Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 29 endann á eldhúsborðið hennar, uppi á háum kolli og fá heita skúffuköku og ískalda mjólk, ísskápurinn hennar Halldóru var stútfullur af mjólkur- fernum, maður skildi ekki þetta magn af fernum. Við hliðina á ís- skápnum var gat niður í þvotttahús, Það var sérlega ævintýralegt að leika sér niðri í kjallara, þar var und- arleg lykt en okkur þótti hún góð og þar gátum við falið okkur í draslinu og óhreina þvottinum. Þar var líka nægilegt pláss til þess að útbúa okk- ar eigið prívat, engin að skipta sér af okkur stelpunum og mér er minnis- stætt verkstæðið hans Tomma með verkstæðis- og tóbakslyktinni. Mamma og Halldóra voru nánar systur og það var notalegt þegar mamma var að hjálpa systur sinni heima fyrir, baka, þvo þvott eða þrífa, þá gat maður leyft sér að ímynda sér að maður ætti þar heima, Steinunn var alveg til í að leyfa mér að eiga sitt rúm með sér og oft fékk maður að gista án nokkurs fyrirvara, var skellt niður í rúm og Halldóra bauð góða nótt. Svo voru það bað- ferðirnar, nokkur börn böðuð í einu og man ég eftir einni slíkri þegar ég „ruglaðist“ inn í hópinn og var komin í baðið áður en ég vissi af ... nú nú segir Halldóra, hún mamma þín þarf þá ekki að baða þig í kvöld!! Seinna þegar við vorum komin á unglingsár þá var það stofan hennar Dóru sem heillaði okkur vinkonurnar, við vor- um einar heima og plöturnar frá Sigga bróður settar á fóninn. Við krakkarnir fengum úthlutað verk- um, eitt af þessum verkum var að ryksuga holið þeirra, mér fannst þetta alveg jafnmikil skylda mín og það var líka þá sem mér fannst eins og ég ætti heima þarna. Mér er ljúft að minnast þessa tíma, hann kemur ekki aftur, það eitt er víst. Í dag kveð ég Halldóru frænku með hjarta mitt fullt af þakklæti til þeirra í Hjarðartúni 12 og þar sem ég er stödd með börnin mín í New York sendi ég mínar bestu kveðjur. Ragnheiður Gísladóttir frá Ólafsvík. Við krakkarnir sitjum við eldhús- borðið í Hjarðartúninu með mjólk- urglas og jólakökusneið. Það er kaffitími. Þetta er ekkert venjulegt eldhúsborð og kollarnir sem við sitj- um á eru himinháir. Hinum megin við borðið stendur húsmóðirin, hún Halldóra, móðursystir mín, falleg og yfir henni er einhver sérstök ró- semd. Hún er að undirbúa kvöldmat- inn enda ekki ráð nema í tíma sé tek- ið, börnin orðin átta og við systkinin ég og Sigurður bróðir minn, til við- bótar, leiguliðar ásamt móður okkar, Jónu Birtu. Eftir kaffitímann sendir Halldóra okkur Ágústu frænku út í mjólkurbúið og í Kaupfélagið. Við förum með tvo brúsa hvor, okkur finnst gaman að kaupa mjólk og fylgjast með hvernig mjólkin dælist í brúsana. Svo förum við í Kaupfélagið og kaupum það sem stendur á mið- anum og stelumst svo til að kaupa tvær lakkrísrúllur sem við hámum í okkur á leiðinni heim. Halldóra frænka lætur sem ekkert sé þó að vanti tvær krónur í budduna, kannski tók hún ekki eftir neinu. Við setjum mjólkina í ísskápinn, þar kemst fátt annað fyrir. Tilveran er einföld, nýr fiskur og kartöflur í hvert mál og um helgar er afbragðs- gott lambalæri. Halldóra er frábær matselja og vandvirk. Þrátt fyrir að heimilið sé stórt virðist hún aldrei þurfa að flýta sér og hefur lag á að láta okkur krakkana hjálpa sér á milli þess sem við leikum okkur úti. Ólafsvík barnæsku okkar er óspillt af nútímaskipulagi og ævintýrin bíða í fjörunni, Gilinu og fjallinu. Ung kynntist Halldóra Tómasi, eiginmanni sínum. Þau settust að í Ólafsvík og áður en varði var heimili þeirra orðið fullt af myndarlegum börnum. Þau voru falleg hjón og Halldóra var einstök kona. Hún hafði mikinn áhuga fyrir listum og á hippatímanum féll hún vel inn í tíð- arandann. Heimilislífið var frjálslegt og Halldóra hafði yndi af að spjalla um alla heima og geima. Henni fannst gaman að segja sögur frá æskuárunum í Þykkvabænum, frá skólaárunum á Akranesi og öllu frændfólkinu sem hún virti og henni þótti svo vænt um. Erfið veikindi og mikill missir mörkuðu djúp spor í líf Halldóru en þrátt fyrir það var stutt í húmorinn og einstaklega sjarmer- andi glettnisglampa í augum hennar. Ég minnist margra góðra sam- verustunda með Halldóru og Tomma. Ég og mín fjölskylda vorum ávallt aufúsugestir á heimili þeirra og samgangurinn mikill. Hjarðar- túnið var heimur út af fyrir sig. Við krakkarnir vorum nógu mörg til að vera sjálfum okkur næg. Konurnar í götunni heimavinnandi, sóttu fé- lagsskap hver til annarrar. Stund- irnar yfir morgunsopanum í eldhús- inu hjá Halldóru vildu stundum dragast á langinn en samt ekki hægt að hætta, við krakkarnir sendir heim í snatri að setja upp kartöflur til að maturinn yrði til á réttum tíma. Hall- dóra var ein af þessum konum sem var alla tíð heimavinnandi enda verkefnið óvenjustórt, að koma ell- efu barna hópi til manns. Þessi kyn- slóð safnast nú óðum til feðra sinna. Halldóru kveður nú stór hópur af- komenda, ættingjar og vinir. Við eig- um henni margt gott að þakka og kveðjum hana með virðingu og sökn- uði. Ég votta fjölskyldunni innilega samúð mína. Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir. Nú er hún Halldóra vinkona okkar og nágranni í Hjarðartúninu öll. Þess vegna langar mig að stinga nið- ur penna og minnast hennar nokkr- um orðum. Látum hugann reika u.þ.b. hálfa öld aftur í tímann. Það var upp úr 1950 að hún birtist hér í Ólafsvík með honum Tomma sínum til að freista gæfunnar og reisa bú sitt á nýjum slóðum. Þau komu að sunnan, yfir heiði, á hagamúsinni með frumburðinn með sér. Hér bjuggu þau lengst af þar til yfir lauk hjá honum. Hennar hlutskipti varð að vera sá er eftir sat við fráfall mak- ans, alvarlega sjúk og farin að kröft- um. Ég komst í kynni við þau Halldóru og Tomma síðla árs 1956 þegar ég gerðist lærlingur hans í rafvirkjun og varð heimagangur hjá þeim í Hjarðartúni 12. Þó ég sé orðinn sjálfs mín herra fyrir margt löngu þá héldust okkar kynni allt til enda að heita má. Það var oft líf og fjör í göt- unni hjá okkur þegar barnahópurinn fór að stækka og ærinn starfi mun það hafa verið að halda öllu gangandi sem lenti mjög á henni því oft var unnið myrkra á milli við stækkandi flota og húsbyggingar. Ellefu urðu börnin hjá þeim að lokum og lifa níu þeirra foreldra sína, öll hið mætasta fólk. Það mun hafa þurft ómælda þolinmæði og þrautseigju til að koma svona stórum hópi til manns. Og þar mun hennar hlutur ekki hafa verið minnstur. Halldóra var bæði ljóðelsk og list- feng og ekki mér grunlaust um að hún hefði gjarnan viljað sinna slíkum hlutum meir en brauðstritið gaf til- efni til. Margt var skrafað yfir kaffi- tári í eldhúsi hennar þegar stundir urðu á milli stríða. Nú heyrir þessi kafli lífsins sögunni til og þá er að minnast og sakna. 50 ár eru nokkuð langur tími í einni mannsævi og þökkum við Palla mín fyrir hin góðu nágrannakynni öll þessi ár. Kærustu kveðjur sendum við til allra krakk- anna og biðjum þess að þau megi vel úr vinna söknuði sínum og þá munu lifa góðar minningar um mæta konu og móður. Blessuð sé hennar minn- ing. Pálína og Jón, Hjarðartúni 10. ✝ Hjartkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, REYNIR KRISTINSSON bifreiðastjóri, Þórðarsveig 6, sem lést mánudaginn 25. febrúar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ á morgun miðviku- daginn 5. mars kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Björg Stefánsdóttir, Elín Reynisdóttir, Bárður Smárason, Vilborg Reynisdóttir, Jónas Karl Harðarson, Kristín Reynisdóttir, Jakob Hólm, Erna Reynisdóttir, Herbert Pedersen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, J. SIGURÐUR GUNNSTEINSSON fyrrverandi starfsmaður Loftleiða/Flugleiða, lést á heimili sínu Vogatungu 45, Kópavogi, laugardaginn 1. mars. Margrét Anna Jónsdóttir, Gunnsteinn Sigurðsson, Dýrleif Egilsdóttir, Þorgerður Ester Sigurðardóttir, Einar Ólafsson, Jón Grétar Sigurðsson, Sveinbjörg Eggertsdóttir, Anna Sigríður Sigurðardóttir, Guðni Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, JÓN ALFREÐ ÓLAFSSON, sem andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 27. febrúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 7. mars kl. 15.00. Kjartan Ólafsson, Elín Ósk Óskarsdóttir, Elísabet Ólafsdóttir, Björn Aðalsteinsson, Þorbjörg Ólafsdóttir, Ingibjörn Kristinsson, Eyjólfur Ólafsson, Vilma Brazaite, og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskuleg stjúpmóðir, tengdamóðir, amma, mágkona og svilkona, ELFA-BJÖRK GUNNARSDÓTTIR fyrrverandi framkvæmdastjóri og borgarbókavörður, lést laugardaginn 1. mars. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju föstudaginn 7. mars kl. 13.00. Helena Jónsdóttir, Tómas Jónsson og Ýrr Ásbjörg Mörch, Sindri og Bjarki, Sara Jónsdóttir og Ásbjörn Stefánsson, Erla Kristín Jónasdóttir og Birgir Sveinbergsson. ✝ Ástkær móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁGÚSTA HELGA JÓNSDÓTTIR, áður til heimilis að Aðalgötu 5, Keflavík, lést föstudaginn 29. febrúar að Garðvangi, Garði. Jarðað verður frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 12. mars. kl. 14.00. Elísabet Lúðvíksdóttir, Ragnar Eðvaldsson, Ásdís G. Þorsteinsdóttir, Eðvald J. Lúðvíksson, Sigríður Sigurðardóttir og fjölskyldur. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RÖGNVALDUR Ó. JOHNSEN Háteigsvegi 12, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 26. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. mars kl. 15.00. Dóra Johnsen, Ástríður Johnsen, Gunnar V. Johnsen, Bergþóra Sigmundsdóttir, Guðni Ingi Johnsen, Helga Sæmundsdóttir, Inga Dóra Sigvaldadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg dóttir mín, móðir, tengdamóðir, amma, systir, frænka og fyrrum eiginkona, HAFDÍS ÞÓRARINSDÓTTIR sjúkraliði, Akureyri, er látin. Útförin verður auglýst síðar. Þórdís Brynjólfsdóttir, Þórarinn Jakob Þórisson, Maren Óla Hjaltadóttir, Hanna Bryndís Þórisdóttir, Gunnar Jón Eysteinsson, Brynjar Davíðsson, Gréta Björk Halldórsdóttir, Sigurður Heiðar Davíðsson, Sylvía Dögg Tómasdóttir, Dröfn Þórarinsdóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur, Davíð Hauksson. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og langafi, STURLA HALLDÓRSSON fyrrverandi hafnarvörður, Hlíf II, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 1. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Rebekka Stígsdóttir, Frímann Aðalbjörn Sturluson,Auður Harðardóttir, Jónína Sturludóttir, Helgi Jónsson, Stígur Haraldur Sturluson, Ásgerður Ingvadóttir, Guðjón Elí Sturluson, Hrefna Rósenbergsdóttir, Friðgerður Ebba Sturludóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.