Morgunblaðið - 25.04.2008, Síða 12

Morgunblaðið - 25.04.2008, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÞAÐ ER hræðilegt að miðbærinn sé að deyja,“ sagði verslunarmaður á Laugaveginum en blaðamaður fór fyrir skemmstu á stjá og skoð- aði umgengnina í kringum þessa helstu verslunargötu höfuðborg- arinnar og heyrði í nokkrum versl- unarmönnum vegna málsins. Umbúðir, matarleifar og sígarettustubbar Flestir verslunarmannanna voru uggandi um framtíð Laugaveg- arins vegna ástandsins þar; sóða- legrar umgengni, veggjakrots og grotnunar gamalla húsa og fannst þeim Reykjavíkurborg ekki gera nóg til að spyrna við þessu ófremd- arástandi. Nefndi einn að svo virt- ist sem Laugavegurinn væri að breytast í Hverfisgötuna og það væri mikið áhyggjuefni. Í stuttri gönguferð um Lauga- veginn og nágrenni var áberandi hve mikið var um sígarettustubba í blómabeðum og við götukanta. Sagðist ein afgreiðslukonan, sem rætt var við og hefur lengi búið í miðbænum, vera komin með nóg af ástandinu sem þar ríkir, sér- staklega eftir að reykingabannið tók gildi síðastliðið sumar. Svo væri komið að hún hygðist flytja á brott. Það er ekki bara Laugavegurinn sem hefur fengið að kenna á slæmri umgengni heldur hafa svæði í kring líka mátt finna fyrir sóðaskap vegfarenda. Sérstaka at- hygli blaðamanns vakti lítill reitur á horni Þingholtsstrætis og Amt- mannsstígs sem er til minningar um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur. Um er að ræða grasi gróið svæði með bekkjum og stórri granítplötu en á þessum litla reit var að finna ógrynni af rusli; samloku- og nammibréf, sígarettustubba, djús- fernur, matarleifar o.s.frv. Þá mátti víða sjá umbúðir og síg- arettustubba í sprungum á gang- stéttum, ofan í ristum og á fleiri stöðum sem sópar ná ekki vel til. Heildarsvipurinn fráhrindandi Guðni Hannesson hjá hreins- unardeild Reykjavíkurborgar seg- ist sammála því að Laugavegurinn og umhverfi hans líti heldur illa út. „Umhverfið er fráhrindandi í alla staði. Lækjatorgið er hræðilegt og Laugavegurinn eins og hann er.“ Hann segir heildarsvipinn frá- hrindandi og sé það helst að kenna húsarifinu á Laugavegi 4-6, tómum húsum og brunarústunum við Lækjatorg. Hvað sígarettustubb- ana varðar segir Guðni að þeir verði vonandi horfnir innan skamms en til stendur að „handþvo Laugaveginn“ eftir helgi. Að- spurður segir hann borgina ekki vilja setja upp svokölluð stubbahús, sem gætu mögulega dregið úr því að stubbum sé kastað á götur og í beð. Ekki spyrnt nægilega við ófremdarástandi Morgunblaðið/Valdís Thor Allt í drasli Til stendur að „handþvo“ Laugaveginn eftir helgi. Morgunblaðið/Valdís Thor Slæm umgengni Á reit til minningar um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur er að finna ógrynni af rusli, m.a.s. matarleifar. Umgengni í nágrenni Laugavegarins þykir slæm og veldur mönnum áhyggjum NORÐURÁL hafnar þeirri niður- stöðu Umhverfisstofnunar að losun flúorkolefna frá álverinu á Grundar- tanga hafi verið 319 þúsund tonn af CO2-ígildum árið 2006 heldur hafi hún numið að hámarki 126 þúsund tonnum og vísar til nákvæmari út- reikninga sinna. Umhverfisstofnun gerir athugasemdir við yfirlýsingu Norðuráls og segir meðal annars að þar virðist vera vísað til niðurstaðna mælinga sem stóðu yfir í eina viku árið 2003 og þau gögn uppfylli ekki greinda grunnkröfu. Í þessu sambandi vill Umhverfis- stofnun koma eftirfarandi atriðum á framfæri: 1. Útreikningar Umhverfisstofn- unar á útstreymi gróðurhúsaloftteg- unda á Íslandi eru í samræmi við reiknireglur vísindanefndar SÞ um loftslagsbreytingar (IPCC). Stofn- unin beitir sömu aðferð við útreikn- inga á útstreymi perflúorkolefna frá öllum starfandi álverum á Íslandi. Við útreikningana eru upplýsingar frá hverri verksmiðju varðandi spennuris og álframleiðslu tvinnaðar við útstreymisstuðla frá IPCC. Þessi aðferð hefur verið notuð til útreikn- inga í 5 ár (frá og með árinu 2004 þegar aðferðafræðin við útreikn- ingana var bætt). 2. Til er aðferð til að reikna út- streymi frá einstökum álverksmiðj- um og byggir hún á útstreymisstuðl- um sem fengnir eru með mælingum í viðkomandi verksmiðju. Til þess að hægt sé að nota þá aðferð þurfa að liggja til grundvallar yfirgripsmiklar mælingar sem ná yfir löng tímabil þannig að fullt tillit sé tekið til breytileika í rekstri. Í yfirlýsingu Norðuráls virðist vera vísað til nið- urstaðna mælinga sem stóðu yfir í eina viku árið 2003. Það er mat Um- hverfisstofnunar að þau gögn upp- fylli ekki framangreinda grunnkröfu. 3. Samkvæmt skýrslu sem Noreg- ur hefur sent til loftslagssamnings SÞ (http://unfccc.int/files/nationa- l_reports/annex_i_ghg_inventories/- national_inventories_submissions/- application/x-zip-compressed/nor_- 2008_nir_15apr.zip) kemur fram að Norðmenn nota sömu aðferð og Um- hverfisstofnun til að meta útstreymi perflúorkolefna frá álverum í Nor- egi. Norðmenn telja þá aðferð ná- kvæmari heldur en aðferðina sem byggir á mælingum hjá einstökum verksmiðjum þar sem útstreymis- stuðlar IPCC byggi á niðurstöðum mælinga í yfir 70 álverum á síðasta áratug og óvissa stuðlanna sé því minni en óvissa mælinga í einstökum álverum (bls. 151 í framangreindri skýrslu). 4. Rétt er að geta þess að Skrif- stofa Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna er með sérstakt ferli sem miðar að því að tryggja að útstreym- isreikningar séu sambærilegir milli landa. Hluti af þessu ferli er að end- urskoða reikninga hvers lands árlega og koma síðan með ábendingar um hvað megi betur fara. Ekki hafa ver- ið gerðar athugasemdir við útreikn- inga Íslands á flúorkolefnum frá ál- verum í þessu ferli.“ Norðurál og Um- hverfisstofnun deila Stofnunin segir að gögn Norðuráls uppfylli ekki grunnkröfu Morgunblaðið/Ómar Losun Norðurál segir að losun ál- versins á Grundartanga sé langt frá mati Umhverfisstofnunar. VELFERÐARRÁÐ hefur ákveðið að breyta almennum niðurgreiðslum félagslegra leiguíbúða í Reykjavík í persónulegan stuðning við leigjend- ur í formi sérstakra húsaleigubóta. Með þessu mun greiðslubyrði leigj- enda taka mið af persónubundnum aðstæðum hverju sinni, að sögn borgaryfirvalda. Breytingin mun koma til framkvæmda um mánaða- mótin maí–júní. Réttlátari stuðningur Að sögn Jórunnar Frímannsdótt- ur, formanns Velferðarráðs, er fyr- irkomulagið núna með þeim hætti að Velferðarsvið greiðir með hverri íbúð þriðjung af leiguverði hennar, óháð því hver býr í henni. Breyt- ingin felur í sér að þessum beinu niðurgreiðslum er hætt en sambæri- legar upphæðir verða notaðar til að styðja einstaklingana sjálfa. „Allt sem hefur farið í þessa földu nið- urgreiðslu verður flutt yfir í svokall- aðar sérstakar húsaleigubætur og dreift á einstaklinga eftir því hvern- ig þeirra hagur er. Við erum sann- færð um að með þessu verður stuðn- ingurinn réttlátari, gagnsærri og skilvirkari.“ Niðurgreiðslan verður ekki „fal- in“ eins og áður heldur mun leigj- andinn með þessari breytingu geta séð hver raunleigan er. Nú er mál- um þannig háttað að fólk fær greiðsluseðil sem á stendur sú upp- hæð sem það á að borga, eftir að borgin hefur niðurgreitt sinn hlut. Þegar breytingin verður um garð gengin mun heildarleiguupphæðin koma á greiðsluseðlinum en fólk hins vegar fá greiddar húsaleigu- bætur og sérstakar húsaleigubætur í samræmi við rétt þess hverju sinni. Betri nýting á húsnæði Jórunn segir misjafnt hvað ein- staklingar fái í húsaleigubætur eða sérstakar húsaleigubætur. Það ráð- ist af ýmsum félagslegum þáttum og þegar vel gangi dragi úr stuðningn- um. Þá fari fólk jafnvel að borga raunleigu og ætti þá að geta hugað að því að fara úr félagslega kerfinu. „Við viljum meina og erum sann- færð um að þetta mun leiða til þess að nýtingin verði betri á húsnæðinu þannig að fjölskyldustærð og stærð íbúða haldist í hendur í meiri mæli,“ segir Jórunn. Fólk fari þá ekki að ílengjast í of stóru húsnæði, t.d. þeg- ar börnin eru farin að heiman, þar sem það verði hreinlega ódýrara fyrir það að flytja í minni íbúð. Þannig losni um stærri íbúðirnar. Stuðningurinn verði réttlátari Niðurgreiðslum vegna félagslegra leigu- íbúða breytt og verða persónubundnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.