Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TIL þess að Háskóli Íslands geti sinnt hlutverki sínu og náð árangri þarf hann að leggja áherslu á þrennt. Í fyrsta lagi á sérstöðu sína og styrk, í öðru lagi á getu til að skapa þekkingu í samstarfi við leið- andi einstaklinga, stofnanir og fyr- irtæki og í þriðja lagi getu til að virkja mannauð og hæfileika stúd- enta og starfsfólks. Þetta var meðal þess sem fram kom í ávarpi Krist- ínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, við brautskráningu sl. laugardag. Í máli Kristínar kom fram að há- skólaráð hefur samþykkt að setja á stofn afreks- og hvatningasjóð til styrktar afburðanemendum, en út- hlutað verður í fyrsta sinn í haust. Annars vegar verður um að ræða styrki til nemenda sem ná afburða- árangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands og hins vegar til nemenda sem skara fram úr í há- skólanámi sínu eftir að hafa innrit- ast. Að sögn Kristínar kemur þessi nýi sjóður til viðbótar við aðra styrktarsjóði sem styðja afburða- nemendur við HÍ. Mikilvæg tengsl við útlönd Kristín gerði aukið samstarf og samstarfssamninga við erlendar menntastofnanir að undanförnu að umtalsefni. „Við finnum mikinn og aukinn áhuga virtra mennta- og vís- indastofnana og fyrirtækja á sam- tarfi við Háskóla Íslands,“ sagði Kristín og minntist í því sambandi nýjasta samstarfssamningsins. „Fyrr í þessum mánuði undirritaði rektor samstarfssamning við Auð- lindastofnun Indlands. Af hálfu stofnunarinnar undirritaði samn- inginn dr. Rachendra Pachauri. Pachauri tók við friðarverðlaunum Nóbels nýverið sem formaður vís- indanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Þessi samningur, sem er gerður að frum- kvæði Pachauris, felur í sér víðtækt samstarf í rannsóknum á umhverf- ismálum og auðlindanýtingu, orku- og jarðvísindum og sjálfbærri þró- un,“ sagði Kristín og tók fram að í vetur hefði einnig verið gengið til samstarfs við Fudan-háskóla í Sjanghæ í Kína á sviðum m.a. verk- fræði og kínverskra fræða. „Nemendur frá Háskóla Íslands sækja nú þegar námskeið við há- skóla í Kína, Indlandi, Japan og Rússlandi. Með þessu alþjóðlega vísinda- og fræðasamstarfi verður Háskólinn sterkari, hann veitir stúdentum fjölþættari og betri menntun, mikilvæg tengsl skapast og grunnur er lagður að vaxandi framtíðarsamstarfi íslenskra fyr- irtækja við þessi lönd.“ Aukinn áhugi á samstarfi HÍ ætlar að styrkja afburða- nemendur Árvakur/Kristinn Ingvarsson Brautskráning Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, gerði sér- stöðu Íslands að umtalsefni í ræðu sinni við brautskráningu við HÍ. Í HNOTSKURN »Alls voru 336 nemendurburtskráðir frá Háskóla Ís- lands sl. laugardag. »Þar af luku 231 grunnnámiog 127 framhalds- og við- bótarnámi. HILDUR Berglind Jóhannsdóttir býr sig hér undir að leika í einni af skákum sínum í úrslitakeppni stúlkna 12 ára og yngri um sæti á Norðurlandamóti stúlkna sem brátt fer fram í Noregi. Hildur sem er á níunda ári sigraði í keppninni og fer hún því til Nor- egs. Samhliða keppninni tefldu þær Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Sigríður Björg Helgadóttir einvígi um sigurinn í eldri flokki á Íslandsmóti stúlkna og bar Hallgerður sigur úr býtum og er hún því Íslandsmeistari. Árvakur/Frikki Þungt hugsi yfir reitunum 64 FRAMLEIÐSLA á kjöti í janúar var 7,8% meiri en í sama mánuði í fyrra. Framleiðsla jókst á alifugla- kjöti um 10,7%, nautgripakjöti um 16,1% og hrossakjöti um 61,2%. Síðastliðna 12 mánuði hefur kjöt- framleiðslan aukist um 6,3%. Sala á kjöti var með besta móti í janúar eða 15,9% meiri en í sama mánuði í fyrra. Á vef Bændablaðsins segir að þessi mikla aukning kunni að hluta til að eiga sér skýringu í hve snemma sprengidagur var í ár, enda tæplega 50% aukning í sölu á kindakjöti. Á sama hátt var febr- úar í fyrra mikill kjötsölumánuður. Kjötsala sl. 12 mánuði er 7,8% meiri en næstu tólf mánuði á und- an. Alifuglakjöt eykur enn hlut- deild sína í heildar kjötmarkaðnum og er nú komið yfir 30%. Framleiðsla mjólkur er enn vax- andi og nemur nú tæplega 125 millj. lítrum á 12 mánaða tímabili miðað við lok janúar sl. Sala á pró- teingrunni í janúar var 3% meiri en í sama mánuði í fyrra en 6,9% aukning á fitugrunni. Mikil aukn- ing á sölu á kjötvörum Sprengidagurinn eykur kjötsölu mikið FRÉTTASKÝRING Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is A-LANDSLIÐ karla í hand- knattleik hefur tekið þátt í tíu af síðustu ellefu stórmótum sem hald- in hafa verið frá árinu 2000. Liðið missti aðeins af ólympíuleikunum í Sydney árið 2000. Markmið Hand- knattleikssambands Íslands (HSÍ) eru skýr í þessum efnum. Þau eru að vera með á öllum stórmótum, þ.e. Evrópu- og heimsmeistara- mótum og Ólympíuleikum og halda landsliðinu þar með í hópi 10 til 15 bestu landsliða heims eins og það hefur verið á þessari öld. A-landslið karla er flaggskip HSÍ og um leið langstærsta og besta söluvaran. Því má í raun segja að rekstur HSÍ standi og falli að stórum hluta með þeirra stað- reynd að það sé í fremstu röð. Að minnsta kosti er ljóst að án þess yrði rekstur HSÍ mun smærri í sniðum og þyngri en nú er raunin. Áætluð velta HSÍ fyrir yfirstand- andi fjárhagsár nemur rúmum 100 milljónum kr. Ráðning nýs lands- liðsþjálfara er því stórmál. Dagana 30. og 31. maí og 1. júní nk. tekur landsliðið þátt í for- keppni fyrir Ólympíuleikana sem fara fram í Peking í ágúst í sumar. Forkeppnin fer fram í Wroclaw í Póllandi og auk heimamanna og Ís- lendinga taka Svíar og Argentí- unumenn þátt. Allir leika við alla og þær tvær þjóðir sem hljóta flest stig út úr leikjunum tryggja sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum. Hinar tvær sitja. Hvernig sem allt verkast í Póllandi þá taka við ekki síður mikilvægir leikir við 8. og 15. júní. Þá mætir landsliðið Makedón- íu í tveimur leikjum sem skera úr um hvor þjóðanna kemst á heims- meistaramótið sem fram fer í Kró- atíu 16.- 31. janúar á næsta ári. Fyrri leikurinn verður ytra en sá síðari í Laugardalshöll og gilda samtals úrslit leikjanna tveggja. Hagstæð úrslit í viðureignunum við Makedóníu skipta HSÍ miklu máli fjárhagslega. Þátttaka á Ólympíuleikum yrði síðan ákveðinn happdrættisvinn- ingur sem hefði ekki aðeins mikil áhrif á sambandið heldur einnig alla þátttöku íslensku íþróttahreyf- ingarinnar á leikunum í Peking. Um leið styrktist íslenska lands- liðsins verulega og það skyti vænt- anlega traustari stoðum undir rekstur HSÍ. Þátttaka á HM í Kró- atíu og á ólympíuleikunum gæti fært HSÍ a.m.k. vel á þriðja tug milljóna í tekjur. A-landslið karla er flaggskip HSÍ og reksturinn stendur og fellur með því Mikilvægt vor hjá HSÍ Árvakur/Golli Mark Enn er óljóst hver verður næsti landsliðsþjálfari. „MIÐAÐ við það sem ég hef lesið um þetta finnst mér þetta ekki sannfærandi rök hjá ríkinu, því það hlýtur að vita nákvæmlega hverjir þessir 53 ein- staklingar eru sem hugsanlega eiga rétt á skaðabótum vegna skerðingar á lífeyr- isréttindum,“ segir Guðrún Gauksdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, vegna frétta þess efnis að íslensk stjórnvöld hafi ekki enn orðið við tilmælum ráðherranefndar Evr- ópuráðsins varðandi fullnustu dóms Mannréttindadómstóls Evrópu frá haust- inu 2004. Að mati Guðrúnar væri það álitshnekkir fyrir íslensk stjórnvöld ef þau þráuðust við að verða við tilmælum ráðherranefndarinnar, enda hafi íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til þess að hlíta dómum Mannréttindadómstólsins og ráðherranefndin hefur eftirlitsskyldu með því að ríki standi við þá skuldbind- ingu sína. Ósannfærandi rök hjá ríkinu Guðrún Gauksdóttir FYLGI Sjálfstæðisflokksins mælist 40,1% í nýrri skoðanakönnun, sem Fréttablaðið birtir í gær. Hefur fylgi flokksins aukist um þrjú prósentustig frá könnun, sem blaðið birti fyrir mánuði. Fylgi Samfylk- ingarinnar mælist 35,2% sem er svipað og flokkurinn fékk í síðustu könnun blaðsins. Fylgi VG mælist 14,2% sem er rúmlega prósentustigi minna en fyrir mánuði. Fylgi Framsóknarflokksins mælist 5,9% en var 8,9% fyrir mánuði. 3,8% sögðust myndu kjósa Frjálslynda flokkinn sem er svipað og fyrir mánuði. 71,9% aðspurðra sögðust styðja ríkisstjórnina en fyrir mán- uði var þetta hlutfall 68,5%. Hringt var í 800 manns sl. laugardag og tóku 63,3% afstöðu til spurningar um flokka og 87,3% afstöðu til spurningar um ríkisstjórnina. Fylgi Sjálfstæð- isflokks eykst 44% umsækjenda fengu veiðileyfi Leyfi Mikil stemning var þegar dregið var úr umsóknum um hreindýra- veiðileyfi á Egilsstöðum. DREGIÐ var úr umsóknum um hreindýra- veiðileyfi á Egilsstöðum á laugardag. Fullt var út úr dyrum og menn spenntir að sjá hvort heppnin yrði með þeim, enda bárust 3.137 umsóknir um 1.333 dýr. Af umsókn- unum voru 99 úrskurðaðar ógildar vegna skorts á upplýsingum um B-skotvopna- réttindi viðkomandi umsækjenda. 50 gild- ar umsóknir komu frá erlendum veiði- mönnum. 3.038 umsóknir eru því gildar. Unnt var að fylgjast með útdrættinum hjá Umhverfisstofnun í Reykjavík og á Ak- ureyri gegnum fjarfundabúnað. Bjarni Pálsson hjá Umhverfisstofnun stjórnaði útdrættinum. Veiðitímabil á hreindýr stendur frá 1. ágúst til 15. september. Kvótinn var auk- inn um tæp tvö hundruð dýr frá fyrra ári. Talið er að hreindýrastofninn sé nú um 6.500 dýr. HAFÍSINN er kominn nálægt landi og er um 16 sjómílur frá Vestfjörðum þar sem hann er næst. Samkvæmt upplýsingum frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands er lík- legt að ísinn færist nær á næstunni og gæti truflað siglingar fyrir Horn. Eru sjófar- endur hvattir til að hafa varann á. Hafísinn nálgast land fyrir vestan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.