Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Heilsa OPJ ORKUPUNKTAJÖFNUN OPJ er ótrúlega beinskeytt og árangursrík tækni þar sem árangur kemur strax eða í það minnsta mjög fljótlega í ljós eftir að meðferð hefur verið beitt. Við tökum á móti fólki og beitum þessari meðferð í Liljuhúsi Stóraholti 2, við Arkarlæk. Mikið úrval fæðubótarefna Prótein - Kreatín - Glútamín - Gainer Ármúla 32. Sími 544 8000 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18. Lr-kúrinn er fyrir allar konur og karla. Langar þig að vita hvernig ég léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuð- um? www.dietkur.is - Dóra 869 2024. Djúpslökun Hugarfarsbreyting til betra lífs með EFT og sjálfsdáleiðslu. Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694 5494, vidar@theta.is, www.theta.is. Atvinnuhúsnæði Til leigu að Dugguvogi 6, Rvk. Skrifstofuhúsnæði ca 60 fm, 2. hæð. Í húsnæðinu er núna leigumiðlun. Góð bílastæði og góð aðkoma. Uppl. í s. 693 7815. Meðferðarherbergi til leigu Glæsileg aðstæða í heilsuverndar- stöðinni, ýmsir leigumöguleikar. Nálastungur Íslands ehf. s. 458-9400 og 863-0180 Sumarhús Sumarhús til sölu í Grímsnesi Nýtt 125fm heilsárshús ásamt 25fm bílskúr (aukahús) til sölu á fallegum stað í landi Ásgarðs. Frá húsinu er fallegt útsýni. Nánari upplýsingar gefur Steinar í s:893 3733. Heilsárshús ehf., Fiskislóð 22 Tökum að okkur að smíða sumarhús í öllum stærðum og gerðum. Eigum til nokkrar teikningar, gott verð. Uppl. í síma 893 4180 og 893 1712, fax 552 5815 Gott efni í sumar eða veiði bústað, 25 ferm+ milli loft. Tilboð óskast. Er staðsettur á Rvk. svæði. Get sent myndir. S. 868 7177 og 567 9642. Netf.professor@simnet.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Fallegar útsýnislóðir Til sölu ca. 8000 fm lóðir í landi Ásgarðs í Grímsnesi. Rafmagn og heitt vatn að lóðarmörkum. Fallegt útsýni. Nánari upplýsingar gefur Steinar í s: 893 3733. Iðnaðarmenn Pípulagningameistari getur bætt við sig verkefnum stórum sem smáum. Upplýsingar í síma 892 8720. Námskeið HANDVERKSNÁMSKEIÐ prjónanámskeið o.m.fl. HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Nethyl 2E - 110 Reykjavík. s. 551-7800, 895-0780. www.heimilisidnadur.is skoli@heimilisidnadur.is Til sölu Tékkneskar og slóvenskar handslípaðar kristal- ljósakrónur. Mikið úrval og gott verð. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Þjónusta Hreingerningaþjónusta Erum sérfræðingar í bónun gólfa, tök- um að okkur stærri og smærri verk. En fremur öll önnur hreingerninga- verkefni. Hreingerningaþjónusta Suð- urlands. Hreint um allt, sími 8978444. Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., símar 567 1130 og 893 6270. Ýmislegt Páskaeggjamót Verð frá kr. 550 5 stærðir Klappastíg 44 Sími 562 3614 580 7820 Mynda- standar standar BANNER 580 7820 Úrval af fallegum dömuskóm úr leðri, skinnfóðruðum. Stærðir: 36 - 41 Verð: frá 6.970.- til 8.300.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán.-föst. 10-18, og laugardaga 10-14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Saumlaus og hlýralaus í BC skálum kr. 2.350, buxur í stíl kr. 1.250. Mjúkur og þægilegur í BC skálum á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr. 1.250, Gott aðhald í CDE skálum á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr. 1.250,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán-fös 10-18, lau 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is. Bílar OPEL CORSA 1.2 COMFORT Skráður 2001. Ekinn 115 þús. km. Nýskoðaður, beinskiptur. Verð kr. 320 þúsund. Upplýsingar í síma 848 2146. Hjólbarðar Til sölu fjögur nagladekk, stærð 31*10,5 R15. Verð 55 þús. Uppl. í síma 863 6040. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Bílaskóli.is Bókleg námskeið - ökukennsl - akstursmat - kennsla fatlaðra Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06. 696 0042/566 6442. Sigurður Jónasson Toyota Rav4 ‘06. 822 4166. Snorri Bjarnason Nýr BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla. 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 . 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 863 7493/557 2493. HJÖRVAR Steinn Grétarsson hefði áreiðanlega styrkt gott lið Ís- lands sem tefldi á NM grunnnskóla um síðustu helgi. Hann ákvað að taka sér frí frá því ágæta móti og taka þess í stað þátt í virtasta opna móti ársins, Aeroflot open sem lauk í Moskvu í gær. Sá sem þessar lín- ur ritar var honum til halds og trausts jafnframt því að tefla í í efsta stórmeistaraflokknum en þar eru stigalágmörk miðuð við 2550 stig. Hjörvar tefldi í B–flokki sem liggur á bilinu 2200 – 2400 Elo-stig og lauk keppni á fimmtudaginn með 4 vinninga af 9 mögulegum. Hann bætti sig örlítið stigalega séð og er reynslunni ríkari. Rússar eru erfiðir heim að sækja eins og dæm- in sanna og eitt það sem sem ungir menn reka sig fljótt á er að það er erfiðara að innbyrða vinninga þar í landi en annars staðar. Þegar ein umferð er eftir í A1 flokkum var undirritaður með þrjá vinninga úr átta skákum sem getur varla talist góð frammistaða. Ekki náðu sigurvænlegar stöður í ann- arri, þriðju og sjöttu umferð að skila vinningum í hús. Stóra fréttin í sambandi við þetta mót er án efa frammistaða hins tví- tuga Rússa Jans Nepomniachtchi sem fyrir lokaumferðina var einn efstur með 1/2 vinnings forskot á efstu menn í stórmeistaraflokki A1. Hann hefur unnið hverja skákina á fætur annarri með miklum tilþrif- um þ.á m. gegn hinum öfluga stór- meistara Alexey Dreev. Í 2. – 4. sæti komu Alexey Dreev, Maxim Rodstein og Alexander Motylev allir með 6 vinninga. Kepp- endur eru 66 talsins í efsta flokkn- um. Mikið er í húfi því að auk verð- launa hlýtur efsti maður keppnis- rétt á einu sterkasta móti árs sem fram fer í Dortmund á þessu ári. Sá sem þessar línur ritar tefldi við Nepomniachtchi í 2. umferð og var hóflega bjartsýnn fyrir fram eftir sigur yfir Pavel Smironov í fyrstu umferð. Í þessari hörðu bar- áttuskák sem hér fylgir var kannski tímaskorti um að kenna að mér tókst ekki að færa mér umfram- peðið í nyt. Þó var staðan í miðtafl- inu afar athyglisverð. Svartur leik- ur snemma sjaldséðum leik, 12. … Bxc5 og eftir 17. Bxd5 tekur hvítur vissa áhættu áhætta vegna yfirráða svarts yfir hornalínunni a8–h1. Eft- ir 21. Dd2 er frumkvæðið kirfilega í höndum hvíts. Beinast lá við að hirða peðið á b4 strax en einnig kom til greina að leika 23. a4. 28. leikur hvíts, b4 var sennilega slakur þótt hann liti vel út. Betra var ein- faldlega 28. Hc4 ásamt – Kf2 og Ha2 og hvíta staðan er vitaskuld betri. Svartur náði gagnsókn með hinum öfluga leik 29. .. a5! Í miklu tímahraki tókst mér ekki að finna viðunandi framhald og svartur hrifsaði til sín frumkvæðið og vann skákina á sannfærandi hátt. Aeroflot open 2008; Moskva Helgi Ólafsson – Jan Nepomni- achtchi Slavnesk vörn 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. e3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. bxc4 b5 8. Bd3 Bb7 9. e4 b4 10. Ra4 c5 11. e5 Rd5 12. dxc5 Bxc5 13. Rxc5 Rxc5 14. Bb5+ Kf8 15. O–O Db6 16. Bc4 h6 17. Bxd5 Bxd5 18. Be3 Da5 19. d4 Rd7 20. f4 g6 21. Dd2 Rb6 22. b3 Be4 23. a3 Rd5 24. axb4 Db6 25. b5 Rxe3 26. Dxe3 Bb7 27. Hhc1 Kg7 28. b4 Hhd8 29. Hc5 29. … a5 30. bxa6 Hxa6 31. Hxa6 Dxa6 32. Hc1 Da2 33. Rf3 Db2 34. Hf1 Ba6 35. He1 Dxb4 36. h3 Hd3 37. Dc1 Bb7 38. Hf1 Db6+ 39. Kh2 Bxf3 40. gxf3 Dd4 41. Kg3 Hd2 42. De1 g5 43. fxg5 hxg5 44. De4 Db2 45. f4 He2 46. Df3 Dd2 47. Hf2 gxf4+ 48. Dxf4 Hxf2 49. dxf2 Dxf2+ 50. kxf2 Kg6 51. g3 Kg5   Það læddist að mér sá grunur eftir þessa skák að hinn ungi and- stæðingur ætti eftir að ná langt í mótinu. Að öllum líkindum nafn sem vert er að hafa í huga í fram- tíðinni. Anand efstur í Morelia/Linares Heimsmeistarinn Wisvanathan Anand hefur tekið forystu á sterk- asta lokaða móti ársins sem fram fer þessa dagana í Morelia í Mexíkó. Um nokkurra ára skeið hefur mótshaldinu verið skipt milli Morelia og Linares þar sem mótið var haldið um langt árabil. Sem endranær tefla átta skákmenn tvö- falda umferð. Afar hart hefur verið barist í fyrri helmingnum og er jafnteflishlutfallið undir 50%. Stað- an: 1. Anand (Indland) 3 1/2 v. 2. Aronjan (Armenía) 3 v. 3. – 5. Shi- rov (Spánn) , Topalov (Búlgaría) og Carlsen (Noregur) 3 v. 6. – 8. Leko (Ungverjaland), Ivanchuk (Úkra- ína) og Radjabov (Azerbadsjan) 2 v. Ný stjarna Rússa komin fram SKÁK Moskva, Rússland Aeroflot open 2008 14.– 22. febrúar Helgi Ólafsson helol@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.