Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 18
Mig langar rosalega mikið til að verðalistamaður og kafari þegar ég verðstór. Þá get ég teiknað allt sem égsé í sjónum og náð í alla þá fiska sem ég vil,“ segir Ari Bergur Gunnarsson, sex ára gamall gutti, sem býr á Álftanesi ásamt for- eldrum sínum þeim Anneyju Bæringsdóttur og Gunnari Júlíussyni og tveimur yngri systkinum, þeim Ísari Þór, 4 ára, og Birtu Dís, 10 mánaða. Uppi um alla veggi á heimilinu hanga myndir eftir Ara Berg, sem teiknar eins og engill svo undrun sætir. Við fyrstu myndasýn lítur út fyrir að listamaðurinn sé mun eldri en bara sex ára leikskólastrákur því mikil hugsun og rýmistil- finning virðist liggja nú þegar í myndsköpun unga listamannsins, sem hefur fengið mikla hvatningu frá sínum nánustu eftir að foreldr- arnir uppgötvuðu þessa náðargáfu í fari sonar síns. „Við bjuggum úti í New York þegar Ari Bergur fæddist og fluttum svo heim með hann tveggja ára gamlan. Ég tók mjög snemma eftir því hversu athugull hann var um allt og alla auk þess sem hann entist tímunum saman til að teikna og bjó þá gjarnan til heilu ævintýrin eftir uppáhalds teiknimyndahetjunum sínum,“ segir mamman Anney. „Það voru hins vegar leik- skólakennararnir á leikskólanum Laufásborg sem bentu okkur Gunnari á það í foreldraviðtali að Ari byggi yfir afburða hæfileikum á þessu sviði. Þó svo að okkur hafi alltaf fundist mynd- irnar hans svolítið flottar, gerðum við okkur ekki grein fyrir því að hann hefði ef til vill meiri gáfu á þessu sviði en jafnaldrarnir enda höfðum við ekki samanburð þar sem Ari er frumburð- urinn okkar,“ segir Anney. Ætlar að vinna með pabba En hvaðan hefur strákurinn þennan mikla teikniáhuga og þessa miklu færni? „Að hluta til er það líklega vegna vinnu minn- ar, en ég er ég grafískur hönnuður og mynd- skreytir og hef verið teiknandi síðan ég man eft- ir mér. Hann hefur fylgst með mínum störfum og ég hef sýnt honum ýmislegt er varðar teikn- ingu og myndbyggingu. Hann grúskar í teikni- bókum og dregur oft í gegn til að ná línunni í teikningunum,“ segir pabbinn Gunnar, sem rek- ur nú ásamt konu sinni sjálfstætt fyrirtæki und- ir heitinu Dínamít, en hann starfaði áður m.a. hjá Latabæ. „Nú er ég alfarið kominn með vinn- una mína heim og við Ari Bergur teiknum gjarnan saman, sinn í hvoru horninu. Hann er með sitt eigið teikniborð hér frammi á gangi með nógum efniviði og ég er hér rétt hjá í for- stofuherberginu með mína vinnu. Ari er farinn að stelast af og til í tölvuna mína og er farinn að ná góðum tökum á tölvuteikningu,“ segir Gunn- ar og Ari bætir við að hann sé harðákveðinn í því að vinna með pabba sínum þegar fram líða stundir,“ segir Gunnar. Pöddur, skordýr og ævintýri Ari Bergur, sem nú er í náttúruleikskólanum Krakkakoti á Álftanesi, byrjar í Álftanesskóla næsta haust, en auk teikniáhugans á hann sér margar ævintýraveraldir. Hann þarf helst að koma hugsunum sínum strax á blað og þá má helst ekkert trufla einbeitinguna. Að öðrum kosti getur litli listamaðurinn „fríkað út“ í list- sköpuninni, eins og sannir listamenn gjarnan gera, með þeim afleiðingum að teikniblöðin fá að fljúga út um allar jarðir. Annars er hann hvers manns hugljúfi. Hann er heimakær, ná- kvæmur, hefur góða einbeitingu, fínar fínhreyf- ingar og afar næmt auga fyrir smáatriðum, seg- ir Anney. „Sjóræningar, Svarthöfði, Superman og Bat- man eru uppáhalds ofurhetjurnar mínar og maríuhæna og engispretta eru uppáhalds pödd- urnar mínar,“ segir ungi listamaðurinn, sem hefur nú þegar selt tvær mynda sinna til amer- ískrar listakonu, sem var gestkomandi á heimili hans í sumar, á heilar þrjú hundruð krónur. Auk þess að hafa tekið ástfóstri við frægar of- urhetjur, hefur Ari Bergur lengi pælt í pöddum, skordýrum og fiskum enda er ekki langt að sækja frá heimilinu í fjöruborðið á Álftanesi til að ná í fjörudót á borð við þara og kuðunga til að föndra með. Álftir þiggja brauð í „bílalúgu“ „Fjölskyldan hefur svo mikinn hug á því að koma sér upp alvöru dýragarði,“ segir húsbónd- inn á heimilinu sem sjálfur ólst upp við hálf- gerðan dýragarð á sínu heimili sem hann segir að hafi verið ómetanlegt. Þrjú fiskabúr með fjöl- breyttu fiskaúrvali, fimmtíu vatnasniglum og afrískum vatnafroskum er nú þegar að finna í herbergi drengjanna og stofuglugginn á húsinu er farin að virka eins og bílalúga í sjoppu fyrir svangar villtar Álftanes-álftir, sem eru farnar að venja komur sínar í lúguna góðu í leit að brauðbitum úr höndum húsráðenda. join@mbl.is Fjölskyldan Hjónin Anney Bæringsdóttir og Gunnar Júlíusson ásamt börnunum Ara Bergi 6 ára, Ísari 4 ára og Birtu Dís 10 mánaða. Blöð og teikniáhöld eru aldrei langt undan. Erró er í miklu uppáhaldi hjá hinum sex ára listamanni Ara Bergi Gunnarssyni, sem sjálf- ur er ekki í nokkrum vand- ræðum með að hverfa inn í ævintýraheima, vopnaður blöðum og litum. Jóhanna Ingvarsdóttir fór í heimsókn til litla listamanns- ins á Álftanes. Morgunblaðið/Valdís Thor Listamaðurinn Ari Bergur Gunnarsson er harðákveðinn í því að sinna listagyðjunni þegar hann verður stór, en líka kafari: „Þá get ég teiknað allt sem ég sé í sjónum,“ segir hann. Sjóræningjar, Svarthöfði, Superman og Batman eru uppáhalds ofurhetjurnar „Maríuhæna og engispretta eru uppáhalds pöddurnar mínar,“ segir ungi listamaðurinn, sem hefur nú þegar selt tvær mynda sinna til amerískrar listakonu. |þriðjudagur|4. 3. 2008| mbl.is daglegtlíf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.