Morgunblaðið - 06.03.2008, Page 34

Morgunblaðið - 06.03.2008, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ÆTLA AÐ FARA MEÐ LÍSU AÐ HORFA Á BALLETTSÝNINGU ÞETTA ER OF MIKIÐ, ER ÞAÐ EKKI? NEMA ÞÚ HAFIR GAMAN AF DANSANDI STRÁK- UM Í SOKKABUXUM ÞÚ ERT MEIRI HRÆSNARINN ÞÚ VILT BARA KOMA TIL MÍN ÞVÍ ÉG ER MEÐ REGNHLÍF HRÆSNARAR VILJA HELDUR EKKI VERÐA BLAUTIR Á ÉG AÐ SEGJA ÞÉR SVOLÍTIÐ SKRÍTIÐ? ÉG MAN EKKI EFTIR NEINU SEM GERÐIST ÁÐUR EN ÉG VARÐ ÞRIGGJA ÁRA ÉG ER BÚINN AÐ GLEYMA HÁLFRI ÆVI MINNI! ÉG HEF VERIÐ HEILA- ÞVEGINN! HVERS KONAR SKRÍMSLI MUNDI HEILAÞVO SMÁBARN?!? HVAÐ VISSI ÉG SEM ÞAU VILDU AÐ ÉG GLEYMDI? MIKIÐ ER ÉG DULARFULLUR ÉG MAN EKKI EFTIR ÞVÍ AÐ ÞÚ HAFIR GERT ANNAÐ EN AÐ ROPA OG GUBBA ÉG GET ÞVÍ MIÐUR EKKI SAGT ÞÉR HVAÐ VIÐGERÐIN Á BÁTNUM ÞÍNUM Á EFTIR AÐ KOSTA Í DAG... GÆTIR ÞÚ NOKKUÐ KOMIÐ AFTUR Á MORGUN? JÁ... ÆTLI ÞAÐ EKKI AF HVERJU GAST ÞÚ EKKI METIÐ VIÐGERÐINA Í DAG? VEGNA ÞESS AÐ ÁFENGIÐ ER BÚIÐ ÞAÐ ER MIKLU AUÐVELDARA AÐ SJÁ HVAÐ VIÐGERÐIR KOSTA ÞEGAR MAÐUR ER DRUKKINN MÉR SÝNIST ÞÚ BARA VERA AÐ BRENNA ÚT AF HVERJU FLYT ÉG EKKI BARA Í ÍBÚÐ NIÐRI Í BÆ Í STAÐINN FYRIR ÍBÚÐ FYRIR ELDRI BORGARA? ÉG GÆTI GENGIÐ ÚT Í BÚÐ, TEKIÐ LESTINA EÐA STRÆTÓ HVERT SEM ÉG ÞYRFTI AÐ KOMAST. ÉG ÞYRFTI EKKI BÍL ÉG VEIT EKKI... ÍBÚÐAR- VERÐ ÞAR HEFUR HÆKKAÐ UNDAN FARIÐ EN ÉG FANN ÍBÚÐ SEM ER EKKI MJÖG DÝR ÞAÐ ER VEGNA ÞESS AÐ HÚN ER Í GLÆPAHVERFI! OG? AF HVERJU ERTU EKKI BÚINN AÐ TAKA NEINAR MYNDIR AF KÓNGULÓAR- MANNINUM? TIL HVERS SENDI ÉG ÞIG EIGINLEGA HINGAÐ ÞÚ GERÐIR ÞAÐ EKKI. ÉG FÓR HINGAÐ SJÁLFUR... EN EF ÞÚ ERT AÐ BJÓÐAST TIL AÐ BORGA FLUGFARIÐ.... ER ÞETTA EKKI NICOLE KIDMAN? HANN VEIT HVENÆR HANN Á AÐ BREYTA UM UMRÆÐUEFNI dagbók|velvakandi Dýrt að leigja Undanfarið hef ég heyrt af mörgum tilfellum þar sem fólk á íbúðir á Reykjavíkursvæðinu og leigir þær mjög dýrt. Eigendurnir sjálfir flytja hins vegar til Keflavíkur og leigja þar mun ódýrara húsnæði. Mig langaði að koma þessu á framfæri því mér finnst þetta vera óréttlát fyrir aðra leigjendur sem hafa ekki tök á að gera slíkt hið sama og þurfa að sætta sig við að borga þá háu leigu sem nú tíðkast á markaðinum. Leigjandi. Nokkrar spurningar Mig langar að leggja fram fáeinar fávíslegar spurningar. Fyrsta spurning: er virkilega svo illa komið fyrir þjóðarbúinu að ekki sé lengur hægt að kaupa blóðþrýst- ingsmeðul handa þeim fjölmörgum sem þurfa á lyfinu hydramíl að halda? Önnur spurning: hvers vegna eru ekki pöntuð lyf sem eru lífspursmál fyrir öll gamalmenni og flesta sem komnir eru yfir fertugt? Þriðja spurning: Er þessi sparn- aður í þá átt að fækka ómögunum á þjóðarbúinu, eða skortir svona ferðapenninga handa þeim sem reyna að troða Íslendingum í Evr- ópusambandið? Fjórða spurning: Skortir e.t.v. skotsilfur til að greiða einhverjum ómissandi persónum biðlaun eða gera einn starfslokasamning? Bestu kveðjur. Pétur Steingrímsson. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is NÚ HÖFUM við fengið tilbreytingu frá snjónum, en við tók rigning og rok. Hér ganga tvær konur með vindinn í fangið, en það er nokkuð sem flestir Íslendingar ættu að kannast við, nefnilega íslenskt rok af bestu gerð. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Rigningartíð FRÉTTIR VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð stendur á næstunni fyrir fundaherferð í hverfum Reykjavík- urborgar undir yfirskriftinni „VG um alla borg“, þar sem borgarbúum gefst kostur á að ræða við kjörna fulltrúa flokksins um málefni síns hverfis. Fundirnir eru öllum opnir, og eru kjörinn vettvangur til að fræðast og/eða hafa áhrif á stjórn borgarinnar, segir í tilkynningu. Fyrsti fundurinn verður í kvöld, fimmtudaginn 6. mars í KHÍ, Skriðu, kl. 20. Umræðuefni er Mannlíf eða malbik – er pláss fyrir hvort tveggja? Framsögur flytja Árni Þór Sigurðsson alþingismaður og Þorleifur Gunnlaugsson borgar- fulltrúi. Mánudaginn 10. mars verður fundur á Vesturgötu 7 kl. 20. Þar ræða „lopapeysukommar og húsa- friðunarfólk“ málefni líðandi stund- ar. Framsögur flytja Katrín Jakobs- dóttir alþingismaður og Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi. Þriðjudaginn 11. mars klukkan 20 verður fundur í Gerðubergi. Bær í borg – skiptir hverfalýðræði máli? er yfirskrift þess fundar og framsögur flytja Ögmundur Jónasson alþingis- maður og Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi. Miðvikudaginn 12. mars í Árbæj- arskóla kl. 20 er yfirskriftin Þarf bíl á mann til að búa í Reykjavík? Framsögur: Kolbrún Halldórs- dóttir alþingismaður og Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi. Fimmtudaginn 13. mars kl. 20 er röðin komin að Félagsmiðstöðinni Fjörgyn, Foldaskóla, og umræðu- efninu Sundabraut – hvar, hvenær og hvernig? Framsögur: Álfheiður Ingadóttir alþingismaður og Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi. Fundaherferð Vinstri grænna í borginni SIGRÍÐUR Kristjánsdóttir, fram- kvæmdastjóri Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra á Reykjanesi, hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: „Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum síðastliðna viku vill Svæðisskrifstofa Reykjaness geta þess að Jóhanna Sigurðardóttir félags- og trygginga- málaráðherra hefur að öllu leyti far- ið rétt með um það að engri fjöl- skyldu fatlaðs barns hafi verið neitað um stuðningsfjölskyldu. Svæðisskrifstofa Reykjaness hafnaði engum stuðningsfjölskyldu- samningum. Foreldrum sem óskuðu eftir endurnýjun á samningum var tilkynnt um að bið yrði á afgreiðslu þeirra þar til fjárveitingar væru tryggðar. Svæðisskrifstofan og félags- og tryggingamálaráðuneytið hafa átt góða samvinnu við lausn málsins. Engin skerðing verður á þjónustu við fötluð börn á Reykjanessvæðinu, hvorki í skammtímavistun né stuðn- ingsfjölskyldum. Allar fyrirliggjandi umsóknir um stuðningsfjölskyldu hafa nú þegar verið afgreiddar. Að gefnu tilefni vill undirrituð hér með koma á framfæri að fjárheim- ildir stofnunarinnar árið 2007 voru rúmur 1,6 milljarður. Rekstur stofn- unarinnar á síðasta ári var innan við 1% umfram fjárheimildir en ekki 50% eins og hermt hefur verið. Svæðisskrifstofa Reykjaness annast umfangsmikla búsetu-, skammtíma- vistunar-, dag- og stoðþjónustu við fatlaða í 12 sveitarfélögum á svæð- inu.“ Engri fjölskyldu fatlaðs barns neitað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.