Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 44
ÞÁTTTAKENDUR í kvennaferð ferðaklúbbsins 4x4
lentu í nokkrum hrakningum á leið sinni til byggða af
Sprengisandi á sunnudaginn vegna blindhríðar á há-
lendinu svo ekki sást á milli stika. Varð að ganga á und-
an bílunum og tók heimferðin öll um 16 klukkustundir
fyrir vikið. Allt gekk þó slysalaust, en 56 konur voru í
ferðinni á 23 bílum og voru þær yngstu 12 ára að fara í
sína aðra kvennaferð og þær elstu á sextugsaldri.
Lagt var upp í ferðina á föstudaginn og var þá farið í
Setrið sem er skáli ferðafélagsins inni við Hofsjökul. Á
laugardeginum var ekið inn undir Hofsjökul og niður í
Kisubotna meðal annars í mjög góðu veðri. Lagt var af
stað í bæinn á sunnudagsmorguninn um klukkan 11 í
þokkalegu veðri, „en svo versnaði veðrið og versnaði
þannig að við sáum ekki á milli stika, auk þess sem það
voru líka miklir skaflar á veginum“, sagði Kristín Sig-
urðardóttir, ein þeirra sem voru í ferðinni. Hún sagði
að þær hefðu því brugðið á það ráð að skipta hópnum
upp í fjóra hópa, sem hver sá um sig. Þannig hefðu þær
allar komist til byggða og hefðu þær seinustu komið í
bæinn um klukkan hálffimm um nóttina eftir 16-17
tíma ferð.
Voru 16 klukkutíma til byggða
Árleg kvennaferð ferðaklúbbsins 4 x 4 á hálendið
Ljósmynd/Kristín Sigurðardóttir
Ófærð Halldóra Ingvarsdóttir og Þórkatla M. Norðquist bæta lofti í dekkin.
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 64. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Kosið um samningana
Nú stendur yfir heildaratkvæða-
greiðsla hjá SA um nýundirritaða
kjarasamninga. Að sögn aðstoð-
arframkvæmdastjóra SA er gert ráð
fyrir að kosið sé um svona risastórt
samflot. » Forsíða
95 sagt upp vinnu
Bygginga- og verkfræðifyrirtækið
StafnÁs ehf. hefur sagt 95 manns
upp vinnu. Starfsmenn hafa ekki
fengið öll þau laun sem þeim ber. » 2
Annar starfshópur
Kortlagningu vega og slóða á há-
lendinu var ekki lokið árið 2007 eins
og starfshópur lagði til í skýrslu árið
2005. Nú stefnir í að kortlagningu
ljúki 2009. Annar starfshópur var ný-
lega myndaður til að fjalla um vegi
og slóða á hálendinu. » 9
Gullfaxa bjargað?
Niðurrifi Gullfaxa hefur verið
frestað um tvo mánuði. Nú velta
menn fyrir sér að festa kaup á stjórn-
klefa vélarinnar. » 8
Umdeildar kosningar
Eftirlitsmenn þingmannasamtaka
Evrópuráðsins draga í efa að forseta-
kosningarnar í Rússlandi hafi verið
frjálsar og lýðræðislegar. » 14
SKOÐANIR»
Staksteinar: Skáklíf í höfuðborginni
Forystugreinar: Matur og öryggi
Ofsi Ísraela
Ljósvaki: Hvað er að heyra?
UMRÆÐAN»
Hvalveiðar í atvinnuskyni
Lífshlaupið
Hvenær drepur maður mann?
Neyðaraðstoð við banka?
3
3
3 3 3 3 4
$5#'
. #+
$
6 !
!## %#
#
3 3 3 3
3 3
3 3 - 7 &1 '
3 3
3 3
3 3
89::;<=
'>?<:=@6'AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@'7#7<D@;
@9<'7#7<D@;
'E@'7#7<D@;
'2=''@%#F<;@7=
G;A;@'7>#G?@
'8<
?2<;
6?@6='2+'=>;:;
Heitast 4°C | Kaldast -3°C
Suðlæg átt, víða 10-
18 m/s. Rigning eða
slydda sunnan- og suð-
vestanlands, en snjó-
koma fyrir norðan. » 10
Í nýrri sýningu leik-
félags MH eru engin
aðal- eða auka-
hlutverk. Allir eru
jafnir, allir fá að
leika. » 39
LEIKHÚS»
Allir fá
að leika
TÓNLIST»
Bo fer með 700 manns
með sér til Hafnar. » 36
Var það verkfall
handritshöfunda eða
óspennandi leikarar
sem gerðu Ósk-
arsverðlaunin svona
daufleg? » 41
KVIKMYNDIR»
Leiðinlegur
Óskar
TÓNLIST»
Björk hvetur smáþjóð-
irnar áfram. » 36
FÓLK»
Leikur frekar mömmur
en kynbombur. » 43
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Einstæð móðir fékk lóttóvinninginn
2. Lá við flugslysi
3. Spears segir kærastanum upp
4. Börnin „lagfærð“
Íslenska krónan veiktist um 0,4%
LISTAMENNIRNIR Mundi og
Morri mega aldrei aftur nota orðið
Louvre í listsköpun sinni, eftir að
sýning þeirra með
austurríska lista-
mannahópnum
Gelitin kom af
stað titringi í
borgarstjórn Par-
ísar. Á sýningunni
gera þeir óspart
grín að þjóð-
argersemum
Frakka svo að það hefur verið kallað
„menningarguðlast“.
Mundi og Morri segja starfið með
Gelitin hafa verið eins og ferðalag á
spíttbáti í gegnum nútímalistaheim-
inn. „Við vissum í rauninni ekkert um
nútímalistasenuna sem var í gangi er-
lendis þegar við gerðum fyrstu sýn-
inguna með Gelitin en eftir hana hef-
ur hópurinn togað okkur hingað og
þangað um heiminn og við kynnst frá-
bærum listamönnum og sýnt á mjög
flottum stöðum svo við höfum fengið
þetta allt beint í æð á mjög stuttum
tíma,“ segir Morri. | 40
Bannað
að nota
„Louvre“
Morri
SJÓMENN hjá Brimi hf. tóku mat-
aræði sitt í gegn með hjálp kokk-
anna um borð og juku hreyfinguna
með þeim árangri að líkamsþrek
þeirra jókst um 14,3%.
Átakið var liður í rannsókn sem
Sonja Sif Jóhannsdóttir, meist-
aranemi við KHÍ, gerði, en markmið
rannsóknarinnar var að kanna
heilsufar íslenskra sjómanna og
auka þekkingu þeirra á mikilvægi
góðrar heilsu. Sonja segir að líkams-
rækt sjómannanna hafi verið í lág-
marki í byrjun en þeir hafi heldur
betur tekið sig á og verið jákvæðir
og áhugasamir um bætta heilsu.
Guðmundur Kristjánsson, for-
stjóri Brims, tekur í sama streng og
segir rannsóknina hafa ýtt undir
samvinnu og samstarf. | Miðopna
Bættu þrek-
ið um 14,3%
Kynning Sonja Sif Jóhannsdóttir
kynnir niðurstöðurnar.
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
RÉTTHAFAR tónlistar- og mynd-
efnis lýsa yfir ánægju sinni með nið-
urstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í
gær þar sem ákærðir í hinu svo-
nefnda DC++-máli eru sakfelldir
fyrir margvísleg brot á höfundarrétti.
Árni Matthíasson, tónlistargagnrýn-
andi Morgunblaðsins, segir hins veg-
ar að vandséð sé hvaða máli þessi
dómur skipti, þar sem þarna sé um
tækni að ræða til niðurhals á efni sem
flestir séu hættir að nota.
Í dómnum voru ákærðu sakfelldir
fyrir að birta og gera eintök af for-
ritum, kvikmyndum og tónlist á net-
inu þannig að aðrir gætu nálgast það
efni án leyfis rétthafa. Ennfremur var
einn ákærða dæmdur fyrir að setja
upp og hýsa miðlægan nettengipunkt
og hafa með því liðsinnt í verki og
hvatt til þess að aðrir ákærðu birtu á
netinu í heimildarleysi ólögmæt ein-
tök varin höfundarrétti.
„Það er vandséð hvaða máli þessi
dómur skiptir vegna þess að þetta er
tækni sem fólk er almennt hætt að
nota,“ sagði Árni Matthíasson í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hann sagði að nú hefði svonefnd
torrent-tækni tekið við og þá væri
einnig orðið mjög algengt að blogg-
síður væru notaðar til þess að dreifa
tónlist og kvikmyndum. | 6
Ánægðir með dóminn
Efasemdir um að hann hafi áhrif á niðurhal þar sem ný tækni
er komin til skjalanna til að hlaða niður tónlist og kvikmyndum
Í HNOTSKURN
»„Dómur þessi verður enn-fremur vonandi til þess að al-
menningur átti sig á því að það
er ólögmætt að skiptast á kvik-
myndum, tónlist og forritum á
netinu án heimildar rétthafa,“
segir í tilkynningu frá Smáís.