Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SAMKVÆMT mínum heimildum mun þorskstofninn hér við land vera einn fárra þorskstofna í heim- inum sem ekki er alveg kominn að fótum fram vegna ofveiði, sem þýð- ir að það á að vera hægt að koma honum aftur til eðlilegs þroska með réttri nýtingu. Á sama tíma og þessi staðreynd liggur fyrir eru ís- lensk stjórnvöld sök- uð um mannréttinda- brot fyrir það eitt að hafa ekki heimilað frjálst aðgengi allra að fiskimiðunum hér við land; á tímum veiðitækni, sem ræður við að ganga frá þeim lífverum hafsins sem við kjósum, á til þess að gera skömmum tíma. Einnig bylur í eyr- um landsmanna, dag- langt, næstum dag- lega, að kvótakerfið, sem tekið var upp á árinu 1983 hafi engu skilað samkvæmt þeim mælikvarða að þorskstofninn sé enn í mikilli lægð og að staða byggðanna við strönd- ina sé mjög döpur. Allt er þetta satt og rétt nema að í frásögnina vantar kjarnann, þ.e. að kvótakerf- inu var ætlað að halda utan um heildaraflann, fyrst og fremst í þorski, en með því að takmarka veiðina var það skoðun okkar fær- ustu vísindamanna að hægt væri að halda stofninum í æskilegri nýting- arstærð, þ.e. forsendan var að hafa stjórn á árlegri heildarveiði úr stofninum. Hvað sem öðru líður þá ráðum við ekki enn a.m.k. hvað sambýlingar þorsksins í sjónum velja á diskinn sinn hverju sinni. Þá er næst að spyrja hvernig hefur til tekist: Fyrst setti Hafró fram tillögu um hámarksveiði af þorski á árinu 1976. Fram til ársins 1992 var a.m.k. þrennskonar veiðistjórnun beitt hvað varðar þorskinn. Fyrst var það skrapdagakerfi en frá upp- töku kvótakerfisins, árið 1983, var þorskurinn bæði veiddur sam- kvæmt sóknar- og aflamarki. Yfir tímabilið 1976 til 1992 lagði Hafró til að árlegur afli af þorski yrði 287 þús. tonn. Hann varð í reynd 349 þús. tonn eða um 62 þús. tonnum meiri á ári hverju en ráð- gjöfin kvað á um, sem nam 22% fram- úrkeyrslu. Ef við skoðum síðan afla þeirra skipa sem voru á aflamarki, þ.e. kvótaskipin, yfir ára- bilið 1992 til og með 2003 þá var kvótaskip- unum úthlutað 1.878.677 tonnum af þorski. Veiðin varð 1.892.650 tonn eða 13.973 tonn umfram úthlutun sem nemur 0,74%. Yfir sama tímabil fiskuðu smá- bátarnir, að hluta til, samkvæmt svokölluðu krókaaflahámarki. Á fiskveiðiárunum 2001/2002 og 2002/ 2003 var þeim úthlutað 3071 tonni en veiðin varð 48.146 tonn eða 45.075 tonn umfram leyfilegt há- mark sem nemur 1568%. Það tók góð 20 ár að koma öllum aflaheimildum af þorski inn í kvótakerfið þar sem síðustu leif- arnar af krókaaflahámarkinu voru aflagðar seint á árinu 2006. Í ljósi þeirra staðreynda sem hér hafa verið raktar hélt kvótakerfið það vel utan um heildaraflann að aðeins skeikaði 0,74% sem ég hygg að sé betri árangur en nokkurt annað stjórnkerfi hefur skilað. Það að ekki hefur enn tekist að byggja þorskstofninn upp eins og að var stefnt verður ekki fært á reikning kvótakerfisins því ákvörðun stjórn- valda um árlegan heildarafla hefur ekkert með kvótakerfið að gera. Hvað byggðirnar við sjóinn áhrærir þá kemur þar margt fleira til en minnkun sjávarafla; ekki síst einhæf störf og sú staðreynd að margir Íslendingar eru bara ekki tilbúnir að vinna í fiski sem er svarað með því að sækja útlend- inga til þeirra starfa. Það hlýtur að vera umhugsunarefni í framhaldi af áliti Mannréttindanefndar Sam- einuðu þjóðanna, um ætluð mann- réttindabrot hér á landi; hvað hefði gerst ef við hefðum lítið aðhafst til þess að draga úr veiðinni hér við land með þeim afleiðingum að a.m.k. þorskstofninn ætti sér tæp- ast viðreisnar von. Á hverjum hefðu þá verið brotin mannrétt- indi. Kannski nær allt talið um mannréttindi bara í núið en ekki til niðja okkar, sem eiga rétt á að taka við bæði auðlindum lands og hafs í viðlíka ástandi og við tókum við þeim. Þeir ágætu menn sem ætla í einu og öllu að taka tillit til meiri- hlutaálits Mannréttindanefnd- arinnar þurfa að uppfylla a.m.k. þrjú meginskilyrði: að allir eigi jafnan rétt til fiskveiða við landið, að nýting hvers veiðistofns sé sjálfbær og síðast en ekki síst að skapa útgerðinni lífvænleg rekstr- arskilyrði; þannig að áfram, sem hingað til, verði rekin kraftmikil sjálfbær útgerð á Íslandi. Hvenær drepur maður mann? Helgi Laxdal skrifar um fiskveiðar og kvóta »Kvótakerfið hélt það vel utan um heildar- aflann að aðeins skeik- aði 0,74% á nefndum tíma sem er betri árang- ur en nokkurt annað stjórnkerfi hefur skil- að. Helgi Laxdal Höfundur er vélfræðingur. SAMGÖNGUR milli byggða á Snæfellsnesi, Stykkishólms, Grund- arfjarðar, Ólafsvíkur, Hellissands og dreifbýlisbyggðanna, eru orðnar það góðar að hvert framfaraspor sem stigið er í einu sveitar- félagi á svæðinu virk- ar til framfara í þeim öllum. Flestir íbúanna viðurkenna þetta, finna fyrir þessu og njóta þess. Enn er þó til fólk sem telur ekki framfarir góðar nema þær sem verða til á hlaðinu hjá þeim. Sem betur fer verða þau alltaf fleiri og fleiri sem skynja það að með samgöngubótum síðustu ára hefur Snæfellsnesið breyst frá því að vera fjórar einangraðar þétt- býlisbyggðir sem þurftu að byggja sig upp hver fyrir sig með atvinnu- tæki, menntun og félagsstarfsemi í það að verða landsvæði með fjóra byggðakjarna sem geta stóreflt hver annan með sameiningu í eitt fjölmennt sveitarfélag og samein- aðri stjórnsýslu. Ástandið var ekki burðugt við að- draganda kosninganna um samein- ingu sveitarfélaganna á Snæfells- nesi sumarið 2005. Kjörnir forystumenn sveitarfé- laganna höfðu óljósa skoðun á verk- efninu. Afstaða þeirra margra var sú að sameining væri ekki tímabær en fyrirsjáanlegt væri að sameining yrði samþykkt innan fárra ára. Aðrir þögðu um málefnið, létu ekk- ert frá sér heyra. Sumir lögðust gegn sameiningunni. Með þessu hugarfari og afstöðu brugðust þess- ir kjörnu fulltrúar fólkinu í byggð- unum, kjósendum sínum. Það er eðlileg afstaða hvers kjós- anda að hlusta eftir því sem þeir fulltrúar er þeir hafa kosið til að stjórna sveitarfélagi hafa að segja um mál- efni eins og það að sameina það öðru sveitarfélagi eða fleir- um. Það er á sama hátt skylda hvers sveitarstjórnarmanns að hafa ákveðna skoð- un á því málefni og láta þá skoðun í ljós á afgerandi hátt. Niðurstaðan úr kosningunum sagði því í raun ekkert um það hver afstaða íbúanna var til sameiningar. Niðurstaðan var aðeins bergmál óbeins skoð- analeysis og andstöðu sveit- arstjórnarmanna við sameiningu. Nokkrir sveitarstjórnarmenn mæltu með sameiningu en náðu ekki krafti til að láta að sér kveða. Sameining sveitarfélaga hefur verið að eiga sér stað um allt land á síðustu árum. Snæfellsnes er nú að verða eina landsvæðið sem eftir er. Í stað fjögur til fimm þúsund íbúa öflugs sveitarfélags með samstillta stjórnsýslu og með afl til að láta taka eftir sér og heyra frá sér er- um við með fimm veikburða sveit- arfélög, fimm sveitarstjórnir sem erfitt er að manna og fimm bæj- arstjóra eða oddvita sem allir eru að gera sömu verkin. Þeir eru auk þess yfirhlaðnir störfum við þátt- töku í fundum og ráðstefnum sem þeir verða að sitja. Óhagstæðu dæmin eru mikið fleiri. Það er erfitt að meta það hve miklu við erum að tapa með því að vera þeir litlu í hópi sveitarfélaga. Það er dýrt að vera fátækur og það er oft vont að vera sá litli meðal hinna stóru. Það er brýn þörf fyrir Snæfellinga að hverfa úr þessari stöðu og sameinast um eina sveit- arstjórn fyrir Snæfellsnes allt. Sveitarstjórn sem væri meðal þeirra fjölmennustu í Norðvest- urkjördæmi. Sveitarstjórn sem gæti skilað og tekið að sér verkefni sem núverandi sveitarfélög hafa ekki hæfni eða möguleika til að sinna sökum takmarkaðs starfsliðs og mannfæðar. Ef spurt er um árangur samein- ingar í Borgarbyggð, Árborg, Fjarðabyggð eða bara hvar sem er – er svarið alltaf jákvætt. Er ekki rétt að Snæfellsnes komi í þennan hóp sveitarfélaga ? Við erum að tapa tækifærum til framþróunar með því að fresta því að sameinast í öflugt sveitarfélag og verða eitt af fjölmennustu sveitarfélögum í Norðvesturkjördæmi. Til mikils er að vinna. Er nokkur ástæða til þess að bíða lengur ? Sameining sveitarfélaga á Snæfellsnesi Skúli Alexandersson vill gera Snæfellsnesið allt að einu sveitarfélagi » Það er brýn þörf fyr- ir Snæfellinga að hverfa úr þessari stöðu og sameinast um eina sveitarstjórn fyrir Snæ- fellsnes allt. Skúli Alexandersson Höfundur er fyrrverandi sveit- arstjórnar- og alþingismaður.                                              !   "    !    # $   %&   # '  ()!  *     !      '  +, - .           /      /  ! 0     /      .   .    1234( 1       1   . 40&35+67&4+2$68 9:; <=>>                                                            !  "      #    # $  %     "   &   "   %        ' ?; ?9 ?= ?@              - kemur þér við Sérblað um bíla fylgir blaðinu í dag Hvað ætlar þú að lesa í dag? KSÍ vill 400 milljónir til viðbótar frá borginni vegna stúkubyggingar Út af spítala tólf tímum eftir sjálfsvígstilraun Efnisþjófar klófestir með aðstoð tálbeitu? Merzedes Club túrar um landið í vor Höfundur Hallargarðs- ins óttast eyðileggingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.