Morgunblaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Það er mikið atriði, hjúkka mín, að fá sjúklinginn til að gapa vel áður en nýju „töfrapill-
unni“ er troðið ofan í kok hans.
VEÐUR
Svín eru skemmtileg. Þau erusnyrtileg. Þau eru gáfuð. Þau
hafa sterkar tilfinningar.
Svín umgangast heimili sín,svínastíurnar, með sérstökum
hætti. Þau eru mjög hreinleg. Þau
gæta þess vandlega að engin óhrein-
indi verði til á svefnstað þeirra og
þar sem þau matast, ef þau geta með
nokkru móti
komizt hjá því.
En stundumskortir á
viðunandi að-
búnað af hálfu
mannskepn-
unnar.
Óreyndum svínahirði kemur þessisnyrtimennska á óvart.
Svín eru gáfuð. Sumir halda því
fram, að þau hafi meiri gáfur til að
bera en þriggja ára barn.
Svín hafa sterkar tilfinningar.Skerandi vein þeirra, þegar þau
eru send í sláturhús er átakanlegt.
Þau vita hvað er að gerast.
Í grein hér í Morgunblaðinu í gærblandar Jón Baldvin Hannibals-
son íslenzkum svínahirði í Dan-
mörku fyrir meira en hálfri öld inn í
umræður um ESB.
Það er ekki laust við að utanrík-
isráðherrann fyrrverandi geri lítið
úr starfi svínahirða. Ef hann væri
innsti koppur í búri í Samfylking-
unni væri það skiljanlegt. Þar situr
menntaelíta landsins og telur það
fyrir neðan sína virðingu að fjalla
um málefni vinnandi fólks. En Jón
Baldvin er ekki haldinn Samfylking-
arsýkinni.
Harry Truman Bandaríkjaforsetisagði: „Enginn maður ætti að
verða forseti, sem skilur ekki svín.“
Ætli Jón Baldvin skilji svín?!
STAKSTEINAR
Um svín og svínahirði
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
*$BC
!" !
!
! #$ %!!
%
! #$ !&
!
' !( " *!
$$B *!
" # $ % # %!
& '% ('
<2
<! <2
<! <2
" &%$
)
*+,-'.
CD
$
B
! )!#
$
#
*
! '
(
)!#
* ( !+
!
#
/
!
)!
!
% #, -! /0'11
'%2! '-')
*
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Einar Sveinbjörnsson | 24. apríl 2008
Veit þá á vont sumar?
Í fyrra fraus glæsilega
saman um nánast allt
land og allir muna hvernig
fór með sumarið í fyrra,
sem þótti af miklum gæð-
um nema síst þó suð-
austan- og austanlands. Þá var ég
staddur á Akureyri (rétt eins og nú á
Andrésar Andar leikunum) og gerði föl yf-
ir að morgni sumardagsins fyrsta. Nú
náði hins vegar óvíða að frjósa saman.
Þó bílar hafi verið hélaðir hér á Akureyri
snemma í morgun benda mælingar til
þess að ekki hafi fryst í 2 metra hæð.
Meira: esv.blog.is
Friðrik Þ. Guðmundsson | 23. apr. 2008
Gamalt veldi
– nýr ritstjóri
Það er ástæða til að óska
Ólafi Þ. Stephensen til
hamingju með ritstjóra-
stólinn á því aldna fjöl-
miðlastórveldi, Morg-
unblaðinu. Ráðning hans í
stólinn kemur ekki á óvart. Mér hefur
fundist að hann hafi lengi verið alveg að
mæta á vettvanginn. Og örugglega fanta-
fínn millileikur að hann æfði sig á 24
stundum. Enginn efast um fagmennsku
hans – og hann skrifar með Zetu.
Meira: lillo.blog.is
Marinó M. Marinósson | 24. apríl 2008
Sigur Rós í Abbey
Road Studios
Sigur Rós í Abbey Road
að taka upp fimmtu
plötuna. Það er greini-
lega heilög stund hjá
þeim sem fá að snerta
hljóðfærin sem notuð
voru af Bítlunum á sínum tíma. Orri
Páll trommari sagði að þetta væri
áhrifarík stund fyrir þá í Sigur Rós.
Gaman að sjá hvað Bítlarnir eru
áhrifamiklir hjá ungum tónlist-
armönnum enn í dag. Enda bestir.
Meira: marinomm.blog.is
Björgvin Guðmundsson
| 24. apríl 2008
Björgólfur
vill þjóðarsjóð
Björgólfur Guðmunds-
son, formaður banka-
ráðs Landsbankans,
sagði á aðalfundi bank-
ans í dag að Íslendingar
ættu að koma sér upp
öflugum varasjóði, eins-
konar þjóðarsjóði, til að verja efna-
hagslífið og hagstjórnina fyrir svip-
uðum áföllum og þeim, sem dunið
hafa yfir síðustu mánuði.
Björgólfur sagðist vera þeirrar
skoðunar að ef Íslendingar vilji halda
áfram á þeirri braut að taka fullan þátt
í viðskiptum á alþjóðamarkaði, halda
fram að auka tekjur sínar í viðskiptum
við útlönd, halda sjálfstæðri efna-
hagsstjórn og eiga kost á eigin gjald-
miðli, þá sé nauðsynlegt að koma
okkur upp mjög öflugum varasjóði.
Við ættum að koma okkur upp þjóð-
arsjóði sem hefði tekjur af auðlindum
lands og hugviti þjóðarinnar. Þjóð-
arsjóði sem mundi verja efnahagslífið
og hagstjórnina fyrir svipuðum áföll-
um þeim sem dunið hafa á okkur síð-
ustu mánuði. Að mínum dómi ættu
stjórnvöld að huga að stofnun slíks
sjóðs jafnhliða því sem þau kanna
með hvaða hætti öðrum má stuðla að
stöðugleika í íslensku efnahags- og
atvinnulífi, sagði Björgólfur.
Hann sagði að öllum væri það orðið
ljóst, að ekki yrði unað við óbreytt
ástand. Engin atvinnufyrirtæki geti
borið til lengdar yfir 15% stýrivexti og
engin fyrirtæki geta vaxið þegar verð-
lag og gengi sveiflast upp og niður og
lítið ræðst við verðbólgudrauginn.
Og jafnvel þó við yrðum hluti af
stærra peningakerfi og tækjum upp
stöðugri mynt þá er ég ekki frá því að
bjartsýni, ákafi og áhættusækni okk-
ar Íslendinga muni eftir sem áður
skapa þrýsting á efnahagskerfi okkar.
Þá yrði ekki síður mikilvægt að eiga
varasjóð til að vinna gegn skaðlegum
sveiflum í búskap okkar.
Þessi hugmynd Björgólfs er athygl-
isverð.Hann talar um að sjóðurinn
ætti að hafa tekjur af auðlindum
landsins. Ég vil bæta því við, að bank-
arnir ættu að leggja stórar fúlgur í slík-
an þjóðarsjóð.Það verður svo áfram-
,að bankarnir munu skapa mesta
hættu fyrir Ísland með útrás sinni og
lántökum erlendis.
Meira: gudmundsson.blog.is
BLOG.IS
SAMNINGUR var í gær undirrit-
aður milli Reykjavíkurborgar og
Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR) um
uppbyggingu íþróttahúss í Suður-
Mjódd. Samningurinn hljóðar upp á
rúmlega 1,5 milljarða.
Undirritunin fór fram í Ráðhúsi
Reykjavíkur að loknu víðavangs-
hlaupi ÍR kringum Tjörnina.Undir
samninginn skrifuðu Ólafur F.
Magnússon borgarstjóri og Úlfar
Steindórsson, formaður ÍR.
„Við erum að vonast til þess að
hönnun hússins verði lokið í haust
svo hægt verði að taka fyrstu
skóflustunguna í lok þessa árs.
Vonandi verður hægt að taka húsið
í notkun 2010,“ segir Úlfar.
Þar verður aðstaða fyrir allar
íþróttadeildir innan félagsins en
sem stendur þurfa æfingar og
keppni í handbolta og körfubolta að
fara fram í Seljaskóla og Austur-
bergi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Undirskrift Úlfar Steindórsson, Ólafur F. Magnússon og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson undirrituðu samninginn í gær, sumardaginn fyrsta.
1,5 milljarða íþróttahús
tekið í notkun árið 2010
FRÉTTIR