Morgunblaðið - 06.03.2008, Side 16

Morgunblaðið - 06.03.2008, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI FULLTRÚAR minnihlutaflokkanna í bæjar- stjórn Akureyrar eru ekki hrifnir af þriggja ára áætlun meirihlutans sem afgreidd var í bæj- arstjórn í fyrradag eftir seinni umræðu. Oddviti Vinstri grænna segir áætlunina sjónhverfingu og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins talar um að meirihlutinn stundi „froðusnakk“ og segir fjármálastjórn hans ekki góða. Meirihlutinn sagði, í tilkynningu á þriðjudag- inn í tengslum við bæjarstjórnarfundinn, að fjárhagsstaða Akureyrarbæjar væri traust „og þrátt fyrir miklar framkvæmdir aukast skuldir A- og B-hluta lítið á tímabilinu en verða þó nokkuð lægri á hvern íbúa árið 2011 en var í árs- lok 2006,“ sagði þar. Hvorki framsóknarmaðurinn Jóhannes Bjarnason né Baldvin H. Sigurðsson, oddviti VG, eru á sömu skoðun og meirihlutinn og Jó- hannes gagnrýnir einmitt að framkvæma eigi mjög mikið á þessu ári og því næsta en draga síðan verulega úr næstu tvö ár þar á eftir. „Sjónhverfing“ Þetta er ekki góð fjármálastjórn í sveitarfé- lagi. Það á framkvæma gífurlega mikið næstu tvö ár, m.a. fyrir mikið lánsfé, og svo á jafna framkvæmdirnar út næstu tvö ár á eftir. Því er haldið fram að eftir að þessum miklu fram- kvæmdum ljúki verði ekkert mjög aðkallandi en allir vita að raunveruleikinn er ekki þannig. Næsta bæjarstjórn, sem þarf að trappa þetta niður, verður því sett í erfiða aðstöðu því alltaf er mikið þrýst á framkvæmdir,“ sagði Jóhannes í samtali við Morgunblaðið. „Eins og áður hefur fram komið hjá mér er þessi áætlun sjónhverfing,“ segir Baldvin. Hann segir að á þessu ári verði umtalsverðar launahækkanir hjá starfsmönnum bæjarins, „sem betur fer“ og einnig hjá kennurum en ekki sé ráð fyrir því gert í fjárhagsáætlun bæjarins. Þá segist hann telja það fjármagn sem ætlað er til uppbyggingar á Þórssvæðinu um það bil helmingi of lítið „og einnig held ég að [menning- arhúsið] Hof komi til með að kosta mun meira þegar að frágangi kemur.“ Framkvæmdir á Þórssvæðinu sem Baldvin nefnir eru m.a. vegna uppbyggingar fyrir Landsmóti Ungmennafélags Íslands 2009. „Þá er ekki gert ráð fyrir um 6% verðbólgu á árinu þegar kemur að venjubundnum skyldu- framkvæmdum og flestar tölur í fjárhagsáætl- uninni eru of lágar. Til að ná endum saman í ár þurfti að nota peninga sem fengust fyrir hlut Akureyringa í Landsvirkjun en á næstu árum verða þeir ekki til taks.“ Baldvin segir að bærinn þurfi að taka einn milljarð að láni í ár og tvo milljarða næsta ár vegna framkvæmda. Það kunni ekki góðri lukku að stýra. Oddviti VG nefnir einnig ýmsar lægri tölur: „Stjórnsýslan þarf að gæta þess að ekki komi til sífelldra sekta og bóta fyrir stjórnsýslumistök sem bæjarbúar eru orðnir þeyttir á. Það er þó ekki allt alslæmt í þessari áætlun, t.d. lækka biðlaun úr 24 milljónum í 6,5 milljónir.“ Baldvin segir einnig að ef samdráttur verður í byggingariðnaði og atvinnulífi „verðum við að draga úr fjárfestingum og einbeita okkur að því að halda sjó en sá sparnaður má ekki koma í veg fyrir umhirðu bæjarins okkar sem mikið hefur vantað á síðustu ár“. Jóhannes sat í meirihluta með Sjálfstæðisflokknum á síðasta kjörtímabili. Hann segist skynja að Kristján Þór Júlíusson, fyrrverandi bæjarstjóri og núverandi forseti bæjarstjórnar, sé ekki sáttur við það „fjárfest- ingafyllirí“ sem standi yfir. Lántökur eins og nú séu framundan hafi ekki verið stundaðar vegna framkvæmda þau átta ár sem hann var bæj- arstjóri. „Vinnubrögðin eru gjörólík. Þá var fram- kvæmt fyrir peninga sem voru til.“ Sögulegt lágmark Jóhannes gagnrýnir hve litlu eigi að verja til félagsmála. „Það er ekki hægt að segja að sér- stök áhersla sé á þann málaflokk hjá þessum meirihluta. Upphæð til nýframkvæmda á Ak- ureyri er í sögulegu lágmarki en meirihlutinn nýtur góðs af starfi fyrri bæjarstjórnar sem reif upp þennan málaflokk.“ Jóhannes tekur svo til orða að þegar steypan sé sett í forgang eins og nú sé öðru slegið á frest. „Það er mikið framkvæmt en fjármagn til annarra hluta eins og t.d. til innra starfs skóla er ekkert. Stórar yfirlýsingar í þeim málum fyr- ir kosningar, sérstaklega hjá Samfylkingunni, voru orðin tóm.“ Framsóknarflokkurinn vildi á sínum tíma byggja gamla íþróttavöllinn í miðbænum upp en núverandi meirihluti ákvað að leggja völlinn niður og byggja þess í stað keppnisvelli bæði hjá KA og Þór. „Ég er sífellt að verða ósáttari við það að byggja eigi upp tvo keppnisvelli úti í hverfunum og held að þegar upp verður staðið muni menn sjá að kostnaðurinn við það verður mjög mikill. Og auðvitað verður dýrara að reka íþróttasvæðin; formaður bæjarráðs sagði á bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn að ódýrara yrði að reka tvö íþróttasvæði en þrjú en það er algjör útúrsnúningur.“ Jóhannes Bjarnason hefur gagnrýnt og gerir enn breytingar á nefndaskipan sem núverandi meirihluti gerði eftir síðustu kosningar. „Nú eru að verða liðin tvö ár af þessu kjörtímabili og í hverri nefndinni af annarri er stefnumótun loks að ljúka. Í stórum nefndum er enn verið að skilgreina hvert hlutverk þeirra eigi að vera. Ég vil að fólk hætti þessu froðusnakki og fari að vinna. Það hefði verið miklu gæfulegra að halda nefndakerfinu óbreyttu eins og minn flokkur vildi og halda áfram því driftamikla starfi sem var hér í bænum á síðasta kjörtíma- bili.“ „Sjónhverfing“ og „froðusnakk“? Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Mikið verk Unnið er af krafti um þessar mundir á félagssvæði íþróttafélagsins Þórs í Gler- árhverfi enda mikið verk framundan þar, fyrir Landsmót Ungmennafélags Íslands 2009. Í HNOTSKURN »Velta sveitarfélagsins og fyrirtækjaþess er um 14 milljarðar króna á ári 2009 til 2011. Mikil uppbygging í stoðþjón- ustu undanfarin ár hefur leitt til vaxandi rekstrarútgjalda en tekjuþróun brúar bilið að mestu leyti, segir meirihlutinn. Minnihlutinn í bæjar- stjórn ósáttur við þriggja ára áætlunina Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is „ÞAÐ verður ánægjulegt að fagna upprisu frelsarans í endurgerðri kirkju á páskadagsmorgun og einnig að sækja guðsþjónustur bænadag- anna í kirkju sem er komin í jafn glæsilegan búning og Hafnarfjarð- arkirkja,“ sagði séra Gunnþór Inga- son sóknarprestur. Nú er verið að leggja lokahönd á gagngerar end- urbætur á kirkjunni sem hófust í fyrrasumar. Kirkjan verður tekin aftur í notkun við fermingarmessur á pálmasunnudag, 16. mars. Séra Gunnþór sóknarprestur seg- ir að Hafnarfjarðarkirkja hafi lengi verið talin með fegurstu kirkjum landsins. Þær endurbætur sem nú hafi verið gerðar muni breyta ásýnd kirkjunnar en þó þannig að hún haldi helstu auðkennum sínum og verði enn betri og fegurri helgidóm- ur. Meðal annars er búið að leggja að nýju grunnplötu og hita- og raflagn- ir. Gólfefni voru endurnýjuð og var lagður rauðbrúnn Ölandssteinn á gangvegi og furuborð undir bekki. Kirkjubekkirnir voru bólstraðir með áklæði í dökkum mosagrænum lit og settar í þá breiðari setur. Altarið sem var grænviðarmálað er nú rauð- og svargrænmarmorerað og prédik- unarstóll og skírnarfontur í sömu lit- um. Myndskreytingar í kirkjunni, sem voru mjög illa farnar, hafa verið lagfærðar og litir skerptir. Einnig voru gerðar endurbætur á kirkju- turni og klukkuporti. Ístak var aðalverktaki en Verk- þjónusta Kristjáns annaðist verk- efnastjórnun. Þorsteinn Gunn- arsson var arkitekt og tók bæði mið af upprunalegu litavali í kirkjunni og litavali frá 1933 þegar listahjónin Gréta og Jón Björnsson mynd- skreyttu og máluðu kirkjuna. Gamla pípuorgelið hefur verið selt til Póllands og er verið að smíða tvö ný pípuorgel í Þýskalandi fyrir kirkjuna. Nýtt 25 radda orgel í þýsk- rómantískum stíl verður sett upp á orgelloftinu næsta haust og minna ellefu radda orgel í barokkstíl verð- ur sett upp innst í kirkjuskipinu að ári liðnu. Hafnarfjarðarkirkja í nýjum búningi Endurnýjun Skipt var m.a. um allar lagnir og gólfefni og allt málað. Litir Breytt var litavali í kirkjunni. Verklok Aðalverktaki við framkvæmdina var Ístak. F.v.: Björn Guðmunds- son, Gunnþór Ingason sóknarprestur, Ólafur Jóhannsson, Pétur Carlsson og Þórhallur Heimisson prestur. Morgunblaðið/Frikki Lokahönd Vinna við endurbætur á Hafnarfjarðarkirkju hófst í fyrrasumar og lýkur fyrir næstu helgi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.