Morgunblaðið - 04.03.2008, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Stofnfélagar Benedikt Sigurðarson hjá Búsetea afhendir Jóni Stefáni
Baldurssyni og Önnu Marit Níelsdóttur innflutningsgjöf. Þau voru meðal
stofnfélaga á sínum tíma, eiga búseturéttarnúmer 1 og búa í nýja húsinu.
BÚSETI á Norðurlandi hefur afhent
allar 58 íbúðirnar í nýju fjölbýlishúsi
félagsins við Kjarnagötu í Nausta-
hverfi á síðustu sex mánuðum. Um
er að ræða stærsta fjölbýlishús utan
höfuðborgarsvæðisins og er áætlað
að íbúar í húsinu verði rösklega 200
talsins. Á sama byggingarreit við
Kjarnagötu og Brekatún er hafin
bygging 24 íbúða í viðbót.
Framkvæmdirnar við Kjarnagötu
og Brekatún eru umfangsmesta
verkefni sem Búseti á Norðurlandi
hefur ráðist í. Fjölbýlishúsið stóra,
sem nú er komið í notkun, er ríflega
6 þúsund fermetrar að stærð og við
það er bílakjallari með 65 bílastæð-
um. Alls verða 82 íbúðir byggðar á
reitnum og heildarbyggingarmagn
verður nærri 10 þúsund fermetrar.
Kostnaður við framkvæmdirnar í
heild verður um 2 milljarðar króna.
Hagkvæmur kostur
Áætlað er að framkvæmdunum á
reitnum ljúki á árinu 2009. Þegar
framkvæmdirnar voru í hámarki
munu 70-80 manns hafa verið að
störfum og jafnvel allt að 100 manns
einstaka daga.
Alls rekur Búseti á Norðurlandi
vel á þriðja hundrað íbúðir á Akur-
eyri og Húsavík. Um er að ræða svo-
kallaðar búseturéttaríbúðir þar sem
kaupendur greiða 10% stofnverðs og
síðan fast mánaðargjald og í því er
innifalið allt viðhald, hússjóður, fast-
eignagjöld og tryggingar, auk raf-
magns og hita í nýju fjölbýli. Mán-
aðargreiðslur eru jafnar yfir árið og
almennt nokkru lægri en húsaleiga á
markaði, skv. upplýsingum Búseta.
Í nýjum íbúðum félagsins eru öll
tæki í eldhúsi og þvottahúsi innifalin,
þ.e. ísskápur, uppþvottavél, ör-
bylgjuofn, þvottavél og þurrkari.
Fjölgun félagsmanna í Búseta á
Norðurlandi síðustu mánuði er tölu-
verð og ljóst virðist á því að þessi
húsnæðisvalkostur vekur áhuga. Fé-
lagar í Búseta á Norðurlandi eru
orðnir 800.
Ekki er aðeins áhugi meðal al-
mennra félagsmanna heldur hafa
nokkur sveitarfélög á Norðurlandi
sýnt áhuga á samstarfi við félagið
um þá valkosti sem það hefur að
bjóða. Þar má nefna t.d. Fjalla-
byggð, Dalvíkurbyggð, Þingeyjar-
sveit og fleiri. Félagið hefur nú 24
íbúðir í byggingu á áðurnefndum reit
við Kjarnagötu og Brekatún og
áformar byggingu 25-30 íbúða á reit
við Hólmatún, auk þess sem önnur
svæði á Akureyri eru í skoðun.
Áhuga almennings á húsnæðis-
lausnum Búseta á Norðurlandi verð-
ur því fylgt eftir á komandi mánuð-
um og árum í samræmi við
stefnumótun félagsins, skv. upplýs-
ingum frá Búseta.
200 í stærsta fjölbýli
utan borgarsvæðisins
Í HNOTSKURN
»Félagsmönnum í Búseta áNorðurlandi hefur fjölgað
um 265 á 14 mánuðum og eru nú
um 800 talsins. Allir geta gerst
félagar og greiða einungis lágt
árgjald en öðlast félagsnúmer og
þar með rétt til að fá úthlutað
íbúð innan kerfisins.
Allar 58 íbúðir í
nýju fjölbýli Bú-
seta verið afhentar
Eyjafjarðarsveit | Fjöldi fólks vítt
og breitt af Norðurlandi lagði leið
sína fram í Halldórsstaði nú nýver-
ið þegar ábúendur þar, þau Rósa
Hreinsdóttir og Guðbjörn Elf-
arsson, tóku í notkun nýtt og glæsi-
legt 300 kinda fjárhús. Húsið er
einnig hesthús þar sem rúm er fyrir
20 hesta. Í heild er byggingin 460
fermetrar. Alls eru Rósa og Guð-
björn með 500 fjár sem er lang-
stærsta fjárbú hér í sveit.
Ærnar eru hafðar á taði sem nú
er aftur að ryðja sér til rúms en um
áratuga skeið voru nær eingöngu
byggð fjárhús með grindum og vél-
gengum kjöllurum. Nú er hins veg-
ar talið að ánum líði mun betur á
taði heldur en ef þær eru hafðar á
grindum. Auk þess að byggingin
verður mun ódýrari án áburð-
arkjallara. Í þessu nýja fjárhúsi er
vélgengt í allar krærnar og taðinu
mokað út með traktor á nokkurra
mánaða fresti.
Húsið er stálgrindarhús frá fyr-
irtækinu Hýsi ehf. í Mosfellsbæ og
voru starfsmenn þess á staðnum og
veittu gestum upplýsingar um hús-
in.
Morgunblaðið/Benjamín
Fjöldi gesta Auðséð var að ánum leið vel í nýjum húsakynnum.
Margir skoðuðu nýtt
og glæsilegt fjárhús
Ánægð Rósa Hreinsdóttir og Guð-
björn Elfarsson voru að vonum
ánægð með nýju bygginguna.
Reyðarfjörður | Áfram er unnið að því að
gangsetja álver Alcoa Fjarðaáls, sem er
bæði tímafrekt og vandasamt. Erna Indr-
iðadóttir upplýsingafulltrúi, segir gang-
setningu nýs álvers álíka algenga í heim-
inum og geimskot. „Við höfum nú lokið við
að gangsetja 279 ker af 336 í kerskálunum.
Búið er að flytja út rúmlega 50 þúsund tonn
af áli nú þegar og hefur það farið á Evr-
ópumarkað.“ Hún segir nýframkvæmdum á
vegum fyrirtækisins hvergi nærri lokið og
framkvæmt verði fyrir hundruð milljóna á
svæðinu á næstu árum með tilheyrandi út-
boðum. Fjögur hundruð starfsmenn hafa
nú verið ráðnir til álversins og eru 28%
þeirra konur, 53% starfsmanna af Austur-
landi og 47% annars staðar af landinu, frá
ýmsum stöðum. Búseta starfsmanna skipt-
ist þannig að um 22,5% búa á Egilsstöðum,
72% í Fjarðabyggð og aðrir annars staðar á
Austurlandi, svo sem á Seyðisfirði, Breið-
dalsvík og Stöðvarfirði, eða 5,5%.
Ljósmynd/Alcoa Fjarðaál
Álvinnsla Framleiðsla álvíra í háspennu-
strengi er hluti af starfsemi álversins.
Nýfram-
kvæmdum
ekki lokið
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
STÓRFRAMKVÆMDIR á Aust-
urlandi eru nú að taka enda. Eftir
mikla þenslu er að slakna á og Aust-
firðingar á ákveðnum vendipunkti.
Heildaráhrif framkvæmdanna á
Austurlandi kunna að verða nokkru
minni en búist var við, einkum
vegna samdráttar í sjávarútvegi,
þar sem í það minnsta 250 störf hafa
tapast. Vel launuðum störfum hefur
fjölgað í fjórðungnum með tilkomu
álvers Alcoa Fjarðaáls og af 400
starfsmönnum þess eru 100 há-
skólamenntaðir. Búist er við að af-
leidd störf vegna álversins verði
fleiri en spáð hafði verið.
Þetta er meðal þess sem kom
fram á fundi, sem atvinnumála-
nefnd Fljótsdalshéraðs hélt fyrir
nokkrum dögum, um þróun at-
vinnulífs á Austurlandi.
Róttæk áhrif á miðsvæðinu
Sem dæmi um uppsveifluna á
miðhluta Austurlands má nefna að
farþegar um Egilsstaðaflugvöll
voru árið 2001 60 þúsund en voru í
fyrra 160 þúsund talsins. Mikið hef-
ur verið byggt af íbúðarhúsnæði í
nýjum hverfum og fasteignaverð
hefur hækkað. Fasteignasalar hafa
talað um hækkun allt að 200% í
sumum tilvikum. Byggðir hafa verið
um 50 þúsund fermetrar af iðnaðar-
húsnæði. Tekjur sveitarfélaga juk-
ust tímabundið umtalsvert, ekki síst
meðan mikill fjöldi utanaðkomandi
starfsmanna vann við byggingu
virkjunar og álvers. Ýmislegt situr
þó eftir sem tekjur fyrir sveitar-
félög, svo sem fasteignagjöld af ál-
verinu og stöðvarhúsi Kárahnjúka-
virkjunar. Umsvif opinberrar
þjónustu, svo sem skóla, heilsugæsl-
unnar, sjúkrahúss í Neskaupstað,
löggæslu og tollgæslu hafa aukist til
muna. Mikil sókn er í málefnum
framhaldsmenntunar. Verslun og
þjónusta hefur eflst, m.a. með til-
komu lágvöruverslananna Bónuss
og Krónunnar. Þá hafa bæði Byko
og Húsasmiðjan sett upp verslanir
og sterk fyrirtæki mætt til leiks, t.d.
Launafl, Vélsmiðja Hjalta Einars-
sonar og Gámaþjónustan. Breskt
stórfyrirtæki í varahlutum, Bram-
mer, ætlar að opna útibú á Reyð-
arfirði. Mikil uppbygging er kring-
um Mjóeyrarhöfn og Eimskip og
Samskip bæði með stóra samninga
við Alcoa Fjarðaál og auka mjög
umsvif sín á Austurlandi. Vegasam-
göngur hafa batnað, m.a. með til-
komu Fáskrúðsfjarðarganga, vegar
úr Fljótsdal inn í Kárahnjúka, yf-
irstandandi vegbótum um Hólma-
háls og væntanlegum Norðfjarðar-
göngum sem eiga að verða tilbúin
2011.
Erna Indriðadóttir, upplýsinga-
fulltrúi Alcoa Fjarðaáls, sagði á
fundinum að fyrirtækið teldi ekki
óeðlilegt að næstu samgöngubætur
yrðu í formi jarðganga milli Eski-
fjarðar og Egilsstaða. „Við teljum
að álverið muni skapa kjölfestu sem
hægt verður að byggja á. Forsend-
ur fyrir því að svæðið vaxi og dafni
áfram eru samgöngumál þannig að
það verði eitt atvinnusvæði. Góðar
samgöngur og góð þjónusta eru lyk-
ill að því að fólk vilji flytja á Austur-
land,“ sagði Erna.
Sveitarfélög utan miðsvæðis
Austurlands standa heldur höllum
fæti og berjast nú með oddi og egg
fyrir því að bæta hlut sinn í sam-
félags- og atvinnulegu tilliti.
Í kjölfar stórframkvæmda
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Sviptingar Talað er um að 250 störf hið minnsta hafi tapast í sjávarútvegi á Austurlandi vegna hagræðingar
og niðurskurðar á móti þeim 400 sem skapast hafa hjá Alcoa Fjarðaáli ásamt afleiddum störfum.
Heildaráhrif
nokkru minni en
vænst hafði verið
Í HNOTSKURN
»Laun hafa hækkað, mennt-unarstig sömuleiðis og at-
vinnulíf tekið mikinn kipp á
Austurlandi undanfarið.
»Heildaráhrif kunna aðverða minni en vænst hafði
verið þar sem um 250 störf
hafa tapast í sjávarútvegi.
AUSTURLAND