Morgunblaðið - 25.02.2008, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
RAUL Castro var kjörinn forseti
Kúbu í lokuðu kjöri á Kúbuþingi í
gærkvöldi. Með nýjum forseta telst
nærri hálfrar aldar valdatíma Fidels
Castros lokið, en hann tilkynnti í síð-
ustu viku að vegna heilsubrests
hygði hann ekki á áframhaldandi
setu sem forseti landsins.
Kjör Rauls, bróður Fidels, þykir
gefa til kynna að ekki sé mikilla hug-
myndafræðilegra breytinga að
vænta á Kúbu á næstunni. George
W. Bush Bandaríkjaforseti hafði lýst
yfir væntingum um breytingar í átt
til lýðræðis á Kúbu og „að nýr forseti
fæli í sér upphafið að lýðræðislegum
umskiptum.“ Til að storka þeim um-
mælum lýsti Fidel því hins vegar yfir
að þrátt fyrir breytingar myndu yf-
irvöld halda áfram að feta veginn í
anda byltingarinnar.
Kjör Rauls kemur ekki á óvart og
samkvæmt heimildum AFP frétta-
stofunnar var hann sá eini sem mælt
hafði verið með til kjörs á þinginu.
Jose Ramon Machado, sem er 77 ára
og því árinu eldri en Raul, var kjör-
inn fyrsti varaforseti landsins og
kom sú ákvörðun þingsins nokkuð á
óvart. Búist hafði verið við að yngri
maður tæki við því embætti og hafði
Carlos Lage, 56 ára varaforseti, ver-
ið nefndur í því tilliti. Lage telst til
„millikynslóðar“ forystumanna bylt-
ingarinnar á Kúbu og var einn af
nánustu samstarfsmönnum Fidels
Castros. Á þinginu kusu fulltrúarnir
jafnframt yfirmann hersins, fimm
varaforseta, ritara flokksins og 23
meðlimi ríkisráðsins.
Munu ráðfæra sig við Fidel
Á þinginu í gær lagði nýkjörinn
forseti til að allar stórar ákvarðanir
sem yfirvöld hygðust taka yrðu
bornar undir Fidel Castro og þótti
Raul þar undirstrika að Fidel væri
enn aðalleiðtogi landsins, þó tími
hans sem forseta væri liðinn. Tillög-
unni var tekið fagnandi á þinginu.
Flestir stjórnmálaskýrendur hafa
spáð því að helstu breytingar á Kúbu
verði efnahagslegs eðlis. Raul hefur
gert umsvifalitlar breytinga í þá 19
mánuði sem hann hefur gegnt for-
setahlutverkinu í veikindum Fidels,
en hefur lofað stærri breytingum
sem allar „muni þó falla að ramma
sósíalismans.“
Reuters
Litli bróðir Raul Castro eftir kjörið
á Kúbuþingi í gærkvöldi.
Raul Castro tekur við
sem forseti á Kúbu
Kjörið þykir benda til að ekki sé mikilla breytinga að vænta
Aups. AP. | Jarðkeppir eru brúnir
klumpar af sveppaætt sem vaxa neð-
anjarðar og eru mikils metnir meðal
matgæðinga. Keppurinn hefur verið
kallaður „demantur matargerð-
arlistarinnar“ og er sagður gera
konur blíðari og karlmenn betri
elskhuga. Sveppurinn vex í skjóli
trjáróta og fyrir óreynda getur verið
erfitt að finna þá, því þeir líkjast
helst moldarkögglum. Áður fyrr
voru svín notuð til að þefa sveppina
uppi, en nú er notast við sérþjálfaða
hunda.
En nú eru blikur á lofti. Á mörk-
uðum þar sem jarðkeppaviðskiptin
blómstruðu áður ríkir kreppa.
Undanfarin fimm ár hafa þurrkar
gengið yfir Var-hérað í Suðaustur-
Frakklandi og þau héruð á Spáni og
Ítalíu þar sem sveppurinn vex.
Verð keppanna hefur meira en
tvöfaldast sl. fimm ár. Það hefur
reyndar alltaf verið hátt, en nú er
svo komið að kílóið er á rúmar
80.000 íslenskar krónur. Framleið-
endur eru sannfærðir um að yf-
irstandandi þurrkur verði langvar-
andi og muni hafa alvarlegar
afleiðingar. Eina vopnið sem þeir
hafa er að vökva nógu mikið en án
þess yxu engir jarðkeppir.
Með breyttu veðurfari gæti fram-
leiðslan flutt sig um set og nú hefur
m.a. verið hafinn innflutningur á
jarðkeppum til Frakklands frá Kína.
Kínversku sveppirnir eru mun
ódýrari en þeir frönsku, en franskir
kunnáttumenn gefa lítið fyrir þá
vöru „okkar viðskiptavinir eru fag-
menn og láta ekki blekkjast,“ segir
Lucien Barbaroux, gamall framleið-
andi sem hefur ekki nokkrar áhyggj-
ur af samkeppninni úr austri.
Loftslagsfræðingar segja það of
snemmt að segja til um hvort lofts-
lagsbreytingar valda þurrkinum.
Kreppa á keppamarkaði
Framleiðsla jarðkeppa í Suður-Evrópu gæti verið á undan-
haldi vegna loftslagsbreytinga, þurrkar ógna framleiðslu
AP
Þefað Matgæðingur kannar gæði
jarðkepps í Suður-Frakklandi
VIÐSKIPTAVINIR rakaranna á götum Lahore-borgar
virðast sáttir við látlausa umgjörð viðskiptanna, enda
væntanlega um prýðis rakstur að ræða. Lahore-borg er
höfuðborg Punjab-héraðsins í Pakistan og er önnur
stærsta borg landsins, með um 10 milljónir íbúa. La-
hore hefur verið nefnd „hjarta Pakistans“ vegna sögu-
legs mikilvægis hennar, en hún hefur verið aðalmiðstöð
menningar- og stjórnmála landsins.
AP
Stund á milli stríða
DIMITRIS Christofias, formaður
Kommúnistaflokksins á Kýpur,
vann sigur í forsetakosningunum á
Kýpur í gær. Aðalkeppinautur
hans, Ioannis Kasoulides úr hægri
flokknum DISY, játaði sig sigraðan
en hét Christofias jafnframt stuðn-
ingi sínum í baráttunni fyrir sam-
einaðri Kýpur.
Meginástæða þess að ríkjandi
forseti, Papadopoulos, komst ekki í
aðra umferð kosninganna er talin
vera hversu mjög hann hefur í
valdatíð sinni sett sig gegn því að
sættir næðust við Kýpur-Tyrki, en
eyjan hefur verið tvískipt frá árinu
1974. Sameining gæti m.a. gert
Tyrkjum auðveldara fyrir að ganga
í Evrópusambandið.
Leiðtogi Kýpur-Tyrkja, Mehmet
Ali Talat, hringdi í nýkjörinn for-
seta í gær til að óska honum til
hamingju og mun jafnframt hafa
lýst sig reiðubúinn til fundar við
Christofias innan tíðar.
„Það eru erfiðir tímar fram-
undan en við munum sameina
krafta okkar til að ná að sameina
land okkar á ný,“ sagði Christofias
stuðningsmönnum sínum, sem
fögnuðu ákaft eftir að úrslit voru
orðin kunn.
Frambjóðendurnir stóðu mjög
jafnir allt fram að lokum talningar.
Nýr forseti talinn munu
stuðla að sameiningu Kýpur
Fögnuður Stuðningsmenn Christ-
ofias streymdu um götur Nicosia.
EINNI af farþegaþotum Virgin Atlantic var í
gær flogið frá London til Amsterdam með því
að nota lífrænt eldsneyti og er þetta í fyrsta
skipti sem slíkt eldsneyti er notað í áætl-
unarflugi.
Markmiðið með fluginu var að sýna fram á
að lífrænt eldsneyti ylli minni losun koltvísýr-
ings en venjulegt þotueldsneyti. Talsmaður
Virgin Atlantic sagði að það myndi taka
nokkrar vikur að rannsaka upplýsingarnar
um flugið.
Richard Branson, forstjóri Virgin Atlantic,
sagði tilraunaflugið marka tímamót og gera
flugfélaginu kleift að nota „hreint eldsneyti“
fyrr en áætlað hafði verið. Í tilrauninni var
einn af fjórum hreyflum þotunnar knúinn með eldsneyti sem unnið var úr
kókoshnetum og pálmahnetuolíu.
Nokkrir sérfræðingar fögnuðu tilrauninni, sögðu hana geta reynst gagn-
lega í baráttunni gegn losun lofttegunda sem eru taldar stuðla að loftslags-
breytingum í heiminum. Aðrir lýstu henni sem auglýsingabrellu af hálfu
Bransons og sögðu að mörgum spurningum væri enn ósvarað um hversu
gagnlegt lífrænt eldsneyti gæti verið í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
Farþegaþota knúin með líf-
rænu eldsneyti í tilraunaflugi
Brella? Branson kastar hnetu
við þotu Virgin Atlantic.
VIAGRA, undra-
lyfið við ris-
vandamálum
karlmanna,
verður 10 ára í
næsta mánuði.
Viagra er mikið
notað í Dan-
mörku og nota
nú yfir 40.000
Danir lyfið að
því er fram kemur á vefsíðu Berl-
ingske Tidende. En það eru ekki
aðeins karlmenn komnir yfir fer-
tugt sem nota lyfið eins og miðað
var við þegar framleiðsla á Vi-
agra hófst. Danskir kynlífsfræð-
ingar hafa áhyggjur af því hversu
hratt notkun lyfsins vex meðal
ungra karla. Tæplega 3.000
manns undir fertugu fái lyfið hjá
lækni og það sé um 7% af sam-
anlagðri neyslu í Danmörku. Fyr-
ir utan það verði margir sér úti
um lyfið á netinu. Notkunin teygi
sig niður til 15 ára unglinga.
Kynlífsfræðingarnir segja það
vissulega í lagi að skrifa upp á
lyfið ef um tímabundið ástand sé
að ræða. Til frambúðar sé lyfið
hinsvegar afleit lausn fyrir svo
unga menn, oft megi leysa ris-
vandamál þeirra með fræðslu eða
samtölum.
Notkun Viagra fer vaxandi
meðal ungra karlmanna
Undralyfið bláa.
RALPH Nader,
sem hefur barist
fyrir réttindum
neytenda í
Bandaríkjunum,
skýrði frá því í
gær að hann
hygðist bjóða sig
fram í forseta-
kosningunum í
nóvember.
Nader, sem er að verða 74 ára,
kvaðst ætla að bjóða sig fram í
þágu umhverfismála, vinnuvernd-
ar og gegn sérhagsmunum fyr-
irtækja.
Margir demókratar telja að
framboð Naders árið 2000 hafi
orðið til þess að George W. Bush
komst til valda. Nader fékk þá um
97.000 atkvæði í Flórída sem réð
úrslitum í forsetakosningunum.
Hann fékk aðeins 0,3% atkvæða í
forsetakosningunum árið 2004.
Ralph Nader boð-
ar forsetaframboð
Ralph Nader SJÁLFSMORÐSÁRÁSARMAÐUR
drap allt að 40 manns og særði 60,
er hann réðst á áningarstað sjíta-
pílagríma suður af Bagdad í gær.
Pílagrímarnir voru á leiðinni til
borgarinnar Karbala þar sem Imam
Hussein er grafinn, en dauði hans
lagði grundvöll að sjítahreyfing-
unni. Að sögn lögreglu eru nú um
40.000 lögreglumenn í viðbragðs-
stöðu þar sem helgisamkomur sjíta
hafa tíðum verið skotmörk súnní-
uppreisnarmanna. Hápunktur
helgihaldsins er á miðvikudag.
Reuters
Tugir sjíta létu
lífið í sprengingu
STUTT