Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI                                                                !   ! " !                                         # $    %   $ # $    &$ $'%( $ $ )   $               * * * ** *+* *!* * * * * * * ** *+* *!* * * * ! " #" $% &  '( )   *+'   '( )   *+'    '( )   *+'     ,    - - -     .% ,'%  "" /" 0  1  "0 ' " 23 )  . .    /   /     .    . .  45   ! "  .% '% /"   1 +. /  $  ".%'%  "  /  % ,'%  " /     '   * * * ** *+* *!* * * *  %(    %(     %(     ,$(   Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is FYRIRTÆKIÐ Öxarnúpur á Kópa- skeri ásamt bátnum séra Jóni er nú til sölu. Núverandi aðaleigandi, Ein- ar Garðar Hjaltason, hyggst hætta starfseminni og snúa sér að öðru. Á þessum tímapunkti var komin upp sú staða að annaðhvort var að bæta við sig eða hætta. Ég kýs að hætta,“ segir Einar Garðar. Starfsemi Öxarnúps hefur fyrst og fremst snúizt um rekstur fisk- markaðs á staðnum en á síðasta ári fóru þar um 2.000 tonn í gegn. Engin fisk vinnsla hefur verið á staðnum en góð aðstaða er til vinnslu á bolfiski og grásleppu og auk þess er góð að- staða til slægingar í tengslum við fiskmarkaðinn. Útgerð frá Kópa- skeri er smá í sniðum og eru það fyrst og fremst aðkomubátar sem landa fiski á markaðinn. Kópasker hefur yfir að ráða 69 tonna byggðakvóta og segir Einar Garðar að stór hluti hans komi í hlut bátsins séra Jóns, bæði kvóti síðasta fiskveiðiárs og þessa. Annars er bát- urinn án veiðiheimilda. Báturinn er ríflega 10 metra langur, yfirbyggður með beitningavél um borð. Hann segir að þarna sé sýnt tæki- færi fyrir unga og hrausta menn. Byggðastofnun eigi ágætt hús á staðnum, sem starfsemi Öxarnúps hafi verið í, en þar var áður rækju- vinnslan Gefla. Húsið sé mjög vel búið og hafi öll nauðsynleg leyfi til fiskvinnslu og starfrækslu fiskmark- aðar, svo sé húsið með grásleppu- vinnsluleyfi, en rækjuvinnslu- búnaðurinn hafi að mestu verið seldur. „Hér er einhver bezta aðstaða sem hægt er að hugsa sér til grá- sleppuveiða. Þá eru gjöful ýsumið í næsta nágrenni. Þetta gefur því nokkuð góða möguleika á því að koma með aflaheimildir á staðinn og fá byggðakvótann á móti,“ segir Einar Garðar, sem hefur rekið fyr- irtækið frá árinu 2003. Öxarnúpur á Kópaskeri til sölu ásamt smábát Morgunblaðið/Alfons Bátar Það er ekki sama Jón og séra Jón. Séra Jón er með beitningarvél um borð og tilbúinn til veiða og hefur auk þess aðgang að byggðakvóta. ÚR VERINU Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is FRAMFERÐI Ísraelsmanna á Gaza-svæðinu er óafsakanlegt og ástandið þar hörmulegt. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde for- sætisráðherra á Alþingi í gær en Ög- mundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, vildi svör frá Geir um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við atburðunum og taldi grundvall- aratriði að eindrægnum og hörðum mótmælum væri komið á framfæri við ísraelsk stjórnvöld. Jafnvel kæmi til álita að fara að tillögu Sveins Rúnars Haukssonar, formanns Ís- lands-Palestínu, og slíta stjórnmála- sambandi við Ísrael. Gamalt vinaríki Geir var hins vegar ekki á því að til stjórnmálasambandsslits gæti komið enda væri það stórt skref að stíga í samskiptum „við þetta gamla vinaríki okkar sem því miður hefur leiðst út í þær ógöngur sem við for- dæmum“. Hann sagði að hafa þyrfti í huga að Ísraelsmenn rækju orsakir ástandsins til eldflaugaárása frá Gaza-svæðinu. „Málið er auðvitað flókið eins og við öll þekkjum,“ sagði Geir en Ögmundur gaf lítið fyrir þessar skýringar. „Átylla þess morðæðis sem gripið hefur Ísrael núna undanfarna daga er dauði eins Ísraelsmanns á fimmtugsaldri í Sde- rot, sem varð fyrir heimatilbúinni eldflaug, og var það fyrsta mann- fallið af slíkum völdum þar í níu mánuði,“ sagði Ögmundur. „Ég hafna því þessum málatilbún- aði og þessari afsökun ríkisstjórn- arinnar til að skjóta sér undan ábyrgð að koma hörðum mótmælum á framfæri við þessu ofbeldi sem heimurinn er að verða vitni að,“ sagði hann jafnframt og áréttaði að Ísraelsmenn hefðu margbrotið Genfarsáttmálann um vörn almenn- ings í stríði. Það eitt ætti að nægja til þess að Íslendingar brygðust við enda aðilar að sáttmálanum. Reuters Framferði Ísraela á Gaza óafsakanlegt Á að slíta stjórnmálasambandi við ísraelsk stjórnvöld? Í HNOTSKURN » Ísraelar hafa haldið úti hörð-um árásum í lofti og á landi á Gaza og segja markmiðið vera að hefna fyrir eldflaugaárásir. » Talið er að um 120 mannshafi fallið á nokkrum dögum en Ísraelar hafa nú sagst ætla að draga herlið sitt til baka. » Utanríkisráðherra hefursent utanríkisráðherra Ísr- aels bréf þar sem fram kom að Ísrael yrði að fara að al- þjóðalögum og tryggja öryggi óbreyttra borgara. Eyðilegging Geir og Ögmundur voru á einu máli um að ástandið á Gaza væri hræðilegt en eyðileggingin þar er mikil. Hækkanir skila sér Verðhækkun á fóðri og áburði mun koma niður á landsmönnum fyrr eða síðar hvort sem það verður beint í formi hærra vöruverðs eða óbeint vegna einhvers konar þátttöku rík- issjóðs. Þetta sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í svari til Guðna Ágústssonar, Framsókn, sem hafði þungar áhyggjur af verðhækkunum og áhrifum þeirra á landbúnað. „Vandinn er tiltölulega nýtilkominn,“ sagði Geir og bætti við að rannsaka þyrfti hann betur áður en ákvarðanir yrðu teknar um aðkomu ríkisins. Lífeyrissjóðir að borðinu Guðni vildi líka vita álit Geirs á því hvort kalla ætti líf- eyrissjóðina að samræðuborðinu ásamt bönkunum og atvinnulífinu til að takast á við efnahagsvandann, enda væru þeir stórir og öflugir. Geir sagði það ekki hafa verið rætt en lífeyrissjóðirnir ættu þó óbeina aðild í gegnum aðila vinnumarkaðarins, vinnuveitendur og launþega, sem stjórnuðu lífeyrissjóðunum. 15 manna þróunar- samvinnunefnd Stjórn Þróunar- samvinnustofn- unar (ÞSSÍ) verður lögð niður ef frum- varp sem utanrík- isráðherra mælti fyrir í síðustu viku verður að lögum. Nýtt fimmtán manna samstarfs- ráð á að taka verk- efni stjórnarinnar yfir en það á einnig að vera ráðgefandi fyrir stefnumarkandi ákvarðanir utan- ríkisráðherra, m.a. varðandi forgangs- röðun í þróunarsamvinnu og skiptingu fjármagns milli tvíhliða og marghliða samvinnu. Alþingi mun kjósa fimm nefndarmanna en aðrir verða til- nefndir af ráðherra í samráði við fé- lagasamtök, háskóla og vinnumark- aðinn. Dagskrá þingsins Þingfundur hefst kl. 13:30 í dag með umræðum um störf þingsins og svo mun umhverfisráðherra mæla fyrir frumvarpi um efni og efnablöndur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Guðni Ágústsson ÞETTA HELST … ÞRETTÁN þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram þingsálykt- unartillögu á Alþingi þess efnis að á Íslandi verði reist stofnun um mál- efni smáríkja á vegum Sameinuðu þjóðanna. Lagt er til að utanríkis- ráðherra, í samráði við utanríkis- málanefnd Alþingis, kanni grund- völl þess að Ísland hafi forustu um að byggja upp og hýsa slíka stofn- un. „Fyrir utan að sinna hags- munum smáríkja ætti smáríkja- stofnun að vera vettvangur til að efla samstarf smáríkja sín á milli. Slíkt samstarf væri ekki aðeins æskilegt vegna þess að smáríki í svipaðri stöðu geta margt lært hvert af öðru, heldur líka vegna þess að í samskiptum smárra ríkja og stærri er hættan alltaf sú að sambandið einkennist af ójafnvægi þar sem hinn stóri nær fram vilja sínum á kostnað þess sem minni er,“ segir í greinargerð með tillög- unni og bent er á að smáríkin yrðu þá sterkari í samskiptum út á við. Smáríkja- stofnun SÞ á Íslandi? KOMUFÓLK til landsins greiddi rúmlega 27 millj- ónir króna í sekt- ir fyrir að vera stöðvað í toll- inum með of mik- inn varning eða með ólöglega vöru á árinu 2007. Þetta kem- ur fram í skrif- legu svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Rósu Guðbjartsdóttur, Sjálfstæðisflokki. Auk sektanna greiddi komufólk til landsins tæpar fimm milljónir í aðflutningsgjöld en ferðamenn sem eru búsettir á Íslandi mega hafa með sér tollfrjálsan varning fyrir allt að 46 þúsund krónum og verð- mæti hvers hlutar má ekki vera meira en 23 þúsund. Í svarinu kemur einnig fram að tæplega 2.500 Íslendingar hafi ver- ið stöðvaðir við komu til landsins í Keflavík, á Akureyri og Seyðisfirði með ólöglega vöru eða varning um- fram tollfrjálsar heimildir. 27 milljónir króna í sektir Rósa Guðbjartsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.