Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 32
„Þeir drekktu mér
ekkert í brúnkukremi,“
segir Örlygur og hlær … 36
»
reykjavíkreykjavík
Fluga er litblind þegar kemur aðhúðgerð mannfólksins og var þvímjög brugðið yfir nýstofnuðumflokki tíu lítilla nasista á Íslandi.
En eftir að hafa skoðað heimasíðu þeirra
viku áhyggjurnar fyrir hlátri; hún er auðvit-
að stútfull af stafsetningar- og málfarsvillum
og skýringuna á því er auðvitað ekki að
finna í að þessir tíu nasistar séu af erlendu
bergi brotnir … Nei, þetta er bara lítið sem
ekkert menntað íslenskt, hvítt hjólahýsa-
hyski. Okkur stafar engin ógn af slíkum
hálfvitum.
Sveitta borgarabúllan Vitabar dregur
jafnan að sér svanga og menningarlega góð-
borgara í frjálslegri kantinum eins og
Krumma og Mínusmenn, sem sátu þar á
prikum fyrr í vikunni. Krummi enn í pels,
þótt hiti og rigning héngi yfir borginni. Ann-
ars er Fluga nýbúin að uppgötva annað
,,hang out“ sem er Pizzaverksmiðjan í Lækj-
argötu. Frábær flatbökufantasía fyrir flugur
og fýra.
Kokkakeppnin í Listasafninu á laugardag-
inn, æi – hún er orðin eitthvað þreytt þessi
hátíð munnvatnskirtlanna. Þar gengur mað-
ur að vísum Sigga elskunni Hall og Nönnu
Rögnvaldar ár eftir ár. Tilbreyting var fólg-
in í að hitta þar Hildi Petersen athafnakonu.
Andrúmsloftið í Listasafninu var þó snöggt-
um skárra en í Eurovisionpartíinu sem mætt
var í um kvöldið – Leiðindalögin í Sjónvarp-
inu voru partí-killer par excellance.
Rak nefið inn á einhvers konar bókakaffi í
gamla Miðbæjarmarkaðinum í Aðalstræti á
laugardaginn en þar er greinilega hægt að
fá sér kaffisopa og fjárfesta í bókum, að-
allega tengdum Guði. Aðeins einn gestur sat
í salnum, hélt einmitt við fyrstu sýn að það
væri Guð sjálfur en svo kom í ljós að á bak
við gráa síða skeggið og spekingssvipinn
leyndist hann Jörmundur allsherjargoði.
Close enough.
Engin stemning þarna og því flúið á Borg-
arbókasafn Reykjavíkur á Tryggvagötu í leit
að góðum bókum og bíómyndum – en akk-
úrat þegar fluga var að komast í ham,
hnippti vingjarnlegur bókavörður í hana og
sagði að verið væri að loka safninu. Klukkan
4 á laugardegi.
Sko, það verður að poppa upp bókasafnið
með tilliti til þarfa bókaorma. Mála veggina
dimmrauða, hengja þung flauelstjöld fyrir
gluggana, setja persneska renninga á gólfin,
stórar, grænar plöntur í hvert horn og djúp-
ir notaðir sófar eiga að vera hist og her. Ind-
verskir púðar og kertastjakar og frítt kaffi.
Opið til miðnættis eða lengur.
Þetta yrði þvílík viðbót við næturlífið í
Reykjavík; hvar bókhneigðar tátur gætu
hreiðrað um sig á þokkafullum púðum, spek-
úlerað í strákunum yfir bókarkjölinn og ef
einn slíkur lofar góðu er hægt að bjóða hon-
um upp á latte og ljóðaljóðin …
Morgunblaðið/Jón Svavars
Gunnleifur, Ásgerður, Jóna og Hildur létu sín
atkvæði ekki eftir liggja, eins og sjá má.
Lára Sveinbergsdóttir og Jónatan Örlygsson
létu sig ekki vanta í úrslit Laugardagslaga.
Sigurrós Guðmundsdóttir og Gísli Björn Rún-
arsson fylgdust með Selmu, móður Gísla.
Dóri DNA og Guðný Halldórsdóttir hlýddu á
Þursaflokkinn og Caput-hópinn.
Páll Pálsson, Sigrún Haraldsdóttir og Sæv-
ar Guðmundsson í Laugardalshöll.
Árvakur/Frikki
Þorsteinn Ásmundsson, Elsa Ásmundsdóttir,
Þórólfur Árnason og Margrét Baldursdóttir.
Gísli Marteinn Baldursson
og Selma Björnsdóttir.
Geir H. Haarde forsætisráðherra, Inga Jóna
Þórðardóttir og Hafdís Jónsdóttir.
Flugan
… Hvítt hjólhýsahyski
og tíu litlir nasistar …
… Guð á bókakaffinu,
latte og ljóðaljóð …
Þórólfur Árnason og Margrét Baldursdóttir.
Sigurður Árni Sigurðsson og Guðrún Hálfdánardóttir.
Árvakur/Eggert
» Leikritið Kommúnan varfrumsýnt á Nýja sviði Borg-
arleikhússins fimmtudags-
kvöldið síðastliðið.
»Úrslitaþáttur Laugardags-laganna var æsispennandi,
átta lög í úrslitum og mikið um
dýrðir í Smáralindinni.
» Stórtónleikar Hins Íslenzka Þursaflokks og Caput voruhaldnir fyrir fullri Laugardalshöll í fyrrakvöld.
■ Fim. 28. febrúar kl. 19.30
Liszt og Bruckner
Tveir stórmeistarar hvor á sínu sviði. Annar einn mesti píanó-
snillingur sögunnar, hinn einn af jöfrum sínfóníunnar. Fluttur verður
píanókonsert nr. 2 eftir Lizt og sinfónía nor. 3 eftir Bruckner.
Hljómsveitarstjóri: Arvo Volmer. Einleikari: Ewa Kupiec.
■ Fim. 6. mars kl. 19.30
Gamalt og nýtt
Enginn vill missa af Sigrúnu Eðvaldsdóttur leika hinn magnaða
fiðlukonsert Albans Berg.
■ Fim. 13. mars kl. 19.30
Páskatónleikar
Söngsveitin Fílharmónía og evrópskir einsöngvarar í fremstu röð
taka þátt í flutningi Þýskrar sálumessu eftir, Brahms, eins mesta
snilldarverks kórbókmenntanna.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is