Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ DANSMYNDIN Step Up 2 the Streets situr sem fastast í fyrsta sæti yfir tekjuhæstu kvikmyndir í ís- lenskum kvikmyndahúsum að nýaf- staðinni helgi. 2.631 bíógestur sá þá mynd um helgina og voru greiddar fyrir tæpar tvær milljónir króna í aðgangseyri. Brúðguminn fylgir fast á hæla henni með um 100 þúsund krónum lægri upphæð, 1.818.720 krónur. Brúðguminn er langtekjuhæst þeirra kvikmynda sem sýndar eru í íslenskum kvikmyndahúsum, hefur halað inn tæpum 52 milljónum króna eftir aðeins sjö vikur í sýningum. Hafa ber í huga að miðaverð er hærra á hana en aðrar myndir, 1.200 krónur, og þarf hún því mun færri kvikmyndahúsagesti til að koma henni í toppsæti listans en aðrar myndir. Brúðguminn sat fimm vikur í röð í efsta sæti en ekki sex eins og sagt var frá í seinustu umfjöllun um tekjuhæstu myndirnar og er beðist velvirðingar á þeirri rangfærslu. Undrahundurinn, eða Underdog, er í þriðja sæti og ný á lista enda frumsýnd um síðustu helgi, barna- mynd úr smiðju Disney-fyrirtæk- isins. Rómantíska gamanmyndin 27 kjólar, 27 dresses, er nokkrum þús- undköllum á undan Be Kind Rew- ind, nýjustu afurð leikstjórans Mich- el Gondry sem á að baki myndir á borð við Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Það kann að skýrast af því að myndin 27 kjólar var sýnd í fleiri sölum um helgina. Ósk- arsverðlaunamyndin Juno er sýnd í tveimur sölum og var einnig frum- sýnd um síðustu helgi. Þrátt fyrir fáa sýningarsali nær Juno inn dá- góðri summu, 1.131.240 krónum. Flugdrekahlauparinn, Kite Runner, var frumsýnd um síðustu helgi en er þó aðeins í 8. sæti listans. Tekjuhæstu kvikmyndir helgarinnar Götudansarar og tvístígandi brúðgumi        ) E.  '                       ! "#$ % & '  () *+, )+-. +.. /+++  %              Fimir fætur Dansandi ungmenni í Step Up 2 the Streets. Gagnrýnandi Morgunblaðsins telur handritið heldur rýrt en dansinn glæsilegan. * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ* Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í SmárabíóSími 462 3500 Sími 564 0000 Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum TILNEFND TIL 2 ÓSKARSVERÐLAUNA M.A. FYRIR BESTA AUKALEIKARA SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI FRUMSÝNING SÝND Í REGNBOGANUM KÖFUNARKÚPAN OG FIÐRILDIÐ Frábær gamanmynd frá leikstjóra Eternal Sunshine of the Spotless Mind með Jack Black í fantaformi! l i j l i l i l í i eee - S.V. MBL „Tilfinningalega sannfærandi og konfekt fyrir augun“ Jan Stuart, Newsday eeeee Be kind rewind kl. 5:45 - 8 - 10:15 Be kind rewind kl. 5:45 - 8 - 10:15 LÚXUS 27 dresses kl. 5:30 - 8 - 10:30 Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára Be kind rewind kl. 8 - 10 The Kite runner kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára 27 dresses kl. 6 B.i. 12 ára Brúðguminn kl. 6 B.i. 7 ára Jumper kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.12 ára Ástríkur á Ól... m/ísl. tali kl. 3:40 Be kind rewind kl. 5:45 - 8 - 10:15 The Diving Bell And The Butterfly kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára 27 dresses kl. 5:30 - 8 - 10:20 Jumper kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára SÝND Í SMÁRABÍÓI 1 - Kauptu bíómiðann á netinu - Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! eeeee „Gullfalleg, ljúfsár og heillandi.“ -B.B., 24 Stundir eeee „Into the Wild telst til einna sterkustu mynda það sem af er árinu.“ -L.I.B., TOPP5.IS eeee „Into the Wild skilur við áhorfandann snortinn af andstæðum, fegurðinni og vægðarleysinu sem hún lýsir svo skýrt og fallega.“ -S.V., Mbl Frá framleiðendum The Devil Wears Prada SÍFELLT meiri alvara færist í samband leikarans George Clooney við gengilbeinuna Sarah Larson. Nú hefur fyrrverandi kærasti hennar, Tommy McKaughn, tjáð fjölmiðlum að hún sé mjög sjálfstæð og kröfuhörð kona. „Hún heldur alveg ró sinni í kringum stjörnurnar og það er sjálfsagt það sem hann kann að meta við hana. Ef hann er tilbúinn að uppfylla allar þær kröfur sem hún gerir ætti þetta að ganga vel.“ Clooney og Larson kynntust þegar hún færði honum drykk á frumsýningu Oceans 13 síðasta sumar. Þau eru byrjuð að búa saman og orðrómur um að barn- eignir séu á næsta leiti verður sífellt háværari. Kröfuhörð kærasta George Clooney

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.