Morgunblaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
STEINUNNI Birnu Ragnarsdóttur
píanóleikara og Sigrúnu Hjálmtýs-
dóttur sópransöngkonu hefur verið
boðið að koma fram á tónleikum í
Rudolphinum-salnum í Prag
þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Þar koma þær fram í boði hljóm-
sveitarinnar
Virtuosi di
Praga, sem er
ein virtasta
hljómsveit
Tékklands, að
því er segir í
fréttatil-
kynningu frá
þeim. Þar seg-
ir ennfremur
að tónleikarn-
ir, sem eru 30
ára afmæl-
istónleikar hljómsveitarinnar og
opnunartónleikar Pontes-tónlist-
arhátíðarinnar, verði haldnir í hin-
um glæsilega Rudolphinum-sal í
Prag sem er einn fegursti tónleika-
rsalur Evrópu og á sér langa sögu.
„Steinunn Birna mun koma fram
sem einleikari ásamt hljómsveitinni
og flytja Píanókvintettinn op. 81
eftir Dvorák sem hefur lengi verið
eitt vinsælasta og mest leikna verk
tónbókmenntana. Það var frumflutt
árið 1888 í Rudolphinum-salnum og
var gefið út sama ár í Berlín. Verk-
ið var samið á stuttum tíma og ber
með sér ferska strauma samtíma
síns. Það gefur einnig mjög per-
sónulega mynd af tónskáldinu og
öllum hans fjölmörgu blæbrigðum í
tilfinningu og túlkun. Það er fullt af
lífsgleði og krafti en er jafnframt
hugljúft og blítt.“
Sigrún mun einnig syngja ein-
söng með hljómsveitinni auk þess
sem þær flytja íslensk sönglög sam-
an. Tónlistarkonurnar segja boðið
mikinn persónulegan heiður en auk
þess séu tónleikarnir mikilvæg
kynning á íslenskri tónlist og
menningu.
Boðið til
Tékklands
Diddú og Steinunn
Birna koma fram í
Rudolphinum
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Í TILEFNI af útgáfu plöt-
unnar Gentle Rain sem er
fyrsta sólóplata söngkonunnar
Guðlaugar Drafnar Ólafs-
dóttur verða útgáfutónleikar á
Domo í kvöld kl. 22. Gentle Ra-
in er latín- og poppskotin
djassplata sem er hugljúf og
vönduð í alla staði, að því er
segir í fréttatilkynningu frá út-
gefanda. Með Guðlaugu leika
Ásgeir Jón Ásgeirsson á gítar,
Jóhann Hjörleifsson á trommur og slagverk, Ró-
bert Þórhallsson á bassa og Vignir Þór Stefánsson
á píanó. Guðlaug lauk mastersprófi í djasssöng frá
Konunglega listaháskólanum í Haag í Hollandi og
kennir söng við Tónlistarskóla FÍH.
Tónlist
Milda regnið á
Domo í kvöld
Guðlaug Dröfn
Ólafsdóttir
RÓSA Sigrún Jónsdóttir opnar
sýningu á verkum sínum í
Start Art, Laugavegi 12 B í
dag kl. 17. Rósa Sigrún útskrif-
aðist frá Listaháskóla Íslands
árið 2001 og hefur tekið þátt í
margvíslegum listverkefnum
síðan. Á sýningunni vinnur
Rósa með mismunandi efni og
miðla og um tilurð hennar seg-
ir hún: „Oftast byggjast fyrstu
tilraunir mínar til þess að
kynnast einhverjum stað á því að skoða kort af
honum. Með því að elta línur kortsins aftur og aft-
ur og aftur opnast veröld þess smám saman, ver-
öld sem lýtur sínum eigin fagurfræðilegu lög-
málum.“ Opið er þriðjudaga til laugardaga 13-17.
Myndlist
Götumyndir Rósu
Sigrúnar í Start Art
Rósa Sigrún Jóns-
dóttir: Sjálfsmynd
GUÐRÚN Kvaran flytur er-
indi á Rannsóknarkvöldi Fé-
lags íslenskra fræða í stofu 101
í Odda kl. 20 kvöld sem hún
nefnir: Biblía 21. aldar: Verk-
lag og viðtökur – gagnrýni
svarað. Guðrún fjallar um þá
gagnrýni sem Biblíuþýðingin
hefur sætt en segir ennfremur:
„Í fyrirlestrinum verður sagt
frá erindisbréfi því sem þýð-
ingarnefndir beggja testa-
menta fengu í hendur og mikilvægi þess að það sé
rétt túlkað. Rætt verður um tvær breytingar sem
snertu allt ritið, kynningarheftin og viðbrögð við
þeim en síðan verður snúið að þeirri gagnrýni sem
fram hefur komið í fjölmiðlum.“
Fræði
Biblíuþýðingin á
Rannsóknarkvöldi
Guðrún Kvaran
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÞAÐ segja margir að Fiðlu-
konsert Albans Berg sé
flottasti fiðlukonsert saminn
á síðustu öld. Eitt er víst, og
það er það, að hann er ógn-
arvinsæll. Sigrún Eðvalds-
dóttir stendur upp úr kons-
ertmeistarasæti sínu á
tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í kvöld og verð-
ur í einleikshlutverkinu. Sig-
rún segir konsertinn
tímamótaverk, hann var
saminn 1935, en Alban Berg
var einn af frumkvöðlum
raðtækni í tónsmíðum og fé-
lagi Schönbergs og Antons
Weberns sem stundum hafa
verið kallaðir Vínarskólinn
síðari, til aðgreiningar frá
skóla Vínarklassíkeranna
fyrri, Haydns, Mozarts,
Beethovens og Schuberts
undir lok 18. aldar. Sigrún
segir undirbúninginn fyrir
tónleikana hafa verið erfiðan
en skemmtilegan.
Stórmerkilegt verk
„Ég er búin að vera á kafi
í konsertinum og hef lesið
mikið um hann. Hann er
orðinn mér mjög kær. Þetta
er stórmerkilegt verk og
hafði mikil áhrif á þá fiðlu-
konserta sem á eftir komu.
Alban Berg var mikið að
spá í skóla Schönbergs á sín-
um tíma. Þeir voru góðvinir
og skrifuðust á og voru mikl-
ir pælarar. En sjálfir voru
þeir undir áhrifum frá tón-
skáldum eins og Wagner og
Brahms og jafnvel Mahler
pínulítið. En það er svo
skemmtilegt að núna heyri
ég þetta ekki sem nútíma-
tónlist; þetta er bara Vín-
arklassík.“
Sigrún kveðst aldrei hafa
spilað annan eins fiðlukons-
ert; hann sé margslunginn
og flókinn og að mörgu leyti
líkari stóru hljómsveit-
arverki en einleikskonsert.
„Einleiksparturinn er bæði
ofboðslega fallegur og ljóð-
rænn, en það tók á að æfa
hann. Stundum komst ég
ekki inn í hann, það var mik-
ið átak, því einleikspart-
urinn er ekki alltaf skýr. En
það er líka rosaleg fegurð í
honum sem lætur engan
ósnortinn,“ segir Sigrún.
En sorgin er líka nærri í
fiðlukonsert Albans Bergs.
„Þegar ég fór að lesa mér til
Ég hef verið að hitta fólk á
förnum vegi sem hefur sagt
hann vera uppáhalds kons-
ertinn sinn. Ég hitti erlent
tónskáld á Myrkum mús-
íkdögum um daginn sem
sagði að eftir að Alban Berg
samdi sinn konsert hafi ver-
ið erfitt að semja fiðlukons-
ert sem ekki bar keim af
honum. Þeir sóttu svo marg-
ir í hann. Hann er spes – og
tímamótaverk, því hann
bindur saman Vínarklassík-
ina gömlu og 12 tóna tónlist-
ina sem þeir Schönberg voru
að pæla í.“
Eins og í
fermingarveislu
Sigrún segir miklu betra
að spila með sinni hljómsveit
en öðrum; þau eru daglegir
samstarfsmenn og þekkjast
vel. „Það er miklu meiri
stuðningur og velvild – og
allir á bláþræði. Ég finn það
sjálf þegar ég sit í kons-
ertmeistarasætinu og ein-
hver nákominn okkur að
spila, að það eru allir leggja
sig fram hundrað prósent og
vanda sig sérstaklega mikið.
Það er eins og ferming-
arveisla – allir að reyna að
láta einleikaranum líða sem
best.“
Önnur verk á efnisskránni
í kvöld eru Ricercare úr
Tónafórninni eftir Jóhann
Sebastian Bach og Píanó-
konsert í g-moll eftir Jó-
hannes Brahms í hljómsveit-
argerð Arnolds Schönbergs.
Hljómsveitarstjóri á tónleik-
unum verður Rumon
Gamba.
um konsertinn komst ég að
því að það var margt í gangi
þegar Berg var að semja.
Það var fiðluleikarinn Louis
Krasner sem bað Berg að
semja þenann konsert. Berg
var byrjaður á honum en
það var eins og hann vantaði
innblástur. Hann kom svo
með andláti stúlku sem var
honum kær.“ Stúlkan sem
Sigrún nefnir hét Manon
Gropius og var dóttir Ölmu
Mahler sem hafði verið gift
tónskáldinu Gustav Mahler,
og arkitektsins fræga Walt-
ers Gropiusar. Þau voru
vinafólk Bergs. Manon var
aðeins 18 ára þegar löm-
unarveiki dró hana til dauða
og konsertinn var saminn „í
minningu engils,“ eins og
Berg skrifaði í tileinkunn-
inni.
„Berg spurði Ölmu strax
hvort hann mætti ekki til-
einka stúlkunni konsertinn.
Dauðinn er mjög áþreif-
anlegur í verkinu, ástin og
sorgin, en líka mikil barátta.
Undir lokin færist friðurinn
yfir tónlistina og það er
mjög greinilegt og áhrifa-
mikið.“
Sigrún er sem kunnugt er
annar tveggja konsertmeist-
ara Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands ásamt Guðnýju Guð-
mundsdóttur. Hún segir það
mikla gleði að fá að standa
upp úr konsertmeistarasæt-
inu til að spila með hljóm-
sveitinni sinni. „Þetta er æð-
islega gaman. Ég er
rosalega heppin manneskja,
ekki síst fyrir að fá tækifæri
til að spila þennan konsert.
Í minningu engils
Sigrún Eðvaldsdóttir leikur einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Fiðlukons-
ert eftir Alban Berg Hún segir að í honum búi fegurð sem láti engan ósnortinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigrún Eðvaldsdóttir Hefur verið á kafi í konsertinum.
verður til bráðabirgða með aðsetur í
Aðalstræti 10, er að standa fyrir
kynningu á íslenskri hönnun og arki-
tektúr hér heima og erlendis, skipu-
leggja sýningar og ráðstefnur, bjóða
upp á ráðgjöf fyrir hönnuði og fyr-
irtæki og leiða fagmenntaða hönnuði
og fyrirtæki saman í nýsköpunar-
verkefnum. Hönnunarmiðstöðin á
einnig að stuðla að aukinni rann-
sóknarvinnu á sviði hönnunar í sam-
vinnu við íslenskar menntastofnanir
og koma á samskiptum við hlið-
stæðar miðstöðvar erlendis.
„Hönnunarmiðstöðvar eru til í öll-
um löndum sem við viljum bera okk-
ur saman við,“ segir Gunnar Hilm-
HÖNNUNARMIÐSTÖÐ Íslands er
að líta dagsins ljós. Á föstudag munu
ráðherrar iðnaðar- og menntamála
undirrita þjónustusamning þar að
lútandi, ásamt fulltrúum fagfélag-
anna sem í dag mynda Samtök hönn-
uða – Form-Ísland. Samningurinn
tryggir grundvöll að rekstri mið-
stöðvarinnar næstu þrjú árin. Hönn-
unarmiðstöðin er af forsvars-
mönnum þeirra níu fagfélaga
hönnuða og arkitekta sem að henni
standa sögð mikilvægt skref í þróun
hönnunarmála og verði hún vonandi
lyftistöng fyrir hönnun og arkitekt-
úr hér á landi.
Hlutverk miðstöðvarinnar, sem
arsson, formaður Fatahönnunar-
félags Íslands, sem fer fyrir
undirbúninghópnum. „Þarna verða
til reynsla og þekking. Hönn-
unarfélögin standa að þessu sjálf,
með tilstyrk ráðuneytanna, og nú er
það í höndum okkar að láta þetta
takast. Mér finnst mikill sómi að
þessu frá ríkinu og gott tækifæri
sem við hönnuðir fáum; nú er boltinn
hjá okkur. Það er ofboðslegur ein-
hugur, samstaða og kraftur innan
hönnunarsamfélagsins.“
Í kvöld klukkan 20.00 verður op-
inn fundur Hönnunarmiðstöðvar Ís-
lands í Hafnarhúsinu, þar sem mið-
stöðin verður kynnt.
Einhugur og samstaða um
nýja Hönnunarmiðstöð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samstiga Níu fagfélög hönnuða og arkitekta, þar á meðal fatahönnuðir,
gullsmiðir og iðnhönnuðir, standa að Hönnunarmiðstöð Íslands.