Morgunblaðið - 06.03.2008, Page 22

Morgunblaðið - 06.03.2008, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞJÓÐIN Á EYÐSLUFYLLIRÍI Ekki er endilega víst að áhrifinaf niðursveiflu í íslenskuefnahagslífi, lánsfjárkreppu og gífurlega háu vaxtastigi séu kom- in fram af fullum þunga, enn sem komið er. Þetta má m.a. lesa út úr frétta- skýringu Egils Ólafssonar á miðopnu Morgunblaðsins í gær, þar sem greint er frá því að einkaneysla hef- ur aukist síðustu misserin, þrátt fyr- ir lækkandi verð á hlutabréfum, lækkandi gengi íslensku krónunnar, hátt vaxtastig og samdrátt í fast- eignaviðskiptum og það er haft eftir Haraldi Þór Stefánssyni, fram- kvæmdastjóra hjá Toyota, að al- menningur upplifi ekki á eigin skinni að það sé kreppa á Íslandi. Þar kemur jafnframt fram að hraður vöxtur einkaneyslu hafi verið eitt af því sem drifið hefur áfram hagvöxt hér á landi síðustu árin. Í janúar á þessu ári jókst innflutning- ur á almennum neysluvarningi um 18,4% á föstu gengi í samanburði við janúar 2007 og innflutningur á heim- ilistækjum jókst enn meira eða um 26,5% – ríflega fjórðung, sem er gíf- urleg aukning á milli ára. Bílar seljast sem aldrei fyrr – aukningin á fyrstu tveimur mánuðum ársins er 43%, miðað við sama tíma í fyrra, og sömuleiðis virðast sólar- landaferðir svo gott sem uppseldar. Auðvitað væru upplýsingar sem þessar fagnaðarefni, ef raunveruleg kaupmáttaraukning væri drifkraftur þessarar auknu einkaneyslu, en því er því miður ekki til að dreifa. Sláandi upplýsingar um skulda- aukningu heimilanna í landinu eru staðfesting á því. Skuldir heimilanna námu 868 milljörðum króna í lok jan- úar og höfðu aukist um 38% á einu ári og skuldir heimilanna í erlendri mynt jukust um 119% á einu ári og voru 150 milljarðar króna í jan- úarlok. Íslensk heimili virðast því í stór- auknum mæli vera að flýja hátt vaxtastig hér á landi með því að fjár- magna aukna neyslu sína með lán- töku í erlendri mynt, á miklum mun lægri vöxtum en eru hér á landi. En það virðist gleymast í þessu samhengi, að þar með eru heimilin í landinu að taka gengisáhættu, sem áður en varir, gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir þau, ef gengi krón- unnar sígur mikið eða fellur. Samkvæmt ofangreindri frétta- skýringu Egils Ólafssonar virðist sem þjóðin sé á einhverju allsherjar eyðslufylliríi, þar sem drifkrafturinn er að eyða fyrst, en afla svo. Auðvitað hafa einstaklingar sem gerðu samninga um kaup á nýjum bílum síðasta haust, til afhendingar í ársbyrjun þessa árs, eða pöntuðu þá ferðir til útlanda á þessu ári, ekki séð fyrir hver þróun efnahags- og vaxta- mála yrði á komandi mánuðum og misserum. Því standa menn frammi fyrir gerðum hlut og verða, hvort sem þeim líkar betur eða verr, að efna gerða samninga. En er ekki mál til komið að menn fari að ranka við sér, halda að sér höndum og rifja upp gamla, góða orðtakið: Græddur er geymdur eyrir? GREIÐSLUR Í STAÐ LEIKSKÓLAPLÁSS Leikskólar eru samkvæmt nám-skrá fyrsta skólastigið á Íslandi. Í aðalnámskrá fyrir leikskóla er kveðið á um að á námsviði þeirra sé meðal annars hreyfing, myndsköpun, málrækt, tónlist, náttúra og umhverfi og menning og samfélag. Þetta eru mjög fjölbreytt markmið og gefandi. Leikskólar eru því ekki geymslustað- ir fyrir börn, heldur undirbúningur fyrir áframhaldandi skólagöngu og ugglaust má færa að því rök að börn sem koma úr leikskóla séu að ein- hverju leyti betur búin undir að hefja nám í grunnskóla en þau börn sem ekki hafa verið í leikskóla. Leikskólar eru hins vegar ekki skylda og auðvit- að geta foreldrar kosið að hafa börn sín heima og sinna sjálfir þessum undirbúningi þeirra undir grunn- skóla. Hér er lykilatriði hins vegar að foreldrar geti kosið. Í Reykjavík bíða um þessar mundir 1.200 börn á listum eftir plássi á leik- skóla. Í fyrradag lagði meirihluti F-lista og Sjálfstæðisflokks fram breyting- artillögur við frumvarp að þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkur þar sem með- al annars koma fram hygmyndir um að taka upp greiðslur til þeirra for- eldra sem bíða eftir niðurgreiddum plássum á leikskóla. Hugmyndin um þessar greiðslur er því ekki ætluð til þess að gera foreldrum, sem vilja hafa börn sín heima, auðveldara fyr- ir. Henni er ætlað að stoppa upp í gat sem gerir að verkum að borgin getur ekki veitt þessa þjónustu sem kveðið er á um í námskrá. Nokkuð ljóst er að fái foreldrar ekki leikskólapláss og þurfi að hafa börnin heima mun það fremur bitna á körlum en konum. Þarf í þeim efnum ekki að telja annað til en þá einföldu ástæðu að í íslensku samfélagi ríkir ekki jafnrétti í launakjörum. Hér er því verið að ýta undir að tekið verði skref aftur á bak. Eins og Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar- innar í borgarstjórn, orðaði það eru foreldrar ungra barna árið 2008 „ekki að bíða eftir skaðabótum, heldur þjónustu. Þau eru að bíða eftir þjón- ustu leikskóla eða dagmæðra“. Ástandið í leikskólamálum í höfuð- borginni er óviðunandi. Ekki er hægt að skella allri skuldinni af því á nú- verandi meirihluta en það er hans að leysa úr þeim vanda sem nú er uppi. Ólafur F. Magnússon borgarstjóri talaði, þegar hann mælti fyrir tillög- unum, um að nýir leikskólar yrðu reistir í takt við aðra uppbyggingu, svo sem í nýjum hverfum og með við- byggingum við eldri skóla. Einhvers staðar hefur sá taktur tapast þótt ekki ætti að vera flókið að átta sig á íbúaþróun í höfuðborginni. 1.200 börn á biðlista er langt utan skekkju- marka. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ ÉG er þakklát fyrir að þau meta starfið svona og er glöð yfir að hafa getað aðstoðað þau í verk- efninu. Ég er einnig bæði stolt og glöð yfir niðurstöðunni,“ sagði Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri Norð- lingaskóla, um skýrslu MPA- nemanna við HÍ. Hún sagði góðan árangur ekki sér einni að þakka heldur frábærum hópi starfs- manna við Norðlingaskóla. Sif kvaðst telja mjög mikilvægt að gerð var tilraun í Norðlinga- skóla með bókun 5 í kjarasamn- ingi Kennarasambands Íslands og Launanefndar sveitarfélaga. Í haust byrjaði Sjálandsskóli í Garðabæ einnig að starfa eftir bókun 5. Sif segir starfsfólk Norð- lingaskóla á einu máli um að vinnufyrirkomulagið þar, þ.e. föst viðvera, sé betra en vinnu- tímaskiptingin sem yfirleitt ríkir í grunnskólum. Niðurstaða vinnu- staðagreiningar í grunnskólum Reykjavíkur frá í fyrravor sýndi mikla starfsánægju í Norðlinga- isvinnu og bókun 5 auðvel það. Teymin þurfa að geta irbúið sig sameiginlega og til staðar í skólanum á sam Ég tel að teymisvinna sé f tíðin. Þá er aldrei aðeins e kennari með nemendahóp eru alltaf fleiri til staðar o skapar sveigjanleika og ey fjölbreytni,“ sagði Sif. Sif kvaðst vera „Kenn- arasambandskona“ í hjart til margra ára og hafa set stjórn Kennarasambands lands til margra ára. Hún skilja hvers vegna mótbár upphafi vegna tilraunarin Norðlingaskóla. „Við voru brjótast út úr vinnutímask ingu sem er í kjarasamnin erum með breytilegar stu skrár eftir árstímum. Hér 100% starfi og leysir þau v sem koma upp hverju sinn Sif. „Forysta Kennarasam ins hefur eðli málsins sam staðið dyggan vörð um ke skóla. Þá töldu kennarar þar sig hafa mikinn sveigjanleika í vinnu- tímanum, þótt það væri eini skól- inn í Reykjavík með bundna við- veru kennara. „Hér byggjum við á teym- Kjarasamningar úr takt vi Morgunblaðið/ Jim Smart Skólastjóri Sif Vígþórsdóttir. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Forystuhlutverk Sifjar Vígþórs-dóttur, skólastjóra Norðlingaskólaí Reykjavík, var nýlega greint ogmetið af fjórum meistaranemum í opinberri stjórnsýslu (MPA) við Háskóla Ís- lands. Þeim þótti merkilegt að kynnast þess- um skólastjórnanda sem er á margan hátt að brydda upp á nýjungum í rekstri grunnskóla, hefur tekist að hækka laun starfsmanna veru- lega, getur valið úr starfsfólki og stýrir skóla þar sem bæði foreldrar og kennarar lýsa ánægju sinni með skólastarfið. Verkefnið var liður í námskeiði um forystu- hlutverk stjórnenda í opinberum rekstri sem Margrét S. Björnsdóttir, einn umsjón- armanna MPA-námsins, kennir. Meistaranemarnir fjórir, þau Birna Sigurð- ardóttir, Kristín Geirsdóttir, María Ingibjörg Kristjánsdóttir og Orri Páll Jóhannsson, telja ótvírætt að Sif hafi í starfi sínu sem skóla- stjórnandi tekið að sér forystuhlutverk. Hún hefur tekið upp nýjungar í kennsluháttum og rekstri grunnskólans í Norðlingaholti með góðum árangri. Þetta hefur þó ekki gengið þrautalaust, eins og kemur fram í skýrslu nemendahópsins. Enginn þekkti viðfangsefnið Orri Páll Jóhannsson og Kristín Geirsdóttir sögðu blaðamanni frá skýrslunni um stjórn- andann Sif og einnig frá MPA-náminu við HÍ sem þau stunda bæði með vinnu. Kristín starf- ar hjá Alþingi og er deildarstjóri upplýs- ingaþjónustu þingsins. Hún er með MA-gráðu í bókasafnsfræði og á lokaspretti í MPA- náminu. Orri Páll starfar á umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar og er ný- byrjaður í MPA-námi. Hann er jafnframt að reka smiðshöggið á MA-nám í umhverfis- og náttúrusiðfræði. Þau segja að flestir MPA- nemar stundi námið með vinnu, margir vinna hjá hinu opinbera en námið henti ekki síður fólki úr einkageiranum. Nokkrir nemar koma inn í MPA-námið beint úr grunnnámi í há- skóla. Nemendur koma víða að af landinu, eru á öllum aldri og hafa ólíkan bakgrunn. Allt endurspeglast þetta í fjölbreyttum sjón- armiðum og líflegum umræðum. Orri Páll og Kristín sögðu hópinn hafa get- að valið úr nöfnum nokkurra stjórnenda í op- inberum rekstri, lífs og liðinna, til að nota í til- viksgreiningu um forystu í opinberum rekstri og skoða hvort þar hefðu verið eða væru „rétt- ir einstaklingar á réttum stað“. Það er hvort eiginleikar og hugmyndir forystumannsins féllu saman við samverkafólk og aðstæður. Sum nöfnin þekktu þau vel og önnur síður eða alls ekki. Enginn í vinnuhópnum þekkti til Sifjar Vígþórsdóttur skólastjóra né starfa hennar. Tvö úr hópnum, Orri Páll og María Ingibjörg, fóru í heimsókn til Sifjar í Norð- lingaskóla, ræddu ítarlega við hana og skoð- uðu skólann. Hópurinn las blaðagreinar og skýrslur þar sem fjallað hefur verið um starf Sifjar og Norðlingaskóla. Þau báru nið- urstöður saman við kenningar fræðimanna á sviði opinberrar stjórnsýslu og um forystu, Hallorm nýja sk gerðu þ yrði ge 5 í kjar Launan í tilraun senn, „ öðrum sveitar innan þ kennar stjórna Orri launagr ið að tín verkstj með ne nemarn ínar Er tilraun indasto Með mannav fólk og að valið liðnu h stöður Þekki Skólast miðað o ingarve ir uppb síðastli eru alli að kom segir sí endur s Kris breytingastjórnun og vanda þess að innleiða breytingar sem krefjast nýrra vinnubragða og endurmats á viðhorfum. Stjórnandi með hugsjón Orri Páll sagði að í Sif hefðu þau kynnst stjórnanda sem starfar af hugsjón að skóla- málum. Sif hefði synt gegn straumnum og bryddað upp á mörgum nýjungum bæði í kennsluháttum, skólastarfinu og launamálum starfsmanna. Það er oft haft á orði að Sif boði „fagnaðarerindið“ þegar hún kynnir hug- myndir sínar um skólamál. Sé haldið áfram með líkingar má segja að þau Orri Páll og María Ingibjörg hafi „séð ljósið“ og náð að tendra það í vinnuhópnum. Í niðurstöðu skýrslu hópsins segir m.a.: „Við teljum að Sif hafi tekið að sér forystu- hlutverk sem felst meðal annars í því að fá fólk til að takast á við endurmat og aðlögun á nýj- ungum í kennslu og skipulagi grunnskóla. Hún fylgir eftir hugmyndum um einstaklings- miðað nám, auk þess að hún fær fólk til að tak- ast á við og breyta gamalgrónum hugmyndum um mat á vinnu grunnskólakennara. Hún og þeir sem vinna með henni að verkefninu trúa því að aðferðir þeirra bæti aðstæður nemenda og starfsmanna skólans og stuðli að fram- förum í kennslumálum. Það að geta greitt starfsfólki laun sem eru umtalsvert hærri en annars staðar í skólum, þrátt fyrir að skólinn fái sömu fjárframlög og aðrir skólar, er einnig mikilsverður árangur. Enn fremur sú mikla ásókn sem virðist vera í störf fyrir skólann.“ Norðlingaskóli er einn yngsti grunnskólinn í Reykjavík og nemendur nú um 200 talsins en verða 300-400 þegar skólinn verður fullsetinn. Skólinn starfar í færanlegum skólastofum en nýlega var tekin fyrsta skóflustunga að nýju skólahúsi. Sif var áður kennari og skólastjóri á Meistaranemar í opinberri stjórnsýslu gerðu tilviksgrei Réttur stjórnandi MPA-nemar Kristín Geirsdóttir og Orri Páll Jóhannsso

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.