Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 25 EIN dapurlegasta blaðagrein sem ég hef lengi séð blasir við í sunnudagsblaði Morg- unblaðsins. Þar talar Ágúst Thorstensen fjálglega um „gíf- urlegt hagsmunamál og lyftistöng fyrir Skaftfellinga“ sem fel- ist í því að „virkja Skaftá heima í héraði“ í staðinn fyrir að framkvæma þær hug- myndir Landsvirkj- unar að veita henni vestur í Langasjó og þaðan áfram niður í virkjanakeðjuna í Tungnaá og Þjórsá. Hugmyndir Lands- virkjunar eru svo sem nógu slæmar hvað snertir eyðileggingu Langasjávar og ósnortins umhverfis við Síðujökul, en steininn tekur úr þeg- ar menn fara að tala um virkjun Skaftár í héraði. Hvergi sér þess stað í áætlunum um mögu- legar virkjanir að þessi virkj- anakostur Ágústs komi til greina, einfaldlega vegna þess að Skaft- árveita yfir í Langasjó hefur yf- irburði hvað snertir hagkvæmni og það er því sóun á fé og fyrirhöfn að skoða aðra kosti. Sá kostur að virkja Skaftá í farvegi sínum „í hér- aði“ yrði að byggjast á mörgum þrepavirkj- unum með tilheyrandi stíflum og óheyrilegum spjöllum á náttúru þessa svæðis sem er mesta verðmætið sem Skaftfellingum hefur verið falið að varðveita fyrir komandi kyn- slóðir og sem heim- sundur. En þeir sem stjórna virkjanaæðinu hafa greinilega fundið hina fullkomnu leið til að viðhalda þessu æði með því að höfða til blindrar græðgi og skammtímasjónarmiða í hverri byggð fyrir sig og tryggja þannig að þetta fár verði tak- markalaust. Virkj- anafíknin er svo mikil að krafist er virkjana sem eru bæði óhag- kvæmar og valda ómældum spjöllum á náttúrunni, mesta verðmæti lands og þjóðar. Virkja! virkja! hvað sem það kostar! Ómar Ragnarsson fjallar um virkjanahugmyndir á Suð- austurlandi Ómar Ragnarsson » Virkjana- fíknin er svo mikil að krafist er virkjana sem eru bæði óhag- kvæmar og valda ómældum spjöllum á nátt- úrunni, mesta verðmæti lands og þjóðar. Höfundur er formaður Íslandshreyf- ingarinnar – lifandi lands. GRUNDVALLARLÖGMÁLIÐ er það, að sérhver aðstoð við slak- an banka í nútíð er vísasta leiðin til að koma í veg fyrir að góður banki mynd- ist til framtíðar, sagði ritstjóri Economist, Walter Bagehot, f. 1826. Einnig sagði hann: Sérhver banka- maður veit, að ef hann verður að sýna fram á að hann sé traustsins verður, sama hve góðar rök- semdir hans eru, þá er traust hans horfið. Jón Ásgeir Jóhann- esson dró rétta álykt- un af hinu ofurháa verði á skulda- tryggingum bankanna: Þeir eru álitnir gjaldþrota í útlöndum. Þetta er vandinn, það er sama hve góðar röksemdir hluthafar hafa, traustið erlendis er horfið. Galgop- ar á einkaþotum með alls lags of- læti í lífsstíl sínum skapa ekki traust. Þeim var trúað fyrir bönk- um þjóðar. Bankar lentu í höndum manna sem hvorki hafa næga þekkingu á undirstöðum banka- starfsemi né hug á að afla sér hennar. Jón Ásgeir telur vandann vera þjóðarinnar allrar, en er það svo? Bankar miðla fé. Þess vegna þarf hvert heimili og hvert fyr- irtæki ekki að hafa öllum stundum jöfnuð á sparnaði sínum og fjár- festingum. Ef svo væri hefði hag- vöxtur og velmegun mannkyns að- eins orðið brot af því sem nú er. Bankar skapar engin verðmæti sjálfir en eru mikilvæg forsenda sköpunar verðmæta í efnahagslíf- inu. Því ber að halda kostnaði við þá í skefjum og hafa skil- virkni sem mesta. Hluthafar Stórir hluthafar banka höfðu miklar væntingar um hækk- un bréfa sinna og hugsuðu sér að selja á réttu augnabliki. Þeir nefna sig kjölfestu- fjárfesta. Í skilningi hagfræðinnar eru fjárfestar þeir sem leggja fé í framleiðslutæki í at- vinnulífi. Þá sem kaupa hlutabréf með gróða til skamms tíma í huga ber hins vegar að nefna spákaup- menn. Þeir vaka yfir skekkjum hins ófullkomna markaðar eins og hrægammar yfir vígvelli. Þeir gera sama gagn og njóta sama trausts. Bankaráð Einn banki sker sig úr, hinir er- lendu bankar skynja það og ætla honum lægra áhættuálag. Hann lítur til samfélagsins með nokkru víðara sjónarhorni en aðrir bank- ar. Sé litið í aðrar áttir blasir auðnin við: Að mestu lítt kunnir einstaklingar, lítil þekking á efna- hagsmálum og atvinnulífi, óljós stefna um samfélagslega ábyrgð og um varúð í útlánum. Útrás laustengd íslensku atvinnulífi, en stundum undanskoti skatta. Ofur- áhersla á skyndigróða á örsmáum fákeppnismarkaði hér heima. Til að bankastjórar hugsi einkum um slíkt hafa bankaráð gert samninga við þá um himinháa kauprétti. Skelfilegasta dæmið er fjórir millj- arðar króna. Auðvelt er að afla upplýsinga um kostnað kauprétt- arsamninga með því að biðja banka um tilboð. Uppistaðan er vextir, séu bréfin hækkandi á markaði, því bankinn kaupir þá bréf á móti kaupréttinum og ligg- ur með þau á samningstímanum til að verja sig áhættu. Vextir eru nú um 15% og vaxtakostnaður bank- ans í þessu dæmi þannig um 600 m.kr. á hverjum 12 mánuðum sem hann á bréfin. Kostnaður þessi er starfstengd greiðsla, hlunnindi, og ætti að koma til tekjuskatts hjá þeim sem nýtur, eins og t.d. afnot af bifreið. Svo er þó ekki. Bankastjórar Hvergi annars staðar á Vest- urlöndum kemur neinn til greina sem æðsti daglegur stjórnandi banka sem ekki hefur langa reynslu af bankastarfsemi. Lág- markskrafan er að hafa þraukað í gegnum alvöru efnahagslægð, með öllum sínum útlánatöpum og erf- iðleikum. Þannig var þetta líka hér á landi. Nú telst reynsla og þekk- ing íþyngja mönnum, hún dregur úr hugmyndaauðgi og áhættuvilja. Vaxi stjórnendur ekki upp innan banka þekkja þeir ekki undirstöð- urnar og í hverju traust banka felst. Fé er einkum sótt til er- lendra banka, traust þeirra er því ómissandi. Allir vita að íslenskir bankar taka meiri áhættu en er- lendir. Er líklegt að erlendir bank- ar sýni þeim traust sem fara óvar- legar en þeir sjálfir? Varla á tímum þegar þröngt er um fé. Góðir bílstjórar, skipstjórar og flugstjórar fara varlega. Það ættu góðir bankastjórar líka að gera. Almannafé Ekki er á gömmunum að skilja að þeim hafi orðið á nein mistök. Það eru vondir blaðamenn í út- löndum, vondir hagfræðingar í greiningardeildum erlendra banka og vond alþjóðleg matsfyrirtæki sem bera sökina. Fyrir tveimur ár- um lýstu matsfyrirtækin áhyggj- um, þá var gert átak í að snúa þeim. Nú eru það erlendir bankar sem þarf að snúa. Ríkisstjórnin fundar skilningsrík með bönkum um ástandið. Nýkjörinn formaður bankaráðs biður lífeyrissjóði um 60 milljarða. Nú þegar bankar fara bónarveginn að þeim sem með al- mannafé fara, stjórnvöldum og líf- eyrissjóðum, er mikilvægt að muna einfaldar reglur: Sjálfs er höndin hollust. Hver er sinnar gæfu smiður. Efnahagslægð er að hefjast, dregið hefur úr lánveitingum, lendingin verður líklega hörð. Van- skil myndast, verð húsnæðis kann að falla, ef svo fer munu útlán banka og eigið fé tapast. Tvö til fjögur ár tekur að komast til botns í því. Brýnt er að efla starfhæfa og ábyrga banka, hagur þjóðar er í húfi. Það gerist ekki ef gammarnir eru fóðraðir með góðu fé sem kastað er á eftir slæmu. Óhjá- kvæmilegt kann því að reynast að færa núverandi hlutafé banka nið- ur áður en almannafé er lagt fram. Vandinn nú er hluthafa, rík- isábyrgð á bönkum er liðin tíð. Neyðaraðstoð við banka? Ragnar Önundarson skrifar um íslensku bankana og stjórn- endur þeirra » Allir vita að íslenskir bankar taka meiri áhættu en erlendir. Er líklegt að erlendir bank- ar sýni þeim traust sem fara óvarlegar en þeir sjálfir? Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur, bankamaður og fjármálaráðgjafi Á NÝJU ári hefur Hrafn Svein- bjarnarson, héraðsskjalavörður í Kópavogi, látið gamminn geisa á op- inberum vettvangi um skjalamál. Skoðunum sínum hefur hann komið á framfæri í útvarpi, dagblöðum og á almennum póstlistum á netinu. Margt af því sem fram kemur í máli Hrafns er sannarlega orð í tíma töluð og af hinu góða. Alvarlegur ljóður er þó á umfjöllun héraðs- skjalavarðarins þegar hann fer ítrekað fram með sömu rangfærsl- urnar um fræðigrein sem kennd er í bóka- safns- og upplýs- ingafræði við Háskóla Íslands, upplýsinga- og skjalastjórn. Hrafni hefur margoft, einkum á almennum póstlistum á netinu, verið bent á að hann fari með rangt mál varðandi kennsluna. Þó heldur hann aftur og aftur fram sömu rangfærslunum. Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 2. mars sl. birtist viðtal við Hrafn þar sem hann fer niðrandi orðum um kennslu í upplýsingafræðum í Há- skólanum. Hann fer auk þess með ósannindi um kennsluna. Þá vitnar Morgunblaðið í viðtalið við Hrafn í leiðara mánudagsblaðsins og í þann hluta viðtalsins þar sem Hrafn fjallar um kennsluna í Háskólanum. Af þess- um sökum vildi ég koma á framfæri leiðréttingu hvað varðar kennsluna í Háskóla Íslands. Á einum stað í viðtalinu við Morg- unblaðið segir Hrafn: „Og í Háskóla Íslands fer kennsla í upplýsingafræði á svig við fyrirmæli Þjóðskjalasafns- ins.“ Varðandi þessa fullyrðingu Hrafns tel ég að rétt sé að eftirfar- andi komi fram: Hluti kennslunnar í upplýsinga- og skjalastjórn hjá skipu- lagsheildum fjallar um skjalahald hjá opinberum aðilum. Þar eru lögum, reglugerðum og reglum er varða upp- lýsingar, skjöl, skjalasöfn og skjala- hald hjá opinberum aðilum á Íslandi gerð rækileg skil. Á lestrarlistum námskeiðanna er að finna útgefið efni um Þjóðskjalasafn Íslands, m.a. handbækur og leiðbeiningarit safns- ins, og nemendum er gert að skoða heimasíðu Þjóðskjalasafns og bent á að þar sé að finna mikilvægar skýrslur og leiðbeiningar varðandi skjalahald. Þá fara nemendur í heimsókn á Þjóðskjalasafn og hlusta á fyrirlestra starfsfólksins um hlutverk og starfsemi safnsins. Þar hefur ávallt verið vel tekið á móti þeim. Nemendur heimsækja ennfremur eitt hérðas- skjalasafnanna í nám- inu, Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Ekki veit ég hvað Hrafni gengur til þeg- ar að hann segir að í kennslunni sé farið á svig við fyrirmæli Þjóðskjalasafnsins. Hann setur fram þá fullyrðingu í viðtalinu án rökstuðnings. Hrafn hefur haldið því fram að í náminu sé ekki kennd sú aðferð við flokkun skjala sem Þjóð- skjalasafn telur heppilegasta. Það er ekki rétt. Sú aðferð er kennd, þ.e. notkun svonefnds tugstafakerfis, en nemendum eru einnig kenndar aðr- ar aðferðir við flokkun skjala sem hafa fengið alþjóðlega viðurkenn- ingu. Þá hefur Hrafn stundum byggt umfjöllun sína á þeim mis- skilningi að ekki sé farið í hina virtu og viðurkenndu reglu, upprunaregl- una, í kennslunni. Það er heldur ekki rétt hjá Hrafni. Heimildir sem fjalla um reglu þessa eru skyldu- lesning í náminu. Og Hrafn heldur áfram í beinu framhaldi um kennsluna í Háskól- anum: „Endurteknum athugasemd- um Þjóðskjalasafnsins virðist ekki sinnt! „ Ég hef aldrei vitað til þess að Þjóðskjalasafn hafi gert at- hugasemdir við kennsluna. Mér hafa aldrei borist athugasemdir þess efnis. Þegar ég leitaði til safns- ins í framhaldi af birtingu Morg- unblaðsins á viðtalinu við Hrafn kannaðist enginn við að slíkar at- hugasemdir hefðu nokkru sinni ver- ið gerðar. Ég vildi aftur á móti nefna að ég hef átt ágætis samstarf við safnið og átt í viðræðum við starfsfólk þar um skjalamál. Þá höf- um við rætt okkar á milli að auka samstarfið og að því verður stefnt. Þó svo að Þjóðskjalasafn Íslands hafi ekki boðvald yfir Háskólanum, hvað kennsluna varðar, er að sjálf- sögðu leitast við að kenna það sem safnið leggur til um skjalahald hjá opinberum aðilum enda er þar um vandaða leiðsögn að ræða. Og þegar kennt er um skjalamál hjá einkafyr- irtækjum er einnig lagt til að þar sé farið eftir leiðbeiningum og reglum Þjóðskjalasafns um aðgangs- og varðveislumál upplýsinga eftir því sem við á. Á einum stað í viðtalinu er haft eft- ir Hrafni: „Svo eru fylgiskjöl bók- halds kölluð „eyðingarskjöl“ í kennslu í upplýsingafræði við Há- skólann, það er undarleg hugmynd!“ Í þessu sambandi vildi ég benda á að fjallað er um bókhaldslögin í kennsl- unni. Í íslenskum lögum um bókhald er tekið fram að heimilt sé að eyða fylgiskjölum bókhalds að tilteknum tíma liðnum. Þetta gildir um einka- fyrirtæki. Lögum samkvæmt þurfa opinberir aðilar þó að öðlast sam- þykki Þjóðskjalasafns varðandi eyð- ingu og geymslutíma allra skjala eins og fjallað er um í náminu. Skjalamál, skjalavarsla og skjala- stjórn eru stórmál á upplýsingaöld. Ekki getur starfsemi vinnustaðar gengið hnökralaust án vandaðra vinnubragða í skjalahaldi. Við Hrafn getum verið sammála um það. Það er því mikilvægt að starfsstéttir á þessu sviði vinni saman og forðist að skemma fyrir góðum málstað með ósannindum og ragnfærslum. Rangfærslur skjalavarðar Jóhanna Gunnlaugsdóttir gerir athugasemdir við ummæli Hrafns Sveinbjarnarsonar um skjalastjórnun Jóhanna Gunnlaugsdóttir » Alvarlegur ljóður er þó á umfjöllun hér- aðsskjalavarðarins þeg- ar hann fer ítrekað fram með sömu rangfærsl- urnar... Höfundur er dósent við Háskóla Ís- lands og hefur umsjón með kennslu í upplýsinga- og skjalastjórn hjá skipu- lagsheildum. Langholtsvegur 116B – Aukaíbúð Opið hús í dag milli kl. 18 og 19:30 BORGARTÚN 29 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net REYNIR BJÖRNSSON ELÍAS HARALDSSON L Ö G G. FA S T E I G N A S A L A R Einstakt tækifæri. Til sölu vegna flutninga erlendis stórt endaraðhús með suður- garði á þremur hæðum ásamt bískúr samt. 220,5 fm með möguleika á aukaíbúð. Stórt eldhús, 2 stofur, borðstofa, verönd með potti og skjólgirðingu, stór suður- garður, 3 herbergi (möguleiki á 4), baðherbergi og gestasnyrting. Þvottahús og geymsla ásamt bískúr sem hægt er að breyta í íbúð með sérinngangi. Góð verönd með heitum potti, stórar svalir sem hægt er að byggja yfir og stækka húsið, hellulagt upphitað bílaplan. Eignin býður upp á mikla möguleika og getur verið laus 1. apríl n.k. Verð 43,9 millj. Fjalar og Helga taka vel á móti gestum. Teikningar á staðnum. Húsavík – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.