Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 41 Óskarsverðlaunaafhendinginmjakaðist áfram í 80. skipt-ið sem endranær. Þeir áhugasömu komu sér fyrir framan við tækið aðfaranótt mánudagsins 25. febrúar, þegar allt óbrjálað heimilisfólk var löngu gengið til náða. Tímasetningin er grábölvuð en á sér eðlilegar skýringar þegar skoðuð eru tímabeltin sem skilja okkur frá vesturströnd Bandaríkj- anna. Hitt er öllu verra og jafn- augljóst vandamál, að þessi áhrifa- ríkasta verðlaunahátíð kvikmyndaheimsins verður æ dauf- legri á að horfa með hverju árinu og það á tímum þegar allir eru að flýta sér sem aldrei fyrr. Ekki veit ég hversu margir land- ar mínir fylgdust með veisluhöld- unum í Los Angeles en þeir hafa sjálfsagt skipt hundruðum eða fá- einum þúsundum. Kvikmyndaaka- demían hefur ekki miklar áhyggjur af þeirri tölfræði, hitt hlýtur að valda henni hugarangri að áhorf- endur hafa ekki verið færri og kemur sjálfsagt margt til.    Bandarískir fjölmiðlar hafa ver-ið iðnir við að leita uppi blóra- böggulinn og benda gjarnan á myndavalið; nokkrar, niðurdrep- andi smámyndir sem sárafáir kann- ast við og sáu í bíó, óspennandi leik- arar og flestir frá gamla heiminum og ömurlegt ástand í kvikmynda- heiminum sakir langs og leiðinlegs verkfalls handritshöfunda. Ófáir benda á stjórnandann, spaugarann Jon Stewart, sem sýndi og sannaði að hann kemst ekki með tærnar þar sem Whoopi Goldberg hafði hælana og sá hún þó aldrei í sjónhending iljarnar á Johnny heitnum Carson. Jay Leno, Conan O’Brien, Stewart og fleiri góðir menn hafa reynt að halda sýningunni á floti en það þarf meira til. Þegar sjónvarpsútsend- ingar hófust frá afhendingarhátíð- inni um miðja síðustu öld, nutu þær samstundis óhemju vinsælda. Áhorfendurnir voru um 60 millj- ónir fyrir áratug og urðu flestir um hálfur milljarður á heimsvísu fyrir nokkrum árum. Síðan kom reið- arslagið, áhorfið árið 2008, tæp 19% bandrískra heimila, hefur ekki verið minna síðan Bob Hope birtist skælbrosandi á fyrstu hátíðinni, í aprílmánuði 1953. Dettur nokkrum heilvita manni í hug að tilnefningar til vinsælla brellumynda á borð við Transform- ers, Shrek the Third eða 300, hefði skipt sköpum. Útnefning til handa nýjustu vonarstjörnunni, hinum lið- ónýta Shia LaBeouf eða útstilling- argínunni Gerard Butler. Vandamálið liggur annars stað- ar, „stórviðburðir“ trekkja ekki lengur líkt og þeir gerðu, sem dæmi má nefna að áhorfið á bæði Emmy- og Grammy-verðlaunin var með minnsta móti í sögunni. Golden Globe-afhendingarhátíðinni var einfaldlega sleppt sökum verkfalls- ins og ekki að marka það nokkurs staðar að það hafi skipt máli.    Hluta fækkunarinnar má eflaustrekja til áhugaleysis unga fólksins, það fer sínu fram á hverju sem gengur, Óskarsverðlaun eða Emmy breyta ekki áætlunum um að sjá nýjasta brellu- eða hrollvekju- eða framhaldsmyndamoðið í bíó. Óheyrileg lengd útsendingarinnar hlýtur að fæla frá, endalaus, sál- ardrepandi auglýsingahlé, en kom- ið hefur til tals að bjóða upp á nýj- ar, ferskar og sérvaldar auglýsingar fyrir útsendinguna að ári. Sú ákvörðun getur hugsanlega skipt umtalsverðu máli en aðferð- inni var beitt með góðum árangri þegar sent var út frá úrslitunum í ruðningi í vetur (Super Bowl.) Vonandi verður kvikmyndaaka- demían búin að finna nýtt og áhugaverðara útsendingarform þegar kemur að 81. afhendingarhá- tíðinni í febrúar 2009. Leggi áherslu á aðalflokkana en hlaupi yf- ir þá minni á sem skemmstum tíma. Stytti tónlistaratriði og felli út spil- un á keppnislögunum og síðast en ekki síst, gefi sigurvegurunum há- markið 15–20 sekúndur til að flytja þakkarlofrulluna. Hvað sem öllu líður, Óskarinn þarfnast andlitslyftingar ef hann á ekki að pipra og lognast út af. Óskar þarfnast lýtalæknis AF LISTUM Sæbjörn Valdimarsson » Áhorfendurnir voruum 60 milljónir fyrir áratug og urðu flestir um hálfur milljarður á heimsvísu fyrir nokkr- um árum. Reuters Blindur Óskar Hátíðin má muna sinn fífil fegurri en áhugi yngra fólks á þessum íburðarmiklu verðlaunum hefur sjaldan verið minni. Ef til vill gætu sérvaldar auglýsingar gert útsendinguna skemmtilegri. saebjorn@heimsnet.is BRESKI leik- arinn Orlando Bloom vakti at- hygli fjölda gesta í veislu sem haldin var eftir Óskarshá- tíðina með því að stíga villtan dans með Mad- onnu. Þá mun hann hafa gert sér lítið fyrir og smellt kossi á tvær fagrar konur síðar um kvöldið. „Orlando naut athyglinnar þegar hann steig dansinn með Madonnu,“ er haft eftir ónefndum heimildarmanni sem var staddur í boðinu en Bloom er í sambandi við nærfatafyrirsæt- una Miröndu Kerr. Síðar um kvöldið sást til Blooms kyssa Ru- mer Willis, elstu dóttur Bruce Willis og Demi Moore og þá smellti hann einnig heitum kossi á varir breska ljósmyndarans Amöndu De Cadenet. „Bloom gat ekki haldið aftur af sér þegar hann dansaði við Rumer og strauk henni um allan líkamann auk þess að kyssa hana. Stuttu síðar end- urtók hann atriðið með Amöndu. Þetta var svolítið fyndið og svo augljóst að P. Diddy sem var veislustjóri í boðinu kallaði: Or- lando, hversu margar stúlkur ætl- arðu að kyssa í kvöld?“ Ekki við eina fjölina felldur Orlando Bloom KANADÍSKI tónlistarmað- urinn Jeff Hea- ley er látinn 41 árs, af völdum sjaldgæfs augn- krabbameins. Healey, sem var blindur, var þekktur fyrir að spila á raf- magnsgítar í kjöltu sinni, og fyrir að spila rokk og blústónlist. Heal- ey missti sjónina sem barn af völdum sjúkdómsins. Plata hans See the Light frá árinu 1988, var tilnefnd til Grammy-verðlauna og náði mikl- um vinsældum. Healey spilaði m.a með BB King og tók þátt í upp- tökum með Mark Knopfler úr Dire Straits og Bítlinum George Harrison. Ný plata með Healey er væntanleg í vor og var hann með áform um að fara í tónleika- ferðalag um Evrópu. Jeff Healy látinn Jeff Healy / SELFOSSI/ AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI UNDRAHUNDURINN ER BESTI VINUR MANNSINS ÓTTINN HEFUR LIFNAÐ TIL LÍFSINS. Er einhver rosalegasta spennuhrollvekja seinni ára. HANNAH MONTANA VÆNTANLEG 19. MARS Í DIGITAL 3-D nánari upplýsingar um væntanlegar myndir í þrívídd má finna á vefslóðinni http://3D.SAMbio.is FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND FRÁ WALT DISNEY. JUNO kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára UNDERDOG m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ STEP UP kl. 8 - 10 B.i.7 ára SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA O S C A R ® T I L N E F N I N G A R ÞAR Á MEÐAL3BESTI LEIKARI - JOHNNY DEPP SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝNDÁ SELFOSSI STEP UP 2 kl. 8 B.i. 7 ára MEET THE SPARTANS kl. 8 LEYFÐ NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 10:10 B.i. 16 ára RAMBO kl. 10:10 B.i. 16 ára UNDRAHUNDURINN m/ísl tali Sýnd fös., lau. og sun. LEYFÐ BRÚÐGUMINN Sýnd fös., lau. og sun. B.i. 7 ára / KEFLAVÍK NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára STEP UP 2 kl. 8 B.i. 7 ára P.S. I LOVE YOU kl. 10:10 LEYFÐ SÝND Á SELFOSSI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.