Morgunblaðið - 25.02.2008, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 39
DÖNSKU kvikmyndaverðlaunin
Bodil voru veitt í gær. Verðlaun fyr-
ir bestu mynd ársins hlaut leikstjór-
inn Peter Schønau Fog fyrir kvik-
myndina Kunsten at græde i kor,
eða Listina að gráta í kór.
Fog mun þó ekki hafa tekið við
verðlaununum himinlifandi, ef
marka má fréttir danskra fjölmiðla í
gær. Fog beindi orðum sínum að
þeim sem töfðu fyrir gerð mynd-
arinnar þannig að það tók sex ár að
ljúka henni. Þetta sagði hann
skyggja á ánægjuna af því að hljóta
verðlaunin. Jesper Asholt fékk verð-
laun fyrir bestan leik en hann lék að-
alhlutverkið í myndinni.
Grátið í kór Úr dönsku kvikmynd-
inni Kunsten at græde í kor.
Bodil-verð-
launin veitt
ENN af kvikmyndaverðlaunum.
Breska tímaritið Radio Times
kannaði á dögunum hvaða kvik-
myndir lesendur teldu hafa átt að
hljóta Óskarsverðlaun á sínum
tíma, þ.e. af þeim sem tilnefndar
hafa verið til verðlauna en engin
hlotið.
Kvikmyndin The Shawshank Re-
demption lendir þar efst á blaði,
hlaut sjö tilnefningar árið 1995 en
engin verðlaun. Aðrar myndir á
lista eru allar sígildar, The Sixth
Sense, Fight Club, Blade Runner,
It’s a Wonderful Life, The Great Es-
cape, Taxi Driver, Psycho, Singin’
in the Rain og Dr Strangelove.
Sjö tilnefningar Úr Shawshank
Redemption frá árinu 1994.
Fengu eng-
an Óskar
ÍRAR hafa valið sinn fulltrúa í Evr-
óvisjón í ár, kalkúninn Dustin. Kal-
kúnninn var kosinn á laugardags-
kvöldið, sama kvöld og Íslendingar
kusu sitt lag til keppni. Dustin flytur
lagið „Irelande Douze Pointe“, gerir
s.s. grín að atkvæðagreiðslunni í
keppninni.
Kalkúnn þessi er enginn nýgræð-
ingur í fjölmiðlum heldur sjónvarps-
stjarna á Írlandi til nær 20 ára og
hefur hann haldið úti eigin sjón-
varpsþætti til fjölda ára. Dustin hef-
ur auk þess gefið út 14 smáskífur og
sex hljómplötur. Fleiri þjóðir völdu
sína keppendur um helgina, Make-
dóníumenn, Króatar, Pólverjar,
Rúmenar, Búlgarar og Úkra-
ínumenn. Aðalkeppnin fer fram 24.
maí.
Dustin Írskur kalkúnn með mikla
reynslu af fjölmiðlum og söng.
Írar senda
kalkún
INDEPENDENT Spirit-kvik-
myndaverðlaunin bandarísku, sem
helguð eru sjálfstæðri kvikmynda-
gerð, voru veitt í fyrradag, degi fyrir
Óskarsverðlaunin.
Ólétta kom þar nokkuð mikið við
sögu, leikkonan Angelina Jolie
mætti með dágóða kúlu og Cate
Blanchett með eina öllu stærri. Þá
fékk kvikmynd sem segir af vand-
ræðum óléttrar táningsstúlku, Juno,
verðlaun sem besta kvikmyndin og
aðalleikkona myndarinnar, Ellen
Page, hreppti verðlaun fyrir bestan
leik kvenna. Handritið að myndinni
þótti einnig best, skrifað af Diablo
Cody, fyrrum fatafellu. Verðlauna-
hátíð þessi er mun frjálslegri en ósk-
arsverðlaunaafhendingin, hinir
frægu og ríku mæta í gallabuxum
eða hverju því sem þeim finnst þægi-
legt og borða popp á meðan afhent
er. Þá var mikið blótað að þessu
sinni, bæði í ræðu kynnis og þakk-
arræðum. Julian Schnabel, popp-
listamaður og leikstjóri, hlaut verð-
laun fyrir bestu leikstjórn, fyrir
myndina The Diving Bell and the
Butterfly og kyssti spænska leik-
arann Javier Bardem fyrir með til-
þrifum.
Cate Blanchett fékk verðlaun fyr-
ir bestan leik kvenna í aukahlutverki
fyrir myndina I’m not there. Verð-
launin voru veitt í 23. sinn í ár og er
þar athyglinni beint að ögrandi um-
fjöllunarefni í kvikmyndum og
smærri framleiðendum.
Óléttar konur í öndvegi
og blótað í ræðum
Reuters
Kossaflens Leikstjórinn Julian Schnabel hlaut verðlaun fyrir besta leik-
stjórn og sést hér kyssa hjartaknúsarann Javier Bardem allhressilega.