Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðmundur Jó-hanns Pálsson fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 5. apríl 1926. Hann lést að heimili sínu, Gullsmára 7 í Kópa- vogi, 12. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Páll H. Hall- björnsson kaup- maður í Reykjavík, f. 10.9. 1898, d. 15.10. 1981 og Sól- veig Jóhannsdóttir, f. 17.5. 1898, d. 28.9. 1979. Guð- mundur var þriðji af átta börnum þeirra. Guðmundur kvæntist 20.3. 1948 Salbjörgu Matthiasdóttur, f. í Hrauntúni í Leirársveit 2.12. 1929. Foreldrar hennar voru Matthias Eyjólfsson, f. 9.6. 1889, d. 15.8. 1966 og Guðfríður Ólafsdóttir, f. 28.10. 1897, d. 6.3. 1941. Börn Guðmundar og Salbjargar eru sex: 1) Páll Hermann, f. 1948. Börn hans frá fyrra hjónabandi eru: a) Guðmundur Hrafn, f. 1970. Hann á þrjú börn, Fannar Daníel, f. 1993, Sara Ísabella, f. 1999, og Aron Örn, f. 2005. b) Linda, f. 1977, maki Ólafur Helgi, börn þeirra eru Maríanna, f. 2004 og Hörður Ingi, f. 1987, Elvar, f. 1989, Daníel, f. 1993 og Elías, f. d. 2001. 6) Matthías, f. 1962, maki Ólöf Sveinsdóttir, f. 1962, börn þeirra eru: Sveinn Björnsson, f. 1980, sambýliskona Rakel Svava, Guðný Jónsdóttir, f. 1982, sam- býlismaður Reynir Ari, Salbjörg, f. 1989 og Björgvin 1992. Guðmundur útskrifaðist úr Verslunarskóla Íslands árið 1945. Hann var sölumaður hjá G.Helga- syni og Melsted, hjá Eggerti Krist- jánssyni og Skipholti hf. Hann stofnaði eigið heildsölufyrirtæki, G. Pálsson & Co, árið 1967. Fyr- irtækið rak hann uns hann komst á eftirlaunaaldur. Guðmundur var virkur í félagslífi og starfaði í ýmsum félagasamtökum. Hann var til dæmis einn af stofnendum Skylmingafélags Íslands, sem stofnað var 24. ágúst 1948. Hann varð Íslandsmeistari í skylm- ingum. Guðmundur var í stjórn Lionsklúbbsins Fjölnis. Eitt af hans aðaláhugamálum var brids og vann hann til fjölda verðlauna í bridskeppnum. Hann starfaði fyr- ir bridsfélög Reykjavíkur, Kópa- vogs og var í bridsfélaginu Krummunum um árabil. Síðustu árin kenndi og stjórnaði Guð- mundur brids hjá eldri borgurum í Kópavogi. Guðmundur verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Viktor, f. 2005, c) Hermann Örn, f. 1982, sambýliskona Rakel Ósk. Seinni kona Páls er Monica Guðmundsson, sem átti fyrir börnin Tobias, f. 1976 og Te- rése, f. 1982. 2) Jón, f. 1950, dóttir hans frá fyrra hjónabandi er Salbjörg, f. 1983, sambýlismaður Guð- jón Þórunnarson. Dóttir þeirra er Em- ilía Rós, f. 2002. Eig- inkona Jóns er Ágústa Karlss- dóttir, f. 1957. Börn þeirra eru Guðbjörg Ásthildur, f. 1985, sam- býlismaður Ásgeir Guðmundsson og Íris Edda, f. 1991. 3) Sólfríður, f. 1951, gift Guðmundi Ingasyni, f. 1951, d. 2007, þau eignuðust fjög- ur börn: Elín Björg, f. 1973, Pétur Ingi, f. 1974, dóttir hans er Sóldís Sara, f. 2000, Erla Dögg, f. 1982, sonur hennar er Gunnar Ingi, f. 2001 og Eva Maria, f. 1984. 4) Guð- mundur Þór, f. 1957, maki Stein- unn Fjóla Ólafsdóttir, f. 1957, þau eiga þrjú börn: Sæunn Lilja, f. d. 1987, Steinunn Ósk, f. 1990 og Birgir Þór, f. 1991. 5) Svanhvít, f. 1960, maki Kjartan Harðarson, f. 1953, þau eiga þau fjóra syni: Elsku pabbi, ég vil senda þér síð- ustu kveðju og þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Minningarnar fara hratt í gegn um hugann og staðnæmast við þann tíma er ég var ungur sem sendill hjá þér í Skipholti, alltaf mikið að gera og ég hjólaði út um allt með pakka eða að rukka og þegar maður kom inn á skrifstofuna, sast þú við skrif- borðið með síma á báðum eyrum og varst að selja, sennilega beiðstu eftir einhverjum í einum símanum, meðan þú talaðir í hinn, ég gat aldrei skilið hvernig þú gast talað við tvo í einu. Þú skrifaðir hratt í pappírsblokkina, alveg óskiljanlega skrift, alveg eins og læknar gera, en ég lærði mörgum árum síðar skriftina, er ég byrjaði að taka saman vörur í pantanir, brún- kökukrydd, negul, kókósmjöl o.fl. Þú hafðir dálæti á svokölluðum „pocket“-bókum, reyfurum, og ég man sérstaklega eftir einni bók sem þú varst að lesa og á forsíðunni var litmynd af mönnuðu geimfari ný- lentu á tunglinu og þú sagðir við mig, „Palli, það verða ekki mörg ár þar til einhver lendir á tunglinu.“ Einnig get ég ekki komist hjá að minnast þess er það voru bridskvöld heima og vinirnir komu saman og spiluðu allt kvöldið inni í stofu, hlógu og skemmtu sér. Vindlalyktin smaug með hurðinni inn í svefnherbergið til okkar systkinanna og ég hét því að læra aldrei brids, áður en ég sofnaði. Önnur sterk minning mín er þegar fjölskyldan var uppi í sumarbústað við Álftavatn í Þrastarskógi og von var á þér úr vinnunni á föstudags- kvöldi, þá fórum við eldri systkinin niður að Stórahóli, lágum þar og horfðum á bílana undir Ingólfsfjalli, reykinn frá þeim, vegurinn var ekki malbikaður á þeim tíma. Biðin var oft löng, en þegar þú komst á Harð- fisksölubílnum fullum af timbri og stoppaðir til að taka okkur upp í, var gleðin í hámarki. Þegar ég var um það bil 16 ára, var ég byrjaður að selja vörur fyrir þig, hafði ekki bílpróf, en þá vildirðu að ég færi í sölutúr um landið með öðr- um sölumanni, Skarphéðni, sem átti stóran Willisjeppa, hann seldi vefn- aðarvöru og ég átti að selja krydd og búsáhöld, á þeim tíma var áríðandi að vera fyrstur á firðina eftir vet- urinn, strax og snjóa leysti.Mér er svo minnisstætt að allir könnuðust strax við þig. „Hvað, ert þú sonur Munda í kryddinu?“ þetta gerði að það var miklu léttara að selja, þó að mér fyndist að sumir nenntu ekki að tala við svona ungan snáða. Hringdi ég inn allar pantanir og var ég stundum stoltur er vel gekk. Var þetta mikil lífsreynsla fyrir mig. Þótti mér gam- an að þú varst svo vel liðinn og hafði ég á tilfinningunni að þetta væru all- ir stórvinir þínir. Síðar er þú hafðir stofnað G. Páls- son & Co. og ég orðinn auglýsinga- teiknari vann ég mikið með pakkn- ingar, auglýsingar fyrir þig og fann að það var sami hraðinn og kraft- urinn í þér. Í gegn um lífið hef ég fundið þessa gleði, góðvild og bjartsýni sem hefur fylgt þér alla tíð og hefði ég gjarnan viljað hafa erft meira af. Ég vil með þessum orðum þakka þér fyrir allt, ég og konan mín kveðjum þig og munum minnast þín með hlýhug um alla framtíð. Páll Guðmundsson. Föðurminning mín er ljúf og ég get ekki hugsað mér að hægt væri að eignast betri föður. Hann var svo þolinmóður og skilningsríkur, fróð- ur, jákvæður, duglegur og traustur. Góð fyrirmynd og kunni að örva mann til dáða. Hann sýndi mér fram á eigin ábyrgð og veitti mér stuðning í þeim ákvörðunum sem ég tók svo að ég vildi alls ekki bregðast trausti hans. Ég sá hvað hann elskaði og virti konuna sína en þau hefðu átt 60 ára hjúskaparafmæli í næsta mán- uði. Foreldrar okkar voru samstiga í uppeldishlutverkinu og þegar ég var komin í foreldrahlutverkið hugsaði ég oft út í hvernig þau hefðu eig- inlega farið að þessu. Þau eiga 6 upp- komin börn sem eru reglufólk og hafa lokið því námi sem hugurinn stefndi til og eignast sína maka og börn. Við vorum lánsöm að eiga góða foreldra og fá sterkan grunn til að byggja líf okkar á, viðhalda heil- brigði okkar og verða hamingjusam- ir þjóðfélagsþegnar. Elsku pabbi, fjölskyldusamveran, fjölskyldumótin okkar og öll ferða- lögin með þér lifa í minningunni um ókomin ár. Ein fyrsta bernskuminn- ingin er frá því þegar ég fékk að fara með þér í söluferð á eldgömlum Will- is-jeppa fyrirtækisins austur fyrir fjall og þú kenndir mér svo mikið um náttúruna og kennileitin. Þar sem við komum voru allir svo glaðir að sjá þig og þú þekktir alla og vissir allt. Þú gafst þér tíma til að svara spurn- ingum mínum, t.d. til að útskýra fyr- ir mér alla skrýtnu hlutina sem voru inni í Baugstaðabúinu. Við systkinin eigum yndislegar minningar frá öll- um samverustundunum uppi í bú- stað í gegnum árin og svo bættust við makar okkar, börn og barnabörn og alltaf var nóg pláss fyrir alla. Ótal ferðalög um landið okkar í gegnum árin eru ógleymanleg. Við fórum líka saman á eigin vegum akandi í gegn- um Evrópu, Kanada og Bandaríkin. Þá varstu alltaf búinn að huga að því hvað þig langaði að skoða og þú sagð- ir okkur frá sögu staðanna og þjóð- anna. Þú varst hrókur alls fagnaðar með brandara á takteinum á milli þess sem þú leitaðir að símaklefum til að hringja heim úr og sjá hvernig bræðrunum gengi með fyrirtækið. Til marks um dugnað þinn og áræði léstu ekki veikindin aftra því að þið hjónin kæmuð út til okkar í tilefni af 80 ára afmælinu þínu, þótt þú þyrftir að leggja á þig um 6 tíma flug til Baltimore og þú værir nýlega kom- inn úr stórum uppskurði. Það eru ekki margir dagar síðan við sátum inni í stofu og áttum innhaldsríkt samtal og þú gafst mér yndislegt minningarkort sem þú hafðir hand- skrifað á frumsamda vísu til minn- ingar um minn mann sem lést fyrir ári. Vísan sagði að hann kynni vel við sig hjá Guði umvafinn björtum ljós- um og rósum og svo varst þú sjálfur farinn þangað fimm dögum seinna. Nú kvelst þú ekki lengur, Guð blessi þig og hvíl þú í friði, minning þín lifir. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Heimahlynningar fyrir ómetanlega aðstoð og faglega hjúkrun. Sólfríður og fjölskylda. Elsku afi okkar. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum þig. Það er samt gott að vita að núna líður þér vel. Þú skilur eftir þig svo góðar minningar. Allar góðu sam- verustundirnar í Hrauntungu, í Gull- smára, uppi í sumarbústað og á fjöl- skyldumótunum. Þú varst svo skemmtilegur. Þú varst alltaf að segja okkur brandara og skemmtilegar sögur. Þú komst okkur til að hlæja. Við munum þegar við fjölskyldan fórum hringinn í kringum landið með ykkur ömmu. Þú varst svo fróður og gast alltaf sagt okkur eitthvað snið- ugt um alla staðina sem við sáum. Þú fórst með okkur í bíó. Þú hafðir gaman af að horfa á góðar myndir eins og við. Við lánuðum þér diska með bíó- myndum, hasarmyndum. Þú náðir ekki að horfa á síðasta diskinn. Við fundum ekki fyrir að þú varst svona veikur, af því þú barst þig svo vel. Guð geymi þig, elsku afi. Þínir Hörður, Elvar og Daníel. Elskulegi afi. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar ömmu í Hrauntunguna, fá saltstangir í glas og horfa á Pónýhes- taspóluna og Heiðu, fara svo öll sam- an niður að tjörninni og gefa önd- unum brauð. Svo vorum við líka stundum úti að vinna í garðinum ykkar, að skafa mosa meðfram hell- unum í stéttinni og klippa tré. Við fórum á róló og spiluðum. Okkur leiddist aldrei hjá ykkur og leið alltaf svo vel, þið áttuð svo rosa- lega mikið af skemmtilegu dóti, tölvuspil, dúkkur, bláu plastgadda- boltana og svo var alltaf svakalegt sport að klifra í rimlunum. Við tókum líka stundum bíltúr í sumarbústaðinn, og þá var alltaf komið við í bakaríinu í leiðinni og keyptir snúðar, vínarbrauð og fleira gott. En eitt það fyrsta sem var gert var að brytja brauð og fara með í fuglahúsið handa smáfuglunum og horfa á fuglana baða sig í fuglabaðs- kálinni. Og ekki var nú leikfangaúr- valið síðra þar! Svo varst þú svo sannarlegt skáld! Þú gast alltaf rím- að, sama hvað var sagt, þú fannst alltaf eitthvað sem rímaði, og við munum alltaf geyma ljóðin sem þú ortir til okkar á fermingardaginn og skrifaðir inn í minningabókina sem þið amma gáfuð okkur. Salbjörg vill ætíð vera í sveit, og sinna lömbum og hestum. Hún veit að ferming er heilagt heit, og helgar sig málefnum bestum. Við amma metum þinn dug og mátt, megi Guð þig styðja í hverri þraut. Nú skaltu setja þér markmið hátt, og skaparinn leiði þig rétta braut. Steinunn Ósk hún er bæði blíð og góð, ber höfuðið hátt á vanga rjóð. Útivera, lærdómur, föndur og fleira, en framkoman lofar miklu meira. Þessi fermda, saklausa, milda mær mun ætíð vera ömmu og afa kær. Guð blessi hana og geri hamingjusama, gæti hennar og veiti frama. Íris Edda er svo fim og létt, alltaf broshýr er svo nett. Magadansinn mærin kann, mikinn fróðleik á tölvu fann. Framundan er frami og vinna, fermingu er lokið og mörgu að sinna. Dugleg í námi, barngóð og blíð, blessun Guðs fylgi henni alla tíð. (Guðmundur Pálsson.) Svo munum við nú öll eftir Trukka Trukk málara, sögunum sem þú sagðir okkur á fjölskyldumótunum og þegar við vorum að fara að sofa, um málarann sem var svo agalega klár og náði að snúa á margann manninn. T.d. þegar hann málaði svefnherbergisglugganna hjá bæj- arbúum svarta með stjörnum, og þá sváfu þeir dögunum saman og þá gat hann fengið frið við sín verk. Við vorum svo heppin að síðasta fjölskyldumót var núna í sumar í sveitinni. Þú stóðst upp og talaðir til okkar allra þar og það var ótrúlega gott að þú skyldir geta komið svona miklu til skila til okkar áður en þú fórst. Þú varst svo hress og sterkur að koma alla þessa leið norður, þrátt fyrir að hafa verið svona veikur. Þú vildir alltaf allt fyrir okkur gera. Alltaf var svo stutt í grín og glens þegar þú varst nálægt. Sög- urnar og brandararnir, þú lagðir svo ótrúlega mikið upp úr að allir væru glaðir og ánægðir og varst fljótur að hugga okkur og gleðja þegar þannig lá við. Þannig eigum við eftir að minnast þín elsku afi okkar. Salbjörg, Íris Edda og Steinunn Ósk. Elsku besti afi minn. Það er sárt að kveðja þig. Ég er samt svo óend- anlega þakklát fyrir að hafa átt þig að og allar minningar mínar um þig eru gleðilegar því að þannig varst þú. Alltaf glaður og áttir kímin svör við öllu. Líka þegar veikindin sóttu hart að þér. Þú kenndir mér svo margt sem hefur nýst mér vel um ævina og þá man ég helst eftir því að hafa verið níu ára feimin stelpa í heimsókn hjá ömmu og afa í Hrauntungunni. Þú bauðst mér kók og ég varð afskap- lega glöð þar sem gos var sjaldgæfur munaður á þeim tíma sem maður fékk þá helst hjá ömmu og afa. „Ég veit það ekki“ svaraði ég feimin en þá settirðu kókið aftur inn í ísskáp og sagðir mér að maður ætti að svara já eða nei þegar manni væri boðið eitt- hvað. Ég hef síðan þá gefið skýr svör. Fyrsta starfið mitt um ævina var hjá þér í G. Pálson og co. og þar lærði ég líka ýmislegt um lífið. Stundvísi er það sem mér dettur fyrst í hug. Ég var sjálfsagt ekki besti starfskraftur sem völ var á á þeim árum en þú varst alltaf þolinmóður. Manna bestur varstu í að yrkja ljóð og hefur glatt marga fjölskyldu- meðlimi með fallegum stökum á sér- stökum stundum í lífi okkar. Elsku afi, ég geymi allar fallegu minningarnar um þig í hjarta mínu. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Guð geymi þig, afi minn. Hvíl í friði. Elín Björg Guðmundsdóttir. Nú er afi farinn frá okkur og í sorginni sem ég upplifi get ég ekki annað en brosað yfir þeim minning- um sem ég á um afa – mikið rosalega var þetta skemmtilegur karl. Afi kallaði mig alltaf nafna og hef ég alltaf verið mjög stoltur að heita í höfuðið á afa. Hvernig getur maður annað þar sem afi var alltaf jákvæð- ur og hress. Það var alveg sama hve- nær við hittumst, í veislum eða uppi í sumarbústað, alltaf var afi með brandarana á færibandi. Í síðasta sinn sem ég hitti afa var þegar við systkinin fórum upp á spít- ala. Hann sagðist hafa verið svo slappur síðustu tvo daga að hann hefði ekki getað sagt brandara. Hann var greinilega miklu hressari þegar við komum því hann sagði okkur nokkra brandara á þeim tíma sem við vorum hjá honum. Flestir brandararnir voru um Dani, því hann og amma höfðu nýverið farið í ferð til Danmerkur. Fyrir um 20 árum, þegar ég var á leið til Austurríkis að læra þýsku eitt sumarið, hitti ég afa daginn fyrir brottför. Ég hafði nokkrar áhyggjur af ferðinni og náminu, en afi var með ráð við því. Hann sagði mér bara að segja við þá þarna úti: „Ich spreche Deutche wie eingeborene“ og þá yrði þetta ekkert mál. Þarna var fyrsta setningin á þýsku komin og allar leiðir færar eftir það. Svona var afi, alltaf jákvæður og ekkert vandamál til sem ekki var hægt að leysa. Síðan var afi líka mikill tungumálasérfræð- ingur og virtist kunna þó nokkuð í flestum tungumálum, allavega hljómaði hann þannig. Afi hafði líka áhrif á það hvaða liði ég held með í ensku knattspyrnunni. Þegar ég var sex ára gaf hann mér Arsenal-treyju. Hann sagði mér að þetta væri besta liðið í ensku knatt- spyrnunni og að Íslendingur að nafni Albert Guðmundsson hefði leikið með Arsenal. Upp frá þessari stundu hef ég haldið með Arsenal og missi helst ekki af leik með mínum mönn- um. Þessa sögu segi ég stoltur öllum þeim sem spyrja mig af hverju í ósköpunum ég haldi með Arsenal. Mín fyrsta vinna var hjá afa við það að pakka kryddi þegar ég var um tíu ára. Þó svo að ég hafi verið ungur að vinna hjá afa fór það ekki á milli mála hversu mikill sölumaður afi var. Hann var alltaf hress þegar hann tal- aði við innkaupamennina og seldi þeim alveg helling af kryddi, alla- vega í augum tíu ára drengs. Ég er líka mjög feginn því að Fannar sonur minn skyldi kynnast langafa sínum vel þegar hann fór í heimsókn til pabba í Svíþjóð á sama tíma og amma og afi voru þar. Ég spurði Fannar út í hvað honum fynd- ist um afa sinn og þá sagði hann: „Frábær gaur, alltaf að segja brand- Guðmundur J. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.