Morgunblaðið - 04.03.2008, Qupperneq 30
✝
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
KJARTANS TH. INGIMUNDARSONAR
skipstjóra
frá Patreksfirði,
Seljahlíð,
Reykjavík.
Hrefna Sigurðardóttir,
Helga Þóra Kjartansdóttir,
Hreinn Hrafnkell Kjartansson,
Jens Kjartansson, Þórey Björnsdóttir,
Þórunn Kjartansdóttir, Sigtryggur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
30 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ FreygerðurGuðrún Bergs-
dóttir (Freyja)
fæddist í Sæborg í
Glerárhverfi á Ak-
ureyri 11. júlí 1925.
Hún lést á dval-
arheimilinu Hlíð 23.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Bergur
Björnsson og Guð-
rún Andrésdóttir.
Freyja giftist 18.
nóvember 1944
Finni Sigurðssyni
sjómanni, f. í Sandgerði í Gler-
árhverfi 25. júlí 1920. Þau eign-
uðust þrjú börn, en þau eru: Sig-
rún, f. 11. maí 1944, gift Daníel
Eyþór Þórðarsyni, f. 13. maí 1937,
Guðmundur, f. 24. júlí 1947,
kvæntur Gretu Stefánsdóttur, f.
15. október 1948, og Bergur, f. 5.
nóvember 1950,
kvæntur Sumarrós
Hildi Ragn-
arsdóttur, f. 22.
september 1956.
Barnabörn Freyju
eru fimm, lang-
ömmubörn eru sex
og eitt langalang-
ömmubarn.
Freyja bjó lengst
af í Höfðahlíð 12
(Höfðabrekku) í
Glerárhverfi á Ak-
ureyri. Hún starfaði
í áratugi í verk-
smiðjum SÍS og hjá Gefjun á Gler-
áreyrum. Frá unga aldri var hún
félagi í kvenfélaginu Baldursbrá
og var alla tíð mjög virk í fé-
lagsstörfum.
Freyja verður jarðsungin frá
Glerárkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Það er komið að kveðjustund,
hún amma er dáin. Mig langar að
minnast hennar með nokkrum orð-
um.
Mér þótti einstaklega vænt um
ömmu og það var ríkulega end-
urgoldið. Frá því að ég man eftir
mér voru amma og afi stór hluti af
lífi mínu þar sem þau bjuggu nán-
ast í næsta húsi og ætíð var mikill
samgangur. Húsið hjá ömmu var
nokkurs konar samkomustaður
fjölskyldunnar og þar komu einnig
systkini hennar oft og tíðum. Ég
eyddi líklega jafnmiklum tíma
heima hjá ömmu og heima hjá for-
eldrum mínum. Þar var alltaf gott
að vera.
Amma var einstaklega hlý og
góð en líka mjög ákveðin kona með
mikla réttlætiskennd. Uppeldið
sem ég fékk hjá ömmu var af-
skaplega gott veganesti fyrir lífið.
Hlutirnir voru einfaldir, sumt
mátti og annað ekki. Engar und-
antekningar voru á þeim reglum
hjá ömmu og ekkert þýddi að rella
yfir því. Ef mikið lá við leitaði
maður til afa, sem var alltaf mjög
eftirlátssamur. Amma skuldaði
engum neitt, greiddi alla reikninga
strax og vildi hafa allt sitt á hreinu.
Helst vildi hún alltaf borga fyrir
allt sem fyrir hana var gert og ekki
þýddi að neita þegar amma átti í
hlut. Þá var gestrisnin og gjafmild-
in með eindæmum enda var húsið
fullt af gestum flesta daga og eng-
inn fór svangur heim. Þeir voru
ófáir sem voru leystir út með poka
af snúðum, kleinum eða öðru bakk-
elsi sem amma bakaði sér og öðrum
til ánægju. Þá var hún snillingur í
höndunum og kynstrin öll af hand-
verki og hannyrðum af öllum
stærðum og gerðum prýddu heimili
hennar. Margir nutu góðs af þess-
ari eljusemi og má finna hekluðu
dúkana hennar ömmu á mörgum
heimilum. En amma var ekki alltaf
að baka og sauma því hún vann alla
sína ævi utan heimilis, hjá Gefjun
þar sem hún starfaði í áratugi og
nýtti sumarfríin í síldarsöltun á sín-
um yngri árum.
Ég er ríkur af minningum og
stoltur af því að dóttir mín skuli
bera nafn langömmu sinnar. Ég
vona að hún verði jafn merkileg og
góð kona og amma var. Megi amma
mín hvíla í friði.
Finnur.
Freygerður Guðrún
Bergsdóttir
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
BRAGI ÞORSTEINSSON,
Freyjugötu 30,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 5. mars kl. 13.00.
Gréta Steinþórsdóttir,
Ragnar Bragason,
Þorsteinn Bragason, Ólöf Örnólfsdóttir,
Kristín Bragadóttir, Karl Einarsson,
Steinþór Bragason, Hildur Þorbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur
samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSDÍSAR ÓSKARSDÓTTUR,
Framnesvegi 15,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Sjúkrahúsinu í
Keflavík, Víðihlíð í Grindavík og í Dagdvöl aldraðra í
Keflavík fyrir góða umönnun.
Jóhannes Jóhannesson, Hjördís B. Sigurðar,
Halldóra Jóhannesdóttir, Sigurgísli S. Ketilsson,
Helga Jóhannesdóttir, Gylfi Bergmann,
Gunnar Jóhannesson,
Jón Jóhannesson, Hanna Dóra Hjartardóttir,
Petrína M. Jóhannesdóttir, Ögmundur M. Ögmundsson,
Þröstur Jóhannesson, Guðbjörg H. Magnadóttir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
THEA SIGURLAUG ÞÓRÐARDÓTTIR,
Álftamýri 24,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju fimmtu-
daginn 6. mars kl. 13.00.
Gunnar Sveinsson, Katrín Baldvinsdóttir,
Eiríkur Sveinsson,
Þórir Sveinsson, Jónína H. Hjaltadóttir,
Birgir Sveinsson, Karin Larsen,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Innilegar þakkir fyrir vináttu og sýnda samúð við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SVENNU RAKELAR SIGURGEIRSDÓTTUR,
Fífulind 2,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir viljum við færa Önnu Þ. Salvars-
dóttur lækni ásamt starfsfólki kvennadeildar
Landspítalans og heimahlynningar Krabbameinsfélagsins
fyrir einstaka umönnun og hlýju í hennar garð.
Halldór Pálsson,
Þóranna Halldórsdóttir, Kolbeinn Sverrisson,
Heimir Halldórsson, Ragna Björk Ragnarsdóttir,
Sigurgeir Már Halldórsson, Hólmfríður Ása Guðmundsdóttir,
Daníel Snær, Halldór, Arnar Freyr,
Rakel Björk og Ásdís Birta.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
GUÐMUNDAR J. PÁLSSONAR
Gullsmára 7,
Kópavogi.
Salbjörg Matthíasdóttir,
Páll Hermann Guðmundsson, Monica Guðmundsson,
Jón Guðmundsson, Ágústa Karlsdóttir,
Sólfríður Guðmundsdóttir,
Guðmundur Þór Guðmundsson, Steinunn Fjóla Ólafsdóttir,
Svanhvít Guðmundsdóttir, Kjartan Harðarson,
Matthías Guðmundsson, Ólöf Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarþel við andlát og útför,
SKÚLA SKÚLASONAR
ættfræðings
frá Hólsgerði,
Lindargötu 64,
Reykjavík,
eða heiðruðu minningu hans á annan hátt.
Kristveig Skúladóttir,
Þorkell Skúlason
og systkinabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför bróður
okkar og frænda,
ÓLAFS ÞORGEIRSSONAR
Brúnavegi 9.
Ása Fanney Þorgeirsdóttir,
Jóhann Þorgeirsson,
Þorgeir, Hildur, Páll Reynir
og fjölskyldur.
Kær vinur, Steingrímur Helga-
son, er fallinn frá eftir áralanga bar-
áttu við Alzheimer-sjúkdóm.
Þegar kynni okkar hófust varst þú
orðinn veikur en börnin þín óskuðu
eftir nærveru minni til viðbótar því
sem þau veittu þér. Síðastliðin ár
höfum við hist nokkuð reglulega og
gert okkur glaðan dag saman. Allar
okkar góðu stundir saman verða
okkur ógleymanlegar og hvernig þú
tókst á móti mér þegar ég kom til
þín, það á eftir að ylja mér um
hjartarætur þegar ég minnist þín. Á
meðan þú gast komið með mér í bíl-
inn minn fórum við yfirleitt út úr
bænum til að njóta náttúrunnar. Ég
gleymi ekki ferðum okkar í Hvera-
gerði á vorin en þangað fórstu með
mér að velja sumarblómin og á kaffi-
hús á eftir en þess naustu afar vel að
fá kaffi og gott með. Ferðin upp í
Kjós með nesti og við drukkum úti í
góða veðrinu – alls þessa naustu vel.
Ég man þegar við sungum saman í
bílnum, þá var glatt á hjalla. Eftir
því sem heilsan þvarr urðum við nota
ferðaþjónustu aldraðra þar sem þú
varst bundinn hjólastól en þá fórum
við yfirleitt niður í miðbæ og gengum
þar um en alltaf var farið á kaffihús í
leiðinni, það líkaði þér vel. Síðustu
tvö árin áttum við saman samveru-
stundir heima í Foldarsmára 3, nú
síðast 2. febrúar síðastliðinn.
Börnum þínum og fjölskyldum
þeirra sendi ég samúðarkveðju með
þakklæti fyrir góð kynni.
Elsku vinur, þig kveð ég með
söknuði.
Hlíf Geirsdóttir.
Stein-
grímur
Helgason
✝ Steingrímur Helgason fædd-ist í Unaðsdal á Snæ-
fjallaströnd 12. nóvember 1922.
Hann lést á hjúkrunarheimilinu
Eir að morgni 17. febrúar síðast-
liðins.
Steingrímur var jarðsunginn
frá Langholtskirkju 21. febrúar
sl.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800