Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 37
Á DÖGUNUM fjallaði undirritaður
ítarlega um frábæra heildarútgáfu á
verkum Hins íslenzka Þursaflokks.
Útgáfa sú stóð vægast sagt undir
væntingum og hið sama skal hér
strax sagt um hljómleika Þursa og
Caput-hópsins síðastliðið laug-
ardagskvöld.
Leikar hófust á flutningi Caput-
hópsins á styttri útgáfu af „Þursa-
síu“ Ríkarðs Arnar Pálssonar, þar
sem ýmsar tónsmíðar af ferli Þursa
eru fléttaðar saman. Þursasían er
listilega samsett og var bráð-
skemmtileg á að hlýða. Ríkarður er
einkar hugmyndaríkur útsetjari;
hann beitir víða frumlegum takt-
brigðum en er jafnframt með ríkt
næmi fyrir þekkilegum melódíum og
nógu smekkvís til að láta þær ekki
týnast í of miklum tækniæfingum og
skrauti. Mér kom meira að segja
meistari George Martin til hugar og
meðferð hans á Eleanor Rigby forð-
um, er ljómandi lýrískar og vel
stroknar Brúðkaupsvísur hljómuðu í
Þursasíunni. Hún var og heilt yfir
afar vel leikin af Caput-hópnum.
Stöku hnökra var þó að finna í hljóð-
færaleik og hátíðni sem myndaðist
gegnum hljóðkerfið frá efstu nótum
fiðlu skar á stundum í eyru, þótt vís-
ast hafi ekki verið við hljóðfæraleik-
ara að sakast.
Að aflokinni Þursasíu mættu
Þursar á svið og marseruðu inn í
lokalagið af meistaraverkinu Gæti
eins verið, „Ranimosk“. Í kjölfarið
fylgdu þrjár smíðar af fyrstu plötu
Þursanna; Stóðum tvö í túni, Bún-
aðarbálkur og Einsetumaður einu
sinni. Flutningur á þeim var með
ágætum en hljóðblöndun óskýr.
Ágætar útsetningar fyrir svo stóra
hljómsveit sem Caput-hópinn hefðu
gjarnan mátt taka meira mið af erf-
iðum hljómburði Laugardalshallar
og á stundum vera svolítið hófstillt-
ari gagnvart þeirri hljómstóru sveit
sem Þursaflokkurinn er fyrir. Lág-
stemmdir kaflar voru einkar vel
heppnaðir en hljóðmyndin varð jafn-
an heldur undarleg er gefið var í
kraftmestu kaflana; blásturshljóð-
færi, einkum trompetar, voru þá til
að mynda allt of framarlega miðað
við söng og sér í lagi trommur. Fyrir
vikið var sem allur vindur væri úr
annars hörkufínum trommuleik Ás-
geirs Óskarssonar. Þetta vandamál
átti aftur eftir að láta á sér kræla við
flutning á dýnamískum smíðum og
útsetningum af hinu prógressíva
Þursabiti.
Hljóðárekstrar voru til allrar
hamingju öngvir í fimmta laginu,
Vera máttu góður. Það söng Egill
Ólafsson eins og engill, acapella. Hið
sama má segja um seiðmagnaða út-
gáfu á Guð skóp Adam, þar sem
ágætur stjórnandi Caputs, Guðni
Franzson, lék undir yndislegum
söngnum á ástralska frumbyggja-
hjóðfærið didgeridoo.
Það tók Þursa og Caput svolítinn
tíma að hitna vel og límast almenni-
lega saman, ef svo má segja. En um
miðbik hljómleikanna tók allt að
verða framúrskarandi gott og raun-
ar fullkomið á köflum. Skriftagang-
ur, Bannfæring og Grafskrift voru í
senn frábærlega útsett og flutt. Og
þegar lög úr Gretti og af Gæti eins
verið tóku að hljóma, hvert af öðru,
varð tónlistarveislan fullkomnuð.
„Draumsöngur Grettis“ um Harley
Davidson og „Vill einhver elska 49-
ára gamlan mann“ voru til að mynda
hrein unun á að hlýða. Og ekki
minnkaði gæsahúðin á undirrituðum
er Nú er heima, Læknar hafa tjáð …
og Pínulítill karl fylgdu í kjölfarið.
Athyglisvert var hvernig hljóm-
burður batnaði til muna þegar lögin
af þessum mínimalíska svanasöng
Þursanna voru flutt. Í þeim var
spilamennska hins ágæta Caput-
hóps í lágmarki og þá heyrðist raun-
ar gleggst hversu góðir Þursarnir
eru. Þetta er þó ekki sagt til að lasta
á nokkurn hátt framlag Caputs,
heldur einungis til að undirstrika
fyrri athugasemd um vandann sem
við er að eiga þegar glímt er við flók-
ið samspil tónlistar og hljóðmyndar,
hvar tónlistarleg blæbrigði eru svo
ótalmörg og húsakynnin hand-
boltasalur. Við slíkar aðstæður er
minna einfaldlega meira og betra.
Það skal þó tekið fram að hljómur
var langtum skárri en undirritaður
heyrir jafnan í þessu annars afleita
húsi.
Auglýst lokalag hljómleikanna var
Gegnum holt og hæðir. Ragnheiður
Gröndal kom þá inn sem gesta-
söngkona og söng svo sem ágætlega.
En útsetningin var óspennandi og
útkoman hálfgerður andklímax eftir
alla snilldina. Þursar bættu þó ræki-
lega úr því með nokkrum frábærum
uppklappslögum hvar hæst bar mun
betri útgáfu af fyrrnefndu lagi.
Rúsínan í pylsuendanum var svo
óborganlegur performans Tómasar
M. Tómassonar í Jón var kræfur
karl og hraustur. Sá flutningur verð-
ur lengi í minnum hafður sem og
hljómleikar þessir í heild sinni. Hinn
íslenzki Þursaflokkur lék í vel-
flestum lögum á als oddi þar sem
flokksformaðurinn Egill Ólafsson
var einatt fremstur meðal jafningja.
Aðrir flokksfélagar leiftruðu sömu-
leiðis af spilagleði og almennu mús-
íkaliteti. Þá skilaði Caput-hópurinn
erfiðu hlutverki sínu vel.
Hafið þökk fyrir, Þursar. Þökk
fyrir frábæran feril, ógleymanlega
tónlist og eftirminnilegt kvöld.
Hafið þökk fyrir, Þursar
Árvakur/Eggert
Egill Ólafsson og Tómas Tómasson „Um miðbik hljómleikanna tók allt að verða framúrskarandi gott…“
Brennivín
Gestum var
boðið upp á
brennivín
og hákarl
og ef ein-
hverjum
líkaði ekki
tónlistin
gat hann
kastað
eggjum í
flytjendur.
Caput-hópurinn Lék Þursa-
síuna á heildina litið vel.
TÓNLIST
Hljómleikar
Hinn íslenzki Þursaflokkur
1/2
Laugardalshöll, 23. febrúar 2008
Orri Harðarson
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
STEP UP 2 kl. 8 B.i. 7 ára
RAMBO kl. 8 B.i.16 ára
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 10 B.i. 16 ára
CHARLIE WILSON'S WAR kl. 10:10 B.i. 12 ára
STEP UP 2 kl. 8 - 10:10 B.i. 7 ára
JUMPER kl. 8 B.i. 16 ára
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 10:10 B.i. 16 ára
BRÚÐGUMINN Sýnd lau. og sun B.i. 7 ára
STEP UP 2 kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
P.S. I LOVE YOU kl. 8 LEYFÐ
UNTRACEABLE kl. 10:30 B.i.16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í KRINGLUNNI OG SELFOSSI
O S C A R
®
T I L N E F N I N G A R
ÞAR Á MEÐAL
SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
eeee
„...EIN SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND SEM ÉG HEF SÉÐ
Í LANGAN TÍMA...“
„...HENTAR FÓLKI Á ÖLLUM ALDRI
- FRÁBÆR SKEMMTUN!“
HULDA G. GEIRSDÓTTIR – RÚV/RÁS2
"VEL SPUNNINN FARSI"
"...HIN BESTA SKEMMTUN."
HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR
eee
SÝND Í ÁLFABAKKA
eeee
„ Charlie Wilson’s War
er stórskemmtileg
og vönduð kvikmynd
- V.J.V., TOPP5.IS
„Myndin er meinfyndin“
„Philip Seymour Hoffman fer
á kostum í frábærri mynd“
- T.S.K. 24 STUNDIR
eeee
„Sérlega vel heppnað og
meinfyndið bandarískt
sjálfsháð...“
Ó.H.T., RÚV/Rás 2
SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
DIANE LANE Í ÓVÆNTASTA
SÁLFRÆÐITRYLLI ÁRSINS.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA
O S C A R
®
T I L N E F N I N G A R
ÞAR Á MEÐAL3BESTI LEIKARI - JOHNNY DEPP
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 37