Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Hjörðin verður varla fús til að fylgja honum inn um aðaldyrnar, eftir allan feluleikinn und- anfarnar vikur. VEÐUR Hinn ungi og röggsami bæjarstjóriá Seltjarnarnesi, Jónmundur Guðmarsson, hafði áreiðanlega rétt fyrir sér í samtali við Morgunblaðið á sunnudegi fyrir viku, þegar hann sagði að skipulagsmál bæri nú hæst í sveitarfélögum.     Jónmundur sagði m.a. í athygl-isverðu samtali við Morgunblaðið fyrir viku:     Það er enginlaunung á því, að þetta hafa verið viðkvæm mál á Seltjarn- arnesi mjög lengi […] Til að mynda var mjög harka- lega tekizt á um skipulag Hrólfs- skálamels og Suðurstrandar á síð- asta kjörtímabili, sem lauk með því að við efndum til íbúakosningar til að greiða úr því máli. Ég tel, að sú aðgerð hafi heppnazt mjög vel og íbúalýðræði sé tæki, sem megi mjög auðveldlega grípa til þegar svo ber undir, þótt það eigi alls ekki alltaf við.“     Og Jónmundur bætir við:„Ég tel raunar nauðsynlegt að skipulagslöggjöfin taki ákveðnum breytingum. Það verða að vera í lögunum skýr fyrirmæli um, hvernig unnið er að gerð deili- eða aðalskipulags í samráði við íbúa […] Þarna er löggjöfin að mínu mati götótt, bæði skortir á skýrara um- boð skipulagsyfirvalda og þar af leiðandi bæjaryfirvalda til ákvarð- ana, en það er á tíðum véfengt.“     Í skipulagsmálum er tekizt á ummikla hagsmuni og stundum rek- ast almannahagsmunir og sérhags- munir á.     Sveitarfélög og sveitarstjórnirþurfa að hafa skýra lagavernd, þegar sérhagsmunir sækja á. Þá hljóta almannahagsmunir að ráða ferðinni. STAKSTEINAR Jónmundur Guðmarsson Varðstaða um almannahagsmuni SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                          *(!  + ,- .  & / 0    + -                  ! !      "#$    12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (      %#&& &     '#&&$&% '#&&$&%      :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? ! ! !    ! ! ! !  ! ! !     ! !     !                               *$BC            ! "        *! $$ B *! ()"*$ )$#   '+ <2 <! <2 <! <2 (* $&%, & -.%&/ $ CD8- E                  <7       #$ %"     & '   ( "     8     )     * )"    +( %  ,$ & '   '-  "   .  6 2  /   0    '-   (    +)  &      01%%22 $&%'3# ', & Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Guðríður Haraldsdóttir | 24. febrúar 2008 Konudagur og kattahár Góan hófst í dag og strax á miðnætti byrj- uðu kettir himnaríkis að fara úr hárum. Sólin hefur skinið grimmd- arlega í dag og lýst upp hvern krók og kima þar sem kattahárin hafa mýkt ásýnd gólfa, breytt lit húsgagna og komið sér þægilega fyrir inni í skápum og skúffum. Konudagurinn hefur al- gjörlega fallið í skuggann fyrir þessu Meira: gurrihar.blog.is Einar Sveinbjörnsson | 24. febrúar 2008 Kuldatíð til 10. mars eða svo ? Sé rýnt í ýmis spágögn og spáafurðir til lengri tíma, en næstu fimm daga eða svo, má hæglega draga þá ályktun að ef úr rætist verði hér kuldatíð meira og minna til 10. mars eða svo. [...] Hvasst verð- ur suma dagana einkum undir næstu helgi. Áfram mun snjóa í flestum landshlutum, mest norð- anlands og austan. Meira: esv.blog.is Anna Kristinsdóttir | 24. febrúar 2008 Hver verður vinsælasta stúlkan? Nú virðast sjálfstæð- ismenn í borginni hafa náð saman um hvernig á að leysa þá stöðu sem upp er komin í borgarstjórnarflokkn- um. [...] Veit ekki hvers konar and- rúmsloft verður í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna næstu mánuði. Held það verði ekki ólíkt og í fegurð- arsamkeppnum. Ekki spurning um málefni heldur menn. Meira: annakr.blog.is Gestur Guðjónsson | 24. febrúar 2008 Rangfærslur utanrík- isráðuneytisins um viðbúnað við mengunarslysum Í gær var haldið mál- þing um hugsanlega ol- íuhreinsistöð á Vest- fjörðum. Var þar gefin yfirlýsing sem fjöl- miðlum hefur greini- lega þótt merkileg, sbr umfjöllun RÚV um málið: „Fram kom í máli Ragnars Bald- urssonar hjá utanríkisráðuneytinu á málþinginu í dag að illa sé hægt að bregðast við verði meiriháttar olíu- slys verða hér við land. Í lok júlí 2006 steytti rússneskt olíuskip á ís- jaka fyrir norðan landið sumarið 2006. Íslendingar eru varnarlausir gegn meiriháttar mengunarslysum segir embættismaður í utanríkisráðuneyt- inu.“ Á hverju byggir embættismaðurinn yfirlýsingu sína? Utanríkisráðuneytið sér ekki um þennan málaflokk í stjórnsýslunni og virðist fulltrúa ráðuneytisins ekki vera kunnugt um hvernig bráða- mengunarmálum er sinnt hérlendis. Viðbrögð við mengunaróhöppum er á ábyrgð Umhverfisstofnunnar, sem vinnur með Landhelgisgæsl- unni og fleiri aðilum, þ.á m. okkur í Olíudreifingu, og hefur komið sér upp búnaði og skipulagi til að bregð- ast við mengunaróhöppum. Auk þess er í gildi samningur sem skuld- bindur Norðurlöndin um gagnkvæma skyldu til að koma til aðstoðar, verði meiriháttar mengunaróhapp. Um er að ræða aðgengi að mikl- um búnaði og mannskap, meðal annars búnaði Norðmanna, einnar mestu olíuvinnsluþjóðar heims. Eins virðist honum ekki vera kunnugt um að í Southampton á Englandi sé ein stærsta viðbragðs- miðstöð gegn olíumengun staðsett og hafa tryggingafélög flestra ef ekki allra olíuskipa aðgengi að þeim bún- aði. Fulltrúa Umhverfisstofnunar hefur líklegast ekki verið boðið á ráðstefn- una, amk er ekkert innlegg frá stofnuninni á dagskrá hennar, svo ég er hræddur um að þessi fullyrð- ing embættismannsins hafi ekki ver- ið leiðrétt á fundinum. Meira: gesturgudjonsson.blog.is BLOG.IS „ÞETTA er gríð- arlega mikil framför frá því sem verið hefur. Við erum með stærsta þjónustu- svæðið í gsm á Ís- landi. Það þýðir að viðskiptavinur okkar, sem er með símkort frá Vodafone, nær sambandi víðar á landi og raunar út á miðin líka, held- ur en ef hann væri í viðskiptum við keppinaut okkar. En þeir sem ekki eru í viðskiptum við okkur ná ekki inn á þetta kerfi okkar,“ sagði Árni Pétur Jónsson, forstjóra Vodafone, á blaðamannafundi sem félagið stóð fyrir um helgina til þess að kynna þær breytingar sem þegar hafa orðið og væntanlegar eru á stærð þjón- ustusvæðis og farsímakerfis fyrir- tækisins. Að sögn Árna hefur Vodafone á sl. tveimur árum einbeitt sér að því að efla farsímakerfið annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar á Akureyri en nú sé komið að lands- byggðinni. Bendir hann á að þegar sé búið að koma upp 14 af tæplega 50 langdrægum sendum sem lokið verði við að setja upp næsta sumar. Að sögn Árna hafa forsvarsmenn Voda- fone þegar fengið fjölda símtala frá ánægðum íbúum sveitabæja sem ekki hafa verið í gsm-sambandi áður fyrr en sendum Vodafone var komið upp sem og frá ferðafólki og sjó- mönnum sem nú geti notað gsm- síma sína á miðunum. Segir hann stækkun þjónustusvæðisins Voda- fone þannig munu auka öryggi veg- feranda á þjóðvegum landsins sem og allra þeirra sem stundi útivist. „Gríðarlega mikil framför“ Forstjóri Vodafone segir fyrirtækið með stærsta gsm-þjónustusvæðið á Íslandi Í HNOTSKURN »Frá og með 1. desember 2008verða rúmlega 90% Íslands með gsm-samband. »Vodafone hefur á síðustumánuðum komið upp 14 af tæplega 50 langdrægum sendum sínum en restinni verður komið upp í sumar. »Allir farsímanotendur getahringt í neyðarnúmerið 112 í gegnum þjónustusvæði Voda- fone hvort sem þeir eru í við- skiptum við fyrirtækið eða ekki. Árni Pétur Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.