Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 35
25 FEB
17:00 Mannaland
20:00 Sálumessa
22:00 Melónuleiðin
MÁN
Allar upplýsingar er að finna á
WWW.FJALAKOTTUR.IS
JANE (Heigl) er hjálpsöm og
fórnfús ljúflingur, sannur skáti. Ef
einhver vinkvenna hennar þarf á
hjálp að halda við brúðkaup þá er
bara að hringja í Jane, slíkt stúss
á hug hennar allan. Sjálfri gengur
henni ekki sem best, er jafnan
brúðarmærin, ekki brúðurin. Hún
hefur reyndar vænan bita í sigt-
inu, húsbónda sinn George
(Burns), en þeir draumar breytast
í martröð þegar Tess (Akerman),
hin slóttuga systir hennar, birtist
óvænt, stingur undan henni og er
snögg að því.
Blaðamaðurinn Kevin kemur til
skjalanna og leggur snörur sínar
fyrir Jane en án árangurs. Hún
situr sem fastast á brúðarkjól-
unum 27 og sér ekki lengra.
Góðar, rómantískar gam-
anmyndir eru frekar fáséðar,
kafna oftar en ekki í óraunsærri
væmni og silkimjúkum tökum á
persónunum sem eru oftast nær
leiknar af sætabrauðsdrengjum og
-stúlkum. Það er hins vegar ósvik-
inn drifkraftur í Heigl (Knocked
Up, Grey’s Anatomy), ef hún
heldur áfram að vanda hlutverka-
valið, þarf hún ekki að óttast
framtíðina því hún hefur ótvíræða
gamanleikhæfileika. Akerman er
ekki sem verst og ágætur val-
kostur fyrir framleiðendur sem
hafa ekki efni á Cameron Diaz.
Handrit og leikstjórn hjálpa síðan
til að gera 27 Dresses að prýði-
legri afþreyingu, ekki aðeins fyrir
ungar og ástfangnar stúlkur,
heldur flesta gamanmyndaunn-
endur.
Jane skiptir um hlutverk
KVIKMYND
Smárabíó, Regnboginn, Laug-
arásbíó, Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Anne Fletcher. Aðalleikarar:
Katherine Heigl, James Marsden, Malin
Akerman, Edward Burns. 105 mín.
Bandaríkin 2008.
27 Dresses – 27 kjólar Sæbjörn Valdimarsson
Ágæt gamanmynd „Það er hins vegar ósvikinn drifkraftur í Heigl (Knocked Up, Grey’s Anatomy), ef hún heldur
áfram að vanda hlutverkavalið þarf hún ekki að óttast framtíðina því hún hefur ótvíræða gamanleikhæfileika.“
POPPSÖNGKONAN Britney
Spears hitti syni sína tvo í fyrradag,
Sean Preston og Jayden James, eftir
um tveggja mánaða aðskilnað. Sean
er tveggja ára og Jayden eins árs.
Drengirnir fengu að vera í þrjár
klukkustundir með móður sinni og
afa, James Spears. Geðlæknir var
einnig viðstaddur, að sögn banda-
ríska tímaritsins People.
Spears var flutt á geðdeild sjúkra-
húss í Kaliforníu 4. janúar sl. Spears
var svipt forræði yfir drengjunum í
fyrra og það veitt föður þeirra Kevin
Federline. Lögfræðingar Spears og
Federline komust sl. föstudag að
samkomulagi um að Spears fengi að
hitta börnin.
Fékk að hitta syni sína
Reuters
Fær að sjá börnin Spears á MTV-
verðlaunahátíðinni í fyrra.
EDDIE Murphy og Lindsay Lohan
hlutu þann vafasama heiður að vera
valin verstu leikarar ársins 2007 þeg-
ar veitt svokölluð Golden Raspberry-
verðlaun laugardaginn sl. Verðlaun
þessi, kennd við gyllt hindber, eru
veitt árlega í Bandaríkjunum og það
skömmu fyrir afhendingu Ósk-
arsverðlauna. Verðlaunagripurinn er
úðaður með gylltri málningu og er
4,89 dollara virði.
Í raun er verið að gera grín að Ósk-
arsverðlaununum og þarf ekki að
koma á óvart að Murphy og Lohan
mættu ekki til að taka á móti Gull-
hindberinu.
Murphy og Lohan verst
Reuters
Lélegasta leikkonan Lindsay Loh-
an tók ekki við Gullhindberinu í ár.