Morgunblaðið - 25.04.2008, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK
SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is
Vegna árshátíðar starfsfólks verður fyrirtækið
lokað í dag, föstudag.
Gleðilegt sumar!
AFSAKIÐ HLÉ
STJÓRNARHERINN á Srí Lanka
og skæruliðahreyfing Tamíl-tígra
hafa hvort um sig lýsti yfir sigri í
átökum sem brutust út síðastliðinn
miðvikudag við landamæri Jaffna-
skagans í norðurhluta landsins.
Samkvæmt upplýsingum AP-
fréttastofunnar er ekki ljóst hversu
mikið mannfall varð í átökunum og
hefur fjölmiðlum verið meinaður að-
gangur að svæðinu.
Talsmenn stjórnarhersins segjast
hafa fellt hundrað skæruliða auk
þess að hafa hertekið lítinn hluta
lands. Talsmenn tígranna segjast
hinsvegar hafa fellt yfir hundrað
hermenn og að aðeins 16 tamílar hafi
fallið.
Samkvæmt upplýsingum stjórn-
arhersins létust 43 hermenn í átök-
unum, 33 er saknað og 120 særðust.
Mesta mannfall frá 2006
Þetta er mesta mannfall sem
stjórnarherinn hefur orðið fyrir frá
því að 129 hermenn féllu í átökum á
Jaffna-skaganum í október 2006.
Að sögn AP hafa yfirmenn hersins
hafa gefið út þá yfirlýsingu að
skæruliðahreyfingin verði yfirbuguð
fyrir árslok.
Tamíl-tígrarnir hafa barist fyrir
eigin ríki í norður- og norðaust-
urhluta landsins frá því á áttunda
áratugnum og hafa yfir 70.000
manns látist í átökum.
Reuters
Vígbúnir Hermenn stjórnarhersins tilbúnir til árásar á tígrana í apríl síð-
astliðnum, búist er við áframhaldandi átökum í landinu.
Stjórnarher Srí Lanka hyggst
yfirbuga tígrana fyrir árslok
BURGER King í London hyggst fyrst skyndibita-
fyrirtækja bjóða upp á eðalborgara sem munu
kosta 85 pund eða 12.000 íslenskar krónur.
Matreiðslumeistari á Savoy hótelinu í London
„þróar“ nú uppskriftina að hamborgaranum sem
verður búinn til úr fyrsta flokks hráefni. Ham-
borgarinn verður í boði í fínni hverfum London
eins og Kensington eða Chelsea. Hægt verður að
kaupa franskar og kók með dýrðinni.
Hamborgari á 12.000 krónur
YFIRVÖLD í Berlín vilja auka
þátt Berlínarmúrsins í ferða-
mannaþjónustu borgarinnar og
gera sögu hans áþreifanlegri og
aðgengilegri. Tuttugu ára falls
múrsins verður minnst á næsta
ári og vinna yfirvöld nú á marg-
víslegan hátt að undirbúningi
þess.
Saga múrsins er átakanleg og
enn er ekki vitað með vissu
hversu margir létu lífið er þeir
reyndu að komast yfir hann til
vesturhluta borgarinnar. Talið er
að fórnarlömbin skipti hundruð-
um og voru flest þeirra skotin af
austur-þýsku landamæralögregl-
unni.
Með falli Austur-Þýskalands ár-
ið 1989 var Berlínarmúrinn rifinn
niður af miklu kappi og hlutar
hans seldir eða muldir til endur-
vinnslu. Mjög lítill hluti stendur
enn og því lítið eftir til að skoða
fyrir forvitna ferðamenn.
Fjögurra tíma leiðsögn
Borgarstjóri Berlínar, Klaus
Wowereit, kynnti í vikunni nýja
tækni sem mun „endurreisa“
múrinn á vissan hátt. Brátt geta
ferðamenn leigt handhæg tæki
búin nýjustu fjölmiðlunartækni
þar sem ljós- og kvikmyndir auk
hljóðupplýsinga varpa ljósi á
sögu múrsins. Tækið er með
GPS-búnaði og gefur því upp-
lýsingar samkvæmt staðsetningu
ferðamannsins. Fjölhliða upp-
lýsingar auk viðtala við íbúa
borgarinnar fylgja þannig ferða-
mönnum í fjórar klukkustundir
um fimm helstu sögustaði múrs-
ins.
Vegvísir Með GPS-búnaði.
Reuters
Upplýstur Yfirvöld vilja auka gildi Berlínarmúrsins fyrir ferðamenn.
Múrinn „endurreistur“
STUTT
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
SÉRFRÆÐINGAR á bandarískum
flugmarkaði telja líkur á því að
hægja muni verulega á hjá þarlend-
um flugfélögum á næstunni, að því
er fram kemur í frétt Dow Jones-
fréttaveitunnar. Hækkandi elds-
neytisverði sé fyrst og fremst um að
kenna.
Bandarísku flugfélögin hafa hvert
á fætur öðru skilað lélegum upp-
gjörum að undanförnu fyrir fyrsta
fjórðung þessa árs.
Segir í frétt Dow Jones að ætla
megi að draga muni úr fjölda flug-
farþega á næstunni, þar sem við því
sé að búast að flugfargjöld muni
hækka vegna aukins eldsneytis-
kostnaðar félaganna. Þetta muni
ekki eingöngu ná til einstaklinga
sem ferðist væntanlega minna en
áður, heldur muni fyrirtæki og
stofnanir einnig draga úr flugferð-
um starfsmanna vegna erfiðleika í
efnahagslífinu.
Samrunar félaga
Flugfélögin Delta Air Lines og
Northwest Airlines, sem unnið er
að því að sameina, greindu í fyrra-
dag frá sameiginlegu uppgjöri fyrir
fyrsta fjórðung þessa árs sem sýnir
tap upp á 10,6 milljarða dollara, eða
um 780 milljarða íslenskra króna.
Mest munar um niðurfærslur í
eignasafni í tengslum við samruna
félaganna. Þannig var viðskiptavild
Delta til að mynda lækkuð um 6,1
milljarð dollara. Tap Delta var um
6,4 milljarðar dollara á tímabilinu
en tap Northwest um 4,2 milljarðar.
Með samruna Delta og North-
west verður til stærsta flugfélag
heims miðað við fjölda farþega. Í
frétt í bandaríska blaðinu New
York Times segir að vonir standi til
að sparast muni um einn milljarður
dollara með sameiningunni innan
fjögurra ára vegna ýmiss konar
hagræðingar. Þá segir í fréttinni að
sum önnur félög séu einnig að skoða
möguleika á samruna. Þau neyðist
til þess, því haldist verð á olíu
áfram yfir 100 dollurum á tunnuna
sé óhjákvæmilegt annað en að ein-
hver flugfélög verði gjaldþrota að
öðru óbreyttu, því takmörk séu á
því hve mikið sé hægt að hækka
fargjöldin.
Hægir á hjá flugfélögum
Reuters
Samrunar Verið er að sameina Delta og Northwest. Sérfræðingar spá
fleiri samrunum flugfélaga í Bandaríkjunum á næstunni.
● FÆREYSKI bankinn Eik Banki, sem er
skráður í kauphöllinni á Íslandi, hagn-
aðist um 8 milljónir danskra króna eftir
skatta á fyrsta fjórðungi þessa árs. Það
svarar til um 126 milljóna íslenskra
króna á núverandi gengi. Á sama tíma-
bili í fyrra var hagnaður bankans um 118
milljónir danskra króna.
Hreinar vaxtatekjur Eik Banka á fyrsta
fjórðungi þessa árs námu 160 millj-
ónum danskra króna samanborið við 85
milljónir á sama tímabili í fyrra. Hreinar
rekstrartekjur drógust hins vegar sam-
an, námu 119 milljónum í ár en 199
milljónum á fyrstu þremur mánuðum síð-
asta árs.
Í tilkynningu frá Eik Banka segir að
með hliðsjón af stöðunni á fjár-
málamörkuðum sé afkoman í heild á
fyrsta fjórðungi þessa árs ágæt í sam-
anburði við síðasta ár
Eik Banki hagnast
um 128 milljónir
BANDARÍSKI tæknirisinn Apple
hagnaðist um liðlega einn millj-
arð Bandaríkjadollara á fyrsta
fjórðungi þessa árs, og jókst
hagnaðurinn um 50% frá sama
tímabili á síðasta ári. Tekjur
tímabilsins námu um 7,5 millj-
örðum dollara og jukust um 43%
milli ára.
Í tilkynningu frá Apple kemur
fram að fyrirtækið seldi um 2,3
milljónir Machintosh-tölva á
tímabilinu, sem er svipuð aukn-
ing milli ára og aukning hagn-
aðarins, eða um 50%. Þá seldi
fyrirtækið um 1,7 milljónir
iPhones, sem eru að verða mik-
ilvægur hluti af framleiðslu fyr-
irtækisins. Þá seldi Apple um
10,6 milljónir iPod-spilara á
tímabilinu, en salan á þeim jókst
um 1% milli ára.
Machintosh selst vel
Reuters
iPod Steve Jobs, forstjóri Apple.
VOLKSWAGEN, stærsti bílafram-
leiðandi Evrópu, hagnaðist um 1,3
milljarða evra á fyrsta fjórðungi
þessa árs, sem svarar til um 153
milljarða íslenskra króna. Það er
um 26% hækkun frá sama tímabili
í fyrra. Tekjur félagsins jukust
einnig um 26% milli ára.
Segir í umfjöllun erlendra vefmiðla að aukinn hagnað megi einna
helst rekja til aðhalds fyrirtækisins í starfsmannamálum en einnig til
nýrra bíla sem fyrirtækið hefur verið að setja á markað.
VW hagnast
um 1,3 millj-
arða evra
Á sýningu Nýr Volkswagen Bora
á bílasýningu í Kína.
Reuters
● HAGNAÐUR bandaríska flugvélafram-
leiðandans Boeing var um 38% meiri á
fyrsta fjórðungi þessa árs en á sama
tímabili í fyrra. Nam hagnaðurinn um 1,2
milljörðum dollara, jafnvirði tæplega 89
milljarða íslenskra króna. Heildarvelta
fyrirtækisins jókst um 6% milli ára og
nam um 16 milljörðum dollara.
Segir í tilkynningu frá Boeing að meg-
inástæðan fyrir auknum hagnaði félags-
ins sé aukin sala á farþegaflugvélum.
Boeing framleiðir einnig hernaðartæki
ýmiss konar.
Aukinn hagnaður
hjá Boeing