Morgunblaðið - 04.03.2008, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 17
LANDIÐ
Eftir Vilhjálm Eyjólfsson
Hnausar í Meðallandi | Þessi vetur
hefur verið nokkuð illviðrasamur og
þetta er fyrsti slæmi veturinn síðan
aldamótaveturinn að það hafa ekki
verið miklir snjóar. En það hafa ver-
ið vond veður og frost komst niður
undir 20 gráður.
Fyrsta róbótafjósið hefur verið
tekið í notkun hér, er það í Úthlíð í
Skaftártungu. Þar búa hjónin Valur
Oddsteinsson og Ásta Svandís Sig-
urðardóttir ásamt dóttur sinni, Elínu
Heiðu. Fjósið er 63 legubásar og
passar fyrir einn róbót.
Einnig er verið að gera upp fjós í
Langholti í Meðallandi. Þar var gam-
alt fjörutíu kúa fjós sem nú er verið
að breyta í legubásafjós og fullklára
mjaltabás. Þar búa hjón sem eru ný-
tekin við jörðinni, Jenný Lind Grétu-
dóttir og Kristinn Björnsson, en þau
bjuggu áður á Arnarhóli í Gaulverja-
bæjarhreppi. Þau hafa fengið efnið í
fjósið úr gömlu fjósi að Stekkum í
Flóa.
Enga loðnu rekur
Nú veiðist loðnan hér við strönd-
ina. Það sést best á því að hrafninn
er nú horfinn frá bæjunum að mestu
leyti því að hann hefur nóg æti á fjör-
unum, það rekur alltaf eitthvað af
loðnu á fjörurnar þegar verið er að
veiða fyrir utan. Árið áður en loðnu-
veiðar hófust, en það mun hafa verið
nærri 1960, rak loðnu hér í stórum
stíl, fáum dögum fyrir sumar. En eft-
ir að loðnuveiðar hófust hefur aldrei
rekið hér hrygnda loðnu, það sýnir
best hvað veiðarnar hafa haft mikil
áhrif á hrygningu loðnunnar.
Illviðra-
samur vetur
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Ísafjörður | Ljósmyndasafnið á Ísa-
firði hefur eignast ljósmyndasafn
Sigurgeirs B. Halldórssonar, sjó-
manns og áhugaljósmyndara, sem
tók mikið af myndum á árunum milli
1940 og 1960. Afkomendur Sigur-
geirs afhentu myndasafnið við at-
höfn um helgina um leið og opnuð
var sýning á nokkrum myndum úr
safninu í Safnahúsinu á Ísafirði.
Á níunda hundrað myndir eru í
myndasafni Sigurgeirs. Jóhann Hin-
riksson, forstöðumaður Ljósmynda-
safnsins, segir mikilvægt að fá
myndir úr atvinnulífinu inn í safnið
og myndir Sigurgeirs séu því mikill
fengur. Verið er að setja myndirnar
inn á vef ljósmyndasafnsins (mynda-
safn.isafjordur.is).
Jóhannes Bjarni Eðvarðsson,
húsasmiður í Mosfellsbæ, yfirfærði
myndir afa síns á stafrænt form. „Ég
fór fyrst á ljósmyndanámskeið þegar
ég var sautján eða átján ára. Ég
mundi eftir því að alltaf var verið að
tala um hvað afi hefði tekið mikið af
myndum og bað ömmu á Ísafirði um
að senda mér nokkrar filmur til að
stækka eftir,“ segir Jóhannes Bjarni
um upphaf þess að hann fór að vinna
í myndasafni afa síns. Hann var síð-
an að vinna að þessu verkefni með
hléum í mörg ár. Aðstaðan breyttist
þegar stafræna tæknin varð almenn
og hægt var að kaupa skanna á við-
ráðanlegu verði. Í ár eru liðin 100 ár
frá fæðingu Sigurgeirs Bjarna sem
fæddist 1908 og lést 1972, og þau
tímamót urðu til þess að Jóhannes
lauk verkinu.
Ómetanlegar heimildir
Sigurgeir hóf ungur að læra ljós-
myndun hjá Simson ljósmyndara á
Ísafirði. Hann var fljótt kominn með
stóra fjölskyldu og telur Jóhannes að
það hafi orðið til þess að hann hélt
ekki áfram náminu, hafi orðið að fá
sér vinnu til að framfleyta fjölskyld-
unni. Hann fór á sjóinn og var mat-
sveinn allan sinn starfsaldur.
Jóhannes segir greinilegt að sá
grunnur sem afi hans fékk hjá Sim-
son hafi nýst honum vel sem áhuga-
ljósmyndara. Hann segir skemmti-
legt að fara í gegnum myndirnar.
Hann hafi verið með myndavélina
með sér til sjós sem ekki hafi verið
algengt á þeim tíma og raunar alls
ekki sjálfsagt að fjölskyldur ættu
myndavélar.
Á sýningunni í Safnahúsinu á Ísa-
firði eru 27 stækkaðar myndir úr
safni Sigurgeirs. Þar af eru níu ljós-
myndir sem hann litaði. Fjöldi gesta
var við opnunina. Jóhannes segir að
eldri Ísfirðingar hafi gjarnan farið
um nokkrir saman og rifjað upp sög-
ur sem tengjast myndefninu. Hann
segir að myndirnar séu ómetanlegar
heimildir um Ísafjörð fyrir sextíu til
sjötíu árum, hús og mannlíf, auk at-
vinnusögunnar.
Ljósmyndasafn sjómanns afhent
Ljósmynd/Sigurgeir B. Halldórsson
Grund Húsið Grund sést á myndum í safni Sigurgeirs, meðal annars í
tengslum við knattspyrnuvöllinn. Þar voru líka kýr á beit og börn að leik.
Ljósmynd/Sigurgeir B. Halldórsson
Sjávarútvegur Sigurgeir tók mikið af myndum um borð í skipum og frá at-
hafnalífinu í höfnum. Hér er Freydís að koma til hafnar á Ísafirði.
Vallarheiði | Ástir og örlög fram-
haldsskólanemenda er til umfjöll-
unar í söngleiknum Sjensinn sem
Vox Arena, leikfélag Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja frumsýndi sl.
föstudag. Verkið er sýnt í kvik-
myndahúsinu á Vallarheiði, And-
rew’s Theater.
„Þetta er gífurlega skemmtilegt.
Allir krakkarnir skemmta sér vel.
Til þess er leikurinn líka gerður,“
sagði Guðmundur Viktorsson, for-
maður Nemendafélags FS og einn
af leikurum í Sjensinum. Hann get-
ur þess að aðstandendur sýning-
arinnar hafi fengið góð viðbrögð.
Leikfélagið fékk að þessu sinni
þrjár konur til að semja fyrir sig
leikverk og stýra því. Þetta eru
Gunnheiður Kjartansdóttir, Frey-
dís Kneif Kolbeinsdóttir og Íris
Dröfn Halldórsdóttir sem allar
hafa sett upp verk í grunnskólum í
Reykjanesbæ. „Þær hafa getið sér
gott orð fyrir sýningar og margir
krakkar hér voru spenntir fyrir að
vinna með þeim, meðal annars
krakkar sem hafa verið þeim þeim í
sýningum áður,“ sagði Guðmundur.
Nærri fjörutíu nemendur skólans
koma að verkinu, sem leikarar,
dansarar og aðstoðarfólk. Verkið
hefur verið æft í tvo mánuði og seg-
ir Guðmundur að í ljós hafi komið
að margir efnilegir söngvarar og
dansarar eru í skólanum.
Verkið fjallar um ástir og örlög
framhaldsskólanema, eins og áður
segir, og því er ekki langt að sækja
efnivið og innblástur. Þótt leik-
urinn gerist í ónefndum skóla við-
urkennir Guðmundur að ýmislegt
sé kunnuglegt af göngum Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja.
Næstu sýningar eru í kvöld, ann-
að kvöld og fimmtudagskvöld, öll
kvöldin kl. 20. Miða er hægt að fá í
skólanum.
Andrew’s Theater er 500 manna
kvikmyndahús á fyrrum varn-
arliðssvæði sem leikfélagið tók á
leigu fyrir þessa uppsetningu. Guð-
mundur tekur undir að aðstæður
séu góðar, salurinn sé í það
minnsta nógu stór. Leikfélagið
þurfi þó að útvega sér ýmsan
tæknibúnað, svo sem ljós og hljóð-
kerfi. Góð aðsókn var á fyrstu sýn-
ingarnar, að sögn Guðmundar, og
góð stemning.
Söngleikur Pönkarahópurinn lætur að sér kveða í sýningum á Sjensinum.
Ekki langt að sækja
innblástur í leikinn
SUÐURNES
Lífshlaupið er fræðslu- og
hvatningarverkefni ÍSÍ fyrir
alla aldurshópa.
Markmið þess er að hvetja
landsmenn til þess að fara
eftir hreyfiráðleggingum
og gera hreyfingu að
föstum lið í lífsstíl sínum.
Lífshlaupið
byrjar 4. mars!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
S
I
40
43
3
03
/0
8
Lífshlaupið Þín heilsa – þín skemmtun
Samstarfsaðilar
Ólympíufjölskyldan
Fersk sending
• Vinnustaðakeppni
• Hvatningarleikur í skólum
• Einstaklingskeppni
Skráning og nánari upplýsingar
á vefsíðunni: lifshlaupid.is