Morgunblaðið - 04.03.2008, Page 8

Morgunblaðið - 04.03.2008, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Haukur Nikulásson | 2. mars Þetta má skaðlaust fara í kvörnina Ef einhver vill nota eigin peninga í að kaupa þetta þotuskrifli þá er það í fínu lagi. Reynið ekki að réttlæta það að ríkið eigi að borga fyrir þetta frekar en margt annað sem má að skaðlausu fara í kló- sett sögunnar. Hvernig væri umhorfs hérna ef aldrei mætti farga neinu drasli vegna óskiljanlegrar tilfinn- ingasemi gagnvart dauðum hlutum sem meira að segja eru ekki einu sinni nálægt því að vera í upprunalegri mynd. Þessi þota er ekki safngripur frekar en húskumbaldarnir á Lauga- veginum sem keyptir voru í vitleys- ikasti stjórnarskiptanna í borginni. Meira: Meira: haukurn.blog.is Valur Stefánsson | 2. mars Gullfaxa heim Kristján Möller samgönguráðherra! Nú viljum við fá þinn stuðning í að koma Gullfaxa heim, við höfum því miður þurft að horfa upp á allt of mikla fórn varðandi flugsöguna eins og t.d. Grumman og Catalinubátana. Við treystum á þig Kristján Möller að fá 80 milljónir til að kaupa Gullfaxa svo hljótum við að geta fengið frekari stuðning til að mála og koma henni heim, vonumst svo til þess að FL Group dafni svo þeir geti komið mynd- arlega að þessu verkefni. Gullfaxa heim!! Meira: Meira: valurstef.blog.is Huld Ringsted | 1. mars Þessa vél þarf að varðveita Hún markar byrjun á þotuflugi á Ís- landi. Við megum ekki láta hana enda í brotajárni! Ég man eftir því þegar þessi þota kom til landsins, þó að ég hafi bara verið 5 ára, það var þvílík hátíðastund og mikill spenningur í landanum. Henni var flogið hingað norður til að sýna hana og fór ég með pabba og systkinum mínum til að skoða. Spenningurinn var mikill þar sem þetta var merkilegt fyrirbæri, mér fannst þetta risastórt glansandi og fallegt flykki sem framleiddi mikinn og ærandi hávaða. Löng var biðröðin í að skoða hana, gengið var inn að framan og út að aftan. Okkur fannst þetta al- gjört ævintýri. Meira: Meira: ringarinn.blog.is Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is „EINS og venjulega þegar maður tók á móti fólki hélt ég að þau væru að biðja um peninga, en þau voru ekki að því, þau voru bara að segja mér hvað þau voru að gera,“ segir Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr, um fyrstu kynni sín af starfsemi Hlutverkaseturs. Auður Axelsdóttir, forstöðumaður geðheilsumiðstöðvar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæð- isins, heimsótti hann þá ásamt sam- starfsaðilum sínum, en Þórólfur var þá borgarstjóri Reykjavíkur. Þórólfur er nú formaður svokall- aðs Bakhjarlahóps Hugarafls, en markmið hópsins er að styðja við frumkvæðið sem einstaklingar hafa sýnt í málefnum geðfatlaðra. Eftir heimsókn Auðar hóaði Þór- ólfur í „lykilaðila í þjóðfélaginu“, eins og hann orðar það. Þetta voru þau Karl Steinar Guðnason hjá Tryggingastofnun en síðar tók Sig- ríður Lillý Baldursdóttir við, Grétar Þorsteinsson hjá ASÍ, Ari Edwald, þá hjá Samtökum atvinnulífsins, og síðar Hannes G. Sigurðsson, Ingi- mundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka lífeyrissjóða, Lára Björns- dóttir, sem var yfir velferðarsviði Reykjavíkurborgar þá, og síðar Stella Víðisdóttir og Þór Sigfússon, sem þá var framkvæmdastjóri Verslunarráðsins. Þau eru öll, ásamt fleirum, í Bakhjarlahópnum, sem er sjálfskipaður. „Þetta er fólk sem er áberandi og athafnasamt í þjóðlífinu og hefur mest um það að segja hvernig þessi mál þróast,“ segir Þór- ólfur. Hlutverkasetri var í kjölfarið komið á fót, að frumkvæði Auðar og Elínar Ebbu Ásmundsdóttur, en þar er starfsendurhæfing fyrir notendur geðheilbrigðisþjónustu. „Allir þeir, sem ég taldi upp áðan, taka þátt í verkefninu sem ein- staklingar, það eru engar skuldbind- ingar og félagsskapurinn er óform- legur. Við köllum okkur Bakhjarla en markmið okkar er fyrst og fremst að vera andlegur stuðningur við starfsemina,“ segir Þórólfur. Aukið sjálfstraust og minni fordómar Bakhjarlahópurinn fundar reglu- lega og meðlimir í Hugarafli taka alltaf þátt í fundunum. „Þau fá mjög aukið sjálfstraust við þetta, þetta minnkar fordóma, þau eru ekki feimin við að segja það sjálf að þau séu að koma sér inn í atvinnulífið aft- ur,“ segir Þórólfur og bætir við að miklir hagsmunir séu að fá þetta fólk aftur inn í atvinnulífið. „Ísland er svolítið sérstakt með það að atvinnu- þátttakan er svo nátengd hlutverk- inu. Fólk spyr: hver ertu? og þá er átt við hvað gerirðu?“ segir Þórólfur og hlæjandi viðurkennir hann að þessum spurningum fylgi gjarnan spurningin hverra manna ertu. Innan Bakhjarlahópsins ríkir mikil ánægja með að Hlutverkasetur hefur tekið til starfa. „Við höfum stutt það rekstrarform sem Elín Ebba og Auður hafa kosið sér; að hafa það sem einkahlutafélag sem er rekið með engri hagnaðarvon, held- ur að arður gangi til uppbyggingar félagsins,“ segir Þórólfur. Óháðir að- ilar sitja í stjórn Hlutverkaseturs, í sjálfboðavinnu, en það eru Andri Árnason lögmaður, Hulda Styrm- isdóttir, Sæunn Stefánsdóttir, Árni Gunnarsson og Þórólfur sjálfur. Ei- ríkur Guðmundsson, rekstrarstjóri Hlutverkaseturs, lýsti því svo í sam- tali við Morgunblaðið að allir þeir sem tækju þátt í starfinu, hvort sem væri Bakhjarlar eða í stjórn, gerðu það af hugsjón. „Við gerum þetta bara til að aðilar úti í bæ hafi trú á þessu og höfum lagt nöfn okkar og ábyrgð við þetta einkahlutafélag,“ útskýrir Þórólfur. „Hugmyndafræði Hlutverka- seturs er að hafa tekjustreymi með þrenns konar hætti; þjónustusamn- ingum við opinbera aðila, en slíkir samningar hafa verið gerðir við fé- lagsmálaráðuneytið og Reykjavík- urborg. Nú, með samningum við líf- eyrissjóðina, þar hefur ríkt mikill velvilji gagnvart þessu starfi. Síðan viljum við líka opna fyrir einkaaðila og fyrirtæki til að koma að rekstr- inum. Sparisjóðirnir hafa t.d. komið myndarlega að verkefnum Hlut- verkaseturs, með sérstakri fræðslu til ungs fólks.“ Í Hlutverkasetri er hluti notenda í endurhæfingu, til að undirbúa end- urkomu í atvinnulífið. Einnig starfar þar nokkur fjöldi, mest í hlutastörf- um. Þórólfur hrósar notendum í Hlutverkasetri, segir þá mjög hæfi- leikaríka. Sem dæmi um það nefnir hann hönnun heimasíðunnar, hlut- verkasetur.is, en notendurnir sáu al- farið um hönnun hennar. „Þau hafa kannski ekki fulla starfsorku í átta tíma á dag,“ segir hann, „en þjóðfé- lagið á líka að hafa miklu meiri sveigjanleika í dag, fyrir hlutastörf, verkefnabundin störf, tímabundna ráðningu og tímabundna starfsþátt- töku. Og ég segi nú bara að það er stutt á milli snilldar og örðugleika. Það er þekkt í listsköpun, tölvu- málum og öðru að snilldin er ekki mæld í heilsdagsvinnu. Hún er mæld í hugmyndaauðgi,“ segir Þórólfur Árnason, formaður Bakhjarlahóps Hugarafls. „Snilld er mæld í hugmyndaauðgi“ Hlutverkasetur hefur öflugan hóp Bakhjarla sem styðja við starfsemina Árvakur/Golli Heimasíða Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr, l.t.h., var, ásamt fleiri Bak- hjörlum, viðstaddur opnun vefjarins hlutverkasetur.is síðastliðinn föstudag. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is NIÐURRIFI Gullfaxa, fyrstu þotu Íslendinga, sem til stóð að rífa í Roswell í Nýju-Mexíkó í Banda- ríkjunum í næstu viku, hefur verið frestað um tvo mánuði. Þetta segir Hafþór Hafsteinsson, stjórnarfor- maður Avion Aircraft Trading, sem er einn styrktaraðila flugsafnsins á Akureyri. Safnið hefur reynt að fá vélina hingað til lands en ekki tek- ist, en krafist var um 80 milljóna króna fyrir vélina. Hafþór, sem ítrekað hefur reynt að fá vélina hingað til lands til varðveislu, segist hafa sett sig í samband við núverandi eigendur vélarinnar, sem hafi góðfúslega fallist á að fresta niðurrifinu í tvo mánuði. Þann tíma hyggst Hafþór nota til þess að safna fé svo hægt verði að flytja hluta vélarinnar hingað heim til varðveislu á flugsafninu á Ak- ureyri. Ekki keypt í heilu lagi Hafþór segir ekki ætlunina að kaupa alla vélina, það sé ekki raun- hæft. „Það sem menn eru núna að velta fyrir sér er að fá fremsta hluta vélarinnar, eða stjórnklefann [hingað til lands] í heilu lagi.“ Hann segir að kostnaður við þetta, með flutningi á safnið, ætti ekki að verða meiri en 10 milljónir króna. Hann segir ekki raunhæft að flytja vélina í heilu lagi hingað, það sé ekki raunhæft að fljúga henni hingað til lands og skila svo vængj- unum. Ekki sé heldur pláss við safnið fyrir heila vél. Þá sé mesti akkurinn að fá stjórnklefa vélar- innar heim, aðrir hlutar hennar séu mjög breyttir frá því sem var árið 1967. Mikið myndi kosta að koma þessum hluta vélarinnar í uppruna- legt horf. Hafþór segir að á næstunni verði þetta skoðað með þeim aðilum sem eiga vélina. „Áður en við tökum endanlega ákvörðun þarf líka að safna fjármagni,“ segir hann. Hann er bjartsýnn á að vel gangi að safna fé til þess að flytja hluta Gullfaxa hingað til lands. Hann telur að vélin gæti verið komin hingað í sumar og fyrir 41 árs afmæli vélarinnar í júní ef vel gengur. Vélin kom hingað fyrst laugardaginn 24. júní, en ekki 22. júní líkt og fram kom í Morg- unblaðinu á sunnudag. Hafþór bendir á að menn þurfi líka að huga að fleiri minjum úr ís- lenskri flugsögu sem gaman væri að fá hingað til lands og meta þurfi kostnað við hvert einstakt verkefni með hliðsjón af þessu. Fyrsta þyrl- an sem Landhelgisgæslan notaði sé til að mynda enn til en hún sé í Ari- zona í Bandaríkjunum. Niðurrifi Gullfaxa frestað um tvo mánuði Reynt að kaupa stjórnklefann Í HNOTSKURN »Gullfaxi markaði tímamót ogupphaf þotualdar á Íslandi er hún lenti hér á Reykjavík- urflugvelli 24. júní 1967. »Flugfélag Íslands keypti vél-ina nýja frá Boeing- verksmiðjunum, en hún var af gerðinni Boeing 727-100. »Vélin komst síðan í eigu Flug-leiða við sameiningu Flug- félags Íslands og Loftleiða og var seld úr landi 27. janúar 1984. RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur ákært 20 manns fyrir 75 milljóna króna fjársvik, hylmingu og pen- ingaþvætti í tengslum við rannsókn á meintum innanbúðarsvikum fyrr- verandi starfsmanns Trygginga- stofnunar ríkisins. Viðkomandi starfsmaður ber aðalsökina í málinu en meðákærðu voru bótaþegar TR og sæta ákæru fyrir að aðstoða við brotin. Málið komst upp sumarið 2006 og sætti umræddur starfsmaður gæslu- varðhaldi vegna málsins. Grunur beindist m.a. að því að hann hefði svikið út bætur sem TR greiddi skjólstæðingum sínum. Hjá innra eftirliti TR vöknuðu fyrstu grunsemdir um alvarlegt trúnaðarbrot starfsmannsins sem hafði unnið hjá stofnuninni í fjölda ára. Virtist sem hann hefði með blekkingum og í krafti stöðu sinnar látið einstaklinga kerfisbundið og án tilefnis fá greiðslur frá stofnuninni. Eftir frekari skoðun og samanburð gagna hjá TR sem styrktu þessar grunsemdir var málið kært til rík- islögreglustjóra og krafist opinberr- ar rannsóknar. Sérfræðingar TR ásamt efnahags- brotadeild ríkislögreglustjóra hófust handa við að afla gagna og skoða bókhald samhliða eftirliti hjá stofn- uninni. Málið verður þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur 14. mars þar sem sakborningarnir munu tjá afstöðu sína til sakarefnisins. Við þingfest- ingu verður ákveðið hvenær málið verður tekið fyrir. Fjársvik Fyrrverandi starfsmaður TR ber aðalsökina í málinu. 20 ákærðir vegna fjár- svika í TR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.