Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Liðið hans Villa verður aldeilis að fara að taka sig til í andlitinu og hætta að Gosast svona. Næsti gjöri svo vel. VEÐUR Reykjavíkurskákmótið, sem núer árlegur viðburður, setur jafnan svip á mannlífið í höf- uðborginni.     Sú stefna er skynsamleg hjáSkáksambandinu að leiða sam- an skákmenn með ólíkan bakgrunn hvaðanæva úr heiminum. Úr verð- ur fjölbreytt flóra og skemmtilegri fyrir vikið. Skák- in er alþjóðlegt tungumál. Í ár gefst tæki- færi til að fylgj- ast með upp- rennandi skáksnillingum þroska hæfileika sína á hvítu og svörtu reitunum. Auðvitað njóta ungir skákmenn hér á landi góðs af því að fylgjast með og etja kappi við jafnaldra sína erlendis frá.     Kannski mæta einhverjir áhorf-endur með bangsana sína. Það er ekki ólíklegt miðað við þá skák- vakningu sem orðið hefur á und- anförnum árum í grunnskólum landsins.     Illya Nyzhnyk teflir reyndar ekkilengur með bangsann í fanginu. „Ég er ekki lengur smábarn held- ur fullorðinn skákmaður og hef ekki teflt með bangsann í eitt og hálft ár.“     Nyzhnik er ellefu ára.     Hefðin er rík fyrir skákiðkun í ís-lensku þjóðlífi. Sá þráður má ekki tapast, því þetta er þroskandi og uppbyggileg íþrótt. Öflugt Reykjavíkurskákmót er liður í því að byggja upp verðuga skákhöf- uðborg heimsins árið 2010. Þegar saman fer slíkur vettvangur margra af fremstu skákmönnum í heiminum við metnaðarfullt upp- byggingarstarf í skólum hlýtur það að lofa góðu fyrir framtíðina. Þjóð- in getur ekki tapað slíkri skák. STAKSTEINAR Illya Nyzhnyk Skáklíf í höfuðborginni SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                       *(!  + ,- .  & / 0    + -             !     " ##! $      12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (         ##  %# %     !&      "##  %# % :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? % %    %  %  % %   %  % %   % % % % % % % % % %                          *$BC ##           ! "### $  %   # &  "# #!#  *! $$ B *! '(  ) # #( #   & *& <2 <! <2 <! <2 ') ! #+ $ ,#-!&.  D                   <7    ' (#  )"#   # "#    #* <   $ *    !  !   $     #  "#    ,#  % )# &#) #    -#     "#    /0!! ##&11  !&##2 & &#+ $ Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Kári Harðarson | 3. mars Tímanna tákn Einu sinni voru skilti á knæpum sem á stóð „Ekki hrækja á gólfið“. Þessi skilti voru ekki sett upp að ástæðu- lausu, fólk hlýtur að hafa hrækt á gólfin. Sama gildir um skiltin „ekki pissa framhjá“ og „ekki setja bakpokann á barborðið“. Öll endurspegla þau kúlt- úrinn á staðnum. Mér datt þessi skilti í hug þegar ég kom á vinnustað þar sem gildi fyr- irtækisins höfðu verið skrautskrifuð og innrömmuð svo gestir og gangandi gætu kynnt sér þau: ... Meira: kari-hardarson.blog.is Stefán Friðrik Stefánsson | 3. mars Hvernig gátu fjársvikin í TR staðið í fjögur ár? Það er eiginlega sláandi að það hafi getað geng- ið í fjögur ár að þjón- ustufulltrúi Trygg- ingastofnunar hafi svikið út 75 milljónir frá TR og lagt inn á reikn- inga tuttugu einstaklinga. Komið hef- ur verið upp um svikamylluna í málinu og greinilegt að innra eftirlit TR var al- gjörlega í molum og þetta gat gengið mjög lengi, án þess að nokkur velti fyrir sér hvernig hægt var... Meira: stebbifr.blog.is Helga Sigrún Harðardóttir | 3. mars Hvað skal segja? Aldrei hélt ég að ég ætti eftir að verja lífeyr- issjóðina, en ég get ekki orða bundist yfir umræðu sem átti sér stað í morgunþætti Bylgjunnar rétt fyrir níu í dag. Þar voru þáttastjórnendur að ræða við hlustendur um almenna líf- eyriskerfið og voru að hneykslast á því að það virkaði ekki eins og sér- eignarsparnaður, þ.e. að fólk gæti tekið út „inneign“ sína ef það veikist eða telur sig eiga stutt eftir. Því miður var bara á boðstólum umræða um þann enda, en ekki hinn endann ... Meira: helgasigrun.blog.is Anna Ólafsdóttir Björnsson | 3. mars Í gegnum bloggið er draumsýn um lítilvægi staðar og stundar að rætast Í gegnum bloggið er draumsýn um lítilvægi staðar og stundar að rætast. Ég skal skýra þetta aðeins. Mér hefur alltaf þótt það spenn- andi við netið og mögu- leika þess að geta haft samskipti við fólk án teljandi fyrirhafnar óháð bú- setu og án þess að vera njörvaður við að samskiptin eigi sér endilega stað á sama tíma. Í tölvunarfræðinni lærðum við ým- islegt skemmtilegt um þetta, meðal annars að sundurgreina samskipti eftir því hvort þau væru ,,óháð stað, háð tíma“ (msn og irkið t.d.) ,,óháð stað, óháð tíma“ (tölvupóstur) og svo framvegis. Varð aldrei mjög virk á irk- inu, nota tölvupóst auðvitað gríð- arlega í vinnu og einkalífi, msn, fjar- fundatækni og alls konar dót. En það er í rauninni á blogginu sem ég finn mestan muninn. Er kannski farin að kynnast einhverjum ágætum bloggara, ýmist með því að vera í samskiptum eða bara með því að lesa bloggið hennar/hans reglubund- ið þegar allt í einu kemur í ljós að hún er stödd á Hellu (eða vinnur þar alla vega) og hann er að moka sig út úr snjóhúsinu sínu í Vestmannaeyjum einmitt núna í morgun. Og svo eru það samskiptin við ættingja og vini nær og fjær, Erna í Ameríkunni og Ólöf í Borgarfirðinum, eru bara innan seil- ingar. Akureyringarnir eru reyndar flestir vel skilgreindir frá upphafi, það hefur aldrei farið á milli mála hvar nafna mín (í bloggfríinu sínu) býr, eða Ing- ólfur, Hlynur og þau öll, né heldur að Gurrí býr uppi á Skaga og sækir vinnu í bænum og jafnvel undirrituð sem Álftnesingur er nokkuð augljós. Steina í Danmörku, jú það hefur líka verið nokkuð ljóst, alla vega þegar veðráttan berst í tal (til hamingju með þennan góða vetur í vetur, Steina). Þegar sms-ið náði þessari gríð- arlegu útbreiðslu sem raun bar vitni kom það flestum í opna skjöldu. En einfaldleikinn og frelsið sem sms bjóða upp á skýrðu það. Bloggheimar eru annars eðlis, ég var búin að blogga í eitt eða tvö ár og hafði reynd- ar byrjað fyrr, áður en ég datt inn … Meira: annabjo.blog.is BLOG.IS ELFA Björk Gunn- arsdóttir, fyrrverandi borgarbókavörður í Reykjavík og fram- kvæmdastjóri Ríkisút- varpsins – hljóðvarps, lést síðastliðinn laug- ardag á sextugasta og fimmta aldursári. Elfa Björk var fædd í Reykjavík 29. sept- ember 1943, dóttir Gunnars Þóris Hall- dórssonar, húsasmíða- meistara frá Vest- mannaeyjum, og Sigríðar Halldórsdótt- ur, saumakonu frá Álfsnesi á Kjal- arnesi. Elfa Björk varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1965. Hún nam bókmenntasögu, ensku og enskar bókmenntir við Stokk- hólmsháskóla frá 1966-1971, en lauk prófi í bókasafnsfræði árið 1973 í Stokkhólmi. Elfa Björk starfaði við Borgar- bókasafn Reykjavíkur frá 1974 og stýrði undirbúningi að stofnun Hljóðbókasafns Borgarbókasafns og Blindrafélagsins. Hún var borg- arbókavörður í áratug á árunum 1975 til 1985 en þá tók hún við starfi fram- kvæmdastjóra Ríkisút- varpsins – hljóðvarps og gegndi því starfi einnig í áratug eða til ársins 1995. Elfa Björk hóf þá aftur störf við Borg- arbókasafn og gegndi stöðu safnstjóra Sól- heimasafns um fimm og hálfs árs skeið. Elfa Björk gegndi fjölda trúnaðarstarfa um ævina og sat meðal annars í stjórn Blindrabókasafns Íslands, Styrktar- sjóðs Blindrabókasafnsins, Sinfón- íuhljómsveitar Íslands og Krabba- meinsfélags Íslands. Hún var formaður undirbúningsnefndar Norræna bókavarðaþingsins 1984, í CINDI, fulltrúaráði samvinnuáætl- unar Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar og nokkurra Evrópu- þjóða um forvarnir gegn langvinnum sjúkdómum. Eiginmaður Elfu Bjarkar var Jón Jónasson tannlæknir en hann lést árið 2006. Eftirlifandi börn Jóns eru þrjú. Andlát Elfa Björk Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.