Morgunblaðið - 06.03.2008, Qupperneq 19
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 19
Fyrsti keilusalurinn á Akureyri var
opnaður í gær í glerhúsinu í inn-
bænum, þar sem Blómaval var
lengi. Í Keilunni, eins og staðurinn
er kallaður, eru átta brautir.
Eigendur Keilunnar og veitingastað-
arins Kaffi Jónsson eru Dagný Ing-
ólfsdóttir og Þorgeir Jónsson. Opið
verður daglega kl. 11-23.30.
„Við höfum fundið fyrir miklum
áhuga að undanförnu og mikið verið
hringt hingað og pantað,“ sagði Þor-
geir þegar hann sýndi blaðamönn-
um staðinn. Keila er vinsæl íþrótt
víða um heim, margir stunda hana
hérlendis og keppt er á Íslandsmóti
þannig að tilkoma Keilunnar á Ak-
ureyri er viðbót við norðlenskt
íþróttalíf.
„Keila er íþrótt sem allir geta spil-
að, allt frá börnum upp í harðfull-
orðið fólk þannig að hér er komin
afþreying fyrir börn og fullorðna,
íbúa á svæðinu og gesti. Oft er talað
um að aukna afþreyingu vanti á
svæðið fyrir ferðafólk og Keilan
verður örugglega mörgum ferða-
hópum kærkomin afþreying og
skemmtun í heimsókn til bæjarins,“
sagði Þorgeir.
Full ástæða er til að segja stuttlega
frá fyrsta heimsmeistaramóti
starfsmanna fjölmiðla með aðsetur
á Akureyri (!), sem haldið var í Keil-
unni í gær. Þær mættust fulltrúar
Morgunblaðsins, Stöðvar 2, RÚV og
Vikudags. Sumum fannst leika best
hálffimmtugur, unglegur maður í
grænni peysu. Ótækt er að nefna
hann á nafn hér en mynd af viðkom-
andi ku prýða þennan pistil…
Keppendur á þessu fyrsta heims-
meistaramóti starfsmanna fjölmiðla
með aðsetur á Akureyri voru fjórir.
Tveir voru tímabundnir og tóku lít-
inn eða engan þátt, þá voru eftir
tveir og stutt könnun leiddi í ljós að
50% þeirra töldu fulltrúa Morg-
unblaðsins hafa sigrað en 50% að
fréttamaður Stöðvar 2 hefði haft
betur …
Ofsagt var í blaðinu í gær að bæj-
arstjórn Akureyrar hefði falið bæj-
arstjóra að ræða við ríkisvaldið um
möguleika á að byggja og reka rétt-
argeðdeild á Akureyri. Hið rétta er
að tillögu VG þar að lútandi var vís-
að til skoðunar í vinnuhópi sem
stofnað var til á fundinum. Það leið-
réttist hér með.
Ástríður Stefánsdóttir flytur fyr-
irlesturinn Mynd mannsins í augum
læknisfræðinnar á Amtsbókasafn-
inu í dag kl. 17. Það eru Félag
áhugafólks um heimspeki, Amts-
bókasafnið, Háskólinn á Akureyri
og Akureyrarstofa sem standa að
samkomunni, sem og fleiri ámóta á
næstu viku.
Í erindi sínu í dag leitar Ástríður í
smiðju heimspekingsins og trúfræð-
ingsins Aberts Jonsens en hann
rekur rætur læknisfræðinnar ann-
ars vegar til kristinna hugmynda
sem birtast í sögunni um miskunn-
sama Samverjann og hins vegar til
grískra hugmynda sem kenndar eru
við Hippocrates. Starf lækna enn
þann dag í dag er mótað af þeirri
gömlu hefð sem sprettur af þessum
rótum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Keilan Dagný Ingólfsdóttir og Þorgeir Jónsson eru eigendur Keilunnar.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Sveinn Indriðason skrifarVísnahorninu: „Í tilefni af
umræðu um minnkandi auð og
harðindi á fjármálamörkuðum er
rétt að rifja upp ágæta vísu eftir
Einar Andrésson í Bólu:
Auðs þótt beinan akir veg
ævin treinist meðan,
þú flytur á einum eins og ég
allra seinast héðan.“
Hannes Pétursson hefur kunnað
vísu eftir Stein Steinarr, sem birtist
nýlega í Vísnahorninu, í um
fimmtíu ár. Hann segir Stein hafa
ort vísuna af stríðni, eins og hann
átti til, um einn góðkunningja sinn.
Á þeim tíma bjó Steinn í
Fossvoginum, sem var nánast
óbyggður, tók vagninn þaðan og
tuldraði á leið í bæinn að gamni
sínu. Þetta var einhverskonar
hugbót fyrir hann. Og vísan er rétt
svona:
Lítinn hlaut ég yndisarð
á akri mennta og lista,
sáðfall mér í svefni varð
á sumardaginn fyrsta.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir:
„Oft þá ég dansa við dáta
er djarfastir finna mig láta
sitt karlmennskufjör
verð ég kynlega ör,“
sagði Arnljótur, uppnefndur hnáta.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af Steini
og hnátu
heimur heillandi hluta og hugmynda
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300 - www.gardheimar.is
VORLAUKARNIR KOMNIR!
FRÆÚRVALIÐ ER
Í GARÐHEIMUM
Um að gera að drífa
sig meðan úrvalið
er mest!
GUGGURÁÐ:
Calendula ‘Touch of Buff’Calendula ‘Neon’
Chrysanthemum
‘Crazy Daisy’
Diascia