki sé vitað hvers vegna
þessi viðhorfsbreyting hafi átt sér
stað hjá leikskólum og dagmæðrum
en þetta kalli augljóslega á fræðslu
frá Landlækni um streptókokkasýk-
ingar. Þessi aukni fjöldi stroksýna sé
mikill kostnaðarauki sem ekki var
gert ráð fyrir. Segir Gunnar ennfrem-
ur að síðan reglugerð breyttist sl.
haust, sem gerir komur barna kostn-
aðarlausar fyrir foreldra, hafi fjöldi
heimsókna margfaldast og farið langt
fram úr því sem búist var við.
Staðfestum tilfellum streptókokka-
sýkingar hefur mögulega fjölgað en
það liggur í hlutarins eðli að það ger-
ist þegar strokum fjölgar svo gríðar-
lega eins og raun ber vitni, segir
Gunnar. Hins vegar sé yfirgnæfandi
meirihluti þeirra sem fá hálsbólgu
með vírussýkingu en ekki streptó-
kokka. Það sé því engin ástæða til að
rjúka upp til handa og fóta og láta
taka strok þegar hálsbólgu verður
vart. Enda fái fólk sýkingar og nái sér
án þess að það kalli á lyfjameðferð. Ef
fólk nær hins vegar ekki bata eða
verður mjög veikt þá er ástæða til
þess að leita læknis og fá ráðgjöf um
hvort ástæða sé til þess að taka strok.
„Strok á hins vegar bara að fram-
kvæma í völdum tilvikum og þá vegna
ákvarðana fagfólks. Það ætti að vera
reglan. Annars er þetta orðið eins og
þjónusta bensínstöðvanna, þetta er
nú þegar komið út fyrir öll velsæm-
ismörk.“
Of sterk viðbrögð við
streptókokkasýkingu
Þörf á meiri fræðslu á leikskólum um streptókokkasýkingar
KRISTJÁN Már Unnarsson, frétta-
maður Stöðvar 2, hlaut Blaða-
mannaverðlaun ársins 2007, fyrir
fréttir úr hversdagslífi á lands-
byggðinni sem vörpuðu ljósi á þjóð-
félagsbreytingar.
Verðlaun fyrir bestu umfjöllun
ársins 2007 fengu þeir Jóhannes
Kr. Kristjánsson og Kristinn
Hrafnsson, Stöð 2, fyrir umfjöllun í
Kompási.
Sameiginlega fengu ritstjórn DV
og Sigmar Guðmundsson og Þóra
Tómasdóttir verðlaun fyrir rann-
sóknarblaðamennsku ársins, vegna
umfjöllunar þeirra um Breiðavík-
urmálið. Þetta er í fyrsta sinn í
fimm ára sögu verðlaunanna að að-
ilar af tveimur ritstjórnum deila
með sér verðlaunum.
Kristján
Már hlaut
Blaðamanna-
verðlaunin
Árvakur/Frikki