Morgunblaðið - 06.03.2008, Side 18
|fimmtudagur|6. 3. 2008| mbl.is
maður að hoppa í sturtu
fyrir 17. júní og grípa
samloku á hlaupum fyr-
ir Menningarnótt. Svo
er komin þorláksmessa
áður en maður veit af
og það tekur því varla
að hreyfa bílinn af
stæðinu niðrí miðbæ
eftir menningarnóttina.
Víkverji er meira en
lítið pirraður á flug-
eldalátum sem nánast
eiga sér stað í viku
hverri allt árið um
kring. Hvað er málið?
Má ekkert fyrirtæki
eiga afmæli án þess að
sprengja fjörutíu
bombur í tilefni dagsins? Hverjir eru
annars að sprengja svona mikið?
Íþróttafélög? Einstaklingar sem áttu
afganga frá áramótum? Allt um það,
sprengjulæti eru gífurlega algeng.
Víkverji býr í nágrenni við öldrunar-
heimili og hann hugsar til þess með
nettum hryllingi hvað hrumu fólki
hlýtur að vera það mikil áþján að lifa
við sífelldar drunur. Jafnvel Víkverja
sem er ungur og sprækur hefur oft
brugðið við fyrsta hvellinn í komandi
syrpu og finnur þá jafnan til með ná-
grönnum sínum handan götunnar.
Víkverji vill biðja þá sem eru að
sprengja svona í tíma og ótíma að
leiða hugann að því að svona athæfi
er íþyngjandi fyrir ófáar langömmur
og langafa að ekki sé talað um fólk
sem er að reyna svæfa börn. Að auki
er þetta óþolandi fyrir flesta aðra.
x x x
Víkverji fékk tryggingaráðgjafa íheimsókn í vikunni og var feg-
inn að fá athugasemdir hans og hug-
myndir að breyttum trygginga-
pakka. Í máli hans kom fram að
fjölmargt fólk virðist ekki leiða hug-
ann að því hvað það borgar mikið í
tryggingar á hverju ári. Víkverji er
með 111 þúsund króna iðgjöld og
hefur kvabbað á sínu tryggingafélagi
þegar honum finnst eitthvað vera
orðið hátt. Þá er gert nýtt tilboð og
einhver afsláttur fenginn. Trygg-
ingaráðgjafinn sagði Víkverji að
margir væru ekki að sýna svona að-
hald og því væru þeir að borga býsna
mikið að óþörfu. Víkverji mælir með
því að fólk þiggi heimsóknir svona
tryggingaráðgjafa ef það fær boð. Í
tilfelli Víkverja var það Tryggingar
og ráðgjöf sem hringdi og bauð upp á
þjónustuna.
x x x
Svakalega eru margar bíómyndir íkvikmyndahúsunum núna sem
byggðar eru á þekktum bókmennta-
verkum. Into the Wild, Friðþæging,
Flugdrekahlauparinn og eitthvað
fleira. Víkverji hefur séð Into the
Wild og fannst frábær. Hann ætlar
hins vegar að lesa Friðþægingu áður
en hann sér þá mynd.
Víkverji er ekki fráþví að með hækk-
andi sól sé hann farinn
að vakna óvenju oft á
undan vekjaraklukk-
unni. Þetta er að sjálf-
sögðu góðs viti og ekki
er verra að vakna
ávallt í dagsbirtu. Vík-
verji tekur reyndar
fram að honum hefur
aldrei þótt úr hófi erfitt
að vakna á myrkum
skammdeigismorgnum
en dagmál snemma
vors með allri sinni
birtu hafa samt vinn-
inginn. Það er annars
makalaust hvað tíminn
flýgur áfram. Víkverja finnst eins og
hann hafi verið að kaupa jólafjafir á
Laugaveginum á þorláksmessu um
síðustu helgi. En svona er þetta
bara. Páskarnir eru á næsta leiti,
fermingar og skíðaferðir. Síðan nær
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
daglegtlíf
Ferðir íslenskra kylfinga tilútlanda til þess að leikagolf hafa aukist gífurlegasíðustu árin. Menn hafa
aðallega horft til suðurhluta Evrópu
og Bandaríkjanna í þeim efnum, sér-
staklega á vorin og á haustin þegar
farið er að síga á síðari hluta tíma-
bilsins hér á landi. Menn nota þessar
ferðir til að lengja tímabilið í annan
endann – eða báða.
Kanada er áhugaverður kostur
fyrir Íslendinga sem vilja leika golf á
góðum völlum, hvort heldur er að
vori, hausti eða sumri. Flugleiðir
fljúga þrisvar í viku til Halifax í
sumar og ekki er nema rúmlega
fjögurra tíma flug þangað.
Í Nova Scotia eru fjölmargir fal-
legir og krefjandi golfvellir og í um
klukkustundar akstur frá Halifax
má komast á eina tólf velli sem eru
hver öðrum betri.
Á haustdögum gafst undirrituðum
færi á að leika golf á svæðinu í þrjá
daga og voru fjórir vellir leiknir. Að
auki var einn völlur til viðbótar skoð-
aður, en því miður gafst ekki tími til
að spila hann, sem hefði þó verið
mjög áhugavert því hann liggur utan
í hæð, eða stórum hól þar sem leikið
er kringum hólinn. Völlurinn, sem
heitir Bluenose Golf Club, stendur
gegnt bænum Lunenburg en einu
sléttu fletirnir á honum eru teigarnir
og flatirnar. Allt annað er í miklum
halla enda segja forráðamenn vall-
arins í gamansömum tón að ekki sé
verra að vera með annan fótinn tölu-
vert lengri til að spila hann. Útsýnið
þarna uppi á hæðinni er frábært og
völlurinn mjög sérstakur en bráð-
skemmtilegur að því er virðist. Frá
Halifax og á þennan völl er um 30
mínútna akstur.
Engar kríur að angra
Glen Arbour hét fyrsti völlurinn
sem leikinn var og tók aðeins nokkr-
ar mínútur að keyra þangað frá
miðbæ Halifax. Völlurinn er mjög
fínn en nokkuð erfiður, sérstaklega
fyrri níu holurnar og því gott að hita
vel upp áður en lagt er í hann. Tals-
vert er af vatni á þessum velli og
mikilvægt að staðsetja sig vel ef ekki
á illa að fara. Þetta uppgötvaði und-
irritaður ekki fyrr en á síðari níu
Fínir golfvellir í Kanada
Morgunblaðið/Skúli Unnar Sveinsson
Fallegt Ein af mörgum fallegum golfholum á Glen Arbour-vellinum.
Perla Önnur holan á Digby Pines er glæsileg par 3 hola.
Segja forráðamenn vall-
arins í gamansömum tón
að ekki sé verra að vera
með annan fótinn töluvert
lengri til að spila hann.
Það er alltaf gaman fyr-
ir kylfinga að prófa nýja
velli sem þeir hafa ekki
leikið áður. Ekki spillir
ef þeir eru skemmti-
legir, hæfilega krefjandi
og fallegir. Skúli Unnar
Sveinsson prófaði í
haust nokkra þannig í
og við Halifax í Nova
Scotia í Kanada og er
sannfærður um að ís-
lenskir kylfingar myndu
njóta þess að prófa þá.
www.icelandairgolfers.is
www.golfnovascotia.com
www.glenarbour.com
www.chestergolfclub.ca
www.whitepoint.com
www.signatureresorts.com
holunum og þá gekk golfið miklum
mun betur en á fyrri níu sem voru
vægast sagt hræðilegar. Verður að
bíða betri tíma að kljást við þær aft-
ur – en þær eru vel þess virði og
kylfingar ættu ekki að láta hann
fram hjá sér fara séu þeir þarna á
ferð. Völlurinn er 6.120 metrar af
klúbbteigum og er par 72. Margar
brautir á vellinum er mjög fallegar
og allar eru þær skemmtilegar.
Næsta morgun var farið á Chest-
er-völlinn en þangað tekur um 20
mínútur að keyra. Skemmtilegur
völlur þar sem ekki er verra að vera
með löng upphafshögg. Völlurinn er
úti á tanga, nokkuð um vatn og hell-
ingur af sjó allt í kring, ekki ósvipað
og úti á Seltjarnarnesi nema engar
kríur eru að angra mann. Völlurinn
er í fínu standi, flatirnar góðar og
ekki mikið af trjám, fyrir utan nokk-
ur risavaxin sem spilla þó ekki fyrir
leiknum. Þetta er fínn völlur þó ekki
sé hann eins flottur og Glen Arbour,
5.852 metrar af klúbbteigum og par
70.
Mikil gestrisni heimamanna
Leiðin lá einnig á White Point-
völlinn sem er níu holur og nokkuð
skemmtilegur strandvöllur. Völl-
urinn er hluti af frístundabyggð við
Atlantshafið. Þetta er skemmtilegur
staður þar sem hægt er að fara á
ströndina yfir sumartímann.
Síðasti völlurinn sem leikinn var
heitir Digby Pines og er skammt frá
glæsilegu heilsuhóteli og mjög
skemmtilegur – ekkert síðri en Glen
Arbour sem áður er getið. Hann er
5.665 metra langur, par 71, mjög vel
hirtur og í alla staði hinn glæsileg-
asti. Gistingin á Digby Pines Golf
Resort and Spa er heldur ekki í lak-
ari kantinum og maturinn til mik-
illar fyrirmyndar.
Menn verða fljótt varir við mikla
gestrisni heimamanna þegar Kan-
ada er sótt heim, ekki ósvipað og
menn upplifa þegar þeir heimsækja
Íra og Skota til að leika golf. Að auki
er Halifax bæði falleg og skemmti-
leg svo enginn verður svikinn af því
að koma þangað.