Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf 40+ félagsstarf fyrir fólk með þroskahömlun | Á morgun verður bíóferð í Smárabíó. Mæting í Smára- lind kl. 18.15 og borðað, síðan er farið í bíó kl. 20. Heimferð frá Smáralind útgangi C kl. 22.20. Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9- 16.30, jóga kl. 9, postulínsmálning og útskurður kl. 13-16.30, leshópur kl. 13- 15. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð- un, almenn handavinna, morgunkaffi/ dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, vefnaður, kaffi. Línudans fellur niður. Félag eldri borgara í Kópavogi | Að- alfundur félagsins verður 8. mars kl. 14 í Gullsmára 13. Skvettuball í Gull- smára, 8. mars kl. 20. Miðaverð 500 kr. Þorvaldur Halldórsson leikur fyrir dansi. Leikhúsferðir í Iðnó á: Sögu- veisla með Guðrúnu Ásmundsdóttur 11. mars kl. 14, skráningu lýkur 7. mars og Snúður & Snælda sýna Flutningana eftir Bjarna Ingvarsson 13. mars kl. 14, skráningu lýkur 10. mars. Uppl. í félagsmiðstöðvunum. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13, félagsvist kl. 20. Leikhóp- urinn Snúður og Snælda sýna í Iðnó Flutninganna eftir Bjarna Ingvarsson og inn í sýninguna er fléttað atriðum úr Skugga-Sveini eftir Matthías Joch- umsson. Næstu sýningar verða 6. og 9. mars kl. 14. Sími 562-9700. Félag kennara á eftirlaunum | Árshátíðin á föstudaginn í Kiwanis- húsinu. Skráning í síma 595-1111, í dag og á morgun. Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu- starf í Ármúlaskóla kl. 15.15. Félagsheimilið Gjábakki | Almenn leikfimi, gler- og postulínsmálun og jóga fyrir hádegi, handavinnustofan opin, leiðbeinandi verður við til kl. 17, tréskurður og róleg leikfimi kl. 13 og alkort kl. 13.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður kl. 9, jóga kl. 9.15, myndlist og ganga kl. 9.30, leikfimi kl. 11, hádeg- Grafarvogskirkja | Kolbrún Halldórs- dóttir les 20. passíusálm kl. 18. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30-16. Helgistund, spilað, spjallað og kaffi- veitingar. TTT fyrir 10-12 ára kl. 16-17 í Engjaskóla og 17-18 í Borgaskóla. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Stutt helgistund með altarisgöngu og bæn fyrir bænaefnum. Að helgistund lokinni gefst kostur á léttum máls- verði á vægu verði. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. KFUM og KFUK | Fundur AD KFUK fellur inn í samkomu Kristniboðsvik- unnar kl. 20. Sr. Jakob Ágúst Hjálm- arsson flytur hugvekju. Kristniboðssambandið | Samkoma kl. 20 í húsi KFUM og K á Holtavegi 28. Kristniboð í Asíu í brennidepli kvöldsins. Bræðurnir Birkir og Mark- ús Bjarnasynir leika lag fyrir gesti. Hugvekja sr. Jakob Ág. Hjálmarsson. Bænastund hálftíma á undan sam- komu. Söluborð og kaffiveitingar. Laugarneskirkja | TTT-hópurinn kl. 16. Kvöldsöngur kl. 20 með Þorvaldi Halldórssyni og Gunnari Gunnarssyni. Sóknarprestur flytur Guðs orð og bæn. Trúfræðsla sr. Bjarna kl. 20.30: „Það kostar lífið að eignast lífið.“ Á sama tíma ganga 12 spora hópar til verka. Selfosskirkja | Foreldramorgunn í safnaðarheimilinu kl. 10.30 í fyrra- málið. Opið hús, hressing og spjall. Vídalínskirkja, Garðasókn | Kyrrð- arstund kl. 12, gengið inn í þögnina, tónlist leikin og ritningartextar lesnir. Súpa og brauð kl. 12.30. Opið hús kl. 13-16, vist, brids og púttgræjur á staðnum. Kaffi. Akstur fyrir þá sem vilja. Uppl. Sími 895-0169. verðlaunin 2005 og nýjasta bók hans, Himnaríki og helvíti, vakti at- hygli og lof. Enginn aðgangseyrir. Sjálfsbjörg | Bingó kl. 19.30 í fé- lagheimili Sjálfsbjargar á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta- aðgerðir kl. 9-16. Myndmennt kl. 10.15, enska kl. 11.45, hádegisverður, leshópur kl. 13, spurt og spjallað /myndbandasýning og bútasaumur kl. 13-16, spilað kl. 14.30, kaffiveit- ingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handavinnustofan opin með leiðbeinanda, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, framhaldssaga kl. 12.30, félagsvist kl. 14. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Hjúkrunarfræð- ingur kl. 9, bænastund og samvera kl. 10, bónusbíllinn kl. 12, salurinn opinn, spilað kl. 13. Kaffiveitingar og bókabíll kl. 16.45. Kirkjustarf Áskirkja | Opið hús kl. 10, föndur og spjall, bænastund kl. 12 í umsjá sókn- arprests. Léttur hádegisverður eftir bænastundina. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón- usta kl. 17.30. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11, kirkjustarf aldraðra kl. 12, léttur málsverður. Helgistund, sr. Magnús Björn Björnsson sér um dagskrá. 10- 12 ára starf kl. 17-18.15. Æskulýðs- starf Meme fyrir 9.-10. bekk kl. 19.3021.30. digraneskirkja.is Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur og lestur pass- íusálms, boðið upp á súpu og brauð eftir stundina. Kirkjustarf eldri borg- ara kl. 13-16, kirkjustarf eldri borgara í Grafarvogskirkju kemur í heimsókn, kaffiveitingar. Helgistund í lok dag- skrár. Umsjón Ragnhildur Ásgeirs- dóttir djákni. Fríkirkjan Kefas | Almenn bæna- stund kl. 20.30. Hægt er að senda inn bænarefni á kefas@kefas.is isverður, bútasaumur kl. 13, jóga kl. 18.15 og leshópur kl. 20. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Línudans kl. 12, málun kl. 13, trésmíði/ tréskurður kl. 13.30, kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12, spilað þar kl. 13, vatns- leikfimi kl. 14. Skráning í 5 daga Vest- fjarðarferð í júlí hafin. Ath. takmark- aður fjöldi. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof- ur opnar kl. 9-16.30, m.a. glerskurður og perlusaumur. Létt ganga um ná- grennið kl. 10.30, postulínsnámskeið hefst 8. apríl. Mánud. 10. mars er framtalsaðstoð frá Skattstofunni, skráning á staðnum og s. 575-7720. Þriðjud. 18. mars er leikhúsferð í Þjóðleikhúsið á Sólarferð. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, hjúkrunarfræðingur kl. 9, boccia kl. 10-11, leikfimi kl. 11-12, hádegismatur, bónus bíllinn kl. 12.15, kaffi. Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9-13 hjá Sigrúnu. Jóga kl. 9-11, Björg F. Böðun fyrir hádegi. Hádegisverður, námskeið í myndlist kl. 13.30 hjá Ágústu. Helgistund kl. 14 í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Hæðargarður 31 | Bör Börson kl. 11. Nýstárleg hönnun fermingarkorta á mánudögum í Listasmiðju. Myndlist- arsýning Jörfa og Listasmiðju. Fund- ur í bókmenntahóp kl. 20 annað kvöld, Skáld-Rósa er lesefnið. Vorferð á sögusvið hennar. Sími 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Bingó á morg- un kl. 13.30 á Korpúlfsstöðum. Kvenfélag Garðabæjar | Félagsfund kl. 20 á Garðaholti. Venjuleg fund- arstörf og skemmtun. Kaffinefnd fundarins skipa hverfi: 3, 10, 11, 14 og 18. kvengb.is Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morg- unkaffi – vísnaklúbbur kl. 9, boccia kvennaklúbbur kl. 10.15, handverks- stofa kl. 13, opið hús, spilað kl. 13, kaffiveitingar. Leshópur FEBK Gullsmára | Jón Kalman Stefánsson rithöfundur, verður gestur Leshópsins kl. 20. Jón Kalman hlaut íslensku bókmennta- 90ára afmæli. Í dag 4.mars verður Stefán Egilsson fv. kaupmaður ní- ræður. Hann tekur á móti vin- um og venslamönnum milli kl. 16 og 18 í Víðihlíð, Grindavík. dagbók Í dag er þriðjudagur 4. mars, 64. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Ef von vor til Krists nær aðeins til þessa lífs, þá erum vér aumkvunarverðastir allra manna. (1. Korintubréf 15, 19.) Félag íslenskra fræða býður tilrannsóknakvölds á fimmtu-dag, 6. mars. Rann-sóknakvöldið er að þessu sinni haldið í Odda, stofu 101, en hefst að vanda kl. 20. Guðrún Kvaran, formaður bibl- íuþýðingarnefndar, flytur þar erindið Biblía 21. aldar: verklag og viðtökur – gagnrýni svarað. „Það hefur varla farið fram hjá neinum að skiptar skoðanir hafa verið um nýja þýðingu á Biblíunni sem kom út á síðasta ári. Komið hefur fram gagnrýni á verkið sem okkur sem að þýðingunni stóðu þykir óréttmæt,“ segir Guðrún. „Ætla ég í erindi mínu bæði að lýsa verklaginu, sem m.a. gerði hverjum sem er kleift að gera athugasemdir við 10 kynningarhefti sem komu út á 12 ára tímabili, og jafn- framt reyna að svara helstu gagnrýni sem fram hefur komið jafnt í fjöl- miðlum sem fyrirlestrum.“ Guðrún segir vissulega mikinn vanda fylgja því að þýða verk eins og Biblíuna: „Hluti af þeirri gagnrýni sem þýðingin hefur fengið lýtur að merkingu textans þar sem honum hef- ur verið breytt. Misjafnt er eftir trúar- skoðunum kristinna hópa hvaða merk- ingu þeir vilja leggja í orðanna hljóðan og reyndi þýðingarnefndin að velja eins hlutlausan valkost og hægt var þegar breyta þurfti orðum í samræmi við nútíma málnotkun eða nýjan skiln- ing á frumtextum,“ segir Guðrún og nefnir sem dæmi þann styr sem hefur staðið um brottfellingu orðsins „kyn- villingur“ og notkun orðræðu beggja kynja í stað karlorðræðu á völdum stöðum. „Í öðrum tilvikum hefur gagnrýnin oft byggst á misskilningi ellegar að menn hafa ekki kynnt sér texta þýð- ingarinnar nægilega vel. Í sumum til- vikum hafa menn jafnvel misskilið textann vegna þess að þá skortir hebr- esku- eða grískukunnáttu,“ segir Guð- rún. „Mjög oft er hreinlega um smekksatriði að ræða, en eins og gefur að skilja er afskaplega erfitt að deila um smekk.“ Heimasíða Félags íslenskra fræða er á slóðinni www.islensk.fraedi.is. Málvísindi | Gagnrýni á biblíuþýðinguna svarað á fimmtudag í Odda Misskilningur og smekksatriði  Guðrún Kvaran fæddist 1943. Hún varð stúdent frá MR 1963 og útskrif- aðist sem cand. mag. frá Háskóla Íslands 1969. Hún lauk doktorsprófi frá Georg-August- háskólanum í Gött- ingen í Þýskalandi 1980. Árið 1978 var Guðrún ráðin sérfræðingur við Orða- bók Háskólans og hefur hún jafnframt veirð prófessor við HÍ frá 2000. Guðrún er formaður Íslenskrar málnefndar og var formaður Biblíuþýðingarnefndar. Hún er gift Jakobi Yngvasyni, prófess- or við háskólann í Vínarborg, og eiga þau tvö börn. Uppákomur Hitt Húsið | Sigurlaug Hauksdóttir heldur fyrirlestur um lystisemdir öruggs kynlífs. Viðburðurinn er á vegum seksí, samtökum einstaklinga gegn kynsjúkdómasmitum en að baki því standa Jafningjafræðslan, FKB og Ástráður. Í GÆR gengu hvorki fleiri né færri en 55 pör í hjónaband við sömu at- höfn í bænum Bavla í vesturhluta Indlands og þar á meðal var þessi hópur af prúðbúnum ungu konum sem biðu þess að brúðkaupið hæfist þegar fréttaljósmyndara bar að. Athöfnin stóð linnulaust allan daginn og fram á kvöld, enda tals- vert umstang í kringum það að koma 110 brúðum og brúðgumum í hnapphelduna á sama tíma án þess að nokkur snurða hlaupi á þráðinn. Brúðkaupið í Bavla Reuters FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostn- aðarlausu. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda tilkynn- ingu og mynd á netfangið rit- stjorn@mbl.is, eða senda til- kynn-ingu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn Senda inn efni". Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. ALMENNUR kynningarfundur um Alþjóðaheimskautaárið og þátttöku Íslendinga í því verður haldinn þriðjudaginn 4. mars kl. 15–17 í hús- næði Háskólans á Akureyri að Sól- borg, stofu L101. Fundurinn fer fram á ensku. David Carlson, framkvæmda- stjóri skrifstofu heimskautaársins í Cambridge, heldur erindi um til- gang og framkvæmd heimskauta- ársins. Alþjóðaheimskautaárið hófst í mars 2007. Það spannar í raun tvö ár til að gefa vísindamönnum tæki- færi til að safna upplýsingum frá báðum pólunum og lýkur því ekki fyrr en árið 2009. Efnt var til þess að frumkvæði Alþjóðavísindaráðsins (ICSU) og Alþjóðaveðurfræðistofn- unarinnar (WMO) sem hafa sameig- inlega umsjón með framkvæmd þess. Alls hafa verið skilgreind 228 heimskautaársverkefni, 166 í raun- vísindum og 52 á sviði menntunar og mannfélagsfræða. Mörg þeirra eru með íslenskri þátttöku og nokkur eru leidd af Íslendingum. Sam- komulag hefur verið gert um að nið- urstöður heimskautaársins verði að- gengilegar á norðurslóðagáttinni, www.arcticportal.org, sem Íslend- ingar veita forstöðu, segir m.a. í fréttatilkynningu. Fundinum verður netvarpað á www.arcticportal.org þar sem hann verður jafnframt varðveittur sem hlaðvarp. Að fundinum standa Utanríkis- ráðuneytið, RANNÍS, Akureyrar- bær, Háskólinn á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Arctic- portal.org. Fundarstjóri verður Sig- ríður Stefánsdóttir, skrifstofustjóri Ráðhúss Akureyrarbæjar. Þátttaka Íslendinga í Alþjóða- heimskauta- árinu JÓNÍNA Bene- diktsdóttir heilsuráðgjafi heldur fyr- irlestra um de- tox-meðferðir víða um land á næstunni. Jónína Bene- diktsdóttir er eigandi og for- stjóri Planet Pulse International sem vinnur með hreinsun, detox, á heilsuhót- elum í Póllandi: Hótel Elf og Hótel Uzboja. Hótelin eru í þjóðgarði skammt frá Gdansk. Detox- meðferðir eru aldagamlar og hafa þekkst í öllum menningar- samfélögum, einnig hér á landi. Meðferðin byggist á sérstöku mat- aræði eða föstum undir eftirliti lækna og hjúkrunarfólks, nuddara og íþróttafræðinga. Detox-fræðin byggjast á þeirri trú að líkaminn/hugurinn þurfi frið til þess að lækna sig sjálfur með því að fasta. Fastan er hinsvegar á ýmsa vegu, en í Póllandi byggist hún á ákveðnum fæðutegundum sem ýta undir hreinsunina og flýta fyrir því að toxísk eiturefni losni úr líkamanum. Til þess að flýta fyrir þessari hreinsun, auk þess að borða lífrænt og hollt, eru ýmsar aðferðir sem virka vel og ætlar Jónína að fara yfir þessa þætti í meðferðinni auk þess að fræða um ákveðna fæðuflokka sem hjálpa til, segir m.a. í fréttatilkynningu. Fræðslu- fyrirlestrar um hreinsun líkamans Jónína Benediktsdóttir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.