Morgunblaðið - 25.04.2008, Síða 16

Morgunblaðið - 25.04.2008, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING LISTMUNAUPPBOÐ verður haldið sunnudagskvöldið 27. apríl, kl. 19 á Hótel Sögu, Súlnasal Á uppboðinu verður að venju gott úrval verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna. Boðin verða upp um það bil 130 listaverk. Öll verkin eru sýnd í Galleríi Fold við Rauðarárstíg föstudag 10–18, laugardag 11–17 og sunnudag 12–17. Hægt er að skoða uppboðsskrána með myndum á vefslóðinni myndlist.is. Rau›arárstíg 14, sími 5510400 · www.myndlist.is Jón Stefánsson Gleðilegt sumar Louisa M atthíasdóttir TVÍEYKIÐ Duo Reson- ante spilar í kvöld í Nor- ræna húsinu. Tónleik- arnir eru hluti af tónleikasyrpunni Vor- stemming í Vatns- mýrinni. Duo Resonante spilar blöndu af sígildri alþýðu- tónlist, djassi og þjóðlegri tónlist sem leikin er á afrískan bassa, tréflautu og saxófón. Þetta dansk/ hollenska dúó hefur haldið tónleika um allan heim og gefið út fjöldann allan af plötum, auk þess að semja tónlist fyrir danshópa, leikhús og kvik- myndir. Tónleikarnir hefjast klukkan níu og aðgangs- eyrir er 1.500 krónur. Tónlist Tónlistarkokteill í Norræna húsinu Norræna húsið. BRÚÐUSTRÁKURINN Litli ferðaðist um Ísland árið 2004 ásamt franska ljósmynd- aranum Séverine Thévenet. Klukkan fimm í dag verður opnuð sýning í Borgar- bókasafninu í Tryggvagötu á myndum sem hún tók á ferða- laginu með Litla. Séverine Thévenet verður einnig með dagskrá fyrir börn í Borg- arbókasafninu á sunnudaginn klukkan þrjú þar sem þau fá tækifæri til að tjá sögu Litla í orðum út frá ljósmyndunum. Thévenet og Litli munu í framhaldinu heim- sækja nokkra skóla sem og Alliance française. Ljósmyndun Franskur brúðu- strákur á ferðalagi Thévenet með Litla á bakinu. Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is UM ALLAN heim eru hafnarborgir að breytast og endurnýjast um leið og hefðbundin hafnarstarfsemi flyst úr miðborgunum. Gömul hafnar- svæði ganga í endurnýjun lífdaga og þar er Reykjavík engin undantekn- ing. Í dag hefst alþjóðleg ráðstefna um borgarhönnun og hlutverk lista í op- inberu rými hafnarborga. Ráð- stefnan hefur verið í undirbúningi í tvö ár og að henni koma fjölmargir listamenn og hönnuðir. Fyrri hluti ráðstefnunnar fer fram í dag og verða frummælendur þeir Ólafur Elíasson myndlistarmaður, sem hef- ur meðal annars komið að hönnun nýja óperuhússins í Ósló og tón- listarhússins sem er að rísa við höfnina í Reykjavík, og arkitektinn Christopher Marcinkoski, sem er sérfræðingur á sviði landslags- arkitektúrs og borgarhönnunnar. Meira en skúlptúrar í görðum Kristján Steingrímur Jónsson er prófessor við Listaháskóla Íslands en skólinn stendur að ráðstefnunni í samstarfi við Kynningarmiðstöð ís- lenskrar myndlistar og Norræna húsið. „Við viljum meina það að skipulag og arkitektúr þurfi á listamönnum að halda til þess að vel takist til. Fókusinn er á hugmyndina um hafn- arborgir því auðvitað hefur höfnin áhrif á allan miðbæinn þannig að það liggur meira undir en bara hafn- arsvæðið,“ segir Kristján. „Hugtakið list í opinberu rými hefur breyst mjög mikið á und- anförnum árum og áratugum. List í opinberu rými er meira en bara ein- hverjir skúlptúrar í opinberum görðum. Við lítum á þetta sem miklu víðara hugtak og að listamenn eigi að geta tekið þátt í mótun umhverf- isins og unnið með arkitektum og skipulagsfræðingum eins og er gert mjög víða í heiminum í dag.“ Hafnarsvæðið í Reykjavík er að taka miklum breytingum um þessar mundir. „Þessi endurnýjun er í gangi mjög víða,“ segir Kristján. „Okkur finnst svo mikilvægt að nýta okkur reynsluna af því sem gert hef- ur verið annars staðar. Þess vegna finnst okkur áhugavert að fá þessa sérfræðinga að utan til þess að miðla af reynslu sinni. Við erum ekkert ey- land.“ Það eru ýmiskonar breytingar í bígerð í miðbænum, ekki bara við höfnina. „Það er svo mikilvægt að ræða umhverfið í kringum þessi hús og hvernig þetta tengist bæj- armyndinni. Þetta er allt samhang- andi svæði, Laugavegurinn, Hverf- isgatan og upp á Hlemm. Hafnarsvæðið má ekki verða eins og eyja,“ segir Kristján. „Tónlistar- húsið verður þarna niður frá og Listasafn Reykjavíkur og Listasafn Íslands eru ekki langt undan. Þjóð- leikhúsið er þarna nálægt og Listaháskólinn er búinn að fá stað þar fyrir ofan. Þessar stofnanir hanga allar saman og mynda ás sem liggur upp Laugaveginn og Hverf- isgötuna upp að Hlemmi. Þar í kring er líka mikið um að vera, við Höfða- torg og Barónsstíg. Það er mjög mikið sem liggur undir og þörf á því að skapa umræður um það hvernig á að vinna með þetta umhverfi.“ Ráðstefna um borgarhönnun og listir í opinberu rými í Norræna húsinu í dag Nýtt líf hafnarborga Kennileiti Nýja tónlistarhúsið með glerhjúpi Ólafs Elíassonar mun setja svip sinn á hafnarsvæðið. Í HNOTSKURN »Ráðstefnan hefst í Norrænahúsinu klukkan tíu í dag og stendur til fimm. »Seinni hluti hennar fer framþann 10. maí. Meðal þátttak- enda verða Kjetil Thorsen og Vito Acconci. ÁÐUR en Linda McCartney giftist Bítlinum fræga stundaði hún ljós- myndun við góðan orðstír. Hún var til dæmis fyrsta konan sem fékk birta mynd eftir sig á forsíðu tónlist- artímaritsins Rolling Stone, en það var andlitsmynd af Eric Clapton. Nýlega var opnuð sýning á verk- um hennar í James Hyman gall- eríinu í London. Eiginmaður henn- ar, Paul MacCartney, valdi 28 myndir á sýninguna sem hefur feng- ið góða dóma, til dæmis segir gagn- rýnandi Telegraph Lindu McCartn- ey eiga það skilið að vera minnst sem listamanns, en ekki aðeins fyrir það að hafa tekið myndir af frægu fólki. Myndirnar á sýningunni eru þó margar af frægum tónlistarmönnum á borð við Mick Jagger og Janis Joplin. Mynd af þeim Paul McCartn- ey og John Lennon sem tekin var í Abbey Road árið 1969 og sýnir þá vinna saman í sátt og samlyndi hefur vakið sérstaka athygli, enda hefur verið talið að á þeim tíma hafi ríkt djúpt ósætti milli þeirra. Myndir af McCartney-fjölskyldunni er einnig að finna á sýningunni sem og sjálfs- myndir Lindu. Ljósmyndir McCartney sýndar Portrett John Lennon árið 1968. Í UPPRUNALEGU útgáfu ball- ettsins Rómeó og Júlía eftir Prokofiev dansa þau skötuhjú ham- ingjusöm af sviðinu í lokin í stað þess að fyrirfara sér eins og Shake- speare gerði ráð fyrir. Þessi útgáfa fékkst þó aldrei sýnd, því sovésk yfirvöld kröfðust þess að endirinn yrði eins og í leik- ritinu. Í sumar verður ballettinn sýndur í fyrsta sinn með hinum gleðilegu örlögum elskendanna sem Prokofiev skrifaði. Það er Mark Morris danshópurinn sem hyggst setja ballettinn upp í þessari útgáfu á Bardscape sumarhátíðinni í New York. Engin sjálfsmorð ♦♦♦ Spennumyndaflokkurinn Mannaveiðar er til umfjöllunar á föstudagsfundi Íslensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunnar í dag. Björn B. Björnsson leik- stjóri og Sveinbjörn I. Bald- vinsson handritshöfundur Mannaveiða segja frá vinnu og hugmyndum að baki þáttaröð- inni. Þættirnir nutu mikilla vinsælda þegar þeir voru sýndir í Ríkisútvarpinu á dögunum og mældist áhorfið allt að 65 prósent. Fundurinn hefst í Þjóðminjasafninu klukkan tólf. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Sjónvarp Skeggrætt um Mannaveiðar Björn B. Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.