Morgunblaðið - 06.03.2008, Síða 25

Morgunblaðið - 06.03.2008, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 25 HVAÐ er gott hverfi? Hvað má betur fara í hverfinu mínu? Hvernig er hægt að hlúa betur að íbúunum – stuðla að fegurra, öruggara og blómlegra mannlífi? Reykjavíkurborg biður íbúa í borginni að velta þessum spurn- ingum fyrir sér og koma ábendingu um bætt borgarumhverfi á framfæri undir merkj- um samráðsverkefnisins „1, 2 og Reykjavík“ til 12. apríl nk. Betra borgarumhverfi er sameig- inlegt verkefni borgaryfirvalda og íbúa í borginni. Með þverpólitíska samráðsverkefninu 1, 2 og Reykja- vík vill Reykjavíkurborg sækja í sér- þekkingu íbúa í hverfum borgar- innar um umbætur í viðkomandi hverfi. Markmiðið er ekki aðeins að stuðla að fallegri borg heldur styrkja tengsl borgaryfirvalda og borgarbúa og tengsl íbúa innbyrðis í hverju hverfi. Þannig er ekki aðeins stuðlað að auk- inni samkennd því betri tengsl draga úr félagslegri einangrun og öðrum miður skemmtilegum fylgi- fiskum borgarsam- félagsins. Á vef samráðsins á heimasíðu Reykjavík- urborgar www.reykja- vik.is gefst notendum kostur á að koma á framfæri eigin ábendingum með skýringum og fylgjast með stöðu eigin ábendinga og annarra. Hægt er að færa ábendingar inn á hverf- iskort, skoða yfirlit yfir ábendingar og styðja ábendingar annarra. Jafn- framt munu stýrihópar í hverju hverfi leita fjölbreyttra leiða til að virkja börn, unglinga og fullorðna til að setja fram ábendingar um við- halds- og nýframkvæmdir í hverf- unum. Aldrei áður hefur verið leitað eftir jafn-víðtæku samráði við íbúa borg- arinnar og gert er í samráðsverkefn- inu 1,2 og Reykjavík. Reykjavíkur- borg hvetur borgarbúa til að láta sig nærumhverfi sitt varða með virkri þátttöku í samráðinu í því skyni að stuðla að blómlegra borgarsamfélagi fyrir alla borgarbúa. 1, 2 og Reykjavík – Íbúasam- ráð um hverfauppbyggingu Stuðlum að blómlegra borg- arsamfélagi segir Ólafur F. Magnússon » Á vef samráðsins á heimasíðu Reykja- víkurborgar www.reykjavik.is gefst notendum kostur á að koma á framfæri eigin ábendingum með skýr- ingum. Ólafur F. Magnússon Höfundur er borgarstjóri í Reykjavík. ÉG las athyglisverða grein í Morgunblaðinu 28. febrúar sl. eftir Sigurð Jónsson, fram- kvæmdastjóra SVÞ, Samtaka verslunar og þjónustu. Hann á sér þann draum, eins og segir í greininni, að allir atvinnurekendur stefni að „… algjörri sameiningu í ein sam- tök“, SA, Samtök at- vinnulífsins. Málflutn- ingurinn minnir helst á Martein nokkurn Mosdal sem talar m.a. fyrir einu ríkisútvarpi og einni ríkisverslun. Sigurður fer þarna gegn flestra áliti, sem vilja frekar fjölbreytni og sveigjanleika í stað fábreytni og miðstýringar. Þvert á þróun Þær skoðanir sem Sigurður lýsir hér varðandi hagsmunafélög at- vinnulífsins eru algjörlega í and- stöðu við þróunina í kringum okkur, þar sem stefnan hefur verð í átt til sérgreinafélaga frekar en blandaðra hagsmunafélaga atvinnulífsins. Er skemmst að minnast baráttu versl- unarráðanna til að öðlast við- urkenningu ESB sem (Social Part- ner) umsagnaraðili um lagafrumvörp og gerðir, en var hafnað vegna þess að þau væru blönduð hagsmunasamtök sem eng- inn vissi fyrir hvaða atvinnugrein stæðu. Urðu þau að lokum að láta sér nægja stöðu áheyrnarfulltrúa. Svipað má segja um UNICE sem vildi öðlast viðurkenningu sem alls- herjarsamtök vinnuveitenda gagn- vart ESB, en hefur fyrst og fremst stöðu umsagnar- og samstarfsaðila varðandi iðnað, þrátt fyrir að hafa breytt nafninu í Business Europe. Samtrygging Sigurðar Í fræðunum er talað um „sam- tryggingarsamstarf“ (corporatism) en þá er átt við það að stjórnvöld gefi einhverju félagi stöðu í kerfinu á móti því að geta pantað að vild álit og yfirlýsingar þegar á þarf að halda. Manni verður á að hugsa um þessa gömlu drauga þegar Sigurður lýsir sýn sinni til eins atvinnu- málaráðuneytis og einna hagsmuna- samtaka. Í dag er það keppikefli allra stjórnvalda, þegar unnið er að lagagerð fyrir atvinnulífið, að safna sem fjölbreyttustum upplýsingum frá sem flestum hagsmunaaðilum til að tryggja starfsskilyrði og sam- keppnishæfni atvinnulífsins. Gamla einhæfnin er löngu aflögð þótt það kunni að vera hagræðing fyrir SA að hafa bara eitt ráðuneyti að skipta við. Í grein sinni segir Sigurður SA vera regnhlífarsamtök einkarekinna fyrirtækja að undanskildu FÍS, Fé- lagi íslenskra stórkaupmanna, og BGS, Bílgreinasambandinu. Þannig gefur Sigurður í skyn að þetta séu einu félögin sem standi utan SA. Í fljótu bragði man ég líka eftir Meistarasambandi byggingarmanna með trésmíðameistara og pípulagn- ingameistara o.fl. innanborðs ásamt því að Kaupmannafélag Akureyrar gekk nýverið úr SVÞ. Þá eru Kaup- mannasamtök Íslands og Samband íslenskra kaupskipaútgerða einnig utan SA. Það að kalla SA regnhlífarsamtök fær vart staðist. Almennur skiln- ingur á regnhlífarsamtökum er að um félag (sjálfstæðra) félaga sé að ræða. Uppbygging SA er hins veg- ar þannig að fyrirtæki sem gengur t.d. í SVÞ verður um leið beinn félagi í SA. Þetta tryggir beint boðvald SA yfir öllum félögum samtakanna. Undirfélögin átta eru því meira eins og deildir í risastóru fé- lagi með meiri mið- stýringu en þekkist í öðrum sambærilegum félögum. Sigurður talar fyrir einu hagsmunafélagi atvinnurekenda, einu SA, einni rödd. Hags- munum efnahagslífsins og hags- munum landsmanna allra er að mínu mati betur borgið ef fleiri raddir fá að hljóma. Ein allsherjar- samtök Birgir Rafn Jónsson fjallar um samtök atvinnulífsins » Sigurður fer þarna gegn flestra áliti, sem vilja frekar fjöl- breytni og sveigjanleika í stað fábreytni og mið- stýringar. Birgir Rafn Jónsson Höfundur er fyrverandi formaður FÍS. Aðalfundur Bakkavör Group hf. verður haldinn föstudaginn 14. mars nk. kl. 16:30 í Þjóðleikhúsinu, Hverfisgötu 19, 101 Reykjavík. Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins: Aðalfundur Bakkavör Group 14. mars 2008 Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum verður boðið upp á léttar veitingar og úrval rétta frá Bakkavör Group. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Í tilkynningu skal geta auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilisfangs, upplýsinga um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Auk þess skal geta upplýsinga um hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Stjórn félagsins skal fara yfir framboðstilkynningar og gefa hlutaðeigandi tækifæri, með sannanlegum hætti til þess að bæta úr göllum sem eru á tilkynningunni innan tiltekins frests sem eigi má vera lengri en 24 klukkustundir. Ef ekki er bætt úr ágöllum á framboðstilkynningu innan tiltekins frests, úrskurðar stjórn félagsins um gildi framboðs. Unnt er að skjóta ákvörðun stjórnar félagsins til hluthafafundar sem fer með endanlegt úrskurðarvald um gildi framboðs. Upplýsingar um framboð til stjórnar félagsins skulu vera aðgengilegar hluthöfum á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund. Ennfremur verður hægt að nálgast umrædd gögn á vefsíðu félagsins, www.bakkavor.com, frá sama tíma. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn frá kl: 15:30 á fundarstað. Fundarstörf fara fram á ensku. Stjórn Bakkavör Group hf. 1 Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið ár. 2 Ársreikningur fyrir liðið starfsár, ásamt áritun endurskoðanda, lagður fram til samþykktar. 3 Ákvörðun um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar síðastliðins reikningsárs. 4 Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 5 Tillögur til breytinga á samþykktum: a Breyting á 3. gr. – Lagt er til að stjórn verði veitt heimild til útgáfu hlutafjár félagsins í erlendum gjaldmiðli. b Breyting á 19. gr. – Lagt er til að stjórnarmönnum verði fjölgað úr 7 í 8. 6 Kosning stjórnar félagsins. 7 Kosning endurskoðunarfélags. 8 Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu. 9 Heimild til kaupa á allt að 10% á eigin hlutum. – Lagt er til að stjórn félagsins verði veitt heimild til kaupa allt að 10% á eigin hlutum félagsins á næstu 18 mánuðum. Önnur mál.10

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.